Ægir - 01.12.2016, Side 30
30
Þ
jón
u
sta
Með tilkomu vikulegra siglinga
milli Þorlákshafnar og Rotter-
dam í apríl á næsta ári stóreyk-
ur færeyska skipafélagið Smyril
Line Cargo þjónustu sína við ís-
lenska fiskútflytjendur og get-
ur þá boðið upp á afhendingu á
fiski í Evrópu tvisvar í viku; á
mánudagsmorgnum með ferj-
unni Norrænu frá Seyðisfirði og
á þriðjudagsmorgnum með
nýju vöruflutningaferjunni
Mykines frá Þorlákshöfn. Siglt
verður vikulega á milli Þorláks-
hafnar og Rotterdam og stytt-
ist flutningstími fyrir bæði inn-
og útflutning frá því sem nú er.
Smyril Line Cargo hefur siglt
með farþega til og frá Íslandi frá
1982. Allt frá því að Norræna
var tekin í notkun árið 2003 hef-
ur félagið boðið íslenskum inn-
og útflytjendum upp á svokall-
aða Ro/Ro vöruflutninga og
hafa þeir aukist umtalsvert frá
2009, eftir að Norræna hóf sigl-
ingar til Seyðisfjarðar allt árið.
Engar breytingar eru fyrirhug-
aðar á siglingum Norrænu milli
Seyðisfjarðar, Færeyja og Dan-
merkur en með tilkomu nýju
ferjunnar, sem á að hefja sigl-
ingar í byrjun apríl 2017, eykst
þjónusta Smyril Line Cargo enn
frekar við íslenska markaðinn
og tengslin við suðvesturhorn
landsins eflast.
Með stysta flutningstímann milli
Íslands og Evrópu
„Með því að bæta inn þessari
nýju þjónustu frá Þorlákshöfn
getum við boðið upp á heildar-
lausnir fyrir útflytjendur fiskaf-
urða frá Íslandi og flutningstím-
inn á þeirri leið verður jafnframt
sá stysti í sjóflutningum til og
frá landinu,“ segir Linda Björk
Gunnlaugsdóttir, framkvæmda-
stjóri Smyril Line Cargo á Ís-
landi. „Þannig getum við boðið
upp á afhendingu á fiski í Evr-
ópu tvisvar í viku; með Nor-
rænu frá Seyðisfirði á mánu-
dagsmorgnum og svo á þriðju-
dagsmorgnum með nýju ferj-
unni sem mun sigla beint til
Rotterdam frá Þorlákshöfn á
föstudagskvöldum.“
Einungis verður boðið upp á
vöruflutninga milli Þorlákshafn-
ar og Rotterdam og hefur Smyr-
il Line Cargo fest kaup á 19 þús-
und tonna ferju frá Finnlandi til
að þjóna þeim. Hún var smíðuð
í Noregi árið 1996, er ríflega 138
metra löng, tæplega 23 metra
breið og getur flutt 90 tengi-
vagna og 500 bíla í hverri ferð.
Ferjan hefur fengið nafnið Myk-
ines, hún er skráð í Færeyjum
og verða 24 í áhöfn.
Umsvif stóraukast í Þorlákshöfn
Smyril Line Cargo er fyrsta
skipafélagið sem hefur reglu-
bundnar vikulegar millilanda-
siglingar til Þorlákshafnar og
eru væntingar um að þær muni
stuðla að enn frekari vexti og
atvinnuuppbyggingu á svæð-
inu.
„Umsvif við höfnina munu
stóraukast og ljóst að störfum
mun fjölga í sveitarfélaginu,
bæði beint og óbeint, en við er-
um vel í stakk búin til að takast
á við þær áskoranir sem ferju-
siglingarnar hafa í för með sér,“
segir Gunnsteinn R. Ómarsson,
bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölf-
uss.
Miklar breytingar hafa verið
gerðar á höfninni í Þorlákshöfn
á undanförnum árum til að
skapa betri aðstæður fyrir haf-
sækna starfsemi og frekari
framkvæmdir eru á döfinni.
Höfnin hefur m.a. verið dýpkuð
til muna, byggð verður upp að-
staða til að taka á móti stórum
flutningaskipum og þar er mik-
ið landrými og lausar bygginga-
lóðir fyrir atvinnustarfsemi. Frá
Þorlákshöfn eru góðar og greið-
ar samgöngur til allra átta og
aðeins um 40 km til Reykjavíkur
og 85 km að Keflavíkurflugvelli
eftir Suðurstrandarvegi.
Samstarf við frystigeymsluna
Kuldabola
Fullbúin frystigeymsla, Kulda-
boli, er staðsett við höfnina í
Þorlákshöfn og verður hún
þjónustuaðili Smyril Line Cargo
segir Linda Björk Gunnlaugs-
dóttir, aðspurð nánar um það
Smyril Line Cargo eykur
þjónustu við íslenska
fiskútflytjendur
Smyril Line Cargo er eina skipafélagið sem býður upp á ferjuskipaflutninga á Norður Atlantshafi, eða svokall-
aða Ro/Ro vöruflutninga, sem tryggja vandaða og örugga vörumeðhöndlun, hvort sem um er að ræða frysti-
eða kælitengivagna eða flutning á öðrum varningi, s.s. fólksbílum og stórum ökutækjum.
„Með því að bæta inn þessari nýju
þjónustu frá Þorlákshöfn getum
við boðið upp á heildarlausnir
fyrir útflytjendur fiskafurða frá
Íslandi og flutningstíminn á
þeirri leið verður jafnframt sá
stysti í sjóflutningum til og frá
landinu,“ segir Linda Björk
Gunnlaugsdóttir, framkvæmda-
stjóri Smyril Line Cargo á Íslandi.