Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.2016, Síða 42

Ægir - 01.12.2016, Síða 42
42 Öll samtök sjómanna og vél- stjóra hafa nú fellt kjarasamn- inga við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi öðru sinni, nema Farmanna- og fiskimannasam- bandið. Það samþykkti kjara- samning sinn í sumar. Verkfall hóst því á ný þann 14. desemb- er og stendur enn þegar þetta er skrifað. Sú staða sem uppi er, þ.e. að öll þessi félög hafi í tví- gang fellt kjarasamninga sem samninganefndir þeirra hafa undirritað, er nokkuð sérstök. Það er ennfremur svolítið sér- stakt að sjómenn skuli vera í verkfalli á þessum tíma og hugsanlega yfir jól og áramót, þegar skipin eru að öllu jöfnu í höfn hvort eð er. Það voru Sjómannasam- band Íslands, Sjómanna- og vél- stjórafélag Grindavíkur, Sjó- mannafélag Íslands og Verka- lýðsfélag Vestfjarða sem felldu gerða samninga við SFS og voru þeir í öllum meginatriðum samhljóða, fyrir utan ákvæði um línuveiðar í samningi Grind- víkinga. Helstu þættir þess samnings voru eftirfarandi:  Kauptrygging háseta hækki úr 288.000 krónum frá 1. nóvember í ár í 327.000 1. desember 2018.  Ákvæði um árlega endur- skoðun fæðispeninga.  Ákvæði um breytingar á olíuverðsviðmiðun.  Ákvæði um niðurfellingu nýsmíðaálags í áföngum.  Ákvæði um skiptakjör á frystitogurum eftir fjölda um borð.  Hækkun hlífðarfatapen- inga.  Línuuppbót allt að 120.000 krónum ár ári á útilegubátum.  Miðað verði við 80% af fiskverði á mörkuðum í viðskiptum milli skyldra aðila.  Ákvæði um skiptahlutfall við fækkun úr 9 í 8 í áhöfn uppsjávarveiðiskipa.  Bókun um slysa- og veik- indarétt í skiptimanna- kerfum. Auk þessa var í samningnum ákvæði um skattfrjálsa dagpen- inga, sem snéri að stjórnvöld- um. Það sem í raun virðist brenna mest á sjómönnum er gífurleg tekjulækkun sjómanna á undanförnum misserum. Hún stafar að miklu leyti af mikilli hækkun á gengi íslensku krón- unnar gagnvart öllum helstu gjaldmiðlum. Sú hækkun kem- ur fyrst beint fram í tekjum sjó- manna á frystitogurum og á uppsjávarskipum vegna lækk- unar afurðaverðs. Þetta leiðir síðan til lækkunar svokallaðs viðmiðunarverðs í beinum við- skiptum og löndun í eigin vinnslu, en það er ákvarðað af Verðlagsráði skiptaverðs eftir ákveðnum reglum. Þetta verð hefur lækkað í áföngum um ná- lægt 30% á um það bil einu ári og nú síðast lækkaði verð á þorski og ýsu um 5% í byrjun desember. Þetta verð hefur ver- ið mun lægra en það 80% við- mið sem var í samningunum nú. Því hefur að nokkru leyti verð bætt úr þeim verðmun sem verið hefur milli fiskmark- aða og beinna viðskipta. Sjómönnum hefur ekki hugnast sú fækkun í áhöfn sem nú er að ganga yfir á uppsjávar- skipum og einhverju leyti tog- urum líka. Útgerðin réttlætir þá fækkun með mun betri vinnu- aðstöðu um borð í nýrri skip- um, sem leiði til þess að færri hendur þurfi um borð. Samtök sjómanna hafa gagnrýnt þá Mikil tekjulækkun setur mark sitt á kjara- baráttu sjómanna Höfundur er Hjörtur Gíslason, ritstjóri kvotans.is. F rétta sk ý rin g

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.