Morgunblaðið - 26.07.2016, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016
Eitt af því sem gerir íslenskanáttúru kjörna til útivist-ariðkunar er að hér þrífast
engin stór rándýr eða eitraðir
snákar. Meira að segja pöddur,
flugur og önnur smákvikindi eru
upp til hópa skaðlaus. Þetta er
munaður sem flestar aðrar þjóðir
búa ekki við, og gerir okkur mun
hægara um vik að njóta landsins
áhyggjulaus.
Það er þó ekki þar með sagt að
engar séu hætturnar. Í staðinn fyr-
ir skógarbirni höfum við var-
hugaverða jökla, í staðinn fyrir eit-
ursnáka er blessað og dyntótt
veðrið og í stað smitberandi mosk-
ítóflugna höfum við fjöll, dali og gil
sem biðjast ekki afsökunar þó
ferðamenn rati í villur.
Sem betur fer er til þess að gera
sjaldgæft að fólk lendi í mikils-
háttar vandræðum við útivist-
ariðkun, en þegar það gerist getur
það skilið á milli lífs og dauða að
kunna rétt viðbrögð. Hér gildir því
sú gamla vísa að fara sér hægt og
byggja upp reynslu smám saman, í
stað þess að ráðast strax á garðinn
þar sem hann er hæstur.
Þeir sem leita til fjalla, eða í aðr-
ar óbyggðir, ættu að afla sér þekk-
ingar um forvarnir og viðbrögð við
ofkælingu, og fara á öll þau skyndi-
hjálparnámskeið sem þeir komast
yfir. Þá er kunnátta í kortalestri
mikilvægari en margir halda.
Slysavarnafélagið Landsbjörg held-
ur reglulega námskeið þar sem al-
menningur getur öðlast eða bætt
þekkingu sína á þessum sviðum og
er óhætt að mæla með þeim.
Kakóbolli í kulda
Kuldinn hefur reynst mörgum
ferðamanninum fjötur um fót og til
eru dæmi um að fólk deyi úr ofkæl-
ingu að sumri til. Besta ráðið er
öflug forvörn – að kólna ekki. Öll
bleyta, hvort sem hún kemur af
himni ofan eða í formi svita, eykur
hættuna margfalt og ferðalangar
ættu því að forðast í lengstu lög að
bleyta fatnað sinn og búnað. Ef
hlífðarfatnaðurinn dugar ekki til
getur eina ráðið verið að leita
skjóls.
Þegar það er ekki í boði, og við
Útivist fyrir alla
Starfsfólk á fjölskyldutjaldsvæðinu við Úlfljótsvatn gefur góð ráð fyrir útileguna
Að bregðast rétt
við aðstæðum
Skátahornið
Elín Esther
Magnúsdóttir
House“, sem er einskonar sam-
keppni, en þá komum við Dana tveir
inn sem skapandi teymi, en það
voru fimmtíu manns sem tóku þátt.
Þetta voru tíu lið og við dvöldum öll
saman á ráðstefnuhóteli í Toronto í
viku og unnum að okkar tillögum.
Við vorum með millikynningar á
þeim í miðri viku, en á lokadeginum
voru þrjár tillögur valdar til að
kynna fyrir viðskiptavininum, Ford.
Við Dana komumst í loka þrjár í
báðum tilvikum, og okkar tillögur
voru síðan valdar sem vinnings-
tillögurnar sem voru fram-
kvæmdar.“
Húsmæður kaupa jeppana
Einar segir þessar tvær aug-
lýsingarherferðir fyrir Ford hafa
verið ólíkar. „Það sem var nýtt í
okkar framlagi með fólksbílana
snerist um að gefa ímynd Ford nýtt
útlit. Við notuðum Ford-lógóið
stórt, með sterkum litum og höfðum
bílana ágenga. Þetta var alveg nýtt
fyrir Ford, að skammast sín ekkert
fyrir að vera Ford. Hinn almenni
borgari gat líka tekið þátt á netinu
með því að velja sér bíl og hanna
eigin bakgrunn á bílaauglýsingu
fyrir hann, með ákveðnum formum
sem voru í boði. Síðan birtist sú
mynd einhvers staðar sem hluti af
herferðinni. Þessi herferð fór í loftið
síðastliðið haust og hún fékk verð-
laun í mars, fyrir bestu samþættu
(intergrated) auglýsingaherferð í
bílabransanum í Bandaríkjunum.“
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við Dana Satterwhitekynntumst í háskóla íBandaríkjunum árið 1993,þegar ég var þar við nám
í auglýsinga- og markaðsfræði, og
við höfum verið bestu vinir og sam-
starfsmenn síðan. En við stofnuðum
ekki fyrirtækið okkar, Quiver, fyrr
en árið 2014. Við gefum okkur út
fyrir að vera skapandi fyrir hvers-
konar fyrirtæki, við erum ekki aug-
lýsingastofa í hefðbundnum skiln-
ingi heldur erum við einskonar
málaliðar sem vinna með auglýs-
ingastofum og öðrum þegar við tök-
um að okkur verkefni. Dana sér um
textagerð en ég sé um útlitshönnun.
En við skiptumst á og göngum hvor
í annars verk, þess vegna köllum við
okkur „seamless minds“. Við viljum
ekki skilgreina okkur, við erum
landamæralausir og neitum að láta
setja okkur í einhvern kassa,“ segir
Einar Örn Sigurdórsson sem bjó og
starfaði í fjórtán ár á hugmynda- og
hönnunarsviðum helstu auglýsinga-
stofa Boston og Washington. Hann
var líka hönnunarstjóri á hug-
myndasviði DDB Worldwide í New
York og starfaði sem hönn-
unarstjóri hjá Íslensku auglýsinga-
stofunni í sjö ár eftir að hann flutti
heim. Dana hefur einnig áralanga
reynsu að baki á sama sviði, svo
þeir félagarnir eru engir nýgræð-
ingar í bransanum.
„Það kemur sér vel að vera
með öflugt tengslanet, því við þurf-
um að ráða til okkar einstaklinga í
teymin hjá okkur sem sjá um kvik-
myndaleikstjórn, hönnun og fleira,
eftir því sem hentar hverju verk-
efni,“ segir Einar og bætir við að
flest verkefnin þeirra séu í Banda-
ríkjunum, en eitt og eitt hér heima.
Tóku þátt í Hot House
Einar og Dana gerðu nýlega
tvö kynningarverkefni fyrir Ford-
bílaframleiðandann í Bandaríkj-
unum, annað var fyrir fólksbílana
sem Ford framleiðir en hitt fyrir
jeppana.
„Í báðum tilvikum var okkur
boðið að taka þátt í svokölluðu „Hot
Bræður með
mismunandi
mæður
Þeir tóna vel saman sem manneskjur og vinna
sem einn hugur. Þeir eru bestu vinir og segjast
vera bræður með mismunandi mæður. Þeir Einar
og Dana eiga saman sköpunarfyrirtækið Quiver,
Einar býr á Íslandi en Dana í Bandaríkjunum.
Þeir hafa gert tvær auglýsingaherferðir fyrir Ford-
bílaframleiðandann í Bandaríkjunum, en í bæði
skiptin sigruðu tillögur þeirra í samkeppni við
aðra sem tóku þátt. Næsta verkefni felst í að
markaðssetja í New York japanskt hrísgrjónavín.
Plaköt Í herferðinni voru m.a. auglýsingaspjöld sem fóru á strætóskýli.
Á góðri stundu Vinirnir og samstarfsfélagarnir Dana og Einar með dætur sínar, Shea og Unu.
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is