Morgunblaðið - 26.07.2016, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.07.2016, Qupperneq 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016 Einar og Dana hafa starfað fyrir mörg virt fyrirtæki og meðal viðskiptavina sem þeir hafa unnið fyrir saman eru:  Crown Royal (kanadískt viskí)  Stolichnaya  Lincoln Motor Co  Mercedes Benz  Krups  Toshiba Einar Örn vann að auglýs- ingaherferðinni Inspired by Ice- land með samstarfsfólki sínu á Íslensku auglýsingastofunni. Sköpunarfyrir- tækið Quiver MERCEDES BENZ OG FLEIRI erum byrjuð að kólna, skiptir máli að borða og drekka vel, til að gefa líkamanum eldsneyti til að halda sér heitum. Heitur matur og drykkur heldur ekki bara á manni hita, hann stuðlar líka að betri stemmingu og eykur jákvæðni. Ljúffengur kakóbolli gæti því verið akkúrat það sem þarf, til dæmis þegar slóðinn er horfinn og við finnum hann ekki aftur. Í stað þess að æða stefnulaust áfram í leit að kunnuglegu kennileiti er yfirleitt betra að nema staðar, leita skjóls, nærast og fara yfir stöðuna í róleg- heitunum. Ef maður er ekki með það á hreinu hvar maður er og hvernig maður kemst aftur á rétta slóð, er eina vitið að halda kyrru fyrir og biðja um aðstoð. Á vit ævintýranna Það er, þegar öllu er á botninn hvolft, miklu einfaldara að finna einhvern sem er ekki á hreyfingu. Þó að óhöppin geti alltaf gerst er ástæðulaust að láta það aftra sér frá því að halda út á vit ævintýr- anna – betra er að vera vel und- irbúinn og vita hvernig á að takast á við fjölbreyttar aðstæður. Höfundur er útivistarskáti, björgunarsveitarkona og starfs- maður Úlfljótsvatns. Hlýtt og gott Jafnt að sumri sem vetri er mikilvægt að klæða sig vel. Í herferðinni fyrir jeppana voru þeir með allt aðrar áherslur. „Þá snerist þetta ekki um útlit bílanna, heldur meira um texta eða yfirlýsingu. Tilfellið er að flestir þeirra sem kaupa þessa jeppa í Bandaríkjunum eru húsmæður sem fara aldrei út af malbikinu. Út- gangspunkturinn hjá okkur var að jeppinn er hluti af fjölskyldulífi og lykilsetningin var „Life is a sport“. Og jeppinn er tæki til að takast á við það sport. Veiðar geta þá snúist um að leita að gítar í gítarbúð, eða sjaldgæfum antíkhlut í fornsölu. Við gáfum sportinu nýja merkingu, inni í borginni. Við höfðuðum til raun- verulegs notagildis jeppans en ekki einhverrar útópíu, því fólk fer ekki á fjall á hverjum degi á jeppanum sínum, en það notar bílinn alla daga í hversdagslífinu.“ Ekki öskrandi prímadonnur Einar segir að það sé skemmti- legt að vera sá sem leggur línurnar, kemur með stóru hugmyndina, en síðan er allt annað fólk sem sér um að framkvæma og vinna úr því sem þeir leggja fyrir. En hvernig geng- ur að vera sammála um niðurstöðu þegar þeir tveir vinna saman hug- myndavinnu, takast þeir aldrei á, vinirnir? „Við vinnum afar vel sam- an, við erum með svipað geðslag og hugsum á líkum nótum, hvorugur okkar er öskrandi prímadonna. Við erum á sömu blaðsíðu og fyrir vikið gengur samstarfið átakalaust. Við höfum unnið saman í meira en tutt- ugu ár og höfum aldrei rifist, það segir allt um hversu samtaka við er- um. Við erum bræður með mismunandi mæður,“ segir Einar og hlær. „Við búum ekki til óþarfa drama og við eigum auðvelt með að næra hvor annan. Hug- myndavinna er alltaf einhverskonar flæði, þar sem ein hugmynd fæðir af sér aðra, og okkur tekst einhvern veginn að setja hvor annan inn í flæðið átakalaust. Þetta er mjög sjaldgæft og dýrmætt. Við berum mikla virðingu hvor fyrir öðrum.“ Eigum líf fyrir utan vinnuna Nýjasta verkefni þeirra félaga er á hitabeltiseyjunni Okinawa í Japan. „Þrjár auglýsingastofur tóku þátt í samkeppni um þetta verkefni og við lönduðum því. Þetta er kynningarverkefni sem snýst um að markaðssetja í New York hrís- grjónabrennivínið Awamori, sem er fjögur hundruð ára gömul vara, en ekkert þekkt á Vesturlöndum. Við sjáum líka um að hanna útlitið á flöskunum. Áður en Awamori-vínið verður markaðssett í New York, þá verður það prufumarkaðssett í Reykjavík. Ég stakk upp á því í ein- hverju bríaríi og það fór svona vel í eigendur brugghússins þegar ég sagði „frá einni eldfjallaeyju til ann- arrar“,“ segir Einar og bætir við að þeir Dana vinni þetta verkefni með auglýsingastofu á Manhattan. „Við viljum ekki vera með mörg verkefni í einu, af því við vilj- um njóta vinnunnar okkar og hún á að vera skemmtileg. Auk þess vilj- um við eiga líf fyrir utan vinnuna. Þetta er mikil skorpuvinna, við vinnum nánast í tuttugu og fjóra tíma á sólarhring alla vikuna þegar verkefni fara á fullt. Þetta er eins og sjómennska, og við viljum hafa góðan tíma til að anda á milli túra.“ Stórt Intergrated-herferð, eða samþætt, felur meðal annars í sér risastór spjöld sem birtast á götum úti, eins og hér má sjá með útfærslu þeirra fyrir Ford. Focus Ein af mörgum útfærslum Einars og Dana á veggspjöldum fyrir herferðina. „Við viljum hafa góðan tíma til að anda á milli túra.“ SMÁRALIND www.skornirthinir.is Verð 34.995 stærðir 38-47 - Tepor dry filma veitir 100% vatnsheldni - 4 mm gúmmíborði (grjót- og sandvörn) - Innsóli: Ortholite - Sóli: Vibram - Þyngd: 840 gr (í stærð 42) Mondeox Tonale Fas Ítalskir gönguskór - Leður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.