Morgunblaðið - 26.07.2016, Side 16
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í október næstkomandi verður opn-
aður nýr Hard Rock-staður í Lækj-
argötu, í húsnæði sem áður hýsti
bókaverslunina Iðu. Þar mun kenna
ýmissa grasa og meðal annars verð-
ur sérstök
áhersla lögð á lif-
andi íslenska tón-
list á staðnum.
Það eru við-
skiptafélagarnir
Birgir Þór Bielt-
vedt og Högni
Sigurðsson sem
standa að opnun
staðarins.
Birgir Þór seg-
ir að ætlunin sé að
opna staðinn í aðdraganda Iceland
Airwaves-hátíðarinnar og að hann
verði að mörgu leyti frábrugðinn
þeim Hard Rock-stað sem Íslending-
ar horfðu á eftir árið 2005 en stað-
urinn hafði þá verið í rekstri frá
árinu 1987 hérlendis.
Frumkvæðið kom að utan
„Forsvarsmenn Hard Rock í
Bandaríkjunum leituðu til mín þegar
þeir voru búnir að kynna sér veit-
ingageirann hérlendis og hvert um-
fang hans væri. Þeir höfðu fylgst
með mér hjá Dominos. Þegar þetta
verkefni kom upp í hendurnar á mér
fór mig að klæja í fingurna að komast
í færi til að breyta gömlu ásýndinni á
Hard Rock sem er bleikur Cadillac
og allt það og hins vegar vissi ég að
það væri mikil þörf á svona stað í
miðbæ Reykjavíkur. Ég setti því tvö
skilyrði. Annars vegar það að ég
fengi að hafa puttana í því að aðlaga
staðinn íslenskum aðstæðum og hins
vegar það að fá gott húsnæði í mið-
borg Reykjavíkur undir hann.“
Forsvarsmenn Hard Rock féllust
á skilyrði Birgis. Þá hófst leit að
hentugu húsnæði og hann sá tæki-
færi í hinni miklu glerbyggingu við
Lækjargötu.
„Hard Rock er eitt best þekkta
veitingahúsamerki í heiminum og er
á topp tíu listanum hvað það varðar.
Hard Rock er því eins konar stofnun.
Það sem hins vegar hefur verið að
gerast á síðustu árum er að Hard
Rock hefur verið að opna hótel undir
sínu nafni og þeim er beint að unga
fólkinu. Fyrirtækið er því að sækja
meira í yngri aldurshópa. Ég held því
að það sé stór hópur gamalla aðdá-
enda Hard Rock hérlendis, margir
ferðamenn sem þangað vilja koma og
svo unga kynslóðin hér heima. Það
má til dæmis nefna að það hafa nokk-
ur nemendafélög í framhaldsskólum
nú þegar haft samband og leitað eftir
sérsamningum fyrir nemendur. Þar
er um að ræða krakka sem ekki hafa
borðað á Hard Rock hérlendis. Það
er nokkuð áhugavert.“
Tónleikahald í pípunum
Birgir segir að á nýja staðnum
verði mikil áhersla lögð á gæði í mat-
argerð og góða upplifun gesta. Þá
verði þriðja aðila gefið tækifæri til að
opna verslun í rými sem nær yfir um
helming jarðhæðarinnar.
„Við ætlum að fara inn í tónleika-
hald. Þegar ég var búinn að teikna
staðinn upp nokkrum sinnum þá átt-
aði ég mig á því að það að ætla að
hafa veitingastað á þremur hæðum á
1.300 fermetrum var allt of mikið.
Þannig ætlum við að byggja staðinn
upp með þeim hætti að það verður
verslun í óskyldum rekstri á helm-
ingi jarðhæðarinnar. Okkar rými
verður með móttöku og verslun og
svo getur fólk valið um að fara á efri
hæðina þar sem er nokkuð hefðbund-
inn staður og bar. Þar verður frá-
bært útsýni. Svo verður hægt að fara
niður í kjallara en þar verður kokteil-
bar en einnig verður þar svið þar
sem verður frábær aðstaða fyrir tón-
leika, uppistand og ýmislegt af þeim
toga. Við ætlum að vinna ötullega að
því að styðja við íslenska tónlist á
staðnum. Þar liggja mikil tækifæri.
Útlitið verður mun nýstárlegra en
var þótt það verði nokkur klassísk
einkenni til staðar.“
Hard Rock verður með nýju
sniði í miðborg Reykjavíkur
Morgunblaðið/Júlíus
Opnun Staðurinn verður opnaður á þremur hæðum í Lækjargötu 2a nú í október. Bar og tónleikasalur í kjallara.
Áhersla lögð á lifandi tónlist á neðstu hæðinni Verslunarrými leigt út á jarðhæð
Birgir Þór
Bieltvedt
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016
26. júlí 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.72 122.3 122.01
Sterlingspund 159.8 160.58 160.19
Kanadadalur 92.36 92.9 92.63
Dönsk króna 17.967 18.073 18.02
Norsk króna 14.194 14.278 14.236
Sænsk króna 14.069 14.151 14.11
Svissn. franki 123.5 124.2 123.85
Japanskt jen 1.1448 1.1514 1.1481
SDR 168.4 169.4 168.9
Evra 133.68 134.42 134.05
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.7355
Hrávöruverð
Gull 1315.0 ($/únsa)
Ál 1600.0 ($/tonn) LME
Hráolía 46.21 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Aðstæðum á
vinnumarkaði svip-
ar til þess sem var
áður en fjár-
málakreppan skall
á samkvæmt grein-
ingu Arion banka.
Meðalatvinnuleysi
síðustu tólf mánuði
hefur ekki verið
lægra síðan í árs-
byrjun 2009 og
mælist nú 3,5 prósent samkvæmt
könnun Hagstofunnar og 2,5 prósent
samkvæmt skráningu Vinnumálastofn-
unar.
Fyrir þau tólf þúsund störf sem töp-
uðust á árunum 2008 til 2010 hafa
16.300 störf komið í staðinn. Flest störf
eða 3.300 eru við verslun og viðgerðir
en 3.200 störf hafa orðið til við rekstur
gisti- og veitingastaða.
Starfandi konum fjölgaði um 7.200 á
tímabilinu 2010-2015 en starfandi körl-
um yfir sama tímabil um 9.100.
Störfum fjölgað um
16.300 frá hruni
Fjöldi starfa í
ferðaþjónustu.
STUTT
Sigurður Már Guðjónsson, bakara-
meistari og eigandi Bernhöftsbakar-
ís, hefur keypt Björnsbakarí við
Skúlagötu og sameinast því tvö elstu
bakarí landsins.
„Ég keypti allt saman, reksturinn,
tækin og nafnið og því má með réttu
segja að verið sé að sameina tvö elstu
bakarí landsins, Bernhöftsbakarí og
hið upprunalega Björnsbakarí,“ segir
Sigurður Már sem ætlar að bjóða upp
á það besta úr bakaríunum tveimur.
„Björnsbakarísnafnið verður ekki
lagt niður en það er ekki alveg ákveð-
ið hvað verður um það.
Betra en í Bergstaðastræti
Ný staðsetning er að sögn Sigurðar
Más ekki nema 600 metra frá gamla
staðnum í Bergstaðastræti en á tölu-
vert betri stað.
„Íbúasamsetningin er önnur við
Björnsbakarí, þar sem íbúum hefur
fjölgað t.d. á Lindargötunni, á meðan
íbúum hefur fækkað þar sem Bern-
höftsbakarí var við Bergstaðastræti
vegna fjölda Airbnb-íbúða. Við feng-
um kannski ágætis rennsli á morgn-
ana en síðan gat verið lítið að gera yfir
daginn.“
Eins bendir Sigurður Már á að ekki
sé sami bílastæðavandi við Skúlagötu
og í Bergstaðastrætinu.
„Það var ekki orðin nokkur leið að
komast að bakaríinu, m.a. vegna bíla-
stæðavanda, en það verður ekki
vandamál við Skúlagötu. Þá förum við
líka í stærra húsnæði. Förum úr 140
fm í 232 fermetra og getum því sinnt
okkar viðskiptavinum betur.“
vilhjalmur@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Brauð Sigurður Már Guðjónsson
færir baksturinn um 600 metra.
Elstu bakarí borg-
arinnar sameinast
Bernhöftsbakarí
kaupir Björnsbak-
arí við Skúlagötu
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?