Morgunblaðið - 26.07.2016, Síða 19

Morgunblaðið - 26.07.2016, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016 Fyrirmyndarveiðimenn Þessir ungu og bráðefnilegu veiðimenn dorguðu af kappi og forsjá í Reykjavíkurhöfn í gær, stefndu ekki fiskstofnum í hættu og gættu fyllsta öryggis við veiðarnar. Ófeigur Það er sama til hvaða mælikvarða er litið. Á þremur árum hefur ríkisstjórn Ís- lands náð árangri sem er einstakur í saman- burði við önnur þróuð ríki. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Ég hef áður bent á hversu mikilvægt er að halda því til haga að þegar viðraðar voru hugmyndir um að flýta kosn- ingum var það háð því að fyrst tækist að klára mikilvæg verkefni ríkisstjórnarinnar. Áætlunin Þegar ríkisstjórnin var mynduð gerðum við samning til fjögurra ára. Eins og ég hef áður lýst unn- um við eftir heildaráætlun um hvernig við gætum náð mark- miðum okkar á þessum fjórum ár- um. Áætlunin, fjögurra ára planið, skiptist í megindráttum í tvennt. Fyrri áfanginn snerist um hvernig taka ætti á þeim stóra vanda sem beið okkar, seinni hlutinn um hvernig standa ætti að sókninni og uppbyggingunni sem svo ætti, og þyrfti, að taka við. Fyrri hlut- inn snerist um að takast á við vandamál, seinni hlutinn um að nýta tækifæri. Til að leysa vandamálin þurfti að mínu mati að blanda saman erfiðum en margreyndum aðgerð- um annars vegar og óhefð- bundnum og róttækum aðgerðum hins vegar. Það þurfti til dæmis einbeittan vilja til að hætta skuldasöfnun og reka ríkissjóð með afgangi öll ár kjörtímabilsins samhliða því að innleiða hvata til fjárfestingar og verðmætasköpunar. En ríkisstjórnin þurfti líka að vera reiðubúin til að ráð- ast í aðgerðir sem engin stjórnvöld nokkurs staðar höfðu nokkurn tíma reynt, hluti á borð við al- menna skuldaleið- réttingu og aðgerðir til að fá kröfuhafa bankanna til að af- sala sér hundruðum milljarða króna sam- hliða afnámi fjármagnshafta – hluti sem sagðir voru óraunhæfur popúlismi, skýjaborgir, og ólög- mæt eignaupptaka svo nefnd séu dæmi um hófstilltari hluta gagn- rýninnar sem við kvað. Árangurinn Þrátt fyrir þetta var ég bjart- sýnn. Ég hafði trú á verkefninu. Ég var sannfærður um að þetta væri allt hægt og efaðist ekki um tækifæri landsins. En þrátt fyrir að ég hafi verið bjartsýnn við upphaf vinnunnar gekk hún betur en jafnvel ég þorði að vona. Það gerðist á hinn bóginn ekki af sjálfu sér, síður en svo. Laga- breytingar til að örva verðmæta- sköpun og aðhaldssöm fjárlög kölluðu á stöðuga og oft á tíðum harða gagnrýni síðustu fjóra mán- uði hvers árs. Það var þó ekkert miðað við stríðið sem leiddi af áformum um að láta vogunarsjóði og aðra kröfuhafa föllnu bank- anna borga fyrir losun gjaldeyris- hafta og endurreisn efnahagslífs- ins, eins og ég mun greina betur frá síðar. Þeir sem fylgjast með stjórnmálum muna þó væntanlega eftir dæmum um það sem á gekk í þeim slag, slag þar sem vogunar- sjóðirnir vörðu á skömmum tíma 20 milljörðum króna í hags- munagæslu. Afrakstur vinnunnar birtist í vel yfir 1.000 milljarða króna við- snúningi á stöðu ríkisins, líklega nær 1.500 milljörðum. Breytingin fyrir samfélagið í heild er enn meiri. Enn hefur ekki verið bent á annan eins efnahagslegan við- snúning í seinni tíma hagsögu. Lee Buchheit kallaði enda þann þátt sem sneri að losun hafta og fjárútlátum kröfuhafa einstakan í fjármálasögu heimsins. Framhaldið Við erum því einstaklega vel í stakk búin til að framfylgja seinni hluta áætlunarinnar, betur en nokkur hefði trúað, og það verð- um við að gera. Þótt lengst af hafi gengið vel að framfylgja stjórn- arsáttmálanum eru nokkur mik- ilvæg verkefni ókláruð. Það eru verkefni sem teljast til seinni hluta fjögurra ára plansins. Nú eru forsendur til að klára þau öll og ótækt að gera það ekki. Sum þessara verkefna snúast um aðkallandi framhald vinnu við það sem kalla mætti endurbætur á reglunum sem samfélagið starf- ar eftir. Önnur snúa að fjárfest- ingu og því að nýta hinn mikla efnahagslega árangur til upp- byggingar. Leiðrétting fyrir eldri borgara Um síðustu áramót gáfum við fyrirheit um að áfram yrði lögð áhersla á að bæta kjör eldri borg- ara og tryggja að efnahagslegur árangur skilaði sér í bættum lífs- kjörum lífeyrisþega. Samhliða því stóð til að endurskoða örorkubæt- ur og raunar bótakerfið í heild. Pétursnefndin svo kallaða (kennd við Pétur H. Blöndal og síðar undir forystu Þorsteins Sæ- mundssonar) hefur skilað af sér tillögum um mikilvægar úrbætur í lífeyriskerfinu. Það er óhugsandi fyrir ríkisstjórn sem náð hefur þeim árangri sem við höfum skil- að á síðast liðnum þremur árum að vanrækja að skila þeim árangri áfram til fólksins sem byggði upp samfélagið sem við njótum nú góðs af. Búsetujafnrétti Frá upphafi hef ég lagt áherslu á að eitt af mikilvægustu verk- efnum þessarar ríkisstjórnar væri að vinna að umfangsmiklum úr- bótum á því sem nefna má bú- setujafnrétti. Reyndar snýst það um meira en jafnrétti landsmanna óháð búsetu. Það snýst um að tryggja að árangur Íslendinga nýtist landinu öllu svo að landið allt nýtist við að ná árangri fyrir Íslendinga. Í þjóðhátíðardagsræðu var ég afdráttarlaus um að úrbætur í þessu efni væru forgangsmál á seinni hluta kjörtímabilsins. Ég útskýrði að við stæðum á þeim tímamótum að ekki væri forsvar- anlegt að bíða lengur með að vinna að bættum fjarskiptum um allt land, einkum ljósleiðaravæð- ingu, samgöngubótum, endurreisn heilbrigðis- og menntakerfisins á landsbyggðinni auk þess að tryggja forsendur fyrir eðlilegri atvinnusköpun. Hið síðastnefnda snýst um að stjórnvöld skapi þær aðstæður að ný störf verði til um allt land, bæði hjá hinu opinbera og með einkarekstri. Þessi ríkisstjórn verður að skila áþreifanlegum árangri fyrir byggðir landsins. Klári hún það ekki mun önnur ríkisstjórn ekki gera það. Skaðinn af því að van- rækja stærstan hluta landsins yrði mikill fyrir landið allt. Aðrir innviðir Óþarfi er að telja upp þá fjöl- mörgu mikilvægu innviði landsins sem nauðsynlegt er að halda áfram að bæta nú þegar við höf- um efni á því og tækifæri til þess. Á mörgum sviðum höfum við þó ekki aðeins tækifæri til að setja meiri peninga í verkefnin, við get- um líka leyft okkur að hugsa upp á nýtt með hvaða hætti við stönd- um að uppbyggingunni. Það á ekki hvað síst við á sviði heil- brigðismála. Fjármálakerfið og verðtrygging Loks nefni ég mikilvægi þess að ríkisstjórnin hverfi ekki frá því gríðarmikilvæga verkefni að laga fjármálakerfið á Íslandi og losa samfélagið úr viðjum verðtrygg- ingar. Samhliða því þarf að gera ungu fólki auðveldara og ódýrara að taka óverðtryggð lán og eign- ast húsnæði. Allt er þetta hægt enda hefur það verið í undirbún- ingi í þrjú ár. Sá undirbúningur fólst í því að búa til forsendurnar (ríkið hefur t.a.m. yfirtekið fjármálakerfið að mestu leyti) og svo að hanna bestu leiðina. Það er allt til reiðu. Fjögurra ára planið hefur gengið upp til þessa. Nú er viljinn allt sem þarf til að klára það. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson » Fjögurra ára planið hefur gengið upp til þessa. Nú er viljinn allt sem þarf til að klára það. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Framsóknarflokksins. Það sem ekki má bíða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.