Morgunblaðið - 26.07.2016, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016
Fyrirmyndarveiðimenn Þessir ungu og bráðefnilegu veiðimenn dorguðu af kappi og forsjá í Reykjavíkurhöfn í gær, stefndu ekki fiskstofnum í hættu og gættu fyllsta öryggis við veiðarnar.
Ófeigur
Það er sama til
hvaða mælikvarða er
litið. Á þremur árum
hefur ríkisstjórn Ís-
lands náð árangri sem
er einstakur í saman-
burði við önnur þróuð
ríki. Slíkt gerist ekki
af sjálfu sér.
Ég hef áður bent á
hversu mikilvægt er
að halda því til haga
að þegar viðraðar
voru hugmyndir um að flýta kosn-
ingum var það háð því að fyrst
tækist að klára mikilvæg verkefni
ríkisstjórnarinnar.
Áætlunin
Þegar ríkisstjórnin var mynduð
gerðum við samning til fjögurra
ára. Eins og ég hef áður lýst unn-
um við eftir heildaráætlun um
hvernig við gætum náð mark-
miðum okkar á þessum fjórum ár-
um. Áætlunin, fjögurra ára planið,
skiptist í megindráttum í tvennt.
Fyrri áfanginn snerist um hvernig
taka ætti á þeim stóra vanda sem
beið okkar, seinni hlutinn um
hvernig standa ætti að sókninni
og uppbyggingunni sem svo ætti,
og þyrfti, að taka við. Fyrri hlut-
inn snerist um að takast á við
vandamál, seinni hlutinn um að
nýta tækifæri.
Til að leysa vandamálin þurfti
að mínu mati að blanda saman
erfiðum en margreyndum aðgerð-
um annars vegar og óhefð-
bundnum og róttækum aðgerðum
hins vegar. Það þurfti til dæmis
einbeittan vilja til að hætta
skuldasöfnun og reka ríkissjóð
með afgangi öll ár kjörtímabilsins
samhliða því að innleiða hvata til
fjárfestingar og
verðmætasköpunar.
En ríkisstjórnin
þurfti líka að vera
reiðubúin til að ráð-
ast í aðgerðir sem
engin stjórnvöld
nokkurs staðar höfðu
nokkurn tíma reynt,
hluti á borð við al-
menna skuldaleið-
réttingu og aðgerðir
til að fá kröfuhafa
bankanna til að af-
sala sér hundruðum
milljarða króna sam-
hliða afnámi fjármagnshafta –
hluti sem sagðir voru óraunhæfur
popúlismi, skýjaborgir, og ólög-
mæt eignaupptaka svo nefnd séu
dæmi um hófstilltari hluta gagn-
rýninnar sem við kvað.
Árangurinn
Þrátt fyrir þetta var ég bjart-
sýnn. Ég hafði trú á verkefninu.
Ég var sannfærður um að þetta
væri allt hægt og efaðist ekki um
tækifæri landsins. En þrátt fyrir
að ég hafi verið bjartsýnn við
upphaf vinnunnar gekk hún betur
en jafnvel ég þorði að vona.
Það gerðist á hinn bóginn ekki
af sjálfu sér, síður en svo. Laga-
breytingar til að örva verðmæta-
sköpun og aðhaldssöm fjárlög
kölluðu á stöðuga og oft á tíðum
harða gagnrýni síðustu fjóra mán-
uði hvers árs. Það var þó ekkert
miðað við stríðið sem leiddi af
áformum um að láta vogunarsjóði
og aðra kröfuhafa föllnu bank-
anna borga fyrir losun gjaldeyris-
hafta og endurreisn efnahagslífs-
ins, eins og ég mun greina betur
frá síðar. Þeir sem fylgjast með
stjórnmálum muna þó væntanlega
eftir dæmum um það sem á gekk í
þeim slag, slag þar sem vogunar-
sjóðirnir vörðu á skömmum tíma
20 milljörðum króna í hags-
munagæslu.
Afrakstur vinnunnar birtist í
vel yfir 1.000 milljarða króna við-
snúningi á stöðu ríkisins, líklega
nær 1.500 milljörðum. Breytingin
fyrir samfélagið í heild er enn
meiri. Enn hefur ekki verið bent á
annan eins efnahagslegan við-
snúning í seinni tíma hagsögu.
Lee Buchheit kallaði enda þann
þátt sem sneri að losun hafta og
fjárútlátum kröfuhafa einstakan í
fjármálasögu heimsins.
Framhaldið
Við erum því einstaklega vel í
stakk búin til að framfylgja seinni
hluta áætlunarinnar, betur en
nokkur hefði trúað, og það verð-
um við að gera. Þótt lengst af hafi
gengið vel að framfylgja stjórn-
arsáttmálanum eru nokkur mik-
ilvæg verkefni ókláruð. Það eru
verkefni sem teljast til seinni
hluta fjögurra ára plansins. Nú
eru forsendur til að klára þau öll
og ótækt að gera það ekki.
Sum þessara verkefna snúast
um aðkallandi framhald vinnu við
það sem kalla mætti endurbætur
á reglunum sem samfélagið starf-
ar eftir. Önnur snúa að fjárfest-
ingu og því að nýta hinn mikla
efnahagslega árangur til upp-
byggingar.
Leiðrétting fyrir
eldri borgara
Um síðustu áramót gáfum við
fyrirheit um að áfram yrði lögð
áhersla á að bæta kjör eldri borg-
ara og tryggja að efnahagslegur
árangur skilaði sér í bættum lífs-
kjörum lífeyrisþega. Samhliða því
stóð til að endurskoða örorkubæt-
ur og raunar bótakerfið í heild.
Pétursnefndin svo kallaða (kennd
við Pétur H. Blöndal og síðar
undir forystu Þorsteins Sæ-
mundssonar) hefur skilað af sér
tillögum um mikilvægar úrbætur í
lífeyriskerfinu. Það er óhugsandi
fyrir ríkisstjórn sem náð hefur
þeim árangri sem við höfum skil-
að á síðast liðnum þremur árum
að vanrækja að skila þeim árangri
áfram til fólksins sem byggði upp
samfélagið sem við njótum nú
góðs af.
Búsetujafnrétti
Frá upphafi hef ég lagt áherslu
á að eitt af mikilvægustu verk-
efnum þessarar ríkisstjórnar væri
að vinna að umfangsmiklum úr-
bótum á því sem nefna má bú-
setujafnrétti. Reyndar snýst það
um meira en jafnrétti landsmanna
óháð búsetu. Það snýst um að
tryggja að árangur Íslendinga
nýtist landinu öllu svo að landið
allt nýtist við að ná árangri fyrir
Íslendinga.
Í þjóðhátíðardagsræðu var ég
afdráttarlaus um að úrbætur í
þessu efni væru forgangsmál á
seinni hluta kjörtímabilsins. Ég
útskýrði að við stæðum á þeim
tímamótum að ekki væri forsvar-
anlegt að bíða lengur með að
vinna að bættum fjarskiptum um
allt land, einkum ljósleiðaravæð-
ingu, samgöngubótum, endurreisn
heilbrigðis- og menntakerfisins á
landsbyggðinni auk þess að
tryggja forsendur fyrir eðlilegri
atvinnusköpun. Hið síðastnefnda
snýst um að stjórnvöld skapi þær
aðstæður að ný störf verði til um
allt land, bæði hjá hinu opinbera
og með einkarekstri.
Þessi ríkisstjórn verður að skila
áþreifanlegum árangri fyrir
byggðir landsins. Klári hún það
ekki mun önnur ríkisstjórn ekki
gera það. Skaðinn af því að van-
rækja stærstan hluta landsins
yrði mikill fyrir landið allt.
Aðrir innviðir
Óþarfi er að telja upp þá fjöl-
mörgu mikilvægu innviði landsins
sem nauðsynlegt er að halda
áfram að bæta nú þegar við höf-
um efni á því og tækifæri til þess.
Á mörgum sviðum höfum við þó
ekki aðeins tækifæri til að setja
meiri peninga í verkefnin, við get-
um líka leyft okkur að hugsa upp
á nýtt með hvaða hætti við stönd-
um að uppbyggingunni. Það á
ekki hvað síst við á sviði heil-
brigðismála.
Fjármálakerfið
og verðtrygging
Loks nefni ég mikilvægi þess að
ríkisstjórnin hverfi ekki frá því
gríðarmikilvæga verkefni að laga
fjármálakerfið á Íslandi og losa
samfélagið úr viðjum verðtrygg-
ingar. Samhliða því þarf að gera
ungu fólki auðveldara og ódýrara
að taka óverðtryggð lán og eign-
ast húsnæði. Allt er þetta hægt
enda hefur það verið í undirbún-
ingi í þrjú ár. Sá undirbúningur
fólst í því að búa til forsendurnar
(ríkið hefur t.a.m. yfirtekið
fjármálakerfið að mestu leyti) og
svo að hanna bestu leiðina. Það er
allt til reiðu. Fjögurra ára planið
hefur gengið upp til þessa. Nú er
viljinn allt sem þarf til að klára
það.
Eftir Sigmund Davíð
Gunnlaugsson » Fjögurra ára planið
hefur gengið upp til
þessa. Nú er viljinn allt
sem þarf til að klára það.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Höfundur er formaður
Framsóknarflokksins.
Það sem ekki má bíða