Morgunblaðið - 26.07.2016, Side 24

Morgunblaðið - 26.07.2016, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016 ✝ Ingunn Jóns-dóttir fæddist 9. maí 1916 í Botni í Dýrafirði. Hún lést 12. júlí 2016 á Hrafnistu í Reykja- vík. Foreldarar hennar voru hjónin Anna Kristjana Sigurlínadóttir húsmóðir, f. 1882, d. 1971, og Jón Justsson bóndi í Botni, f. 1854, d. 1945. Hún var sjöunda í röð níu systkina sem öll eru nú lát- in, þau voru Sigurlína Margrét, Sigríður Jóna, Þórður Kristinn Júlíus, Ragnheiður, Magnús, Sigurlaug Jóhanna, Ingunn, Guðmundur Garðar og Inga Snæbjörg. Ingunn giftist 19. nóvember 1939 Kristjáni Ágúst Lár- ussyni, f. 3. janúar 1910, d. 1. júní 2009, frá Hvammi í Dýra- firði. Foreldrar hans voru Guð- rún Helga Kristjánsdóttir, f. ar, Ingibjargar Sigurlínadótt- ur, f. 1879, d. 1973 og Arnfinns Jónssonar, f. 1860, d. 1946 sem bjuggu í Ytri-Lambadal og síð- ar að Dröngum í Dýrafirði. Hún lauk námi við húsmæðra- skólann á Ísafirði árið 1938. Ingunn var áhugasöm hand- verkskona og hafði mikið yndi af útsaum og handprjóni. Hún var að mestu heimavinnandi og annaðist uppeldi barnanna en eftir að hún flutti suður starf- aði hún sem saumakona fram á efri ár. Ingunn og Ágúst byrj- uðu sinn búskap í Efri Mið- Hvammi í Dýrafirði. Árið 1945 fluttu þau út á Þingeyri og þar ólust öll börn þeirra upp í góðu atlæti. Það var síðan árið 1970 að þau taka sig upp og flytja til Reykjavíkur á eftir börnunum sem flest voru þá farin suður. Þau bjuggu í Vesturbænum, lengst á Seljavegi en síðustu árin dvöldu þau á Hrafnistu í Reykjavík og áttu þar marga góða daga og ljúfar stundir. Ingunn verður jarðsungin frá Áskirkju í Reykjavík í dag, 26. júlí 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. 1869, d. 1968, og Lárus Ágúst Ein- arson, f. 1871, d. 1957. Þau Ingunn og Ágúst eignuð- ust sjö börn: 1. Kristján Jón, f. 5. janúar 1940, kvæntur Ástrúnu Jónsdóttur. 2. Jó- hannes Jakob, f. 17. desember 1942, kvæntur Kristjönu Ingvarsdóttur. 3. Ágúst, f. 10. júlí 1946, kvæntur Björgu Hemmert Eysteinsdóttur. 4. Guðrún Lára, f. 10. júlí 1946, gift Nirði Marel Jónssyni. 5. Arnbjörg, f. 28. júní 1947, gift Ólafi Ólafssyni. 6. Jónas, f. 14. október 1949, kvæntur Rann- veigu Hjaltadóttur. 7. Krist- jana, f. 20. júlí 1955, gift Guð- mundi Hákoni Jóhannssyni. Alls munu afkomendurnir vera 69 talsins. Tveggja ára var Ingunn tek- in í fóstur til móðursystur sinn- Ég man sérstaklega vel eftir því þegar ég hitti tengdaforeldra mína í fyrsta skipti. Ég var frekar óróleg hvernig þau myndu taka mér. Þegar okkur hjónaleysin bar að garði var frændi að vestan ný- farinn frá þeim. Hann var ekki vanur að taka strætisvagn og fór víst inn í vagninn að aftan. Aðal- áhyggjuefni tengdaforeldra minna var hvort hann hefði ekki örugglega borgað. Ingunni fannst þetta samt mjög spaugilegt og við hlógum öll dátt. Þetta lofaði sannarlega góðu um framhaldið. Við tengdamæðgurnar höfum oft hlegið saman gegnum árin og jafnvel komið okkur í vandræði með því. Samskipti okkar hafa alltaf verið ákaflega góð og aldrei hefur neinn skugga borið þar á. Það var notalegt að koma á Seljaveginn og voru Ingunn og Ágúst höfðingjar heim að sækja. Börn voru sérstaklega hænd að Ingunni enda kom hún fram af virðingu við þau og sinnti þeim mjög vel. Ingunni féll aldrei verk úr hendi, ef hún var ekki í eldhúsinu þá var hún með einhverja handa- vinnu. Síðustu árin voru henni frekar erfið. Hún hafði séð á eftir eig- inmanninum og mörgu góðu sam- ferðafólki. Sjónin var orðin léleg svo hún átti erfitt með lestur og handavinnu. Það er ekki langt síðan Ingunn, þá orðin 100 ára, stóð upp, rétti úr sér og tók nokkrar leikfimisæf- ingar fyrir okkur. Hún var líka góður leikari og átti létt með að herma eftir fólki. Ég vil þakka kærri tengdamóð- ur minni samfylgdina í nærri 50 ár. Við munum sakna sunnudaga- heimsókna okkar á Hrafnistu. Blessuð sé minning þeirra hjóna, Ingunnar og Ágústs. Björg. Elsku amma mín er látin 100 ára að aldri, södd lífdaga eftir við- burðaríka ævi. Hún eignaðist alls sjö börn og ól þau upp ásamt afa mínum, Ágústi, sem lést árið 2009, þá tæplega aldargamall. Lífsbaráttan var hörð um miðbik 20. aldar, fyrir ung hjón með börnin sem fædd eru á nokkurra ára tímabili. Eitt sinn sagði hún mér að þegar börnin hennar voru mjög ung, sleppti hún því að hátta sig á kvöldin, til þess gafst bara ekki tími. Það er óhætt að segja að amma mín hafi verið karakter. Hún var ákveðin í fasi, kvik í hreyfingum og oft bara nokkuð ánægð með sig. Hún var lágvaxin og nett, og varð lágvaxnari með árunum. Hún var mikil hannyrðakona, allt lék í höndunum á henni, hún bak- aði líka bestu flatkökur í heimi að eigin sögn og var ekki feimin að ræða það. Þrátt fyrir háan aldur var hún ótrúlega skörp, ákveðin og fylgin sér. Hún gat skipað börnum sínum, sem mörg hafa sjálf lokið sinni starfsævi, á bekk- inn fyrir framan herbergið á Hrafnistu, mislíkaði henni eitt- hvað. En ákveðninni fylgdu þó ein karaktereinkenni enn, glettnin og kátínan. Einkenni sem gerðu hana að þeirri perlu sem seint mun gleymast. Hún gat hlegið að ólíklegustu hlutum, og náði oft að gera gott úr aðstæðum sínum. Það var alltaf gott að koma til ömmu. Oft þegar við komum til hennar var hún útafliggjandi, eitthvað slöpp eða með verki. En þegar við fórum frá henni var hún orðin hin hressasta, hló og kímdi og talaði og talaði. Minningin um hana mun dvelja með okkur um ókomin ár. Brosið hennar, blikið í augum og kengurinn sem hún fór í þegar hún hló á sinn skemmti- lega, einstaka máta. Það hafa ver- ið forréttindi að fá að njóta sam- vista við hana öll þessi ár og eiga minninguna um sterka, ákveðna og góða konu. Elsku amma mín, hvíl í friði. Halldóra Jóhannesdóttir. Þúsund sögur á heilli öld. Ég rígheld í minningabrot þegar gleðin var við völd, hvarma fylla tárin vot. Þú byggðir sterkar taugar til allra átta, kímin, kát, umvefjandi kærleik. Þú treystir og baðst til æðri mátta í lok ævidaga stóðst auðmjúk og keik. Elsku góða amma mín, með þökk og sátt í hjarta ég kveð þig í englasýn umvafin ljósinu bjarta. Þín Ágústa Guðmundsdóttir. Nú er Ingunn dáin. Það var oft gaman þegar við fórum á Þing- eyri og heimsóttum ömmu fyrir vestan, eins og ég kallaði hana lengi vel. Eitt sinn þegar við fór- um vestur fórum við inn í Hvamm í berjamó og tíndum í fötur krækiber og aðalbláber. Þegar það var búið var farið inn í Hvamm, eins og bærinn heitir, og þar fékk ég að fara inn og upp á loft og sá þar bunka af dagblöðum bundnum saman í haug. Þessi bær hefur verið í eyði í mörg ár. Ingunn og Ágúst bjuggu á Þingeyri, voru með hænsni og þar voru líka trönur þar sem fiskur- inn hékk. Haninn galaði og hund- urinn gelti þegar hænsnin sluppu öll út á tún eða stéttina fyrir fram- an dyrnar hjá þeim hjónum, Ing- unn hljóp út og við á eftir og reyndum þar að ná í hænsnin og koma þeim fyrir í netbúrunum sínum. Hún Ingunn hafði frá mörgu að segja. Í fyrstu sumarvinnunni minni hjá Pétri Snæland vann hún á saumastofunni og ég uppi á lofti að troða svamp í púða, þá kom ég oft við hjá henni í mat- artímanum og heilsaði upp á hana. Hún saumaði mikið eins og t.d. bútasaumsteppi og á ég eitt slíkt eftir hana. Hún sendi mér líka eitt sinn jólagjöf að vestan, sem var vindlakassi, allur bróder- aður með skeljum og kuðungum, sem mér fannst mjög fallegur. Og svo bakaði hún líka heimsins bestu flatkökur á hellunni sinni þarna heima á Skeljaveginum. Þegar ég var að vinna á Hrafn- istu um 2002 flutti Ingunn á Hrafnistu og hitti ég hana stund- um þar á göngu, þá var hún farin að eldast, og nú er hún farin á vit annarra ævintýra þar sem Ágúst er. Ég kveð nú Ingunni og þakka fyrir mig. Stjána, Jóa, Láru, Gústa, Böggu, Jónasi, Jónu og mökum þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð geymi ykk- ur. Hildur. Ingunn Jónsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð vegna fráfalls elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, AXELS GUÐMUNDSSONAR, rafeindavirkjameistara og framkvæmdastjóra, sem jarðsunginn var frá Akureyrarkirkju 15. júlí. . Guðbjörg Tómasdóttir, Magnús Axelsson, Stella Kristinsdóttir, Arna Axelsdóttir, Þórður Daníelsson, Guðmundur Tómas Axelsson, Jónína Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALMA ÁSBJARNARDÓTTIR, áður prestsfrú í Hruna, lést á Hrafnistu, Reykjavík, mánudaginn 18. júlí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey skv. fyrirmælum hinnar látnu. . Herdís Petrína Pálsdóttir, Bragi Bjarnason, Magnús Pálsson, Sveinbjörn Sveinbjörnss., Ragna Guðmundsdóttir, Páll Sveinbjörnsson, Kristín Soffía Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS Ó. SKARPHÉÐINSDÓTTIR, Gunnólfsgötu 6, Ólafsfirði, lést á dvalarheimilinu Hornbrekku fimmtudaginn 21. júlí. Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju fimmtudaginn 28. júlí klukkan 14. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á dvalarheimilið Hornbrekku. . Valgerður Gunnarsdóttir, Sigríður Aðalbjörnsdóttir, Frímann Ingólfsson, Skarphéðinn Aðalbjörnsson, Helga Ólafsdóttir, Pálmi Aðalbjörnsson, Halldóra Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR INGI SVEINSSON húsasmiður, Tjarnarflöt 6, Garðabæ, lést á heimili sínu síðastliðinn þriðjudag, 19. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Garðakirkju í Görðum á Álftanesi föstudaginn 29. júlí klukkan 13. . Halldóra Salóme Guðnadóttir, Ragnheiður Katrín, Sveinn Ingi, Þórunn Inga og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓNA ÖRNÓLFSDÓTTIR, Hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 30. júlí klukkan 11. Blóm og kransar afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort Slysavarnafélagsins Landsbjargar á vefsíðunni landsbjorg.is eða bankareikning Björgunarfélags Ísafjarðar, 0154-05-420335. . Jón Þ. Kristjánsson, Hjördís Ólafsdóttir, Hildur Jósefsdóttir, Þ. Margrét Kristjánsdóttir, Pétur I. Pétursson, Indriði A. Kristjánsson, Carolyn Kristjánsson, Hörður Kristjánsson, Björk Guðlaugsdóttir, Kristján F. Kristjánsson, Guðný H. Yngvadóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR GERALD RAGNARSSON skipstjóri, Ægisvöllum 17, Reykjanesbæ, lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunar- heimilinu Hrafnistu, Reykjanesbæ, miðvikudaginn 20. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 3. ágúst klukkan 13. . Guðrún Árnadóttir, Ragnar Jónasson, Inga Birna Ragnarsdóttir, Hrafn Árnason, Árni Ragnarsson, Einar Ragnarsson, Marta Guðmundsdóttir, Albert Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓNA SIGURÐARDÓTTIR frá Urriðaá, Borgarbraut 65a, Borgarnesi, lést laugardaginn 23. júlí. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju mánudaginn 8. ágúst klukkan 14. . Svandís Edda Ragnarsdóttir, Hanna S. Kjartansdóttir, Anders Larsen, Eyþór Kjartansson, Haukur Kjartansson, Svanhildur Ólafsdóttir og barnabörn. Í minningu góðr- ar vinkonu, hennar Stínu, sem lést 3. júlí sl., fer hugurinn alla leið til unglingsár- anna, við kynntumst í Fellaskóla og nokkrum árum síðar lágu leiðir okkar saman að nýju í Húsmæðra- skóla Suðurlands á Laugarvatni. Þar myndaðist traust og góð vin- átta . Ferðin okkar til Vestmanna- eyja var ávallt rifjuð upp með miklum hlátrasköllum og þegar kom að því að við fengjum bílpróf- ið var Stína ávallt á rúntinum og ekki á minni bíl en Range Rover. Stína varð bóndakona i Flóan- um og eiga þau Ingjaldur fjögur börn og barnabörnin veittu henni einstaka gleði. Þau voru höfðingj- ar heim að sækja, mikil gleði og umhyggja einkenndi heimilið. Þó svo að umgangur milli okkar hafi minnkað þá var sterk vinartaug sem tengdi okkur öll árin. Kristín Þorbjörg Ólafsdóttir ✝ Kristín Þor-björg Ólafs- dóttir fæddist 13. maí 1959. Hún lést 3. júlí 2016. Kristín var jarð- sungin 9. júlí 2016. Veikindi settu strik i lífshlaup Stínu en með æðruleysi og húmor að leiðarljósi tókst henni að halda sinni reisn. Vil ég senda mínar innileg- ustu samúðarkveðj- ur til ástvina hennar, og kveð ég mína vin- konu með virðingu og þökk fyrir allt og allt. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Björg Lárusdóttir (Böggý).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.