Morgunblaðið - 26.07.2016, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.07.2016, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Að gera alltaf það sama og búast við nýjum niðurstöðum er ein hlið á geð- veiki. Farðu varlega í fjármálunum. Haltu þessu aðskildu en sinntu persónu þinni vel. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þú ert kvíðinn, er eins og skrjáfi í hverju tréi, að allir hausar snúi sér við og hvísli. Sparsemi er dyggð sem alltaf borgar sig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt einhverjir misskilji orð þín skaltu ekki láta misskilning þeirra draga úr þér kjarkinn. Fullt tungl hefur ekki síður áhrif á unga fólkið en þá sem eldri eru. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Skapvonska þín er heillandi, en bara í augum þeirra sem þekkja þig. Kannski færðu ekkert meira út úr þessari stöðu en að fyllast þakklæti til lífsins. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Taktu á gömlum skuldum. Hver er sinnar gæfu smiður og enginn hefur rétt til þess að ráðskast með þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú skalt vera skýr í öllum sam- skiptum við aðra. Notaðu tækifærið til að vinna að hugðarefnum þínum. Ekki búast við því að eldingu með réttu svari ljósti niður í kollinn á þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú fyllist andúð í garð einhvers og finnst að gerðar séu meiri kröfur til þín en annarra. Gefðu þér tíma til að sinna sjálf- um þér þótt aðrir kalli á athygli þína. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert í keppnisskapi og lík- amlega ertu ansi sterkur. Tunglið er fullt og það skapar spennu á vinnustað og jafn- vel í líkama þínum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þetta er fullkominn tími til að henda öllum leiðbeiningum og sjá hverju lífið líkist þegar leikið er af fingrum fram. En það er mikilvægt að fá viðurkenningu, engu að síður. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fyrir fólkið í kringum þig skiptir álit þitt máli. Gættu að því hvert hvatvísin leiðir þig í dag því það er hætt við ruglingi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú gætir komið auga á nýjar lausnir í vinnunni eða hugsanlega hagn- aðarvon. Mundu að gæði og magn fara ekki endilega saman. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er óvitlaust að setja sér skrif- leg takmörk og staldra svo við öðru hverju og sjá hvernig hefur miðað. Sláðu á létta strengi, það getur oft bjargað hlutunum. Jón Arnljótsson skrifaði í Leirinn15. júlí: Vindur blæs og vöknar beð. Vöxtur nú í sefinu. Birta Líf er börnuð. Með brillur er á nefinu. Gústi Mar spurði þá þessarar eðlilegu spurningar: Vísur flóknar fipa geð og fækka ekki þrefinu. Var Birta Líf þá börnuð með brillurnar á nefinu? Sigrún Haraldsdóttir er alltaf hollráð: Ef brúður vill í barn eitt hnoða er brillur gott að hafa, mest til þess að mæla og skoða meintan sæðisgjafa. Gústi Mar leit á praktísku hlið- ina: Oft í laumi ástir takast er þá fólk á taugunum. Eins í flýti menn þá makast og margir loka augunum. Sigrún var með á nótunum: Víst er að þú segir satt, svona gjarnan „messum“. Margir hafa farið flatt á flumbrugangi þessum. Jón Arnljótsson á síðasta orðið: Hvernig sem að þungast þær, þá má spara gortin. Brillur hefur börnuð mær að betur sjái kortin. Ég fór með þessar vísur fyrir karlinn á Laugaveginum, hann ók sér í herðunum, hallaði eilítið undir flatt og tuldraði: Síst er þörf fyrir sæðisgjafa ef sjálfs eru efnin fín; – ef kerling vildi krakkann hafa kæmi hún til mín! Kerlingin á Skólavörðuholtinu hafði orð á því fyrir skömmu á Boðnarmiði að hún hefði séð vísu eftir Ingólf Ómar Ármannsson um kerlingar, sem aðeins þyldu rauð- vín: – „Ég finn vísuna ekki aftur en svara bara svo hann viti að ekki eru allar kellingar eins: Vodka drykkinn vel ég þoli whisky, gin og koníak drós er ég og drykkjusvoli dýrka veislur rall og skak.“ Ingólfur Ó. Ármannsson svaraði: Hress að vanda, hýr á brún hraust að öllu leyti. Sterka drykki drekkur hún og dýrkar rall og teiti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Horft til veðurs, brillur og barneignir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ÉG ER MEÐ KÖKUKREM OG TVÆR SKEIÐAR ÞÚ VEIST HVERNIG Á AÐ VERA MEÐ TIL- ÞRIFAMIKLA INNKOMU HVER YKKAR VAR MEÐ KOLKRABBANN? „HUGSAÐU TIL LENGRI TÍMA. EINS OG, EF ÞÚ EIGNAST EINHVERN TÍMANN BÖRN, OG ÞAU ÁKVEÐA AÐ EIGNAST BÖRN, ÞÁ GÆTI ÞETTA VIRKILEGA BORGAÐ SIG FYRIR BARNABÖRNIN ÞEIRRA.“ „HÆTT‘AÐ KVARTA! VILTU AÐ GLUGGARNIR ÞÍNIR VERÐI ÞVEGNIR EÐA EKKI?“ ...strákur fyrir þig, stelpa fyrir mig. FJÁRMÁLA RÁÐGJÖF Víkverji rakst á kunningja sinná förnum vegi á dögunum og spurði frétta, eins og gengur. Kom þá í ljós að sonur kunningjans er að flytjast búferlum frá Akureyri til Kaupmannahafnar. Fagnaði kunninginn þeim tíðindum. Vík- verji furðaði sig á því enda er honum mun hlýrra til Akureyrar en Kaupmannahafnar, með fullri virðingu fyrir Kaupmannahöfn. Kunninginn tók svo sem enga af- stöðu til þessara tveggja ágætu staða, ástæðan fyrir gleði hans var einföld: „Nú verður miklu ódýrara fyrir mig að heimsækja hann.“ Það er sannarlega umhugs- unarvert. x x x Við þetta rifjaðist upp fyrir Vík-verja samtal sem annar kunn- ingi hans lenti í fyrir fáeinum ár- um. Sá kunningi hitti þá kunningja sinn á förnum vegi um vorbil og fóru þeir að ræða um sumarleyfisáform. Kunningi Vík- verja tjáði kunningja sínum að hann væri ekki á leið utan í sum- arfrí, heldur ætlaði hann að ferðast um Ísland. Kunningi kunn- ingjans fékk þá klums og mælti: „Nú, ertu á svona góðum laun- um?“ x x x Já, Víkverji hefur heyrt fleirisögur af „budduverkjum“ fólks eftir að hafa ferðast innanlands en ætlar eigi að síður að láta sig hafa það að skreppa aðeins út úr bæn- um í byrjun næsta mánaðar. Láta á þetta reyna. Svo lengi sem hann hittir ekki fleiri kunningja sem draga úr honum kjarkinn! x x x Í þessu kunningjahjali öllu rifjastupp fyrir Víkverja að hann var fyrir allmörgum árum skammaður hér á blaðinu fyrir að nota það ágæta orð, sumsé kunningi, heldur frjálslega. Var hálfpartinn bannað að nota það framvegis. Víkverji skildi það aldrei almennilega – fal- legt orð, kunningi – og gegndi þessum tilmælum aldrei. Nú eru mennirnir sem skömmuðu Vík- verja löngu hættir hér á blaðinu en Víkverji er hér enn. Og kunn- ingjar hans. víkverji@mbl.is Víkverji Blessun Drottins auðgar og erfiði mannsins bætir engu við hana. (Orðskviðirnir 10:22) Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Enn snjallara heyrnartæki Beltone Legend Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. ™ Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.