Morgunblaðið - 26.07.2016, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2016
Blue Ice Band
mun efna til blús-
aðra hljómleika á
Café Rosenberg í
kvöld klukkan 21
ásamt hinni
bandarísku Kar-
en Lovely en hún
kom einmitt fram
á síðustu Blúshá-
tíð í Reykjavík.
Það verða þeir
Halldór Bragason, Guðmundur Pét-
ursson, Róbert Þórhallsson og Birg-
ir Baldursson sem stíga með henni á
sviðið en nú þegar hafa hátt í tvö
hundruð manns sýnt viðburðinum
áhuga á fésbókarsíðu hans.
Blúsaðir tónleikar
á Café Rosenberg
Blús Karen Lovely
kemur fram í kvöld.
Í gær var það tilkynnt að söngleik-
urinn Lazarus, sem David Bowie
skrifaði ásamt Endu Walsh, muni
hefja göngu sína í London 25. október
næstkomandi. Verkið verður sýnt í
King’s Cross-leikhúsinu og mun það
standa til 21. janúar á næsta ári.
Söngleikurinn er byggður á vís-
indaskáldsögu Walters Tevis, The
Man Who Fell to Earth, frá árinu
1963 en kvikmynd byggð á bókinni, í
leikstjórn Nicolas Roeg, kom út árið
1976 og fór Bowie þar einmitt með
aðalhlutverk. Leikhúsverk Bowie og
Walsh var frumsýnt í New York í
fyrra og stóðu sýningar í þrjá mán-
uði. Þegar farið var að síga á síðari
hluta sýninganna lést Bowie úr
krabbameini eins og flestum er kunn-
ugt. Michael C. Hall, Michael Esper
og Sophia Anne Caruso munu end-
urtaka leik sinn og fara með aðal-
hlutverkin í London auk þess sem
leikstjóri verksins verður sá sami, Ivo
Van Hove. Lög Bowie fá að njóta sín í
verkinu og má þar nefna gullmola á
borð við „Changes“ og „Life on
Mars?“.
Margslunginn Lazarus var með síðustu verkum sem David Bowie kom að.
Lazarus í London
Söngleikur David Bowie og Endu
Walsh hefur göngu sína 25. október
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Ég var lengi að prófa mig áfram í
mismunandi stefnum, teknói,
„house“-tónlist, síkadelíu, trip-hopi
og fleiru. Undanfarið hef ég þó
mest verið að gera „ambient/
drone“, eða sveimtónlist eins og það
heitir á íslensku, þar sem áherslan
er lögð á hljóðheiminn og áferð,“
segir tónlistarmaðurinn Helgi
Steinsson, betur þekktur sem Hex-
agon Eye, en hann gaf nýverið út
stuttskífuna Virtual. Skífan kemur
út undir hatti Möller Records og er
þetta fyrsta útgáfa Hexagon Eye
sem útgáfufyrirtækið fóstrar.
Góð aðstaða í skólanum
Helgi kveður skífuna vera inn-
blásna af kvikmyndunum Computer
Dreams frá árinu 1988 og The
Mind’s Eye frá árinu 1990. Þá hafi
svokölluð „vaporwave“-tónlist verið
honum ofarlega í huga þegar hún
var smíðuð.
„Ég byrjaði að búa til raftónlist
fyrir um fjórum árum síðan þegar
ég keypti mér fartölvu. Fyrir það
hafði ég þó verið í nokkrum bíl-
skúrsböndum eins og gengur og
gerist,“ segir Helgi sem leggur
mikla áherslu á þann tölvubúnað
sem hann vinnur með.
„Það mikilvægasta í vopnabúrinu
mínu er án efa tölvan. Ég flakka
síðan svolítið á milli forrita eftir því
hvað ég er að gera hverju sinni. Ég
byrjaði á því að fikta í GarageBand
og uppfærði síðan yfir í Logic og
það var í því forriti sem ég bjó til
Virtual-plötuna. Núna er ég að-
allega að nota Ableton fyrir mitt
eigið efni og Pro Tools ef ég þarf að
taka upp margt í einu. Ég bý að
mjög góðri aðstöðu í skólanum og
hef aðgang að fullt af skemmti-
legum hljóðgervlum og öðrum græj-
um,“ segir Helgi en hann býr í Berl-
ín um þessar mundir þar sem hann
hefur verið að nema hljóðtækni.
„Ég var að útskrifast úr skóla
sem heitir dBs Music fyrir tveimur
vikum. Þetta er búið að vera frá-
bært ævintýri og Berlín er klárlega
staðurinn til að vera ef maður er að
vinna í tónlist. Berlín er mjög al-
þjóðleg borg og það er góður inn-
blástur að vera í kringum eins
þenkjandi fólk úr ólíkum áttum,“
segir hann.
Vinnur að næstu plötu
„Ég er einnig partur af mjög
skemmtilegu verkefni sem heitir
This Is Why sem er einskonar
spunakollektív. Ekkert er ákveðið
fyrirfram og útkoman veltur á and-
rúmsloftinu hverju sinni. Upptakan
er síðan sett á netið án allrar eft-
irvinnslu. This Is Why er frískandi
kontrast við mitt sólóefni þar sem
fullkomnunaráráttan ræður ríkjum.
Það heldur manni á tánum þegar
við erum að vinna í This Is Why að
vita að ekkert verði lagað í eft-
irvinnslu,“ segir Helgi sem hefur
einmitt komið fram á þó nokkrum
tónleikum í Berlín, bæði sem Hex-
agon Eye og sem hluti af This Is
Why.
Eins og áður segir er Virtual
stuttskífa og inniheldur hún sex lög.
Hægt er að nálgast hana á hex-
agoneye.bandcamp.com og á Spot-
ify. Þá kveðst Helgi vera kominn
langt með nýja plötu og nýlegt efni
sé nær eingöngu flutt á tónleikum
hans um þessar mundir.
Berlínarborg góður innblástur
Tónlistarmaðurinn Helgi Steinsson, betur þekktur sem Hexagon Eye, gefur
út stuttskífuna Virtual Sveimtónlistin nýtur sín vel í útgáfu Möller Records
Ljósmynd/Antonino Modica
Hljóðtækni Helgi kveður skífuna vera innblásna af kvikmyndunum Computer Dreams frá árinu 1988 og The Mind’s
Eye frá árinu 1990. Hann útskrifaðist úr hljóðtækninámi úr skólanum dBs Music í Berlín fyrir tveimur vikum.
Umslag Bára Bjarnadóttir sá um að
hanna umslag plötunnar Virtual.
Látið okkur
sjá um
þvottinn
fyrir heimilið
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Takið frí frá þvottahúsinu í sumar
GHOSTBUSTERS 5, 10:10
THE INFILTRATOR 5, 8, 10:35
ÍSÖLD ÍSL.TAL 3:50, 5:50
CENTRAL INTELLIGENCE 8
MIKE AND DAVE 10:25
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ