Morgunblaðið - 07.09.2016, Side 2
Brian Wilson kom fram í Eldborg Hörpu í gærkvöldi. Verkið hans Pet
Sounds sem er 50 ára í ár er talið eitt það besta í sögu rokksins og hefur
fengið fjölda viðurkenninga. Með honum á tónleikunum í gærkvöldi komu
fram gömlu Beach Boys-félagar hans þeir Al Jardine og Blondie Chaplin.
Morgunblaðið/Golli
Flutti verkið Pet Sound og mörg vinsæl Beach Boys-lög
Brian Wilson í Hörpu
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
664 6991
www.sveinnoskar.is
sveinnoskar@sveinnoskar.isStétt með stétt
Kynslóð með kynslóð
Þriðja til fjórða sæti
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi
10. september 2016
Kosningaskrifstofa
Hlíðasmára 11, efstu hæð.
201 Kópavogi.
Svein
Óskar
áAlþingi
Styðjum
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Ég myndi segja að þetta væru stór-
tíðindi í heilbrigðismálum á Íslandi,“
segir Gunnlaugur Sigurjónsson,
stjórnarformaður heilsugæslunnar
Höfða, fyrirtækis sem mun stýra
heilsugæslunni við Bíldshöfða.
Sjúkratryggingar Íslands hafa
samið um rekstur tveggja heilsu-
gæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu í
kjölfar útboðs Ríkiskaupa. Útboð á
rekstri þriggja nýrra heilsugæslu-
stöðva var auglýst í lok apríl síðast-
liðnum, á grundvelli ákvörðunar
Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigð-
isráðherra. Þrjú tilboð bárust, tvö
voru samþykkt en þriðja tilboðinu
hafnað.
Nýju stöðvarnar munu verða starf-
ræktar á Bíldshöfða 9 í Reykjavík og í
Urðarhvarfi 8 í Kópavogi.
Nú þekkir maður til einkarekinna
stöðva í heilbrigðisgeiranum en þetta
er ekki algengt?
„Nei. Við höfum verið með heilsu-
gæsluna í Lágmúla og Salastöðina.
Svo ertu með Læknavaktina og tólf
heimilislækna á höfuðborgarsvæðinu
sem starfa sjálfstætt, en það er allt og
sumt. Þetta er hlutur sem Félag
heimilislækna er búið að vera að berj-
ast í að fá fram. Salastöðin var opnuð
2002, síðan þá hefur ekkert gerst.
Þetta sem nú er að gerast er von-
arneisti um að heilsugæslan vindi
seglin og framtíðin sé björt.“
Nú þekki ég marga sem myndu
halda að þetta væri hættuleg þróun,
einkarekstur í heilbrigðiskerfið?
„Þetta er ekki hættulegra en það að
þetta er það sem öll löndin á Norð-
urlöndunum eru að gera. Danir,
Norðmenn, Svíar og nú er þetta að
verða að veruleika í Finnlandi á
næstu mánuðum. Öll sósíalísku og
sósíaldemókratísku löndin hafa gert
þetta. Ég deili ekki þeim áhyggjum að
þetta sé hættulegt.
Stöðvarnar skipuleggja sig eftir
þörfum sjúklinga og eru ekki fastar í
ramma ríkisins.“
Verður þetta dýrara fyrir sjúk-
lingana sem leita til ykkar?
„Nei, þetta verður ekki dýrara.
Þetta er opinbera kerfið. Það er bara
verið að gera þjónustusamning við
einkaaðila.
Frá áramótum er verið að umbylta
allri fjármögnun í heilsugæslunni.
Fjármagn mun fylgja fólki. Það er
ákveðin krónutala sem fylgir hverjum
sjúklingi óháð því hvort ríkið eða
einkaaðilar sinna þjónustunni. Það
verður í þessu nýja kerfi frá áramót-
um.
Svo mun tíminn leiða í ljós hvort
einkareknu stöðvarnar nái að nota
fjármagnið betur,“ segir Gunnlaugur.
„Stórtíðindi í heilbrigðismálum“
Samið um rekstur tveggja heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu Starfræktar á Bíldshöfða og í
Urðarhvarfi Lítið gerst í einkarekstri í heilbrigðismálum síðan árið 2002 Læknarnir bjartsýnir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Byggt Í Urðarhvarfi verður opnuð ný heilsugæslustöð í vetur.
Stúlkan sem lést síðastliðinn sunnu-
dag í umferðarslysi á Ólafsfjarðar-
vegi hét Svala Dís Guðmundsdóttir.
Svala Dís var fædd árið 2008 og til
heimilis á Siglufirði.
Lögreglan á Norðurlandi eystra
fer með rannsókn málsins og biður
þá sem kunna að hafa orðið vitni að
slysinu að hafa samband í síma 444-
2800.
Nafn stúlk-
unnar sem lést
„Niðurstaða dagsins er að það er
ekkert að sjá. Það er ekkert þarna í
nærumhverfinu,“ segir Uggi Æv-
arsson minja-
vörður sem rann-
sakaði í gær
svæðið í Skaft-
ártungu þar sem
fannst sverð sem
talið er vera frá
víkingatíma.
Eins og Morg-
unblaðið hefur
greint frá fundu
gæsaskyttur
sverðið nálægt Ytri-Ásum og er það
talið vera frá 10. öld. Þjóðminja-
stofnun sendi teymi sérfræðinga á
svæðið og lítið hefur komið út úr
rannsóknum þess.
„Við áttum von á því að sjá
mannaverk í nærumhverfinu.
Fyrsta hugsun var að þarna væri
heiðin gröf, kuml.
En niðurstaða dagsins er að svo er
ekki. Þetta er býsna sérstakt. Við
höfum engin svör um hvernig þetta
hafi atvikast. Annaðhvort hefur
þetta verið kuml sem áin hefur sóp-
að á brott. En yfirleitt eru þá steinar
eftir en ekki sverð. Hinn möguleik-
inn er að einhver hafi týnt sverðinu
þarna.
Það breytir því ekki að sverðið er
merkilegt.“
En kom þá sverðið með ánni á
þennan stað?
„Nei. Við trúum því ekki. Odd-
urinn var brotinn af sverðinu og
hann lá þarna. Það er vísbending um
að þetta hafi ekki verið á hreyfingu.
Líklegra er að áin hafi fleytt jarð-
veginum ofan af í hlaupunum. Það
var hamfarahlaup þarna í fyrra-
haust. Svo er bara hægt að vera með
vangaveltur um hvort þetta sverð sé
frá tímum Njálu eða ekki.
Það var stór bær þarna nálægt
sem fór undir hraun árið 1783.“
borkur@mbl.is
Það er ekki kuml á svæðinu
Ævaforna sverðið hugsanlega frá tímum Njálu
Stór bær sem var nálægt fór undir hraun árið 1783
Sverðið Oddurinn var brotinn af
sverðinu og lá á sama stað og það.
Uggi Ævarsson
Bréf sem Hall-
dór Laxness rit-
höfundur skrif-
aði þýðanda
bóka sinna, Dan-
anum Erik Søn-
derholm, voru
boðin upp á net-
inu í gær. Um er
að ræða þrjú
handskrifuð og 17 vélrituð bréf
með undirskrift Halldórs frá ár-
unum 1962-1981. Einnig fylgdu
bréf frá Erik Sonderholm, fjórar
ljósmyndir og jólakort.
Bréfin voru metin á 140.000-
170.000 krónur en seldust á
244.000 sem eru um 14.000 dansk-
ar krónur. Ekki liggur fyrir hver
keypti bréfin en nokkrir Danir
höfðu spurst fyrir um þau nokkru
áður en uppboðið fór fram að
sögn Lærke Bøgh hjá uppboðshús-
inu í Danmörku.
Bréfin seldust
á 244 þúsund kr.
Seld Bréf Laxness.