Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
www.fr.is
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDU NÚNA
820 8081
sylvia@fr.is
Sylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Nemi til lögg.fasteignasala
Brynjólfur Þorkellsson
Sölufulltrúi
Sjöfn Ólafsdóttir
Skrifstofa
Vef-Þjóðviljinn skrifar:
Í Norðvesturkjördæmi fara Píratar ekki síður ótroðnar
slóðir. Þar er búið að
ógilda niðurstöðu
prófkjörsins því
yfirstjórnin í
Reykjavík er
ekki sátt við sig-
urvegarann, Þórð
Guðstein Pétursson.
Ríkisútvarpið fékk þessarskýringar hjá Herberti
Snorrasyni sem situr í kjördæm-
isráði flokksins í hádegisfréttum
3. september: „[Þórður Guð-
steinn] gekkst við því meðal ann-
ars að hafa fengið, eins og hann
orðaði það, nokkra félaga, 20-30
manns, til að skrá sig í flokkinn
til þess að kjósa sig og samkvæmt
þeim tölfræðigögnum sem voru
birt um kosninguna, þá kusu 18
af þessum eingöngu hann og eng-
an annan í prófkjörinu en fólki
var frjálst að raða öllum sem að
voru í framboði á kjörseðil hjá
sér.“
Þarna eru 18 seðlar hreint ogbeint raktir til félaga Þórðar
Guðsteins. Þetta er gert með því
að misnota kjörgögnin og yfir-
heyra sigurvegarann.
Það er fáheyrt í leynilegumkosningum á Íslandi að kjör-
seðlar séu raktir á þennan hátt til
kjósenda.
Prófkjör Pírata eru gróf atlagaað þeim góðu lýðræðis-
hefðum sem Íslendingar hafa
lengi notið og hingað til getað
treyst.
Og virðingarleysið við friðhelgieinkalífs þeirra sem greiddu
atkvæði í prófkjöri Pírata í Norð-
vesturkjördæmi er skelfilegt.“
Laskað lýðræði
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.9., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 9 skýjað
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 4 rigning
Þórshöfn 13 rigning
Ósló 19 skýjað
Kaupmannahöfn 20 léttskýjað
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 16 skýjað
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 22 skýjað
Dublin 23 skýjað
Glasgow 18 skýjað
London 23 skýjað
París 18 þoka
Amsterdam 23 skýjað
Hamborg 23 léttskýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 14 rigning
Moskva 16 heiðskírt
Algarve 31 heiðskírt
Madríd 39 heiðskírt
Barcelona 29 léttskýjað
Mallorca 33 léttskýjað
Róm 24 rigning
Aþena 26 súld
Winnipeg 14 skýjað
Montreal 15 þoka
New York 24 skýjað
Chicago 28 léttskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:30 20:22
ÍSAFJÖRÐUR 6:30 20:32
SIGLUFJÖRÐUR 6:12 20:16
DJÚPIVOGUR 5:58 19:53
Ísland er í 4.
sæti í sínum riðli
eftir 9 umferðir
af 17 í opnum
flokki á heims-
leikunum í brids,
sem haldnir eru í
Wroclaw í Pól-
landi. Í kvenna-
flokki er íslenska
liðið í 14. sæti í
sínum riðli.
Þrír leikir
voru spilaðir í
gær í báðum flokkum. Í opnum
flokki tapaði Ísland fyrir Hong
Kong og Lettlandi en vann Eng-
land í afar vel spiluðum leik þar
sem flest spilin féllu. Englendingar
eru í 2. sæti í riðlinum.
Í kvennaflokki tapaði Ísland fyr-
ir Bandaríkjunum en vann bæði
Skota og Indverja.
Erfiðir mótherjar í dag
Þrír riðlar eru í opnum flokki og
komast fimm sveitir úr hverjum
áfram í 16 liða úrslit ásamt stiga-
hæsta liðinu í 6. sæti. Í kvenna-
flokki eru tveir riðlar og komast
átta lið áfram úr hvorum riðli í 16
liða úrslit.
Ísland spilar í opnum flokki í dag
við Bandaríkin, Noreg og Argent-
ínu í opnum flokki. Þarf íslenska
liðið að halda vel á spöðunum ætli
það að halda sæti sínu meðal fimm
efstu en þessi þrjú lið eru í 6. 7. og
8. sæti í riðlinum. Pólverjar eru
efstir.
Leikurinn við Bandaríkin verður
sýndur beint á netsíðunni bridge-
base.com og hefst klukkan 8:30.
Leikurinn við Argentínu er einnig
sýndur þar og hefst kl. 14:50.
Í kvennaflokki eru mótherjar Ís-
lendinga í dag Palestínumenn,
Danir og Pólverjar. Tvær síðast-
nefndu þjóðirnar berjast um sæti í
sextán liða úrslitum en Palestína
er í 15. sæti í riðlinum.
Ísland í 4.
sæti í sín-
um riðli
Kvennaliðið er í 14.
sæti eftir 9 umferðir
Fjölmenni Úr
spilasal í Wroclaw.