Morgunblaðið - 07.09.2016, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
SUMUM LEYNDARMÁLUM
Á EKKI Að ÞAGA YFIR.
GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK?
HVAÐ MEÐ
KYNFERÐISOFBELDI?
Fallegir kjólar
Túnikur
Bolir
Peysur
Buxur
O.fl.
Mikið úrval
Ný sending
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
HVAÐ HENTAR
ÞÍNU STARFSFÓLKI?
Hjá okkur færðu ljúffengan mat
úr fyrsta flokks hráefni.
• Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti.
• llmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum.
• Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi.
• Brakandi fersk salöt og ávexti.
• Við komum til móts við ykkar óskir
kryddogkaviar.is
kryddogkaviar@kryddogkaviar.is
Sími 515 0702 og 515 0701
Laugavegi 63 • S: 551 4422
NÝ
SENDING
Flottar vetrabuxur
GERRY WEBER
GARDEUR
LAGERSALA – 40% afslátttur
SVARTAR m/ullarblöndu -
Gallabuxur beinar
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann-
esson, lagði síðdegis í gær í sína
fyrstu utanför sem forseti. Ferðinni
er heitið til Rio de Janeiro í Bras-
ilíu, þar sem forsetinn mun sækja
Ólympíumót fatlaðra, en þar eru
fimm Íslendingar meðal þátttak-
enda.
Við þessa för urðu þau tímamót í
sögu forsetaembættisins að hand-
hafar forsetavalds fylgdu ekki for-
seta út á flugvöll eins og tíðkast
hefur frá upphafi lýðveldisins 1944.
Það var að ósk Guðna að þessi
venja er nú aflögð.
Kvöddu með handabandi
Í árdaga forsetaembættisins
kvöddu handhafarnir Svein Björns-
son, fyrsta forseta Íslands, við
skipsfjöl er hann hélt af landi brott.
Síðar, þegar forsetarnir hættu að
ferðast með skipum og fóru utan
með flugvélum, fylgdu handhaf-
arnir forsetanum á flugvöllinn og
kvöddu hann með handabandi við
landganginn. Þar með höfðu þeir
tekið við forsetavaldinu.
Framvegis verður við það miðað
að handhafarnir taki við forseta-
valdinu þegar flugvél forsetans hef-
ur tekið á loft og hann er ekki leng-
ur á íslenskri grundu.
Samkvæmt því tóku handhaf-
arnir við forsetavaldinu þegar flug-
vél Lufthansa tók á loft á Keflavík-
urflugvelli klukkan 14:22 síðdegis í
gær. Ferðinni var heitið til Frank-
furt þar sem við tók framhaldsflug
til Rio.
Guðni verður viðstaddur setn-
ingu Ólympíumótsins í kvöld ásamt
leiðtogum og ráðherrum um 40
annarra ríkja. Hann mun síðan
fylgjast með leikunum og hitta ís-
lensku keppendurna og aðstand-
endur þeirra. Forsetinn verður í
Ríó fram til 10. september.
Íþróttasamband fatlaðra bauð
Guðna að sækja leikana en forseta-
embættið stendur straum af ferð-
inni. Með Guðna í för er Örnólfur
Thorsson forsetaritari.
Forsetinn fór út á flug-
völl án fylgdar handhafa
Tímamót í sögu embættisins Sækir Ólympíumótið
Morgunblaðið/Eggert
Guðni Th. Hittir íslensku keppend-
urna á Ólympíumótinu í Ríó.
Hreindýraveiðarnar á Austurlandi
hafa tekið nokkurn kipp undanfarna
daga. Vel veiddist um síðustu helgi
eða upp undir 100 hreindýr, að sögn
Jóhanns G. Gunnarssonar, sérfræð-
ings Umhverfisstofnunar á Egils-
stöðum. Í fyrradag viðraði illa til
veiða, þoka og rigning var niðri á
fjörðum og þoka var á svæðinu í
kringum Snæfell og víðar. Í gær
birti heldur til.
„Menn hafa verið að skila inn
veiðileyfum seinasta hálfa mán-
uðinn. Ég er núna að reyna að koma
út einum 14 leyfum sem dreifast hér
og þar. Það gengur hægt, enda verð-
ur að fara eftir biðröðinni,“ sagði Jó-
hann í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Það gengur erfiðlega að út-
hluta ef það er þoka og slæm veður-
spá. Miðað við tíðarfarið finnst mér
vera allt of margir tarfar óveiddir.
Menn ættu að geta verið búnir að
veiða þá. Það hefur raunar verið
þokusælt á svæðum 7 og 8, en dýrin
eru væn og vel á sig komin.“
Að þessu sinni er leyft að veiða
alls 1.300 hreindýr, 452 tarfa og 848
kýr. Í gær var búið að veiða um 830
hreindýr og því um 470 dýr óveidd.
Rúmlega 80 tarfar voru óveiddir í
gær og um 390 hreinkýr, þar af á að
veiða 135 kýr í nóvember. Tarfa-
veiðitímabilinu lýkur 15. september
en leyft er að veiða hreinkýr á öllum
svæðum til 20. september. Nóvem-
berveiðin á hreinkúm er bundin við
veiðisvæði 7, 8 og 9 sem ná frá mörk-
um Djúpavogshrepps í norðri og
suður í Suðursveit.
gudni@mbl.is
Eftir að veiða 470 hreindýr
Upp undir 100 hreindýr voru veidd um síðustu helgi
Morgunblaðið/RAX
Austurland Hreindýraveiðarnar
standa nú sem hæst fyrir austan.
—með morgunkaffinu