Morgunblaðið - 07.09.2016, Qupperneq 13
tóftir og hlaðnir garðar á bökkum
Þjórsár. Í fyrstu fannst mér eins og
verið væri að eyðileggja friðsældina
og fegurðina en um leið var merki-
legt að sjá allar vistarverurnar og
hleðslurnar svona greinilega og
vinna fornleifafræðinganna var frá-
bær. Þeir fræddu mig um ýmislegt,
t.d. hvernig skipulagið hafði verið,
stofan og kálgarðurinn, búrið, eld-
húsið og pínulitla fjósið o.s.frv.,“
segir Borghildur og bætir við að
eftir að hafa rætt við fornleifafræð-
ingana hafi hún fengið skýrari sýn á
búskaparhætti forfeðra sinna.
Þrátt fyrir að hafa vitað lengi
af virkjanaframkvæmdum á þessu
svæði hafði hún talið að sjálfar tóft-
irnar færu ekki undir vatn. En nú
virðist augljóst af teikningum að
dæma, að þær fara undir sjálfan
stíflugarðinn, að sögn hennar.
„Ég fann það á mér, þegar ég
stóð þarna við tóftirnar í júní, að ég
þyrfti að vinna með þetta, segja frá
þessu með einhverjum hætti. En
sannleikurinn er sá að á dagskrá er
að umbylta öllu þessu landsvæði.“
Á sýningunni eru stórar ljós-
myndir af tóftunum og umhverfi
þeirra og til að marka sín eigin
fingraför á tóftirnar þá raðaði
Borghildur handgerðum leirskálum
sínum þar inn í og ofan á. Um leið
vill hún opna augu okkar fyrir sam-
spili manngerðu minjanna og stór-
brotinnar náttúrunnar sem umlyk-
ur þær.
„Ég hafði tilfinningu fyrir því
að ég þyrfti að fara þarna inn með
eitthvað frá sjálfri mér til að tengj-
ast enn betur. Tóftirnar eru mikil-
vægar en fyrir mér er heildin enn
mikilvægari, allt umhverfið spilar
með. Og nú hef ég gert mitt um-
hverfismat. Það er alltaf verið að
meta allt landið okkar með þá hugs-
un að virkja. Mitt umhverfismat,
hér á þessari sýningu, er um þessi
tengsl umhverfisins við tóftirnar,
heildarmyndin.“
Ekki nógu gamlar tóftir
Bærinn var byggður fyrir 125
árum. Það gerðu Höskuldur Jóns-
son og Arndís Magnúsdóttir,
langafi og langamma Borghildar,
árið 1894, eftir að hafa hrakist frá
eldra bæjarstæði Skarðssels, norð-
an Skarðsfjalls, undan sandburði
sem hafði sléttfyllt allar lautir í tún-
um og spillt vatnsbóli.
Tóftirnar eru á grösugum ár-
bökkum Þjórsár norðaustan við
Skarðsfjall. Höskuldur og Arndís
fluttu og endurbyggðu bæinn þar.
Byggingarlag hússins var, þegar
það var reist, mjög gamaldags. Í
raun margra alda gamalt bygging-
arlag, enda lítið um nýjungar yfir-
leitt hjá fátæku bændafólki á þeim
tíma, að sögn Borghildar.
Tóftirnar voru grafnar upp í
sumar til að rannsaka þær og
kanna hvort það væri eitthvað eldra
undir en svo reyndist ekki vera.
„Kannski eru þær ekki nógu gaml-
ar til að lögð sé áhersla á verndun,
þótt merkilegar séu. Ég veit það
bara ekki,“ segir Borghildur.
Ræturnar mikilvægar
Ræturnar og hlutskipti for-
feðranna hefur lengi verið Borg-
hildi hugleikið og hefur hún síðustu
áratugina unnið myndlist sem teng-
ist náttúru og landsvæðum og sögu
forfeðra hennar. „Það sem kveikir
áhuga er eitthvað sem maður heyr-
ir merkilegt úr fortíðinni eins og
frásögnin um afa minn og ömmu
sem send voru á sveitina, sveitina
sem afi minn var frá, Flóann, og
börnin þar sett niður á hina og
þessa bæi. Ég fór með föður mínum
um þessar sveitir og hann sagði
mér sögur,“ segir Borghildur.
Seinna fóru þau upp á Rangárvelli
og í Landsveitina, en þaðan var
amma hennar. „Við leituðum þar
uppi bæi og bæjartóftir og und-
anfarin ár hef ég kynnt mér sögu
þessa fólks og baráttu þess við nátt-
úruöflin og um leið hef ég tengst
landsvæðinu sterkum böndum.“
Frásagnir af lífi forfeðranna í
stórbrotnu landslagi Rangárvalla
og Landsveitar hefur Borghildur
notað í listsköpun sinni. Forfeður
hennar bjuggu þarna á mörkum
byggðar og óbyggðar þar sem land-
ið er í sífelldri endursköpun vegna
eldgosa, jarðskjálfta og sand-
storma. Verk hennar fela í sér vin-
samlega hvatningu um að læra að
þekkja söguna og virða hana.
Morgunblaðið/Golli
List „En sannleikurinn er sá að á dagskrá er að umbylta öllu þessu landsvæði.“
Ljósmynd/Borghildur Óskarsdóttir
Land Tóftirnar eru á grösugum árbökkum Þjórsár norðaustan við Skarðsfjall.
Morgunblaðið/Golli
Nöfnur Borghildur eldri og yngri.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Enn er bætt um betur með nýju ReSound
heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu
þessa hágæða tækni.
Aldrei hefur
verið
auðveldara
að heyra
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone
Borghildur, Margrét Grétars-
dóttir, ferðaþjónustubóndi í
Stóra-Klofa, og Þór Jakobsson,
veðurfræðingur og frístunda-
bóndi í Mörk á Landi, hafa sam-
eiginlegan áhuga á verndun
tófta og gamalla minja í Land-
sveit.
„Þór fékk þá hugmynd að færa
Skarðsselstóftirnar á öruggan
stað og varðveita þær þannig.
Það er gerlegt, segir vanur grjót-
hleðslumaður, og í sögulegu
samhengi kannski skemmtileg
hugmynd, því bærinn hefur verið
færður undan ógn áður. Frá
fornu fari stóð bærinn á öðrum
stað norðan Skarðsfjalls, en
vegna eyðingar þar á túnum og
vatnsbóli var hann fluttur að
Þjórsá. En nú er það virkjunin
sem er ógnin,“ segir Borghildur.
Virkjun ógn
VERNDA MINJAR OG TÓFTIR