Morgunblaðið - 07.09.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016
Það er allt komið á fulla ferð íTónskólanum og ég held viðséum með um 110 nem-
endur nú á haustönninni,“ segir
Egill Jónsson, skólastjóri Tónskóla
Neskaupstaðar, en skólinn fagnar
einnig 60 ára afmæli 1. október á
þessu ári. „Það fer fram mjög fjöl-
breytt starf í Tónskólanum. Við er-
um með blásarasveit við skólann og
á hverju ári eru starfandi nokkrar
,,popp-hljómsveitir“ skipaðar nem-
endum, enda er hér kennt á öll
þessi algengustu hljóðfæri og erum
við svo heppin að allir kennarar
skólans eru heimafólk og hefur svo
verið lengi. Við kennum ekki bara
klassík heldur eru allar tónlistar-
stefnur hér í gangi, djass, popp og
rokk og svo auðvitað klassíkin. Í
gegnum árin hafa útskrifast margir nemendur frá skólanum sem farið
hafa í framhaldsnám og starfa í dag við tónlist bæði hér á landi og er-
lendis, Og ekki má gleyma öllum hinum nemendunum sem geta eftir
nám sitt í skólanum sest niður með hljóðfæri sín og spilað einir eða með
öðrum og notið tónlistar hver á sinn hátt.“
Egill kennir sjálfur á píanó, orgel og harmoniku auk þess að vera tón-
menntakennari við Nesskóla. „Ég hef kennt alveg frá því ég útskrifaðist
úr Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979 og vinnan og tómstund-
irnar eru það sama. Ég var skólastjóri Tónskóla A-Skaftafellssýslu áður
en ég flutti til Neskaupstaðar og síðan skólastjóri Tónlistarskólans á
Egilsstöðum eitt ár.“ Egill spilar á baritonhorn með blásarasveit Tón-
skólans en hann lærði á básúnu á yngri árum. Hann stjórnar karlakórn-
um Ármönnum, er með söngstund hjá Félagi eldri borgara í Norðfirði í
hverri viku yfir veturinn og stjórnar harmonikuhljómsveit Félags
harmonikuunnenda í Neskaupstað. „Það er því nóg að gera fyrir utan
kennsluna, þá tekur allt hitt við. Það er líka stór hluti af vinnunni að
fylgjast með því sem er að gerast í tónlistinni og hvað krakkarnir eru að
hlusta á hverju sinni, því tónlistarkennarinn verður að vera með það allt
á hreinu.“
Egill ætlar að taka sér frí í vinnunni í dag og fara í sveitina. „Við eig-
um athvarf í Fljótsdal á bæ sem heitir Litla-Grund, en við hjónin, dóttir
okkar og tengdasonur og foreldrar hans rekum hann í sameiningu. Þar
líður mér best og yndislegt að geta komið þangað til að hlaða batteríið
hvenær sem er á árinu.“
Eiginkona Egils er Sigurlaug Sveinsdóttir, sjúkraliði á Heilbrigðis-
stofnun Austurlands, og börn þeirra eru Guðrún, Sigurjón og Erla.
Barnabörnin eru 6 og von á barnabarnabarni í vetur.
Hjónin Egill og Sigurlaug.
Nóg að gerast í tón-
listinni í Neskaupstað
Egill Jónsson er sextugur í dag
A
nna Gunnhildur Ólafs-
dóttir fæddist á Fæð-
ingarheimilinu við
Eiríksgötu 7.9. 1966.
Fjölskyldan bjó þá í
Háagerði 79, sömu raðhúsalengju og
föðuramma hennar og nafna, Anna
Ólafsdóttir frá Gunnhildargerði.
Fimm árum síðar festi fjölskyldan
rætur í Hlíðunum með þeim afleið-
ingum að Anna varð gallharður
Valsari. Hún gekk í Hlíðaskóla og
lauk stúdentsprófi frá MH vorið
1986.
„Ég var sjálfstæð stelpa, vildi
vinna og fá útborgað. Fyrsta starfið
var útburður á Mogganum í götunni
minni, Bogahlíðinni. Ég bar út frá
tíu ára aldri og þar til ég varð tvítug
og þótti blaðburðurinn ekki sam-
rýmast vaxandi félagslífi um
helgar.“
Anna Gunnhildur stefndi á
kennslu sem ævistarf: „Þegar ég var
lítil klippti ég stílabækur niður í litl-
ar stílabækur, saumaði skólatöskur
fyrir dúkkurnar og æfði mig á kenn-
arahlutverkinu. Því lá beint við að ég
sæktist eftir kennarastarfi í fram-
haldsskóla eftir að ég lauk BA-gráðu
í íslenskum bókmenntum og uppeld-
is- og kennslufræði frá HÍ.“
Blaðamennska góður skóli
En örlögin gripu í taumana: „Ég
smitaðist af fjölmiðlabakteríu, rakst
inn á skrifstofu Styrmis Gunnars-
sonar og bað um sumarvinnu við
blaðamennsku. Eins og Styrmis er
von og vísa tók hann mér afskaplega
vel en ráðlagði mér að klára stúdent-
inn fyrst. Þessi baktería hefur
greinilega blundað í mér því að þeg-
ar góð vinkona mín úr íslenskunni,
Hrönn Hilmarsdóttir, ákvað að
sækja um sumarstarf á fjölmiðli
bauðst ég til að fara með henni með
þeim afleiðingum að ég fékk sumar-
starf á Mogganum og ílengdist þar í
15 ár eftir háskólanám.
Blaðamennska er einn besti skóli
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastj. Geðhjálpar – 50 ára
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Fjölskyldan Davor, Valgerður Marija, Halldóra Ana og Anna Gunnhildur eftir stúdentsútskrift Halldóru Önu.
Gengur með hundinn,
syndir skriðsund og les
Þrjú góð Hrannar, formaður Geð-
hjálpar, forsetinn og afmælisbarnið.
Seltjarnarnes Saga Karitas
Steinsdóttir fæddist 10. jan-
úar 2016. Hún vó 4,3 kg og
var 55 cm löng. Foreldrar
hennar eru Ragna Ingólfs-
dóttir og Steinn Gunnars-
son.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is - mán-föst 10-18 - lau 11-15
Mikið úrval af
gæða sængur-
fatnaði
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is