Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016 Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða þjónustufólk? Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Hænur eiga sér ýmsa búninga enda eru þær kúnstugar, bæði á lit og í lund. Þessi doppótti fugl hoppaði inn á milli trjánna við Hús- dýragarðinn í Laugardal í gær og var vafalaust frelsinu feginn, þótt ekki væri nema um stundar- sakir. Þá er ekki að efa að þarna hefur hænan spjarað sig vel því fuglar af þessu kyni eru alæt- ur og geta gert sér mat úr flestu því sem goggur þeirra grípur. Étur allt sem goggurinn grípur Morgunblaðið/Ófeigur Doppótt í Laugardalnum og hoppaði inn á milli trjánna Guðni Einarsson Elín Margrét Böðvarsdóttir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hlaut afgerandi kosningu (72,34% at- kvæða) í 1. sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið var á tvöföldu kjördæmisþingi flokksins í Skjólbrekku í Mývatns- sveit á laugardaginn var. Ræðu Sig- mundar var vel tekið á kjördæmis- þinginu. „Sigmundur Davíð vann þessa kosningu með meiri stuðningi en hann fékk fyrir síðustu kosningar. Hann fékk heilum tíu prósentustig- um meiri stuðning nú en þá,“ sagði Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði. „Þetta hljóta að vera jákvæð tíðindi fyrir Sigmund Davíð og hans stuðningsfólk. Auðvitað vitum við ekki hvort þetta er heildar- myndin.“ Grétar Þór kvaðst telja að þessi niðurstaða geti ekki annað en styrkt Sig- mund Davíð í bar- áttu hans fyrir því að vera áfram for- maður Framsóknarflokksins. „Það hefði verið verra ef hann hefði unnið 1. sætið með 51% stuðningi. Hins vegar þarf þetta ekki endilega að þýða að hann eigi sigurinn vísan í formannsbaráttunni. Við getum ekki dregið þá ályktun, a.m.k. miðað við þær upplýsingar sem við höfum.“ Grétar Þór sagði að það væri einn- ig spurning hvernig þessi niðurstaða muni mælast fyrir á meðal almennra kjósenda í væntanlegum alþingis- kosningunum. Hann kvaðst hafa orð- ið var við það á netinu í gær að nokkrir framsóknarmenn hefðu ver- ið að tilkynna opinberlega úrsögn sína úr flokknum. Þeirra á meðal var Jóhannes Gunnar Bjarnason, fyrr- verandi oddviti Framsóknarflokks- ins í bæjarstjórn Akureyrar. Framboðslisti samþykktur Eyþór Elíasson, formaður kjör- stjórnar Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, taldi að kosn- ingaþátttakan hefði verið í kringum 70%. Af um 370 sem gátu kosið greiddu 238 fulltrúar atkvæði. End- anlegur framboðslisti var samþykkt- ur á kjördæmisþinginu í gær. Þór- unn Egilsdóttir alþingismaður mun skipa 2. sæti listans, Líneik Anna Sævarsdóttir alþingismaður 3. sæti, Sigfús Karlsson 4. sæti og Margrét Jónsdóttir 5. sæti. Höskuldur Þórhallsson alþingis- maður sóttist eftir 1. sæti á listanum. Hann sótti hart að Sigmundi Davíð í framboðsræðu sinni en hafði ekki er- indi sem erfiði og hlaut tæp 10% at- kvæða í 1. sætið. Þegar úrslit lágu fyrir tilkynnti Höskuldur að hann gæfi ekki kost á sér til setu á fram- boðslista flokksins fyrir komandi al- þingiskosningar. Næsta flokksþing Framsóknar- flokksins verður haldið dagana 1. og 2. október. Það mun kjósa formann, varaformann, ritara og fleiri emb- ættismenn flokksins. Styrkir stöðu Sigmundar  Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hlaut afgerandi kosningu í 1. sæti framboðslist- ans í NA-kjördæmi  Ekki er þó víst að hann eigi sigur vísan í formannskjörinu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Ásmundur Friðriksson alþingis- maður og Vilhjálmur Árnason al- þingismaður skipa þrjú efstu sætin á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður verður í fjórða sæti en hún hlaut fimmta sætið í prófkjörinu. Sem kunnugt er ákvað Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, að yfirgefa stjórnmálin eftir að hún hlaut fjórða sæti í próf- kjörinu. Unnur Brá kvaðst ekki hafa ósk- að eftir því að vera færð upp um sæti. „Þeir fengu afgerandi kosn- ingu í þrjú efstu sætin, meðal ann- ars er fulltrúi ungra sjálfstæðis- manna í þriðja sæti. Ég fór ekki fram á breytingu,“ sagði Unnur Brá. Hún segir að þegar horft sé á listann í heild sé fjölbreytni hans mikil. Sjálfstæðisflokkurinn er nú með fjóra þingmenn í kjördæminu. Tvær konur, þær Kristín Traustadóttir endurskoðandi og Hólmfríður Erna Kjartansdóttir skrifstofumaður, skipa 5. og 6 sæti listans. Í tíu efstu sætunum eru fjór- ar konur og sex karlar. „Það eru vonbrigði að sjá kjör- dæmisráðið fara gegn grunngildum flokksins sem eru mjög skýr um að gæta skuli að jöfnum hlut kvenna og karla þegar raðað er á lista,“ sagði Helga Dögg Björgvinsdóttir, formaður Landssambands sjálf- stæðiskvenna. Hún sagðist hefðu viljað sjá flokksforystuna taka bet- ur af skarið á þann hátt að gefa út skýrari skilaboð til kjördæmisráða um að fara bæri að grunngildum flokksins. „Það er verið að fara þvert á það sem segir í skipulags- reglum flokksins,“ sagði Helga. Framboðslisti Sjálfstæðisflokks- ins í Suðurkjördæmi var sam- þykktur á fundi kjördæmisráðs í Hvíta húsinu á Selfossi í gær. gudni@mbl.is Unnur Brá verður í 4. sæti Morgunblaðið/RAX Oddvitinn Páll Magnússon er í 1. sæti á framboðslistanum.  Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi Stjórn Fram- sóknarfélags Ár- borgar skorar á Sigurð Inga Jó- hannsson for- sætisráðherra að bjóða sig fram til formanns Fram- sóknarflokksins á flokksþingi sem haldið verður dagana 1.-2. októ- ber. Er þetta fjórða framsókn- arfélagið sem samþykkir slíka áskorun, en Sigurður Ingi er fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis og varaformaður flokksins. Frá þessu var greint á vef Sunn- lenska, sem sagði stjórn framsókn- arfélagsins hafa samþykkt áskor- unina á fundi sínum í fyrradag. Framsóknarfélög Austur- Húnavatnssýslu, Framsóknarfélag Borgarfjarðar og Mýra og Fram- sóknarfélag Reykjanesbæjar hafa þegar skorað á Sigurð Inga að bjóða sig fram til formanns flokksins. Áður hefur verið haft eftir Sig- mundi Davíð Gunnlaugssyni, for- manni flokksins, að hann telji Sigurð Inga ekki munu fara fram gegn sér. annaei@mbl.is Skora á Sigurð Inga Sigurður Ingi Jóhannsson  Framsóknarfélög vilja nýjan formann Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði í gærkvöldi fengið nokkrar ábendingar um manninn sem aug- lýst var eftir vegna ráns í verslun Samkaupa Strax við Borgarbraut á Akureyri. Ekki fékkst uppgefið hvort búið væri að bera kennsl á manninn en mynd af honum var birt með tilkynningunni. Maðurinn ógnaði starfsmanni verslunarinnar með hnífi um klukk- an átta að morgni laugardags og fékk hann þannig til þess að opna af- greiðslukassa. Fram kom í tilkynn- ingu lögreglunnar að maðurinn tók peninga úr kassanum. Engan sakaði en starfsfólki var brugðið. Þegar auglýst var eftir manninum kom fram að hann var talinn um þrí- tugt, um 180 sentimetrar á hæð og dökkhæður. Hann var klæddur í bláa hettupeysu og íþróttabuxur. Lögreglan á Norðurlandi eystra þiggur allar upplýsingar um málið. Leitað eftir rán nyrðra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.