Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nýlega ákvað umhverfis- og auðlinda- ráðherra sama fyrirkomulag rjúpna- veiða í haust og gilt hefur síðustu þrjú ár. Umhverfisstofnun (UST) lagði til að leyft yrði að veiða rjúpur í 18 daga en Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) lagði til 12 veiðidaga líkt og voru á ár- unum 2013-2015. Fyrir friðun rjúpunnar 2003 og 2004 var veiðitíminn 69 dagar að lengd. Leyft var að veiða rjúpur í 47 daga haustið 2005 en svo fækkaði veiðidögunum ár frá ári og urðu þeir fæstir árin 2011 og 2012 eða 9 dagar hvort ár. Dr. Ólaf- ur Karl Nielsen, vistfræðingur og helsti rjúpnasér- fræðingur hjá NÍ, sagði að veiðidög- um hefði verið fækkað eftir frið- un 2004 til að draga úr veiði- álagi. Reyndin varð sú að fækkun veiðidaga skerti ekki sóknargetuna því rjúpnaskyttur fara flestar ekki nema 3-4 daga til veiða á hverju tímabili. En hvers vegna var veiðidögunum ekki fjölgað nú? „Það er lítið af rjúpum núna og við teljum að það eigi ekki að auka getu manna til að sækja í rjúpuna nú með því að fjölga dögunum,“ sagði Ólafur. En hefði þá átt að sleppa rjúpnaveið- um þetta árið? „Nei,“ sagði Ólafur. „Í mínum huga er þetta spurning um hvort við ætlum að halda áfram að nytja rjúpuna eða ekki. Ef við ætlum að gera það þá eig- um við að stíga varlega til jarðar og láta fuglinn njóta vafans í öllum at- höfnum sem tengjast nytjunum. Það hefur verið gert síðustu 10-15 árin. Veiðitíminn var styttur og sett á sölu- bann sem skipti mjög miklu máli. Veiðimenn hafa verið hvattir til að sýna hófsemi og þeir hafa brugðist drengilega við því. Þeir hafa gjör- breytt sinni hegðan. Í mínum huga skiptir fjöldi leyfðra veiðidaga kannski ekki öllu máli, en við höfum hvatt til íhaldssemi á meðan stofninn er jafnlítill og nú.“ Heilbrigðið og viðkoman Í mati NÍ á veiðiþoli rjúpnastofns- ins haustið 2016 kemur m.a. fram að viðkoma rjúpna hafi verið slakari frá 2005 en í 25 ár þar á undan. Meðalfjöl- skyldustærð í lok júlí var 6,5 ungar á kvenfugl á Norðausturlandi og 6,9 ungar á kvenfugl á Suðvesturlandi. Áður var tæplega tveimur ungum meira á hvern kvenfugl. Ólafur sagði vitað að bæði tíðarfar og heilbrigði rjúpunnar hafi áhrif á af- komu unganna. Ólafur sagði að þrátt fyrir gott veður í sumar hafi afkoma rjúpunnar ekki verið sérlega góð. „Rannsóknir sem gerðar hafa verið frá 2006 sýna að samband er á milli sníkjudýrasýkinga í rjúpum á haustin og viðkomu þeirra sumarið á undan,“ sagði Ólafur. Þegar sníkjudýrasýk- ingar grassera í stofninum eru unga- hópar síðsumars að jafnaði minni en þau ár þegar minna er um slíkar sýk- ingar. Rannsóknarverkefni NÍ um heil- brigði rjúpunnar lýkur eftir tvö ár. Það hefur staðið í tíu ár. Hundrað rjúpum hefur verið safnað á Norð- austurlandi ár hvert og heilsufar þeirra rannsakað. Verkefnið mun varpa ljósi á tengsl frjósemi, affalla og stofnbreytinga annars vegar og heilsufars rjúpnanna hins vegar, auk þess að veita fleiri upplýsingar. Ólafur sagði að ástand fuglanna sé mjög mis- munandi á milli ára. „Heilsa fuglanna virðist skipta máli varðandi stofn- breytingar. Holdastuðull fuglanna rís og hnígur eins og stofnstærðin og ýmsir aðrir þættir taka miklum breytingum á milli ára,“ sagði Ólafur. Refurinn og rjúpan Því hefur verið haldið fram að ref- urinn sé mikill meinvættur í lífi rjúp- unnar. Hver eru áhrif hans á rjúpna- stofninn? „Refurinn grípur rjúpuna hvenær sem færi gefst. Ef rjúpnastofninn vex taka refir fleiri rjúpur. Áhrif tófunn- ar, ef einhver eru, eru væntanlega þau að halda rjúpnastofninum niðri,“ sagði Ólafur. Hann benti á að rjúpan hafi verið alfriðuð árin 2003 og 2004. Þá var refastofninn að komast í sögu- legt hámark. „Stofninn tók stóran vaxtarkipp bæði árin og um allt land, þrátt fyrir fjölgun refa. Það eina sem var tekið út voru skotveiðar. Girðingar, raflínur, fálkar og tófur og allt annað sem verð- ur rjúpum að grandi var eins og áður. Það er ekki hægt að benda bara á tóf- una í þessu sambandi.“ Afrán tófu á rjúpnastofninn hefur ekki verið kannað sérstaklega, að sögn Ólafs. Fyrir nokkrum árum fylgdist Aðalsteinn Örn Snæþórsson, þá meistaranemi í líffræði, með á ann- að hundrað rjúpum sem merktar voru með radíómerkjum á suðvesturhorn- inu og á Norðausturlandi. Á suð- vesturhorninu reyndist vera mikið af- rán bæði á hreiðrum og kvenfuglum. Kettir, minkar og refir drápu fuglana og eins rændu mávar og hrafnar hreiðrin. Veiðiafföllin voru vanmetin „Forsendan fyrir sjálfbærum nytj- um er að stofninn sé vaktaður. Við hjá Náttúrufræðistofnun vöktum rjúpna- stofninn og gerum ákveðnar mæling- ar á sama hátt ár eftir ár,“ sagði Ólaf- ur. „Karrar sem búnir eru að helga sér óðul eru taldir á vorin og byggir stofnvísitalan á þeim talningum. Við athugum aldurshlutföll í varpstofnin- um á vorin, hirðum dauða fugla við hreiður fálka eða hrafna og aldurs- greinum og síðustu ár höfum við tekið ljósmyndir og aldursgreint eftir myndunum. Svo metum við komuna síðsumars. Stærðarmunurinn á ung- um og fullorðnum rjúpum auðveldar okkur að aldursgreina á þeim árs- tíma. Loks eru veiddar rjúpur aldurs- greindar á haustin. Einnig safnar UST skýrslum frá veiðimönnum. Út frá þessum gögnum metum við stærð veiðistofns og hvernig afföllin breyt- ast á milli ára,“ sagði Ólafur. Stofnlíkan fyrir rjúpnastofninn var smíðað í samráði við Háskóla Íslands á sínum tíma. Það hefur verið matað á vöktunargögnum frá Norðaustur- landi. Reikniaðferðin er þannig að ör- yggismörkin verða óhjákvæmilega mjög víð. Árið 2015 var notað nýtt líkan við að meta stofnstærð rjúpunnar að hausti og afföll. Sú aðferð gefur mun þrengri öryggismörk en eldri aðferð- in. Ólafur sagði að við samanburð á nýju aðferðinni og þeirri eldri virðist sem stærð rjúpnastofnsins hafi verið ofmetin og afföll vegna veiða verið vanmetin. „Við höfum talið að veiðiafföllin séu í kringum 10% síðan 2005 en sam- kvæmt nýja matinu eru þau 15-20%. Samkvæmt eldra matinu fóru veiði- afföllin hæst í 40% á árunum 1995- 2002 en samkvæmt nýja matinu var allt að helmingur fuglanna drepinn á veiðitímanum þegar mest var þau ár,“ sagði Ólafur. Stofnmatið og sveiflurnar UST mælti með því í tillögum um fyrirkomulag rjúpnaveiða til um- hverfis- og auðlindaráðuneytisins að miðað yrði við að varpstofn rjúpu fari ekki undir 90.000 fugla og það verði lágmarksstofn eða sjálfbærniviðmið. Fari stofninn svo langt niður verði veiðar ekki leyfðar fyrr en hann fer yfir 100.000 fugla. NÍ gerði athuga- semdir við skilgreiningu UST á lág- marksstofnstærð og sjálfbærum fuglaveiðum m.a. vegna þeirrar óvissu sem er í stofnmatinu. En við hvaða aðstæður yrði talið að framtíð rjúpnastofnsins sé ógnað? „Ég tel að það væri þegar þeir vísar sem við horfum á og fáum með vöktun rjúpnastofnsins, vísar eins og stofn- vísitala, frjósemi, dánartala, það er þegar þessir vísar sýndu langtíma neikvæða leitni. Þannig var til dæmis ástandið þegar gripið var til friðunar á árunum 2003 og 2004,“ sagði Ólafur. „Við sáum hvernig toppar stofnsveifl- unnar höfðu lækkað. Leitnin til lengri tíma litið hafði öll verið niður á við. Þetta stoppaði við friðunina. Stofninn hefur haldið áfram að sveiflast eftir það en topparnir frá 1998 verið hver öðrum svipaðir. Þeir eru lægri en þeir voru oft á árum áður en það er ekki að sjá að leitnin niður á við hafi haldið áfram eftir friðunarárin. Í augnablik- inu bendir ekkert til þess að rjúpna- stofninn sé í sérstakri hættu þótt það sé lítið af rjúpu síðustu ár.“ Þrír svipað háir toppar hafa komið í rjúpnastofninn frá árinu 1998, alla vega á norðausturhorninu. Stofninn er nú í niðursveiflu. Ólafur sagði að fallið á Norður- og Austurlandi haldi líklega áfram í einhver ár. Um vestan- vert landið hefur sveiflan náð botn- inum. Á sumum athugunarsvæðum eru teikn um að þar sé að byrja upp- sveifla. Núna er einna mest af rjúpu á norðausturhorninu og Austurlandi. Toppur var á Austurlandi 2014 og 2015 á norðausturhorninu. Þótt lands- hlutarnir liggi saman var þróunin í rjúpnastofninum ekki samstíga. Skil- in lágu um Vopnafjörð. Misjöfn hegðun rjúpnanna Þó nokkuð flakk er á rjúpunni, en mismikið eftir staðbundnum stofnum. „Hluti stofnsins hagar sér eins og far- fuglar í þeim skilningi að þeir yfirgefa varplöndin og fara í aðra landshluta til að hafa vetursetu. Fuglarnir sem ferðast lengst eru á norðausturhorn- inu. Svo koma þeir aftur á vorin til sinna varpheimkynna. Rjúpur úr Þingeyjarsýslum fara yfir á Suður- land og Suðvesturland og þó nokkuð á Austurland,“ sagði Ólafur. Hluti af veiðinni á Suðurlandi er því þingeysk- ir fuglar. Fuglarnir á Suðvesturlandi halda sig á sömu torfunni mestallt árið. Ferðalög lengra en 10 kílómetra heyra til undantekninga. Fuglarnir fara upp á heiðar og fjöll á haustin og koma niður þegar vetur gengur í garð á fjöllum. Rjúpnastofninn er lítill, en ekki í hættu  Veiðimenn hafa sýnt hófsemi  Afkoma rjúpnaunga ræðst af tíðarfari og heilbrigði  Sumar rjúpur fara á flakk en aðrar eru heimakærar  Fuglinn á að njóta vafans í öllum ákvörðunum mannanna Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Rjúpuungi Viðkoma rjúpna hefur verið slakari frá árinu 2005 en hún var í 25 ár þar á undan. Rannsóknir sýna að samband er á milli sníkjudýrasýkinga í rjúpum á haustin og viðkomu þeirra sumarið á undan. Dr. Ólafur Karl Nielsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.