Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 12
Garpur Hermann G. Jónsson vílar ekki fyrir sér að ganga og hlaupa á fjöll.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Ég hef verið áhugamaður umútivist en árið 2007 fór égað ganga á fjöll að ein-hverju marki og hef haldið
mig við það síðan. Árið 2009 setti ég
mér markmið, svona til að hafa eitt-
hvað til að eltast við, og ákvað að
ganga á öll fjöll í Grýtubakkahreppi.
Haustið 2009 hóf ég verkefnið og tók
þetta nokkuð skipulega eftir að-
stæðum. Ég spilaði þetta eftir eyranu
og ákvað að setja ekki nein tímamörk
á verkefnið. Ég trakkaði allar leiðir,
tók GPS-hnit og ljósmyndir og hélt
bókhald utan um ferðirnar.
Þegar ég var að verða búinn með
að afgreiða tindana alla spurðu pabbi
gamli og einnig skipsfélagi minn mig
hvort ég ætlaði ekki að gera eitthvað
við þessar heimildir sem söfnuðust á
þessum ferðum mínum. Þá fór ég að
velta því fyrir mér hvort ég væri með
efni í höndunum sem einhver hefði
kannski gaman af,“ segir Hermann
Gunnar Jónsson, sem gaf nýverið út
bókina Fjöllin í Grýtubakkahreppi.
Gengið á fjalltinda og í fjallaskörð á
Gjögraskaga vestan Flateyjardals.
Bókin er tvískipt, annars vegar
eru ferðasögur höfundar, nokkurs
konar dagbókarbrot á alla fjallatinda í
Grýtubakkahreppi. Hins vegar 13
gönguleiðalýsingar á valin fjöll á
svæðinu.
Hermann er sveitastrákur í húð
og hár og ólst hann upp á Hvarfi í
Bárðardal en hefur verið búsettur á
Grenivík síðustu 25 ár, þaðan sem
kona hans, Elín Jakobsdóttir, er ætt-
Ekki síðra á fjöllum
yfir vetrartímann
Þegar Hermann Gunnar Jónsson er ekki á sjó gengur hann á fjöll í nágrenni
Grenivíkur þar sem hann býr. Árið 2009 setti hann sér markmið og ákvað að
ganga á öll fjöll í Grýtubakkahreppi. Afraksturinn er bókin Fjöllin í Grýtubakka-
hreppi sem kom nýverið út. Bókin er tvískipt, annars vegar eru ferðasögur höf-
undar og hins vegar 13 gönguleiðalýsingar á valin fjöll á svæðinu.
Ljósmyndir/Hermann Gunnar Jónsson
Náttúra Ein af mörgum perlum sem Hermann heimsótti var í Trölladal.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016
Það er hægt að lýsa parsam-bandi með því samskipta-mynstri sem einkennir það.Því mynstri sem myndar
þann dans sem tveir einstaklingar
dansa saman í gegnum þær áskoranir
og gleði sem lífið býður upp á. Þegar
vel gengur erum við örugg, dansinn er
fjölbreyttur og flæðir vel, við erum í
takti og við leikum okkur aðeins með
sporin. Þegar reynir á verða sam-
skiptin streitumeiri og þá stirðnar
dansinn. Hann verður þrengri, ein-
hæfari og okkur finnst við ekki hafa
möguleika til tjáningar og leiks. Nei-
kvæð mynstur taka yfir dansinn okk-
ar sem er ekki lengur í takt.
Það er hins vegar jafn mikið mynst-
ur í erfiðum dansi og góðum. Þegar
við förum í vörn þá dönsum við yfir-
leitt svipað og alltaf þegar við förum í
vörn. Maki okkar líka. Eins dásamlegt
og það er að þekkja maka sinn vel og
dansa taktfast með honum þegar vel
gengur þá er mikilvægt að átta sig á
takti hans þegar ekki gengur eins vel.
Það er augljós gagnsemin í því að átta
sig á takti hins ef markmiðið er að
komast í takt við hann aftur, ekki
satt? Á erfiðum augnablikum erum
við hins vegar líkleg til að hlusta
minna en ella og svara meira um eigin
afstöðu, horfa minna á upplifun mak-
ans en færa frekar rök fyrir eigin upp-
lifun. Við erum í vörn líkleg til þess
einmitt að verja okkur, í stað þess að
opna og leyfa flæðinu að finna sinn
veg.
Ef vel er að gáð er hægt að sjá að
þegar við erum í vörn þá söknum við í
raun maka okkar. Þegar við erum reið
þá eru þar undir viðkvæmari tilfinn-
ingar eins og t.d. særindi eða óöryggi.
Þegar við rífumst þá erum við í raun
að segja að við viljum meiri athygli, að
við viljum vera séð, finna umhyggju,
að við séum ekki ein. Það þýðir að við
viljum meira af maka okkar, ekki
minna. Það er hins vegar ekki það
sem við endilega segjum og það er
mjög ólíklega það sem maki okkar
skilur. Hann heyrir gagnrýni og hann
heyrir höfnun. Sem kallar á vörn og
viðbrögð sem framkallar vítahring
sem gerir okkur enn sárari, enn reið-
ari.
Hvað ef báðir myndu átta sig á að
reiður maki er oftast að kalla á tengsl?
Hvað ef báðir myndu læra að þekkja
þennan dans, læra að skilja að svona
spor er merki um þörf en ekki ásök-
un? Spáðu aðeins í þeim dansi sem þú
og þinn maki dansið þegar þið eruð
ekki í takti. Hvernig lítur hann út?
Hvaða vörn eruð þið vön að sýna og
hvernig eruð þið vön að svara vörn
maka ykkar? Hvaða viðkvæmu tilfinn-
ingar er maki þinn að tjá undir t.d.
reiðinni eða pirringnum? Hvað myndi
gerast ef þú slepptir vörninni en svar-
aðir frekar ákalli þeirra tilfinninga?
Gæti dansinn mögulega orðið betri?
Samskiptamynstur parasambanda
Varnarleikur hjóna
Morgunblaðið/Jim Smart
Hjónadans „Ef vel er að gáð er hægt að sjá að þegar við erum í vörn þá
söknum við í raun maka okkar.“ Þetta segir pistlahöfundur meðal annars.
Heilsupistill
Mjöll Jónsdóttir
sálfræðingur
Garðyrkjufélag Íslands, Grasagarður
Reykjavíkur og Landbúnaðarháskóli
Íslands standa fyrir námskeiði fyrir
almenning um lífrænar varnir í heim-
ilisgarðinum 21. september næst-
komandi. Á námskeiðinu verður farið
yfir helstu skaðvalda í gróðurhúsum
og sólskálum, fjallað um forvarnir og
síðast en ekki síst hvað hægt sé að
gera þegar meindýr eru á annað borð
farin að láta á sér kræla.
Guðmundur Halldórsson skordýra-
fræðingur ræðir um skaðvalda í nátt-
úrunni og hættuna á innflutningi
skaðvalda. Bryndís Björk Reynis-
dóttir garðyrkjufræðingur tekur svo
fyrir algengustu skaðvalda í sól-
skálum og gróðurhúsum á Íslandi og
fer yfir hvaða varnir má nota hverju
sinni. Námskeiðið verður haldið í
garðskálanum í Grasagarðinum, þar
sem Flóran Café/Bistro er.
Námskeið haldið í Grasagarðinum
Lífrænar varnir í garðinum
Morgunblaðið/Jim Smart
Garður Námskeið í Grasagarðinum.
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu leikur við Skot-
land á morgun, þriðjudaginn
20. september, á Laugar-
dalsvelli. Leikurinn hefst kl.
17. Það er mikilvægt að
stelpurnar fái magnaðan
stuðning á leikjunum og
treystum við á að sem flest-
ir fjölmenni á Laugardals-
völlinn. Það er frítt á völlinn
fyrir 16 ára og yngri en mið-
inn kostar 2.500 kr. fyrir
eldri. Takmarkaður mið-
afjöldi er á leikinn.
Endilega...
...skellið ykkur á völlinn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Leikurinn Íslenska kvennalandsliðið.