Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016 ✝ Þórdís Sigurð-ardóttir fæddist í Sandgerði 4. júní 1927. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 13. september 2016. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurður Einarsson verkstjóri í Sandgerði, f. 8. nóv- ember 1878, d. 26. febrúar 1963, og Guðrún Sigríð- ur Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1889, d. 17. október 1980. Systkini Þórdísar voru Ein- ar Guðjón, Svava Kristín, Jóna Margrét, Einarína Jóna, Margrét Sigurveig, Guðrún Sigríður, Hulda og Jóna María sem lifir systkini sín. Þórdís giftist þann 7. júní 1950 Eiríki Þórðarsyni frá Norðfirði, f. 7. júní 1927, d. 9. desember 2007. Foreldrar hans voru hjónin Þórður Björnsson skipstjóri, f. 10. maí 1891, d. 23. nóvember 1974, og Stefanía Ármannsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1889, d. 14. september 1951. Börn Eiríks og Þórdísar eru: 1. Sæmundur, f. 26. desember 1949, sonur hans Sig- Þórdís Lilja, Matthildur Rós og Sara Sóley. c) Stefán Gunnar, f. 6. maí 1995. 5. Hrafnhildur, f. 3. apríl 1964, sambýlismaður henn- ar var Jónmundur Einarsson, f. 4. apríl 1960, d. 31. maí 1997. Börn þeirra: a) Harpa Dís, f. 5. september 1986, í sambúð með Herði Garðari Björgvinssyni, f. 13. september 1980. b) Einar Sævar, f. 25. febrúar 1990. c) Anna Karen, f. 4. september 1991, í sambúð með Árna Heimi Ingvarssyni, f. 5. ágúst 1987. Tveir yngri synir Hrafnhildar eru d) Anton Smári, f. 28. desem- ber 2000, og e) Brynjar Örn, f. 19. apríl 2002. Þórdís ólst upp með systrum sínum og foreldrum en þau bjuggu á Fagurhóli í Sandgerði. Eftir grunnskóla var hún við nám í Húsmæðraskólanum Varmalandi í Borgarfirði. Á sín- um yngri árum vann hún ýmis störf, meðal annars við fisk- verkun föður síns. Þau hjón, Þór- dís og Eiríkur, bjuggu lengst af við Álfhólsveg í Kópavogi og framan af var heimilið vinnu- staður hennar. Síðar fór hún að vinna utan heimilis. Hún vann lengi sem leiðbeinandi við skóla Kópavogshælis og söng um ára- bil með kirkjukór Kópavogs- kirkju. Útför Þórdísar fer fram frá Digraneskirkju í dag, 19. september 2016, og hefst athöfn- in klukkan 11. urður Þór, f. 15. mars 1971, eig- inkona Kolbrún Sigurjónsdóttir, f. 17. mars 1975. Tví- buradætur þeirra eru Birna og Nadía. 2. Guðrún Sigríður, f. 14. mars 1953. Eig- inmaður Steinn G. Ólafsson, f. 27. október 1952. Syn- ir þeirra: a) Eiríkur, f. 29. apríl 1977, kvæntur Margréti Gunnarsdóttur, f. 4. júlí 1973. Börn hennar Garðar og María Guðmundsbörn. b) Ólafur, f. 19. maí 1980. 3. Þórður Herbert, f. 27. maí 1957. Eiginkona Soffía Björnsdóttir, f. 18. apríl 1960. Börn þeirra: a) Arnar, f. 3. júlí 1984, b) Hákon, f. 6. apríl 1987, c) Ásdís, f. 3. febrúar 1993. 4. Stef- anía, f. 4. apríl 1960. Eiginmaður Þorsteinn G. Guðnason, f. 9. nóv- ember 1959. Synir þeirra: a) Tómas Þór, f. 21. febrúar 1986, í sambúð með Freyju Ágústs- dóttur, f. 10. maí 1986. b) Bjarni Viðar, f. 16. maí 1988, í sambúð með Dagnýju Vermundsdóttur, f. 10. mars 1990. Dætur þeirra eru Hún fer að engu óð er öllum mönnum góð og vinnur verk sín hljóð. þessar ljóðlínur eftir Davíð Stefánsson koma í huga mér þeg- ar ég hugsa um mömmu. Henni féll sjaldnast verk úr hendi og sinnti verkum sínum af alúð. Allir voru jafnir í hennar augum og reyndi hún alltaf að gefa af sér allt sem hún gat af gæsku og styrk. Mamma var mjög söngelsk og söng oft við störf sín. Það var sér- lega áberandi að hún söng mikið við þau störf sem voru leiðinlegri en önnur t.d. þrif á salernum. Hún söng um árabil með kirkjukór Kópavogskirkju. Mamma var óhrædd við að fara með okkur systkinin út á land og búa þar á sumrin til þess að við og hún gætum verið nær vinnustað pabba hverju sinni. Þá voru nú þægindin ekki fyrir hendi og þvoði hún í höndunum allan þvott og síð- an var skolað í lækjum. Við bjugg- um í eitt og hálft ár í gömlu vita- varðahúsi við Horn á Hornafirði þar sem ekkert rafmagn var og allt vatn þurfti að hita á kolaelda- vél. Mér finnst eins og þetta sé frá fornöld þegar ég hugsa um þetta. Alltaf gat hún þó bakað og eldað eins og það væri ekkert mál. Þarna þurfti einnig að klifra upp á þak til þess að vinna sem sótari og það var auðveldlega leyst. Mamma virtist vera óhrædd við að við værum að klifra í háu fjöll- unum þarna í kring og leika okkur við sjóinn. Hún bað fyrir okkur og signdi okkur og treysti því að Guð mundi vernda okkur gegn öllum hættum. Við systkinin nutum því mikils frjálsræðis og síðan var það hennar verk að bæta fötin og þrífa. Hún var mikið sólskinsbarn og það eru ófáar minningar tengdar því þegar mamma var að útbúa sér skjól úr teppum og fleiru við ýmsar aðstæður. Ein minning er mjög sterk í huga mér þegar mamma var nú loksins lögst út í sólina eftir að hafa gengið frá eftir hádegismatinn, búin að búa sér til skjól en þá kom mannýgur hrútur sem stundum leitaði niður af fjöll- unum og mamma varð að taka á stökk og við á eftir og inn í hús og læsa. Mamma var ástrík, glaðvær og gefandi. Hún sinnti fjölskyldu sinni og þar með barnabörnum og langömmubörnum af stakri alúð. Síðustu tvö árin bjó mamma á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þar sem hún hélt áfram af gefa af sér og syngja af innlifun.Þar leið henni vel og naut lífsins. Hún greindist með alzheimer fyrir nokkrum árum og vonaði og bað um að sjúkdómurinn færi um hana mildum höndum og það gekk svo sannarlega eftir. Hún tapaði aldr- ei áttum og var með flesta hluti á hreinu. Það var yndislegt að fylgja henni þessi spor í gegnum sjúk- dóminn og geta gefið henni örlít- inn styrk til baka. Hvíl þú í friði, elsku mamma. Þín Guðrún Sigríður (Gugga Sigga). Fallin er frá „heimsins besta tengdamamma“, Þórdís, eða Dísa eins og flestir kölluðu hana, var einstök kona. Umhyggja og hlýja gagnvart meðborgurum sínum var henni ætíð efst í huga. Ég fékk líka vel að njóta þess, mér var allt- af boðið sæti í besta stólnum og hvort ég vildi ekki eitthvað undir fæturna svo ég hvíldist sem best. Það var alveg sama hvað konan mín, hún Gunna Sigga, sagði við mömmu sína að ég þyrfti enga dekrun, hún hélt áfram að bjóða mér allt það besta sem hún átti og vildi færa mér inn í stofu bæði kaffi og meðlæti. Ef manni varð á að hósta eða ræskja sig var hún óðara tilbúin að bjóða manni heitt að drekka, hunangsvatn eða te. Ég mun ætíð minnast Dísu fyr- ir glaðværð, jákvæðni og væntum- þykju. Það var alveg sama hver það var sem lenti í erfiðleikum, alltaf var hún tilbúin að gefa af sér og reyna af fremsta megni að styðja og ræða við viðkomandi. Dísa var mjög trúuð kona, henni var afar illa við að einhver tæki sér ljót orð í munn í hennar návist. Söngur var henni mjög kær og söng hún oft við heimilisstörfin, þær eru ófáar minningarnar í gegnum árin þegar þær Gunna Sigga og Dísa sungu saman dæg- urlögin og ættjarðarlögin hvert á fætur öðru meðan þær sinntu heimilisstörfum eða hannyrðum. Þá er það einnig sterkt í minning- unni þegar Dísa og systur hennar frá Fagurhól í Sandgerði tóku lag- ið í fermingum eða afmælum barnabarnanna, lög eins og „Tíkin hennar Leifu“. Dísa hafði einstakt lag á að hæna að sér öll barnabörnin og veita þeim hlýju og ást með sinni einstöku hjartfólgnu nærveru. Hún hélt þessu svo áfram þegar hún fluttist á Sunnuhlíð í Kópa- vogi. Hún gaf sig ætíð að öðrum vistmönnum sem henni fannst að væru vansælir eða óánægðir með tilveruna. Það er huggun harmi gegn að Dísa kveður sátt við Guð og menn, enda kveið hún engu um framtíð sína. Steinn G. Ólafsson. Það eru óteljandi minningar sem koma upp í huga þegar ég hugsa um Álfhólsveginn þar sem amma og afi bjuggu þegar ég var að alast upp. Kjötbollurnar henn- ar ömmu með heimagerðu hrásal- ati voru lengi vel uppáhaldsmat- urinn minn. Ég var svo heppinn að ég átti heima í Kópavogi svo það var stutt ferðalag að kíkja í heim- sókn, en þótt það hafi verið stutt þá var alltaf eins og komið væri í annan heim þegar maður kom í heimsókn, einhvers konar frí frá hinu daglega lífi. Það var líka eitt- hvað ævintýralegt við garðinn þeirra, enda var þar alltaf gott veður sem gerði manni auðvelt fyrir í hinum ýmsu leikjum; klifur í trjám, stelast í óþroskuðu rifsber- in, spila krokket eða að hjálpa ömmu í garðinum. Ég viðurkenni fúslega að hið síðast nefnda var ekki í miklu uppáhaldi hjá mér og ég hefði líklega mátt vera duglegri við að hjálpa til. Það voru ófáir dagarnir sem ég eyddi hjá ömmu og afa, ýmist einn, með mömmu og pabba eða í hópi barnabarna, og ég man alltaf hvað mér leið vel í návist þeirra. Amma Dísa vildi allt fyrir barnabörnin gera, svo mikið reyndar að ég býst við að foreldrunum hafi stundum þótt nóg um. En allt sem hún gerði fyrir okkur var gert af svo mikilli væntumþykju að ástúðin sem amma bar til okkar var nánast áþreifanleg. Ég vona bara að hún hafi vitað hversu vel ég kann að meta allt það sem hún kenndi mér, einungis með því að vera hún sjálf. Ég man eitt sinn þegar ég fór í bústaðinn með ömmu og afa, við sátum í gömlu Lödunni þeirra, Eiki afi við stýrið, amma Dísa í framsætinu og við barnabörnin í aftursætinu. Amma fylgdist með okkur spenna beltin og sagði svo: Nú skulum við hugsa fallegar hugsanir svo við komumst heilu og höldnu á leiðarenda. Þó að ég hafi verið mjög ungur þá festust þessi orð í huga mér og hefur þessi boð- skapur fylgt mér í gegnum árin. Elsku amma Dísa, nú er ég að hugsa fallega til þín svo þú komist á leiðarenda á þínu ferðalagi. Tómas Þór Þorsteinsson. Þórdís Sigurðardóttir ✝ GuðmundurSigurðsson læknir fæddist 20. júlí 1942 á Ísafirði. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 5. september 2016. Hann var sonur hjónanna Kristínar Guðmundsdóttur og Sigurðar Guð- mundssonar bak- arameistara. Guðmundur lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri 1961, kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1967 og meistaraprófi í heim- ilislækningum (M.Cl.Sc) frá Uni- versity of Western Ontario í Kan- ada 1987. Að loknu læknanámi á Íslandi starfaði Guðmundur fyrst sem aðstoðarlæknir á Landspít- alanum og frá 1971 til 1982 sem héraðs- og heilsugæslulæknir á Egilsstöðum og víðar um Austur- land. Hann var Clinical Teaching staklingsbundinna upplýsinga um heilsufar sjúklinga og tölvu- færslu þeirra. Egilsstaðarann- sóknin var brautryðjandaverk á þessu sviði og varð víða til fyr- irmyndar, ekki aðeins á Norð- urlöndum heldur einnig annars staðar í Evrópu. Guðmundur var um árabil tilsjónarmaður Tölvu- nefndar, fyrirrennara Persónu- verndar, varðandi öryggi per- sónuupplýsinga um heilsufar. Hann var í stjórn Læknafélags Íslands 1972-1979. Hann var for- maður Rauðakrossdeildar Fljóts- dalshéraðs og Borgarfjarðar eystra 1974-1978. Hann var í stjórn og jafnframt fram- kvæmdastjóri Flugfélags Austur- lands frá stofnun þess til 1982. Eftirlifandi eiginkona Guð- mundar er Guðrún Þorbjarnar- dóttir, BA í latínu. Dóttir þeirra er Anna, læknir við Karolínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Guð- mundur var áður kvæntur Berg- ljótu Jónsdóttur Eiríksson lækni. Hún lést 1971. Börn þeirra eru Jón, búsettur í Hveragerði, Sig- urður, verkfræðingur í Reykja- vík og Kristín, atferlisfræðingur, lektor við Háskólann á Akureyri. Útför Guðmundar verður gerð frá Neskirkju í dag, 19. sept- ember 2016, klukkan 13. Fellow í heim- ilislækningum við Victoria Hospital í Ontario samhliða eigin framhalds- námi 1982-1984. Guðmundur gegndi alloft störfum sem settur landlæknir eða settur aðstoð- arlandlæknir. Um tíma var hann lekt- or í heimilislækn- ingum við Háskóla Íslands. Hann var heilsugæslulæknir við Heilsugæslustöðina á Seltjarn- arnesi 1985 til 2004 og við Heil- brigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík 2004-2016. Á meðan Guðmundur starfaði á Egils- stöðum hafði hann forystu í rannsóknum til að undirbúa tölvuskráningu sjúkraskráa fyrir heilsugæslustöðvar. Verkefninu, sem kennt var við Egilsstaði, var ætlað að gera heilsugæsluna skil- virkari og öruggari, með því að byggja upp skráningarkerfi ein- Faðir okkar, Guðmundur Sig- urðsson, er látinn. Hann var mjög góður maður. Okkur svo kær- leiksríkur og góður, óendanleg stoð og stytta í lífinu. Við kveðjum þig, elsku pabbi, með sárum sökn- uði og kærleika. Megir þú hvíla í friði, blessaður í Jesú nafni. Jesús segir: Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa, þótt hann deyi. Jón Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson. Mig langar til að minnast mágs míns Guðmundar Sigurðssonar. Guðmundur settist í 3. bekk Menntaskólans á Akureyri haust- ið 1957, ég var þá í landspróf- sbekk. Í MA voru fyrir eldri bræður Guðmundar, Þórir og Jón, og má með sanni segja að þeir settu svip á skólann allir þrír, þessir bræður frá Ísafirði. Guðmundur undi sér vel í MA. Hann var framúrskarandi náms- maður og jafnframt virkur í fé- lagslífi skólans. Hann var vinsæll meðal skólafélaga sinna og naut þar sinnar góðu kímnigáfu og hnyttni í tilsvörum. Guðmundur sagði einstaklega skemmtilega frá. Þessum hæfileikum Guð- mundar kynntist ég betur eftir að við Jón bróðir hans og ég ákváðum að fylgjast að á lífsleið- inni. Það kom fáum á óvart að Guð- mundur lagði stund á læknisfræði að loknu stúdentsprófi. Hann valdi að verða heimilislæknir og í því starfi nýttust mannkostir hans vel. Hlýleg framkoma og nær- gætni við sjúklinga var hans að- alsmerki. Guðmundur vildi leggja sitt af mörkum til að lækna mann- anna mein og gerði það sannar- lega. Hann var afar vinsæll heim- ilislæknir hvar sem hann starfaði. Guðmundur varð mágur minn öðru sinni þegar hann gekk að eiga systur mína Guðrúnu. Hann varð Önnu, móður okkar, einstak- lega góður tengdasonur og sinnti henni af alúð. Fjölskylda okkar Jóns naut þess í ríkum mæli að eiga Guð- mund að sem lækni og vin. Börn- um okkar Jóns og barnabörnum þótti afar vænt um Guðmund frænda sinn. Hann sinnti þeim af alúð frá blautu barnsbeini. Guðmundur og Guðrún gerðu sér fallegt heimili í Skálatúni á Seltjarnarnesi – úti sem inni. Þar var gott að koma. Það er sárt til þess að hugsa að þau fengu ekki að njóta þessa fallega heimilis saman lengur en raun ber vitni. Fjölskylduböndin eru sterk. Guðrún og Guðmundur höfðu for- göngu um það að við systkinin með öðrum úr fjölskyldunni eign- uðumst æskuheimili okkar, Æg- issíðu á Grenivík, á ný. Guðmund- ur hafði yndi af því að betrumbæta húsið. Hann hafði ekki aðeins læknishendur heldur líka smiðshendur. Þau Guðrún dvöldu oft í Ægissíðu og áttu þar góðar stundir. Að leiðarlokum kveðjum við Guðmund með söknuð í hjarta og þökkum honum fyrir allt og allt. Nú er hann horfinn sem við eigum öll svo mikið að þakka – og lífið verður aldrei samt. Samúð okkar er öll hjá Guð- rúnu og börnum Guðmundar. Blessuð sé minning hans. Laufey Þorbjarnardóttir. Ægissíða kemur fyrst upp í hugann, þegar ég minnist mágs míns, Guðmundar Sigurðssonar. Hann var þá ungur menntaskóla- nemi og koma hans í foreldrahús mitt á Ægissíðu, Grenivík, tengd- ist Jóni, bróður hans, sem þá var trúlofaður stóru systur minni, Laufeyju. Mér er minnisstætt hve mér kom á óvart að hann var með dökkt, liðað hár; hann átti að vera rauðhærður eins og Jón. Ég veit að mömmu og pabba þótti strax vænt um unga piltinn, eins og bróður hans, en löngu síðar átti það fyrir Guðmundi að liggja að kvænast Gunnu, litlu systur minni. Guðmundur var um tíma lækn- ir á Egilsstöðum og þar hófu þau Gunna búskap sinn. Ég má segja að ekki hafi brugðist að þau litu ævinlega inn hjá okkur þegar leiðin lá í kaupstað og fundum við þá sérstaklega hve nærvera beggja var hlý og notaleg. Sama gilti þegar við áttum leið hjá Eg- ilsstöðum, sem var reyndar sjaldnar; alltaf lengra frá en til Reykjavikur. Undanfarin ár gegndi Guð- mundur heilsugæslu á Hólmavík. Mér er minnisstætt, eitt sinn er við áttum leið hjá og hugðumst líta við hjá Gunnu og Guðmundi. Eitthvað hafði dregist hjá bíl- stjóranum að draga nægilega úr ökuhraða inn í bæinn, sem varð til þess að löggæslu staðarins þótti ástæða til að stöðva för og lesa ökumanni pistilinn. Einhverra hluta vegna kom þar tali að við værum á leið í kaffi til Gunnu og Guðmundar og var þá snarlega gefin bending um að halda áfram, á löglegum hraða samt. Í þessu stutta spjalli við lögregluna fund- um við glöggt hversu mikillar virðingar hann naut. Guðmundur og Gunna höfðu forgöngu um að kaupa gamla æskuheimilið, Ægissíðu, árið 2001, og gera það upp, laga og betrumbæta í stopulum frístund- um. Í Ægissíðu naut Guðmundur sín vel, við vitum að þarna hugð- ist hann eiga lengri dvöl í framtíð- inni, sem því miður reyndist allt- of, alltof stutt. Komið er að kveðjustund, kæri mágur og svili. Við minnumst þín með hlýju og þakklæti og biðjum góðan Guð að hugga þína ástvini. Ferð þín er hafin. Fjarlægjast heimatún. Nú fylgir þú vötnum sem falla til nýrra staða. Og sjónhringar nýir sindra þér fyrir augum. (Hannes Pétursson) Guðbjörg og Jónas. Guðmundur föðurbróðir minn var einstakur maður. Hann var framúrskarandi læknir og frumkvöðull í sínu fagi. Hann hafði áhrif á líf fjölda fólks til hins betra. Eftir andlát hans hafa margir komið til mín og sagt mér hversu vel Guð- mundur hafi reynst þeim á erf- iðum tímum. Sjálf varð ég líka oftar en einu sinni vitni að því hvernig hann með sinni skarp- skyggni gat greint sjúkdóm á örskotsstund og þannig bjargað lífi. Svo var hann líka minn kæri frændi, sem hafði áhuga og þekkingu á svo ótalmörgu. Öll árin mín í menntaskóla kom ég í kvöldmat í Skálatún hjá Gunnu og Guðmundi hvern fimmtudag. Guðmundur var flinkur að elda og sérhæfði sig í flóknum og vandasömum rétt- um – oftar enn ekki bragð- sterkum. Ég treysti mér líka alltaf til að þekkja pönnukökur sem Guðmundur hafði rúllað á sinn hátt öðruvísi en aðrir í fjöl- skyldunni. Þegar ég fluttist til Eng- lands, nýskriðin úr MR 1998 , þá var það hinn tölvufróði Guð- mundur sem stofnaði handa mér minn fyrsta email-reikning. Guðmundi þóttu öryggisstill- ingarnar á hotmail ekki til fyr- irmyndar þess vegna ég fékk reikning hjá eudoramail. Afbök- un á lykilorðinu sem við smíð- uðum saman úti í Skálatúni nota ég enn þann dag í dag. Guðmundur yfirgaf okkur allt of snemma. Ég sakna hans – hans hlýju nærveru og hjálp- semi. Það er lítill huggun en þó einhver, að við sem þekktum hann eigum ekkert nema góðar minningar um hann. Rebekka Jónsdóttir. Guðmundur Sigurðsson  Fleiri minningargreinar um Guðmund Sigurðsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.