Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016 Glöggir menn ættu að muna eftir Chesley „Sully“ Sullenberger III, en hann varð heimsfrægur á auga- bragði hinn 15. janúar 2009 þegar honum tókst að lenda A-320 Airbus- þotu með 150 farþegum og fimm í áhöfn á Hudson-fljóti í New York án þess að nokkur léti lífið, en vélin hafði þá misst vélarafl á báðum hreyflum eftir að gæsahópur flaug á vélina. Þótti afrekið með nokkrum ólíkindum. En hvað tekur við þegar menn eru orðnir að hetjum á einu augabragði? Hin nýja kvikmynd Clints Eastwood um þessa atburði, Sully, hefst nefnilega þegar í kjölfar slyss- ins, þegar allt er um garð gengið og rannsóknarnefnd samgönguslysa er að fara ofan í saumana á því sem gerðist. Sully (Tom Hanks) vaknar með martraðir um það hvað hefði getað gerst, og til þess að bæta gráu ofan á svart virðist sem rannsókn- arnefndin telji að Sully hafi hugs- anlega stefnt lífi allra í vélinni í hættu með því að lenda á vatninu frekar en að snúa við. Á meðan Sully og aðstoðarflugstjórinn Jeff Skiles (Aaron Eckhart) berjast fyrir fram- tíð sinni og orðspori sér restin af heiminum ekkert annað en hetju- dáðina sem unnin var. En í hverju fólst hún? Sully er afbragðsfín mynd um þessa atburði og skemmtilega unnin af hálfu Eastwood. Hann velur að hafa myndina stutta, einungis einn og hálfan tíma, þegar efniviðurinn hefði vel réttlætt margra tíma epík. Fyrir vikið verður myndin hnitmið- aðri en ella og slysið sem myndin snýst um fær heiðurssess í myndinni miðri. Tónlistin er sömuleiðis látlaus og myndar fínan ramma um helstu atriðin. En allt þetta væri til einskis, ef leikararnir skiluðu ekki sínu. Er þar skemmst að segja að Tom Hanks vinnur algjöran leiksigur í aðal- hlutverkinu, raunar svo mjög að hann skyggir á flesta aðra sem koma að myndinni. Kæmi það undirrit- uðum ekki á óvart ef Hanks fengi einhverjar tilnefningar þegar verð- launavertíðin hefst um og eftir ára- mót. Sully er þó ekki gallalaus. Til að mynda er gengið mjög langt í að búa til „vonda kalla“ úr rannsóknar- nefndinni og því ofurtrausti sem hún leggur á tölvuprófanir og er ekki al- veg víst að kvikmyndagerðarmenn- irnir feti þar veg hins fullkomna sannleika í viðleitni sinni til þess að búa til bíómynd. Hvað sem því líður eru fleiri hlutir sem mæla með Sully en á móti. Myndin nálgast viðfangsefni sitt af mikilli virðingu og á mannlegan hátt. Þá vekur hún áhugaverðar spurn- ingar um það hvað geri menn að hetjum, sérstaklega á tölvu- og tækniöld. Virðing „Myndin nálgast viðfangsefni sitt af mikilli virðingu og á mann- legan hátt,“ segir um Sully sem þeir Tom Hanks og Aaron Eckhart leika í. Hvað megnar mannshöndin? Sambíóin Sully bbbbn Leikstjóri: Clint Eastwood. Handrit: Todd Komanecki. Aðalhlutverk: Tom Hanks, Aaron Eckhart, Laura Linney, Anna Gunn, Mike O’Malley og Chris Bauer. Bandaríkin 2016, 95 mínútur. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Spennumyndin Eiðurinn í leik- stjórn Baltasars Kormáks fær þá dóma hjá gagnrýnanda vefútgáfu Variety að hún sé söluvænleg og vel til þess fallin að verða seld áfram til endurgerða. Og líkt og með fyrri myndir leikstjórans, svo sem 101 Reykjavík, sé stíll og yfirbragð Eiðsins „blátt áfram og tæknilega fágaður“. Í myndinni megi einnig sjá votta fyrir svört- um húmor sem gjarnan bregði fyrir í kvikmyndum leikstjórans. Óttar Guðnason kvikmynda- tökumaður er sagður nýta sér vel dramatískt landslag Íslands í tök- urnar og leikararval hafi heppn- ast vel þar sem persónusköpun sé skýr og sterk. Baltasar Kormákur er sér- staklega nefndur sem sannfær- andi í sínu hlutverki, sem áhyggjufullur faðir og læknir, og ófeiminn við að sýna það feikna- form sem hann kom sér í fyrir tökurnar en gagnrýnandi blaðs- ins klykkir út með því að líkja honum við breska leikarann Colin Farrell. Dómur Vefútgáfa Variety segir að per- sónusköpun sé skýr og sterk í Eiðnum. Söluvæn og tæknilega fáguð Arthur Bishop hélt að sér hefði tekist að breyta um lífstíl og segja skilið við líf leigumorðingj- ans, þegar hættulegasti óvinur hans rænir kærustunni hans. Metacritic 38/100 IMDb 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.10 Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 22.30, 23.10 Sambíóin Akureyri 22.30 Sambíóin Keflavík 22.30 Mechanic: Resurrection 16 Þegar Finnur hjartaskurðlæknir áttar sig á að dóttir hans er komin í neyslu og kynnir þekktan dópsala fyrir fjölskyldunni sem nýja kærastann, koma fram brestir í einkalífinu. IMDb 9,1/10 Laugarásbíó 17.30, 20.00, 22.30 Smárabíó 17.00, 17.30, 19.00, 19.30, 20.00, 22.00, 22.30 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00, 22.10 Eiðurinn 12 Kubo kallar óvart fram drungalegan anda með hefndar- þorsta. Andi þessi tilheyrir fortíð Kubos og áður en langt um líður þarf hann að berjast við guði og skrímsli sem ráðast á þorpið. Metacritic 84/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 17.00 Sambíóin Álfabakka 17.40 Smárabíó 15.30 Háskólabíó 18.00 Borgarbíó Akureyri 17.50 Kubo og Strengirnir Tveir Don’t Breathe 16 Metacritic 71/100 IMDb 7,7/10 Smárabíó 17.50, 20.00, 22.10 Háskólabíó 18.10, 21.10 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.00 War dogs 16 Metacritic 57/100 IMDb 7,3/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 20.00 Sambíóin Akureyri 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00 Sully 12 Sambíóin Álfabakka 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 18.50, 20.00, 21.00, 22.10 Sambíóin Akureyri 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Keflavík 20.00 Lights Out 16 Metacritic 58/100 IMDb 6,7/10 Sambíóin Álfabakka 22.40 Sambíóin Egilshöll 22.30 Pelé: Birth of a Legend Metacritic 39/100 IMDb 7,4/10 Sambíóin Kringlunni 17.40 The Shallows 16 Metacritic 59/100 IMDb 6,7/10 Háskólabíó 18.10, 21.10 Sausage Party 16 Metacritic 66/100 IMDb 6,8/10 Smárabíó 22.30 Háskólabíó 21.00 Suicide Squad 12 Metacritic 40/100 IMDb 6,7/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Kringlunni 17.20 Hell or High Water 12 Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Laugarásbíó 22.20 Ben-Hur 12 Metacritic 38/100 IMDb 5,7/10 Sambíóin Egilshöll 20.00 Bad Moms Morgunblaðið bbbmn Metacritic 60/100 IMDb 6,7/10 Smárabíó 20.10 Blair Witch Laugarásbíó 20.00, 22.00 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.10 Sambíóin Keflavík 22.10 Robinson Crusoe IMDb 5,3/10 Sambíóin Álfabakka 16.00, 18.00 Sambíóin Akureyri 18.00 Sambíóin Keflavík 18.00 Ghostbusters 12 Morgunblaðið bmnnn Metacritic 60/100 IMDb 5,5/10 Smárabíó 16.20 Pete’s Dragon Bönnuð yngri en 6 ára. Metacritic 71/100 IMDb 7,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.40 Sambíóin Egilshöll 17.30 Leynilíf Gæludýra Metacritic 61/100 IMDb 6,7/10 Smárabíó 17.45 Sambíóin Álfabakka 18.00 Níu líf Metacritic 11/100 IMDb 4,4/10 Smárabíó 15.30 The neon demon Þegar upprennandi módelið Jesse flytur til Los Angeles verður hópur kvenna með fegurðarþráhyggju á vegi hennar. Metacritic 51/100 IMDb 6,7/10 Bíó Paradís 17.30, 20.00, 22.30 Yarn Prjón og hekl er orðið partur af vinsælli bylgju. Metacritic 51/100 IMDb 6,7/10 Bíó Paradís 20.00 Me Before You 12 Metacritic 51/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 22.00 Sigur Rós – Heima Bíó Paradís 18.00 101 Reykjavík Metacritic 68/100 IMDb 6.9/10 Bíó Paradís 22.00 Hross í oss 12 Bíó Paradís 20.00 VIVA Bíó Paradís 18.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.