Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016 ✝ Brynhildurfæddist 13. apríl 1934 í Reykja- vík. Hún andaðist á Landspítalanum 12. september 2016. Hún var dóttir hjónanna Matthías- ar Ólafssonar og Ingunnar Guð- mundsdóttur. Al- systur hennar voru Erna og Þórunn, en þær eru látnar. Eftirlifandi eru hálf- systkini hennar Matthildur og Guðmundur. Brynhildur giftist Eggerti Ólafi Eggertssyni 17. júní 1961. Börn þeirra eru: 1) Matthías, f. 16. febrúar 1963, giftur Mari- zeldu Eggertsson og dóttir hans er Katrina Eggerts- son. 2) Jóhanna Katrín, f. 17. desem- ber 1964, gift Hall- dóri Jóhannessyni og eiga þau þrjú börn; Eggert, Brynjar og Þórunni. Brynhildur lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Ís- lands 1953. Hún starfaði sem flugfreyja hjá Flugfélagi Íslands og síðar sem ritari og lengst af hjá Samvinnutryggingum og seinna VÍS. Útför Brynhildar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 19. sept- ember 2016, klukkan 13. Elskuleg móðursystir mín, Brynhildur Matthíasdóttir, er látin. Hún var alltaf kölluð Binna frænka af okkur í fjölskyldunni. Binna var yngri systir mömmu og voru þær afar samrýmdar alla tíð. Þegar þær fluttu af æskuheimilinu við Óðinsgötu leigðu þær saman og síðan bjuggu þær alla tíð í næsta ná- grenni hvor við aðra. Fyrst á Rauðalæknum og síðar í Gilja- landinu í Fossvogi. Samgangur milli fjölskyldna okkar var því mikill. Báðar voru þær sjó- mannskonur sem sáu um heim- ilið og uppeldið á börnum sínum á meðan eiginmenn þeirra voru í löngum siglingum fjarri heimil- um sínum. Samgangur okkar frændsystkinanna, Matta, Jó- hönnu, mín og Kristjáns bróður, hefur alla tíð verið mikill. Við vorum í raun eins og systkina- hópur þegar við vorum að alast upp og það var alltaf eins og það væru tvær mömmur til staðar hjá okkur krökkunum. Allt frá því að ég var lítill stelpuhnokki var Binna frænka alltaf til staðar og auðvelt að leita til hennar. Í raun eru mínar fyrstu minningar af Rauðalæk 33 um frænku mína og upp frá því hefur hún alla tíð verið hluti af mínu lífi. Það var einfalt að laðast að Binnu. Hún var hlý, góð og afar skemmtileg frænka sem hafði sinn einstaka húmor og hlátur. Það var oft hlegið sem kom líka til af því að Binna hafði sinn sér- staka hátt á að segja brandara og við krakkarnir kölluðum þá alltaf „Binnubrandara“. Í hvert skipti sem einn slíkur fór í loftið var hreinlega grátið af hlátri. Þegar fram liðu stundir þró- aðist með okkur einlæg vinátta sem var mér afar dýrmæt. Þægi- legt var að hringja í frænku eða heimsækja og ræða málin og fá góð ráð. Oft á tíðum voru þetta mikil trúnaðarsamtöl okkar á milli og þá var oft sagt: „Þú mátt ekki segja mömmu þetta“ eða: „Þú ert ekkert að segja Tótu frá þessu“ og þar með voru þessi samtöl innsigluð okkar á milli. Ég man eftir því þegar Binna hringdi í mig nokkrum vikum eftir að mamma lést. Þá sagði hún: „Nú hefði ég hringt í Tótu til að spá og spekúlera en nú hringi ég bara í þig í staðinn.“ Þetta þótti mér afskaplega vænt um. Það var líka þannig að þegar frænku minni fannst ég ekki nógu dugleg að hringja eða koma í heimsókn, þá minnti hún vel á sig og lét mig vita að nú væri allt of langt um liðið frá síð- asta spjalli eða heimsókn. Ótal margs er að minnast þeg- ar horft er til baka og það er gott að geta yljað sér við góðar minningar. Binnu var alla tíð umhugað um velferð mína og litlu fjölskyldunnar, sérstaklega stelpnanna okkar Gumma, Þór- unnar og Evu. Fyrir það verð ég ávallt þakklát. Elsku Eggert, Matti, Jóhanna og fjölskyldur. Við fjölskyldan sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningar um yndislega konu gleymast aldrei og munu lifa í hjörtum okkar. Ég vil að leiðarlokum þakka elsku Binnu fyrir allar góðu stundirnar. Ég veit að nú eruð þið systurnar sameinaðar aftur og án efa er glatt á hjalla. Bless- uð sé minning Binnu frænku. Ingunn Bernótusdóttir (Inga) og fjölskylda. Brynhildur Ingibjörg Matthíasdóttir ✝ Ívar HlújárnFriðþjófsson fæddist á Siglufirði 6. júlí 1936. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspít- alans 3. september 2016. Foreldrar hans voru Lilja Jóns- dóttir frá Gilja- landi, Haukadal, f. 1906, d. 1964, og Friðþjófur Árnason frá Hrjóti í Hjaltastaðaþinghá, N-Múl., f. 1902, d. 1979. Systkini Ívars voru Fríða Friðþjófsdóttir, f. 1933, d. 1933, og Jón Karl Lindberg Frið- þjófsson, f. 1941, d. 2011. Ívar kvæntist Guðlaugu Helgadóttur, f. 1934. Börn þeirra eru 1) Inga Ívars- dóttir, f. 1963, gift Birni Jóhannsyni. Börn þeirra eru Ív- ar Örn, Snorri, Finnur og Björn Ingi Björnssynir. 2) Lilja Ívarsdóttir, f. 1965. Börn hennar eru Lóa Mjöll og María Sól Kristjáns- dætur. Ívar var menntaður rit- og reiknivélameistari. Hann stofn- aði ásamt eiginkonu sinni fyr- irtækið Skrifstofuáhöld og starfaði þar í rúm 20 ár. Útförin fer fram frá Áskirkju í dag, 19. september 2016, kl. 11. Töluvert aldursbil er á okkur bræðrunum svo við fengum ekki allir að deila jafn stórum hluta af ævi afa með honum. Minningarnar eru eins og gefur að skilja álíka margar og þær eru fjölbreyttar. Hér er nefni- lega um litríkan karakter að ræða, afa sem átti sér drauma og lét þá rætast. Oftar en ekki vorum við þátttakendur í brall- inu þar sem náttúrubarnið ljómaði og naut hverrar mín- útu. Við eldri bræðurnir minn- umst þess að koma í heimsókn í Löngufitina þar sem amma hit- aði sveppasúpu á meðan afi skellti á sig 66°Norður-húfunni, tók Java-rafmagnshjólið úr bíl- skúrnum, brunaði af stað á vit ævintýra með okkur framan á hjólinu. Yngri bræðurnir þekkja betur til afa í Mosfells- bænum þar sem hann var treg- lega búinn að leggja frá sér raf- magnshjólin, flugvélina og skúturnar. Orkustigið og at- hafnasemin hafði ekki sagt skil- ið við hann og þær stundir sem við áttum allir saman með afa voru þegar hann kom til okkar á laugardagsmorgnum eftir „fullt hús á flugvellinum“ þar sem hann og vinir hans úr flug- inu kepptust við að drekka kaffi og taka á veraldlegum málefn- um. Ef einhver okkar lenti einn á spjalli við afa var óumflýj- anlegt að fá kennslustund í tón- listarstefnu hans yngri ára og eigum við hinn lága þolinmæði- þröskuld okkar þeim tímum að þakka. Hvort sem það var Bluegrass, klarínettleikarar eða hin víðfræga Edith Piaf – á leiðinni heim af leikskólanum í Twingoinum, nýkomnir úr Garðabæjarlauginni í Benzan- um eða á milli máltíða í mat- arboðum: Afi elskaði þessa tón- list og þráði að miðla henni til barnabarna sinna. Þó svo að tónlistarsmekkur og áhugamál okkar væri mismunandi deild- um við allir sameiginlegum áhuga. Afi var aldrei yfir áhugamál eða skoðanir annarra hafinn og hvort sem hann hringdi í þann elsta, næstelsta, næstyngsta eða yngsta þá var hann til í að hella sér út í um- ræður um myndavélar, snjó- bretti, bíla, gröfur eða ferðalög af einlægum áhuga. Maðurinn hafði séð margt og komið víða, hvort sem það var sjóleiðis eða í gegnum háloftin og smitaði frá sér ævintýraþörf sem allir mættu tileinka sér. Það fór því afa illa að liggja uppi í rúmi síð- ustu vikur lífs síns og allir sem Ívar Hlújárn þekkja vita að hann er betur settur á þeim stað og í þeirri kyrrð sem hann hefur í dag heldur en að vita til þess að skútur sigla á sænum, flugvélar fljúgi um loftin, tækninni fleygi fram, börnin vaxi úr grasi, umræður dýpki og að kaffibollar séu drukknir – og hann fái ekki að taka þátt í ferlinu. Það er viðeigandi að enda þessi minningarorð á upp- rifjun þeirra orða sem hann lét frá sér í byrjun veikindanna á bráðamóttöku Landspítalans, aðspurður hvað hann myndi gera ef hann væri 25 ára þann dag. „Ég myndi sigla frá Kúbu til Íslands á stórri skútu.“ Ívar Örn Björnsson, Snorri Björnsson, Finnur Björns- son, Björn Ingi Björnsson. Elsku afi okkar kvaddi þenn- an heim laugardaginn 3. sept- ember, allt of snemma að okkur finnst. Afi var alltaf svo hress og kátur að það var erfitt að sjá það fyrir að hann yrði allt í einu svona lasinn eins og hann varð. Afi var mikill húmoristi, allt- af í góðu skapi og hafði gaman af því að segja sögur frá æsku- árum sínum og spila jazztónlist, sem hann unni svo mjög. Hann var einstaklega lífsglaður mað- ur sem við systurnar litum upp til. Þrátt fyrir erfiða æsku var afi Ívar sterkur maður sem hægt var að læra svo mikið af. Við erum heppnar að hafa átt svona góðan afa sem trúði á okkur, var stoltur af okkur og vildi gera allt til þess að hjálpa okkur í hvaða erfiðleikum sem var. Þrátt fyrir að það sé ótrú- lega sárt að kveðja þennan ein- staka mann og sorgin sé mikil þá kveðjum við afa með hjörtun full af yndislegum minningum, ást og þakklæti. Þínar afastelpur, Lóa Mjöll og María Sól. Ívar, elskulegur frændi minn og vinur, er dáinn. Þar er far- inn mikill vinur og baráttu- félagi til margra ára. Ívar var traustur og heiðarlegur maður. Í áratugi höfum verið í sam- bandi sem baráttufélagar í mörgum málum og síðustu ár töluðum við saman næstum hvern dag. Hann var mikill at- hafnamaður og ferðaðist um allan heim. Hann bjó i Sviss og lærði þar skrifvélavirkjun og var mikill á markaði hér með verslun og verkstæði áður en tölvutíminn kom. Hann var hluti af lífi mínu vegna sambandsins sem var á milli okkar. Við fórum saman á fundi og ráðstefnur, hann var alltaf sammála mér í þeim mál- um sem ég barðist fyrir.Við fór- um mikið í bílferðir, aðallega um Suðurland. Síðast í ágúst síðastliðnum fórum við að veiða í Þverá í Þjórsárdal. Síðasta sumar er ég kastaði kom lax á í fyrsta kastinu. Ef Hvammslón- ið hefði verið komið hefðum við verið á sex metra dýpi. Ívar var svo heill og sannur að aldrei hafði ég heyrt hann segja ljótt orð. Hann hafði ákveðnar skoð- anir á þjóðmálunum og vorum við sammála um að breytingar miklar þyrfti í íslensku þjóð- félagi. Allan heiðarleika vant- aði. Við vorum bundnir per- sónulegum böndum, við vorum eins og góðir bræður eiga að vera en við vorum systkina- börn. Nú er horfinn mikill mað- ur og sannur vinur. Ég hef misst mikinn félaga og vin. Ég syrgi hann mjög. Ég votta eft- irlifandi konu hans, Guðlaugu Helgadóttur, dætrunum Ingu og Lilju og barnabörnum inni- lega samúð. Með þökk fyrir þessi kynni og vináttu við frá- bæran mann. Guð blessi ykkur öll. Árni Björn Guðjónsson. Ívar Hlújárn Friðþjófsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGUNN K. ÞORMAR, lést á heimili sínu Hrafnistu í Hafnarfirði 10. september. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 23. september klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. . Sigfús Þormar, Þóra Steindórsdóttir, Sigurður Þormar, Sigfríð Þormar, Jón Pétursson, Kristinn Þormar, Jónína Samúelsdóttir. Útför okkar ástkæra EIRÍKS SMITH FINNBOGASONAR myndlistarmanns verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 20. september klukkan 13. . Bryndís Sigurðardóttir, Smári Eiríksson, Tinna Smáradóttir, Brynja Jónsdóttir, Kolfinna Ósk Andradóttir, Jón Axel Björnsson, Birna Lísa Jensdóttir. Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, HALLDÓR GUÐBRANDS BÁRÐARSON, Hlévangi, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 13. september. Útför hans fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 23. september klukkan 13. . Guðlaug Bárðardóttir, Ólafur Þ. Guðmundsson, Oliver Bárðarson, Halldóra Jóna Guðmundsdóttir og systkinabörn. Ástkær sonur okkar og bróðir, ÁGÚST HELGI ÁGÚSTSSON, andaðist á vökudeild Barnaspítala Hringsins sunnudaginn 11. september. Hann verður jarðsunginn frá Selfosskirkju þriðjudaginn 20. september klukkan 12.30. Sérstakar þakkir til starfsfólks barna og vökudeildar á Barnaspítala Hringsins fyrir góða umönnun og virðingu. . Telma Halldórsdóttir, Ágúst Hjálmarsson, Júlía Mjöll Högnadóttir, Þórhildur María Högnadóttir og aðrir ástvinir. Ástkær maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir, VILHELM HEIÐAR LÚÐVÍKSSON lyfsali, lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. september. Jarðarför verður frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 21. september klukkan 13. . Kristjana J. Richter, Hrönn Vilhelmsdóttir, Þórólfur Antonsson, Lúðvík Vilhelmsson, Kristín Gunnarsdóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Sveinn Rúnar Hauksson, Jón Páll Vilhelmsson, Dóra Þórdís Albertsdóttir, Ásmundur Vilhelmsson, Svanhvít Sveinsdóttir, barnabörn og aðrir ástvinir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HULDA FILIPPUSDÓTTIR, lést á Grund, deild A2 við Hringbraut 50, síðastliðinn fimmtudag, 15. september. . Jóhanna Vigfúsdóttir, Þorbjörn Björnsson, Ásgerður Vigfúsdóttir, Fjölnir Ernis Sigvaldason, Aðalbjörg Vigfúsdóttir, Janus Þór Valdimarsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN BJÖRG ERLINGSDÓTTIR, frá Þorgrímsstöðum í Breiðdal, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 12. september síðastliðinn, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 24. september klukkan 14. . Kristín Ingadóttir, Hulda Sigríður Ingadóttir, Hjörtur Bjarnar Ingason, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.