Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016 Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Valin besta nýja vara ársins, Nordbygg 2016 Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sprenging varð í Chelsea-hverfi New York-borgar á laugardagskvöld um kl. 20.30 að staðartíma. Enginn lést í sprengingunni en 29 særðust og hafa allir verið útskrifaðir af sjúkrahúsi. Yfirvöld segja ljóst að um ásetnings- verk hafi verið að ræða en í gær hafði ekki enn tekist að upplýsa hver stóð að baki sprengingunni eða hvað bjó að baki. Líflegt svæði Sprengingin varð nærri mótum 23. strætis og 6. breiðstrætis. Fjöldi fólks var á svæðinu en þar er m.a. að finna veitingastaði og verslanir. Nokkrum húsalengdum frá staðnum þar sem sprengingin varð fannst möguleg vís- bending: hraðsuðupottur sem virtist hafa verið útbúinn sem sprengja. Lágu vírar úr pottinum og hafði far- sími verið festur við hann með taulím- bandi. Sprengjusveit fjarlægði pott- inn og stóð rannsókn á honum enn yfir á sunnudag. Sprengjunni virðist hafa verið komið fyrir í eða við ruslagám sem af- myndaðist við sprenginguna. Eru vangaveltur uppi um hvort atvikið tengist annarri sprengingu sem varð í New Jersey fyrr sama dag. Þar virð- ist hafa verið notaður svipaður sprengibúnaður en stjórnvöld hafa ekki enn staðfest að atvikin séu tengd. Biðja um aðstoð Þrátt fyrir að hafa skoðað eftirlits- myndbönd af svæðinu hefur ekki tekist að finna mögulegan sökudólg og hefur lögreglan beðið almenning um að greina frá upplýsingum sem kunna að hjálpa við rannsókn málsins. Á sunnu- dag var sprengjusvæðið enn lokað af vegna rannsóknarinnar. Þá stakk árás- armaður níu manns í verslunarmiðstöð í Minnesota. Var árásarmaðurinn felld- ur af lögreglumanni. Fjögur fórnar- lambanna eru enn á sjúkrahúsi, þar af eitt í lífshættu. Íslömsku samtökin Ríki íslams lýstu árásinni á hendur sér. Öflug sprenging í New York-borg  29 særðust en enginn lét lífið  Hnífaárás gerð í verslunar- miðstöð sama dag og einnig varð sprenging í New Jersey AFP Rannsókn Bill de Blasio, borgarstjóri New York, og Andrew Cuomo ríkisstjóri skoða vettvang á sunnudag. 62 sýrlenskir hermenn eru látnir og meira en 100 særðir eftir að herlið undir stjórn Bandaríkjanna gerði loftárás á rangt skotmark. Var árás- in gerð á laugardag á borgina Deir al-Zour í austurhluta Sýrlands, en borgin er umkringd vígamönnum Ríkis íslams, samtaka íslamista. Árásin var stöðvuð eftir að rúss- nesk stjórnvöld tilkynntu banda- ríska hernum að verið væri að fella sýrlenska hermenn. Boðaði Rúss- land til neyðarfundar í Öryggisráði SÞ vegna málsins. Sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ harmaði árásina og sagði málið í rannsókn. Viðkvæmt vopnahlé Að sögn WSJ hafa Rússar brugð- ist ókvæða við atvikinu og segir rússneska utanríkisráðuneytið að jaðri við glæpsamlega vanrækslu. Þá ítrekaði ráðuneytið óánægju sína með að andspyrnuhreyfingar sem njóta stuðnings Bandaríkjanna hafi ekki virt vopnahlé sem tók gildi á mánudag í síðustu viku. Vopnahléið miðar að því að greiða fyrir flutn- ingum hjálpargagna til almennra borgara og í framhaldinu eiga rúss- neski og bandaríski herinn að hefja samræmdar árásir á vígi öfgahópa. ai@mbl.is Vopnahlé í Sýr- landi í uppnámi AFP Hörmungar Börn innan um brak eftir loftárás á hverfi Aleppo-borgar.  Loftárás var gerð á röng skotmörk Sautján ára unglingur dó líknar- dauða í Belgíu í síðustu viku. Er hann fyrsti ólögráða einstakling- urinn í landinu sem deyddur er með læknisaðstoð. Fyrir tveimur árum voru aldurstakmörk felld úr belgískum lögum um líknardauða en í Hollandi eru líknardráp leyfð niður að 12 ára aldri. Að sögn heilbrigðisyfirvalda var unglingurinn haldinn ban- vænum sjúkdómi og lifði við miklar þjáningar. BBC greinir frá því að notuð var aðferð þar sem sjúklingurinn var látinn falla í dá áður en hann var deyddur. Nafn og nákvæmur aldur ung- lingsins hefur ekki verið gefinn upp en sagt hefur verið frá að hann hafi verið nálægt 18 ára aldri. ai@mbl.is Belgískur unglingur fékk að deyja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.