Morgunblaðið - 19.09.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016
Þær eru svæsnar lýsingarnar á yf-irgangi píratakapteinsins og pí-
rata úr hans hópi vegna prófkjörsins í
Norðvesturkjördæmi. Fyrir nokkru
hætti einn pírati afskiptum af stjórn-
málum eftir fund
með kapteininum í
bakherbergi flokks-
eigendafélags Pírata.
Um helgina fjallaði
annar pírati um próf-
kjörið og sagði „til að
taka af allan vafa“ að
það væru „líka til
flokkseigendur Pí-
rata eins og hjá öllum
hinum stjórn-
málaflokkunum, það
vitum við núna sem
höfum komið að
þessu prófkjöri í kjör-
dæminu okkar.“
Þessi pírati, LiljaMagnúsdóttir, segir frá því að
„Birgitta Jónsdóttir fór hamförum á
leynilegri síðu flokksins þar sem hún
sagðist þekkja mann og annan í
heimabæ Þórðar Péturssonar, efsta
manns á lista, sem gætu sagt sér hitt
og þetta um manninn.“
Annar maður, kosningastjórinn Jó-hann Kristjánsson, fór að sögn
Lilju einnig „hamförum“ við það að
reyna að sannfæra hana um hve mik-
ilvægt það væri að lyfta öðrum fram-
bjóðanda en þeim sem sigraði upp
listann.
Allt gekk þetta eftir eins og Birg-itta og félagar vildu og atburða-
rásin er fordæmislaus, þar sem knúin
er í gegn endurtekning prófkjörs og
svo þvinguð fram þóknanleg niður-
staða.
Það má því búast við sérkennilegriatburðarás þegar kapteinninn
og nývalinn umboðsmaður Pírata
vegna stjórnarmyndunarviðræðna
fær umboðið og fer í að mynda nýja
ríkisstjórn.
Birgitta
Jónsdóttir
Píratalýðræðið og
umboðsmaðurinn
STAKSTEINAR
Jóhann
Kristjánsson
Veður víða um heim 18.9., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 10 skýjað
Nuuk 3 léttskýjað
Þórshöfn 11 rigning
Ósló 18 rigning
Kaupmannahöfn 15 heiðskírt
Stokkhólmur 15 léttskýjað
Helsinki 14 léttskýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 15 rigning
Glasgow 15 rigning
London 18 skýjað
París 19 rigning
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 18 skýjað
Berlín 21 skýjað
Vín 20 skýjað
Moskva 9 skýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 24 heiðskírt
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 26 heiðskírt
Róm 20 skúrir
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 22 skýjað
New York 23 skýjað
Chicago 17 léttskýjað
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:04 19:39
ÍSAFJÖRÐUR 7:08 19:46
SIGLUFJÖRÐUR 6:51 19:29
DJÚPIVOGUR 6:33 19:09
Jarðskjálftahrina stendur nú yfir á Hengilssvæð-
inu. Skjálftarnir eru í nágrenni Hellisheiðarvirkj-
unar og stafa af niðurdælingu Orku náttúrunnar
af affallsvökva frá virkjuninni.
Síðdegis í gær höfðu mælst 18 jarðskjálftar á
landinu, yfir 2 stig, á 48 klukkustundum. Kröftug-
asti skjálfinn mældist um kl. 8 í gærmorgun, 2,9
stig. Hann fannst í Hveragerði. Aðrir skjálftar
voru heldur minni, á bilinu 2 til 2,8 stig.
Flestir skjálftanna eiga upptök um tvo kíló-
metra frá Hellisheiðarvirkjun og eru taldir stafa
af niðurdælingu vökva frá virkjuninni. Mikið
ónæði varð í Hveragerði á árunum 2011 og 2012
vegna jarðskjálfta vegna niðurdælingar. Þá var
ákveðið að auka kröfur til fyrirtækja sem dæla
niður vatni. Minna hefur borið á skjálftum síðan.
Orka náttúrunnar hefur dælt niður vatni við
Húsmúla og Gráuhnúka. Þegar kynnt voru áform
um nýtt niðurdælingarsvæði á Stóra-Skarðsmýr-
arfjalli, fyrr á þessu ári, kom fram að fyrirtækið
hefur sett sér verklag sem miðar að því að lág-
marka hættu á að niðurdæling valdi skjálftavirkni
sem finnst í byggð.
Skjálftar vegna niðurdælingar
Stærsti jarðskjálftinn á
Hengilssvæðinu 2,9 stig
Morgunblaðið/Golli
Niðurdæling Sérstakar borholur eru notaðar til
niðurdælingar vatns við Hellisheiðarvirkjun.
Landtaka við erfið skilyrði, leit í sjó
með hitamyndavélum og flutningur
slasaðra úr vélarrúmi stórs loðnu-
skips um borð í björgunarbáta var
meðal þess sem sjóbjörgunarhópar
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
æfðu um helgina. Æfingin var í
Norðfjarðarflóa fyrir austan. Þátt-
takendur þar voru fimmtíu björg-
unarsveitarmenn í tólf hópum sem
voru á þremur björgunarskipum,
sex harðbotnabátum og þremur
slöngubátum. 20 manns sinntu
stjórn og undirbúningi.
Flugmenn á flugvél Landhelgis-
gæslunnar tóku einnig þátt í æfing-
unni, þar margvísleg samvinna
starfsmanna Landhelgisgæslunnar
og björgunarsveitarfólks var yfir-
farin svo allir séu tilbúnir þegar til
kastanna kemur og ef vá steðjar að.
Þjálfun Um 50 manns í tólf hópum
æfðu á Norðfjarðarflóa um helgina.
Björgunar-
menn æfðu
aðgerðir á sjó