Morgunblaðið - 19.09.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2016
Hraunbergi 4, 111 Reykjavík, sími 530 9500
• Frí heimsending lyfja
• Góð kjör fyrir eldri
borgara og öryrkja
• Gerðu verðsamanburð
• Lyfjaskömmtun á góðu verði
góð þjónusta
ogPersónuleg
Opið alla virka daga kl. 8:30-18:00
Heilbrigð skynsemi
Heilsugæsla
efra Breiðholts
Gerðuberg
Lyf á lægra verði
Hausttilboð á völdum VOLVO
PENTA vélapökkum
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
D-4 225 hö.
með hældrifi
verð frá 3,9 millj. án. vsk
D-6 330 hö.
með hældrifi
verð frá 4,9 millj. án. vsk
Tilboðin gilda til og með 28. október
Við verðum á Sjávarútvegssýningunni í
Laugardalshöllinni 28-30 september.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á miðvikudag kemur út ný íslensk
þýðing á metsölubókinni 7 venjur til
árangurs (e. 7 Habits of Highly Ef-
fective People) eftir Steven Covey.
Guðrún Högnadóttir ritstýrði og
endurbætir nærri 25 ára gamla þýð-
ingu Róberts Haraldssonar há-
skólaprófessors.
Guðrún segir nýju þýðinguna
bæði til þess gerða að láta efni bók-
arinnar endurspegla betur þær
breytingar sem orðið hafa í við-
skiptaíslensku og hugtakanotkun,
og eins til að bregðast við mikilli
spurn eftir ritinu. „Í fimm ár hef ég
beðið tvo fornbókasala um að vakta
fyrir mig dánarbúin ef ske kynni að
gamalt eintak af íslensku þýðing-
unni myndi berast, og á þeim tíma
hef ég ekki fengið nema þrjú eintök.
Bókin er mikið notuð í kennslu og á
vinnustofum FranklinCovey og
margir sem biðja um íslensku bók-
ina.“
Guðrún er framkvæmdastjóri
FranklinCovey á Íslandi, ber
ábyrgð á stjórnendaþjálfun hjá
fjölda vinnustaða hér á landi og er-
lendis auk þess að kenna hjá Opna
háskólanum í HR.
7 venjur til árangurs er, að sögn
Guðrúnar, mest selda bók sögunnar
á sviði viðskipta, stjórnunar og per-
sónulegs árangurs. Á þeim 28 árum
sem liðin eru frá því bókin kom
fyrst út hefur hún selst í nærri 30
milljónum eintaka og verið þýdd á
28 tungumál.
Byggt á rannsóknum
„Það sem heillaði mig við bókina
er að boðskapurinn er í raun heil-
brigð skynsemi,“ segir Guðrún en
Covey byggði ritið á rannsóknum
sínum við Harvard-háskóla. „Hann
vildi svara þeirri spurningu hvers
vegna sumir einstaklingar og vinnu-
staðir virðast ná meiri árangri. Til
þess skoðaði hann og greindi fjölda
rannsókna, ævisaga, greina og
ljóða, og kom þar auga á ákveðin
þemu.“
Þessi þemu má einfalda sem sjö
venjur: „Sú fyrsta er að taka af
skarið – að vera virkur og taka
ábyrgð ef maður vill ná árangri.
Venja númer tvö er að skoða endinn
í upphafi: vita að hverju er stefnt
áður en lagt er af stað. Þriðja venj-
an er síðan að forgangsraða, og
kunna að segja nei: gera það mik-
ilvægasta fyrst en láta hitt mæta af-
gangi,“ útskýrir Guðrún.
„Fjórða venjan er að temja sér að
í öllum viðskiptum og samningum
hafi báðir hlutaðeigendur ávinning
af, og sú fimmta að temja sér skiln-
ingsríka hlustun. Sjötta venjan er
að staðnæmast ekki heldur finna
stöðugt nýjar leiðir til vaxtar og ný-
sköpunar, og loks er sjöunda reglan
að endurnýja sjálfan sig og hvíla
huga og líkama reglulega.“
Alltaf í viðbragðsham
Hverja af þessum sjö venjum er
svo brýnast að Íslendingar tileinki
sér? Guðný segir að margir hefðu
gott af að koma böndum á redd-
ingar-hugsunarháttinn. „Verandi
eyþjóð þá hefur það þjónað okkur
vel í gegnum aldirnar að ganga í
málin og klára þau. Í dag birtist
þessi ávani í því að vera alltaf til í
að rjúka í hlutina – vera alltaf í við-
bragðsham – en gleyma að staldra
við og spyrja hvað skiptir mestu
máli.“
7 venjur til árangurs
í uppfærðri útgáfu
Endurbætir 25 ára íslenska þýðingu á bók Steven Covey
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viska Guðrún Högnadóttir segir að meðal þess sem Íslendingar megi til-
einka sér úr bókinni sé að vera ekki alltaf í viðbragðsham.
Forsætisráðherra Slóvakíu, Robert
Fico, segir að Evrópusambandið
muni gera útgöngu Bretlands úr
sambandinu „mjög sársaukafulla“ og
að bresk stjórnvöld séu að blekkja
með bjartsýnistali um væntanlegar
samningaviðræður.
Leiðtogar ESB-ríkjanna komu
saman í Bratislava á föstudag og
ræddu þar meðal annars hvernig
framtíð sambandsins muni verða eft-
ir Brexit.
Fico lét ummælin falla í viðtali við
Financial Times. Hann sagðist bera
fulla virðingu fyrir Theresu May og
þykja leitt að hún skyldi hljóta svona
erfitt hlutskipti í starfi sínu sem for-
sætisráðherra Bretlands. „Evrópu-
sambandið mun nota tækifærið til að
segja við almenning: nú munuð þið
sjá hvers vegna það er mikilvægt að
vera innan ESB.“
FT segir ummæli Fico gefa innsýn
í viðhorf stjórnvalda í austurhluta
Evrópusambandsins. Meira en ein
milljón manns frá Austur-Evrópu
býr í dag í Bretlandi á grundvelli
reglna um frjálst flæði vinnuafls.
Meðal áhersluatriða breskra stjórn-
valda verður að geta takmarkað
frjálst flæði fólks frá öðrum Evrópu-
löndum inn í Bretland.
ai@mbl.is
Útganga Bretlands verð-
ur „mjög sársaukafull“
Segir ESB ætla að senda almenningi skýr skilaboð
AFP
Engin vægð Roberto Fico og Angela Merkel á leiðtogafundi í Bratislava.
Ef stjórnvöld ESB veita banda-
ríska skyndibitarisanum sams
konar skell og Apple gæti Mc-
Donalds átt von á allt að 500 millj-
óna dala skattareikningi.
Eins og kunnugt er úrskurðaði
framkvæmdastjórn ESB í síðasta
mánuði að skattasamningur milli
Apple og írskra stjórnvalda væri
ólöglegur. Úrskurðurinn gæti
leitt til þess að Apple þurfi að
greiða aukalega um 13 milljarða
evra í skatt.
Bendir Financial Times á að
ráðamenn í Brussel séu með fleiri
alþjóðleg risafyrirtæki til skoð-
unar, McDonalds þeirra á meðal.
Evrópskar höfuðstöðvar Mc-
Donalds hafa verið í Lúxemborg
frá 2009 og frá þeim tíma hefur
fyrirtækið borgað þar skatt sem
nemur 1,49% af hagnaði, sem er
töluvert lægra en sá 29,2% skatt-
ur sem almennt er lagður á hagn-
að fyrirtækja í landinu. Ef miðað
er við sömu forsendur og í Apple-
úrskurðinum gæti McDonalds
verið gert að greiða aukalega
jafnvirði 500 milljóna dala í
skatta.
McDonalds segist ekki hafa
fengið neina ívilnandi skatta-
meðferð og á árunum 2011 til
2015 hafi fyrirtæki McDonalds í
Evrópu borgað að jafnaði 27%
skatt af hagnaði sínum. ai@mbl.is
Reuters
Biti McDonalds kveðst hafa borgað eðlilega skatta af starfseminni í Evrópu.
McDonalds gæti fengið 500
milljóna dala skattareikning