Morgunblaðið - 19.09.2016, Síða 32
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 263. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Banaslys á Sólheimasandi
2. Banaslys á Snæfellsnesi
3. Hugðust skoða flugvélarflakið
4. „Ég var þræll“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Norðlenskar konur í tónlist halda
tónleika á Síldarminjasafninu á Siglu-
firði á morgun klukkan 20.30. Flutt
verða lög um sjóinn, sjómennsku og
ævintýri. Sérstakur gestur er Ave
Sillaots harmonikkuleikari. Fram
koma Ásdís Arnardóttir, kontrabassi,
Helga Kvam, píanó, Kristjana Arn-
grímsdóttir, söngur, Lára Sóley Jó-
hannsdóttir, söngur og fiðla, og Þór-
hildur Örvarsdóttir, söngur.
Lög um sjóinn á
Síldarminjasafninu
„Skrifarinn
byrjar bókina, en
lesandinn lýkur
henni: Njáluhand-
rit og lesendur
þeirra,“ er yfir-
skrift erindis Sus-
anne Arthur í
fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafns Íslands á morgun kl.
12.05. Susanne Arthur er doktor í
norrænum fræðum og miðaldafræði.
Erindið verður flutt á íslensku.
Erindi um Njáluhand-
rit og lesendur þeirra
Mezzósópransöngkonan Agnes
Thorsteins syngur nokkur af eftir-
lætisverkum sínum á há-
degistónleikum
Kúnstpásuraðar Ís-
lensku óperunnar í
Norðurljósasal
Hörpu á morgun
kl. 12.15. Með-
leikari á píanó
er Marcin
Koziel.
Agnes Thorsteins á
Kúnstpásutónleikum
Á þriðjudag Sunnan 5-10 m/s, en norðaustan 8-13 á Vestfjörðum.
Rigning eða skúrir, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til
13 stig, mildast norðaustan til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðvestan 5-15 m/s, hvassast
um landið austanvert, og víða skúrir en styttir upp norðaustan-
lands síðdegis. Hiti 6 til 12 stig.
VEÐUR
„Síðast vorum við að gera
allt í fyrsta skipti og það
tók tíma að aðlagast þeim
aðstæðum og við lentum í
gríðarlega sterkum riðli. Við
stóðum okkur hins vegar
vel, en núna viljum við fara
skrefinu lengra og gera okk-
ur gildandi í lokakeppn-
inni,“ sagði Finnur Freyr
Stefánsson, aðstoðarþjálf-
ari karlalandsliðs Íslands í
körfubolta, sem er komið
aftur á EM. » 1 og 4
Endurtóku leikinn
og ætla sér meira
Valur kom í veg fyrir að FH gæti fagn-
að Íslandsmeistaratitli karla í knatt-
spyrnu í Kaplakrika í gær með því að
gera 1:1-jafntefli við heimamenn. FH
gæti orðið Íslandsmeistari strax í
kvöld ef Breiðabliki tekst ekki að
leggja ÍBV að velli
í Kópavogi, en
aðeins Blikar
geta náð FH
að stigum.
»6
Valur sló meistara-
fögnuði FH-inga á frest
KR-ingar eiga enn von um að ná Evr-
ópusæti í Pepsi-deild karla í knatt-
spyrnu eftir sigur á Fjölni, 3:2, í gær.
KR er í 5. sæti en er nú tveimur stigum
frá liðunum í 2. og 3. sæti; Fjölni og
Breiðabliki. Fylkir er enn í fallsæti
þrátt fyrir 2:2-jafntefli við Víking R. í
Fossvogi. Fylkir er jafn ÍBV að stigum
en með lakari markatölu auk þess sem
ÍBV á leik við Breiðablik í dag. »6
KR nálgast Evrópusæti
en Fylkir enn í fallsæti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Viðkomustöðum erlendra ferða-
manna sem koma til Íslands verður
að fjölga og að opið sé hér í Húsa-
dal í Þórsmörk árið um kring – í
alls 365 daga – er svar við því.
Mörkin hefur líka upp á svo margt
að bjóða, svo sem á veturna þegar
fönnin liggur hér yfir öllu. Þá er
hægt að ganga hér um skóginn á
snjóþrúgum og hitta á refina sem
við höfum lokkað til okkar og gert
gæfa,“ segir Brynjólfur Flosason.
Við þriðja mann, ásamt þeim
Bjarna Frey Bárusyni og Magnúsi
Má Einarssyni, rekur hann fyr-
irtækið Volcano Huts sem stendur
að rekstri ferðaþjónustu í Húsadal í
Þórsmörk.
Aðstöðunni þar var á sínum tíma
komið upp á vegum Austurleiðar,
það er gistiskálum og veitinga-
aðstöðu sem nú er í eigu Ferða-
félags Íslands sem aftur leigir hana
til Brynjólfs og félaga.
Lokapunktur á Laugavegi
Rúmlega þrjátíu kílómetrar eru
frá Seljalandsfossi inn í Þórsmörk,
þar sem farið er um sæmilegan
jeppaveg og yfir óbrúaðar ár.
„Vissulega geta verið fyrirstöður á
þessari leið, svo sem á vaði ánna.
Menn á stórum jeppum fara hins
vegar flest, að ég tali nú ekki um
rúturnar,“ segir Brynjólfur, sem
áætlar að 15-20 þúsund manns
komi til Volcano Huts í Húsadal á
hverju ári. Bæði kemur fólk í sér-
stakar Merkurferðir og staðurinn
er suðurendi og lokapunkturinn á
Laugaveginum; gönguleiðarinnar
vinsælu sem liggur úr Land-
mannalaugum. Margir göngugarp-
arnir hafa þá viðdvöl hjá Brynjólfi
og félögum þegar þeir koma á
áfangastað – áður en þeir snúa til
Reykjavíkur.
„Þórsmörk er staður sem býður
upp á marga möguleika og við horf-
um til framtíðar hér. Það felst tæki-
færi í því að nokkrir staðir nærri
hálendinu séu opnir ferðafólki árið
um kring,“ segir Brynjólfur. Bætir
við að Húsadalsgestum hafi fjölgað
um allt að 50% á tímabilinu janúar
til júlí á þessu ári, borið saman við
sömu mánuði í fyrra. Til annars
samanburðar má svo nefna að er-
lendum ferðamönnum sem til Ís-
lands koma á þessu ári hefur fjölg-
að um 37% þannig að Merkurmenn
mega vel við una. „Eldgosið í Eyja-
fjallajökli árið 2010 kom þessum
stað á kortið. Fyrst eftir gosið datt
aðsókn hingað niður en svo snerist
taflið við – fór aftur að aukast.“
Göngubrú yki öryggi
Í deiglunni er að byggð verði
göngubrú yfir Markarfljót, sem
yrði tenging úr innanverðri Fljóts-
hlíðinni í Þórsmörk. Að þessu máli
er unnið á vegum samtakanna Vina
Þórsmerkur þótt ekki sé búið að
tímasetja framkvæmdina né fjár-
magna að fullu, en áætlaður kostn-
aður er um 220 milljónir króna. Ár-
farvegurinn á fyrirhuguðu brúar-
stæði er í dag um 160 metra
breiður, og þar rennur Markar-
fljótið í síbreytilegum kvíslum á
malaraurum. Er því að mörgu að
hyggja við hönnun brúarinnar.
„Auðvitað myndi göngubrú yfir
Markarfljót breyta talsverðu hér,
því hingað í Húsadal yrði aðeins
nokkurra mínútna gangur frá vest-
ursporði brúarinnar Þórsmerkur-
megin. Lausatraffíkin svonefnda –
það er fólk sem kæmi hingað gang-
andi – myndi væntanlega aukast en
þeim sem hér gista hugsanlega
fækka. Að hinu leytinu yrði öryggi
ferðafólks sem hingað kemur meira
– og í því efni er til mikils að vinna.
Þá myndi brú opna nýjar göngu-
leiðir fyrir lengri og skemmri ferð-
ir, svo sem Markarfljótsgljúfur, inn
á Almenninga og víðar – svæði sem
er áhugavert og gaman að fara um,
jafnvel þótt nokkuð sé liðið á
haust,“ segir Brynjólfur að lokum.
Þórsmörkin árið um kring
Möguleikar á
stöðum nærri há-
lendinu bjóðast
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Merkurmenn Frá vinstri talið Bjarni Freyr Báruson, Brynjólfur Flosason og Magnús Már Einarsson í Húsadal.
Náttúra er stórbrotin í Þórs-
mörk og fjölbreytt, en á svæð-
inu sjást jöklar, jökulár, hamra-
gil, tindar, dalir, skógar og
fjölgresi svo nokkuð sé nefnt.
Svæðið hefur verið í umsjón
Skógræktarinnar í nærri heila
öld. Það var girt af árið 1924 en
árið 1990 var það verndarsvæði
víkkað út. Í kjölfar þess hefur
allur skógur á svæðinu eflst og
landið í raun tekið stakka-
skiptum. Þarna er birkiskógur
mjög áberandi og fræin fjúka
víða og skóglendið breiðir úr
sér. Þannig er sjálfsáð birki til
dæmis á Markarfljótsaurum og
hátt í Hlíðum Tindfjalla, sem
eru andspænis Mörkinni –
handan fljótsins.
Stakkaskipti
FRIÐUN Í EINA ÖLD