Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016
Schäffer liðléttingarnir
eru langmest seldu
liðléttingarnir á Íslandi með
um 400 vélar í notkun meðal
ánægðra viðskiptavina.
Kr. 2.780.000
Verð án vsk. (3.447.200 m. vsk)
Með skóflu og greip. Verð frá:
Schäffer Lader 2024 SLT
Fleiri stærðir í
boði!
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Morgunblaðið/Eggert
Sólheimajökull Aftur má ganga þar.
Jarðskjálftahrinunni sem hófst í
Kötlu á fimmtudaginn í síðustu viku
er lokið. Þetta er mat vísindaráðs Al-
mannavarna sem fundaði í gær-
morgun. Í framhaldi af fundinum
ákvað lögreglan á Suðurlandi að
opna að nýju veginn að Sólheima-
jökli og fyrir gönguferðir á jökulinn.
„Þessi hrina er sú öflugasta sem
hefur komið í Kötlu í nokkra áratugi
og það verður fylgst vel með Kötlu
áfram,“ segir Magnús Tumi Guð-
mundsson, prófessor í jarðeðlisfræði
við Háskóla Íslands, sem situr í vís-
indaráðinu. Hann segir mikla virkni
búna að vera í Kötlu í allt haust. „Við
vitum ekki hvort þetta er einhver
endapunktur, eða bara skref í ein-
hverri atburðarás. Það verður bara
að koma í ljós.“
Magnús Tumi segir vísindaráðið
hafa rætt á fundi sínum hvernig leita
megi leiða til að reyna að skilja at-
burðarásina betur. Veðurstofan setti
um helgina upp skjálftamæla á Aust-
mannsbungu og í Grænufjöllum í
suðurjaðri jökulsins og þá kom Jarð-
vísindastofnun einnig fyrir GPS-
mæli í Grænufjöllum. „Það er ekki
auðvelt að fylgjast með Kötlu,“ segir
hann, „en það var bætt við vöktunar-
kerfið til að reyna að skilja betur
þessa jarðskjálfta sem eru í gangi.“
Hann segir vetrarveðrin framund-
an ekki auðvelda mönnum þá vinnu.
„Katla tekur á sig öll veður og allar
lægðir sem á land koma.“ Þá geti
eins metra þykkt snjólag sest í Kötlu
á skömmum tíma og allt slíkt geti
haft áhrif á mælitækin. „Það er reynt
að setja upp tæki og ganga þannig
frá þeim að þau standist vetrarveðr-
in og virki sem lengst, en þetta er
ekki auðvelt,“ segir Magnús Tumi.
„En það eru feikilega góðir og öfl-
ugir tæknimenn sem sinna þessu,
bæði hjá Veðurstofunni og Jarðvís-
indastofnun.“ annaei@mbl.is
Hrinunni í Kötlu lokið
Fleiri mælitæki sett upp til að fylgjast betur með Kötlu
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Þrettán ný undirgöng og brýr verða
á 12 km kafla á hringveginum, á
milli Hveragerðis og Selfoss, þegar
lokið hefur verið við breikkun hans.
Þá verður vegamótum fækkað úr
rúmlega þrjátíu niður í fern á þess-
um kafla sem
þykir einn sá
hættulegasti á
hringveginum.
Gert er ráð
fyrir að fram-
kvæmdir við
breikkun veg-
kaflans hefjist í
fyrsta lagi haust-
ið 2017. Byrjað
verður á því að
leggja 2+1 veg
með aðskildum akstursstefnum
með vegriði. Öll undirbygging verð-
ur byggð með 2+2 veg í huga strax í
upphafi en slitlag- og efri burðarlög
verða lögð sem 2+1. Því er gert ráð
fyrir tveimur akreinum í hvora átt í
framtíðinni en það sem ræður því að
ekki verður farið í þá aðgerð strax
er umferðarþunginn, hann þykir
ekki vera kominn á það stig að hann
kalli á tvær akreinar í hvora átt
strax. Í dag aka tæplega 10 þúsund
bílar á sólarhring þessa leið frá
Kambarótum að Biskupstungna-
braut en umferðin þarf að vera
komin yfir 12-15 þúsund bíla á sól-
arhring til að farið verði að athuga
með tvær akreinar í hvora átt, sam-
kvæmt upplýsingum frá Vegagerð-
inni.
Færist til á nokkrum köflum
„Vegurinn verður ekki þessi
hefðbundni 2+1 sem við könnumst
við, þar sem skipst er á að nota
miðjuakreinina í hvora átt, heldur
verður þetta svokallað A22 snið
sem er 22 m breitt þversnið með 3 m
opnum miðdeili, sambærilegt þver-
snið og á Reykjanesbrautinni nema
þar eru 11 m á milli akbrauta. Akst-
ursstefnur verða aðskildar með
vegriði í miðdeilinum,“ segir Mar-
grét Silja Þorkelsdóttir, hönnunar-
stjóri verkefnisins hjá Vegagerð-
inni, beðin um að lýsa
veghönnuninni.
Núverandi veglína verður notuð
að miklum hluta en vegurinn færist
til á nokkrum köflum. „Vegurinn
kemur niður frá Kambarótum um
200 m sunnar við Hveragerði en
hann er í dag og tengist aftur inn á
núverandi veg inn á vegstæðið við
Varmá. Þaðan mun vegurinn liggja
í núverandi legu alveg að Kotströnd
en þar mun nýr vegur stefna meira
beint áfram til suðausturs og ekki
koma að núverandi vegi fyrr en við
vegamótin við Hvammsveg eystri.
Þaðan liggur vegurinn í sama fari
og núverandi vegur þar til hann slít-
ur sig frá milli Ingólfsfjalls og Bisk-
upstungnabrautar þar sem hann
tekur stefnu að nýju brúarstæði yf-
ir Ölfusá,“ segir Margrét.
Vegamótin á þessum kafla verða
fern; tvöfalt hringtorg verður við
Hveragerði og aftur við vegamótin
að Selfossi og Biskupstungnabraut.
Þá verða svokölluð stefnugreind T-
vegamót, með beygjuvösum, við
Velli og Hvammsveg eystri. Við T-
vegamótin verður vegurinn
þrengdur í eina akgrein í hvora átt.
Gert er ráð fyrir að mislæg vega-
mót komi á alla þessa staði í fram-
tíðinni þegar vegurinn verður 2+2
og verður tekið frá rými fyrir þau
við þessar framkvæmdir.
11 km af hliðarvegum
„Í dag eru yfir þrjátíu tengingar
inn á þennan vegkafla og til að
fækka þeim svona mikið byggjum
við hliðarveganet sem þjónar svei-
taumferðinni og beinir henni inn á
hringveginn. Hliðarveganetið telur
samtals um 11 kílómetra og er nú-
verandi hringvegur nýttur sem
hliðarvegur þar sem ný veglína vík-
ur frá núverandi vegi. Til viðbótar
við þessar framkvæmdir verður
lögð heildstæð leið til hjólreiða á
milli Hveragerðis og Selfoss sem
hliðarvegirnir verða líka nýttir í.
Við það verður hægt að vísa hjól-
reiðum um öruggari leið af hring-
veginum sem er ekki æskilegur til
hjólreiða eftir þessar breytingar,“
segir Margrét.
Þá verða níu undirgöng gerð, ým-
ist akstursgöng fyrir bíla eða
göngu- og reiðgöng. Þá eru brýr á
fjórum stöðum, á hringveginum og
hliðarvegum, yfir Varmá, Bakkár-
holtsá og Gljúfurholtsá.
Gert er ráð fyrir að þessum fram-
kvæmdum ljúki 2021 og þá er stefnt
á að hefjast handa við næsta kafla
sem er að færa hringveginn austar
áður en komið er að Selfossi og
byggja nýja brú yfir Ölfusá.
Lagður með 2+2 í huga
Hringvegurinn á milli Hveragerðis og Selfoss breikkaður í áföngum Mun verða
2 + 1 með vegriði í miðjunni næstu árin Vegamótum fækkað úr rúmlega 30 í fern
Hringvegurinn
» Markmið framkvæmdarinn-
ar er aukið umferðaröryggi
með aðskilnaði akstursstefna
og fækkun tenginga við hring-
veginn ásamt því að auka um-
ferðarrýmd vegakerfisins milli
Hveragerðis og Selfoss.
» Með þessu verða þrjú
hringtorg á stuttum kafla þeg-
ar komið er að Selfossi; við
Biskupstungnabraut, við
Toyoto inn í Árbæjarhverfi og
svo strax og komið er yfir Ölf-
usárbrú.
» Framkvæmdir hefjast í
fyrsta lagi haustið 2017. Gert
er ráð fyrir að þær taki 4-5 ár.
Fyrirsögn hér
Gamli vegurinn
Nýi vegurinn
Heimild: Vegagerðin
Hveragerði
Kotstrandarkirkja
Ingólfsfjall
Selfoss
Hve agerði-Selfoss
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Suðurlandsvegur Framkvæmdin er í framhaldi af breikkun Hellisheiðar
og verður með svipuðu sniði frá Kambarótum að Biskupstungnabraut.
Margrét Silja
Þorkelsdóttir
Ákæran hefur
svert mannorð
mitt, fullyrti
Hreiðar Már Sig-
urðsson, fyrrver-
andi forstjóri
Kaupþings, sem
lýsti sig saklaus-
an af ákæru um
innherja- og um-
boðssvik þegar
mál gegn honum
var þingfest í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Honum fannst það æru-
meiðandi að gefið væri í skyn að
hann hefði rænt Kaupþing.
Hann er sakaður um að hafa mis-
notað aðstöðu sína og stefnt fé bank-
ans í hættu þegar hann lét bankann
veita einkahlutafélaginu Hreiðari
Má Sigurðssyni ehf. 574 milljóna
króna eingreiðslulán í ágúst 2008.
Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrver-
andi fjármálastjóri Kaupþings, er
einnig ákærð fyrir hlutdeild í
umboðssvikum en hún mætti ekki til
þingfestingar í gær.
Hreiðar Már lýsti því yfir að ekki
væri hægt að ganga út frá hlutlægni
af saksóknarans hálfu.
Mannorðið
svert með
ásökunum
Hreiðar Már
sóttur til saka
Hreiðar Már
Sigurðsson
Sverrir Geir-
mundsson, sonur
Geirmundar
Kristinssonar
sem ákærður er
meðal annars fyr-
ir umboðssvik í
starfi sínu sem
sparisjóðsstjóri
Sparisjóðsins í
Keflavík, sagðist
ekki skorast und-
an því að bera vitni fyrir dómi í máli
föður síns í gær.
Varðar málið meðal annars um-
boðssvik þar sem Geirmundur er
talinn hafa misnotað aðstöðu sína,
sem stjórnarformaður dótturfélags
sparisjóðsins, einkahlutafélagsins
Víkna, þegar hann framseldi stofn-
bréf í Sparisjóði Keflavíkur að verð-
mæti tæplega 700 milljónir króna,
frá Víkum til einkahlutafélagsins
Fossvogshyls í lok árs 2007, án þess
að nokkuð endurgjald kæmi fyrir.
Enginn lánasamningur var gerður
og ekki var gengið frá neinni trygg-
ingu. Sama dag og stofnfjárbréfin
voru skráð á Fossvogshyl var félagið
framselt frá Deloitte til sonar Geir-
mundar, Sverris Geirmundssonar.
Sonur vitnar
í máli föður
Geirmundur
Kristinsson