Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
Hvernig líst Steinu á tiltæki
ykkar?
„Hún er voðalega montin. Í gær
þegar hún átti að fara í háttinn
maldaði hún í móinn og sagði að litlir
rithöfundar mættu nú líka alveg
leika sér.“
Guðni Már segir þau Steinu
verja miklum tíma saman tvö ein,
enda sé hann heimavinnandi. Fjöl-
skyldan býr í Vogum á Vatnsleysu-
strönd, þar sem Steina er í leikskól-
anum Suðurvöllum. Kona Guðna
Más og mamma Steinu, Maria Lebe-
deva, stundar ljósmyndanám í
Tækniskólanum og kemur oft ekki
heim fyrr en seint á kvöldin. „Þá sitj-
um við Steina saman og spjöllum,
horfum á tunglið eða bíðum eftir
norðurljósunum til dæmis. Um dag-
inn sagði hún að ef maður horfði
nógu lengi upp í himininn gæti mað-
ur líka séð hús guðs. „Ertu viss um
það?“ spurði ég. „Þegar maður er
dauður þá fer einhver kona með
mann upp í himnaríki, bankar á
dyrnar og þá kemur bara einhver
„sánkti“ og skutlar manni bara inn,“
útskýrði hún. Svona eru nú samtölin
okkar á heimspekilegum nótum,“
segir Guðni Már og kveðst jafnan
ýta undir frásagnargleði dóttur
sinnar og tala kannski fullorðins-
legar við hana en almennt tíðkast við
svona ung börn.
Óvæntur gleðigjafi
Hugarflug Steinu á sér lítil tak-
mörk og hún lætur sér fátt óviðkom-
andi. „Tveggja ára var hún andvaka
eitt kvöldið því hún hafði svo miklar
áhyggjur af að fuglunum væri kalt.
Henni fannst líka ósanngjarnt að
þeir væru alltaf að syngja fyrir hana
og hún gerði ekkert fyrir þá í stað-
inn. Svo linnti hún ekki látum fyrr
en hún fékk að fara með harmonikk-
una sína niður á Fitjar og spila fyrir
þá.“
Guðni Már var tæplega sextug-
ur þegar Steina leit dagsins ljós.
„Óvæntur gleðigjafi enda hafði ég
ekki reiknað með að eignast barn á
gamals aldri. Eldri dóttir mín, Katr-
ín Ísafold, sem er 22ja ára, og búin
að gera mig að afa, hefur oft spurt
mig hvað hún hafi sagt eða gert þeg-
ar hún var lítil. Því miður verður fátt
um svör því ég man ekki nokkurn
skapaðan hlut annað en að hún hafi
verið skemmtileg. Minnisglöp mín
að þessu leytinu og líka vegna þess
að ég geri mér grein fyrir að ég verð
ekki lengi með henni Steinu minni
varð til þess að ég fór að skrá samtöl
okkar.“
Kynntust á tónlistarsíðum
Upp úr dúrnum kemur að tilurð
Steinu, ef svo má að orði komast, á
rætur í tónlistaráhuga foreldranna.
Guðni Már var um margra ára skeið
með Popplandið og aðra tónlistar-
þætti á Rás 2, auk þess sem hann
spilaði með hljómsveitunum Tass og
Rasp í eina tíð, sendi frá sér plötur
og samdi texta fyrir tónlistarmenn.
„Við Maria, sem er rússnesk,
kynntumst á Facebook-síðum þar
sem fólk tjáði sig um tónlist. Ég
merkti fljótt að þarna fór kona sem
tengdi mikið við íslenska tónlist og
bakaði mig alveg í vitneskju um ís-
lenskar hljómsveitir. Þar sem ég er
atvinnumaður fannst mér það súrt í
broti en líka svolítið magnað,“ segir
Guðni Már, sem endaði með að fara
til Pétursborgar og hitta hana að
máli.
Neistaði strax á milli ykkar?
„Tja, það var ekki bara tónlistin
þegar upp var staðið, þótt tæp þrjá-
tíu ár séu á milli okkar. Hún fluttist
til Íslands og rúmu ári síðar fæddist
Steina,“ svarar Guðni Már.
Þau hjónin eiga fleira sameigin-
legt en Steinu og tónlistaráhugann.
Bæði eru frístundamálarar. Guðni
hefur haldið nokkrar málverkasýn-
ingar í áranna rás og í hittifyrra opn-
uðu þau saman sýningu. Verk Mariu
draga yfirleitt dám af landslagi og
gömlu impressjónistunum, en tón-
listin speglast í verkum Guðna Más.
„Ég nota heiti minna uppáhaldslaga
og „fantasera“ út frá þeim,“ segir
hann og nefnir sem dæmi eldgamalt
lag Rolling Stones, Lady Jane, sem
birtist í einu málverka hans sem
frekar ófríð kona með flugvélar
fljúgandi út úr höfðinu. „Táknmynd
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Guðni Már,“ er svarað í sím-ann. Röddin er hás ográm, allsendis ólík GuðnaMá Henningssyni, sem
staðið hefur Næturvaktina á Rás 2 á
laugardagskvöldum í meira en tvo
áratugi. Sá er samt maðurinn. „Fyr-
irgefðu, ég er aðeins lasinn, hósti og
leiðindi. Ég veit ekki hvað þetta á
eiginlega að þýða,“ segir hann svo en
færist í aukana þegar hann er spurð-
ur hvort hann treysti sér í smáspjall
um væntanlega bók þeirra Steinu
Elenu, fjögurra ára dóttur sinnar.
Fjögurra að verða fimm svo því sé
haldið til haga, en hún á afmæli 9.
nóvember og þá verður bókin Það er
rafmagnslaust hjá selunum væntan-
lega komin út. Að því tilskildu að
áætlanir þeirra feðgina standist og
þau nái söfnunarmarkmiði sínu á
Karolina fund. Í dag er síðasti séns
að veita ritverkinu brautargengi.
Heimspekilega þenkjandi
„Ég er svo heppinn að eiga
þessa dásamlegu stúlku, Steinu
Elenu. Við spjöllum mikið saman og
höfum alltaf gert síðan hún fór að
tala um tveggja ára aldurinn. Hún er
mjög heimspekilega þenkjandi og
mikil sögumanneskja. Samtölin
spanna allan heiminn og geiminn og
langt niður í undirdjúpin. Mér þóttu
tilsvör hennar og sýn á heiminn
skemmtileg, á stundum fullorðins-
legri en hæfði aldrinum og fór að
skrá þessi samtöl okkar. Ég kunni
ekki aðra leið til að varðveita sög-
urnar en að setja þær á Facebook
því þá gilti einu þótt tölvan klikkaði.
Smám saman fór ég að fá viðbrögð
og fólk spurði mig hvort ég ætlaði
ekki að gefa þær út á bók,“ segir
Guðni Már um aðdraganda útgáf-
unnar.
Þótt svör hans væru á þá leið að
sögurnar væru bara fyrir litlu stelp-
una hans og mömmu hennar, lét hann
tilleiðast þegar vinur hans, Karl Th.
Birgisson, bauðst til að sjá um fram-
kvæmdina. „Hann sagði að ég þyrfti
ekkert að gera, bara gefa sér leyfi til
að vinna úr þessu. Karl valdi 65 sögur
af samtölum okkar Steinu og nú verð-
ur ekki aftur snúið.“
Rithöfundar mega
líka leika sér
Feðginin Guðni Már Henningsson og Steina Elena, fjögurra ára, sitja löngum stund-
um og ræða á heimspekilegum nótum um alla heima og geima. Guðni Már hefur
skráð samtölin og birt á Facebook, en hyggst í kjölfar fjölda áskorana gefa 65 þeirra
út á bók. Það er rafmagnslaust hjá selunum nefnist hún og er fyrir fólk á öllum aldri.
Listin Málverk eftir Guðna Má, inn-
blásið af lagi Rolling Stones, You
can’t always get what you want.
Ljósmynd/Rafn Sig.
Á vaktinni Guðni Már hefur staðið Næturvaktina á Rás 2 í meira en tvo ára-
tugi og á í sérstöku trúnaðarsambandi við hlustendur.
Litla skáld-
konan Steinu
Elenu finnst
gaman að
hjóla og
leika sér.
Maria,
mamma henn-
ar, tók þessa
mynd heima
í Vogum.
Ferðaskrifstofan Farvel heldur kl.
17.30 í kvöld kynningarfund um hjóla-
ferð um Taíland, Víetnam og Kambó-
díu dagana 10. – 25. febrúar 2017.
Ferðin hefst í Bangkok, höfuðborg
Taílands og þaðan liggur leiðin yfir til
Kambódíu þar sem rústir Angkor og
höfuðborgin Phnom Penh mæta
hjólaköppum. Í Víetnam verður hjólað
um árósa Mekong alla leið suður til
Saígon. Fararstjóri er Eiríkur Viljar.
Fundurinn er haldinn á skrifstofu
Farvel við Suðurlandsbraut 22 (Lyfja-
vershúsið, 4. hæð, gengið inn baka
til).
Vefsíðan www.farvel.is
Asía Hjólaferðin hefst í Bangkok.
Hjólaferð í Suð-
austur-Asíu
Valgerður H. Bjarnadóttir fer í hlut-
verk Þórunnar hyrnu, landnámskonu í
Eyjafirði, kl. 20 í kvöld, þriðjudag 4.
október, í Hannesarholti. Valgerður
segir sögu Þórunnar og systur henn-
ar Auðar djúpúðgu.
Sagan geymir nokkur minni um
Auði, líf hennar, uppruna og dauða,
en minna er vitað um Þórunni. Íslend-
ingar geta margir hverjir rakið ættir
sínar til þeirra systra, sem höfðu
veruleg áhrif á mótun samfélagsins
við landnám.
Leikþættinum, sem er rúmur hálf-
tími, er fylgt eftir með umræðum.
Einleikur og spjall
Þórunn hyrna og
Auður djúpúðga
Morgunblaðið/Kristinn
Einleikur Valgerður er félagsráðgjafi,
með MA í femínískri trúarheimspeki
og menningarsögu.
Viðburðir vetrarins á vegum Snorra-
stofu hefjast fyrir alvöru í október.
Fyrst á dagskránni er námskeið um
borgfirskar skáldkonur kl. 20 í kvöld,
þriðjudaginn 4. október, í Landnáms-
setrinu í Borgarnesi. Fyrsta prjóna-
bóka-kaffi bókhlöðunnar verður svo á
sínum stað kl. 20, fimmtudaginn 6.
október.
Helga Kress, bókmenntafræðingur
og prófessor emeritus við Háskóla Ís-
lands, leiðir námskeiðin, sex talsins,
til skiptis á sögulofti Landnámsset-
urs og í Snorrastofu. Fjallað verður
um borgfirskar skáldkonur í íslenskri
skáldskaparhefð með áherslu á yrkis-
efni þeirra, einkenni og áhrif, ásamt
viðtökum og stöðu í bókmenntasög-
unni.
Þess má geta að fyrsta íslenska
skáldkonan sem verulegur skáld-
skapur hefur varðveist eftir er borg-
firsk. Fyrsta bókin sem prentuð var
eftir íslenska konu er eftir konu úr
Borgarfirði. Fyrsta ljóðabókin sem
kom út eftir konu á Íslandi er eftir
borgfirska konu. Nokkur bestu skáld
tuttugustu aldar eru borgfirskar
skáldkonur.
Yfirskrift námskeiðsins í kvöld er
„Þótt svanurinn betur syngi en hún“
og fjallar um Steinunni Finnsdóttur
(1640 - 1710) og upphaf borgfirskra
kvennabókmennta í þjóðkvæðum,
sagnadönsum, rímum, óbirtum hand-
ritum og matreiðslubók.
Námskeiðin eru samstarfsverkefni
Snorrastofu, Landnámsseturs og Sí-
menntunarmiðstöðvarinnar á Vestur-
landi.
Prjóna-bóka-kaffið er kvöldstund í
bókhlöðunni þar sem setið er við
hannyrðir, spjallað í anda baðstof-
unnar gömlu og heitt kaffi er á könn-
unni. Það verður hálfsmánaðarlega í
vetur og er öllum opið.
Námskeið um borgfirskar skáldkonur í Snorrastofu, menningar- og miðaldasetri í Reykholti
„Þótt svanurinn betur syngi en hún“
Morgunblaðið/Einar Falur
Bókmenntafræðingur Helga Kress
bókmenntafræðingur og prófessor
emeritus við HÍ leiðir námskeiðin.
Skráning á námskeiðin: www. si-
menntun.is/namskeid/borgfirsk-
ar-skaldkonur-2/
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.