Morgunblaðið - 04.10.2016, Síða 18

Morgunblaðið - 04.10.2016, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ungverjargengu tilþjóðar- atkvæðis um það, hvort hlíta bæri niðurstöðu ESB um innflytjenda- kvóta sem Ung- verjaland skyldi bundið af. Reglur atkvæðisins sögðu að þátttöku helmings skráðra á kjörskrá þyrfti til svo niðurstaðan yrði bindandi. Tæp 45% kjósenda á kjörskrá tóku þátt og rúm 98% höfnuðu kvóta ESB. Eftirtektarvert var hvernig fréttastofa „RÚV“ höndlaði frétt af málinu. Í fréttayfirliti sjónvarpsins sagði: „Þjóðar- atkvæði í Ungverjalandi um móttöku flóttamanna hefur enga þýðingu þar sem kjörsókn var ekki nægjanleg. Niður- staðan þykir mikill álits- hnekkir fyrir þarlend stjórn- völd.“ Ekki var minnst á það í þessari fyrirsögn að 98,33% nærri 45% kjósenda á kjörskrá hefðu hafnað kröfum Brussel en aðeins 1,67% sagt já við þeim. Bíða varð frétta síðar í útsendingunni til að heyra minnst á það. Forvitnilegt hefði verið að fá upplýst, hverj- ir töldu niðurstöðuna vera „mikinn álitshnekki fyrir þar- lend stjórnvöld.“ Engin heim- ild var nefnd og verður því að álykta að þetta sé úrskurður fréttastofunnar. Hins vegar var bætt við yfir- lýsinguna um að atkvæða- greiðslan „hefði enga þýðingu“ að hún væri „merkingarlaus vegna ónógrar þátttöku“. Hvergi var minnst á hið hefð- bundna orðtak hvort atkvæða- greiðslan sé „bindandi“ eða ekki. Því síður var minnst á af- stöðu ungverskra yfirvalda, enda mátti ætla að þau hefðu misst málið vegna hins „mikla álitshnekkis“. En strax og litið var í aðra miðla breyttist myndin. Ung- versk yfirvöld sögðu niðurstöð- una vera mjög afgerandi. Afar sjaldgæft væri að rúm 98% kjósenda legðust á aðra hlið deilumáls í þjóðaratkvæði. Hér er engin afstaða tekin til þess hvernig Ungverjar hefðu átt að greiða atkvæði. Það er að mestu þeirra mál. Þýðingar- mikið er að samkvæmt reglum þyrfti helming kjósenda á kjör- skrá til, svo að niðurstaða yrði bindandi. Það gefur þó ekki til- efni til að fullyrða út í bláinn að þessi afdráttarlausi vilji 45% kjósenda „hefði enga þýðingu“ eða „væri merkingarlaus“. Þeir sem þannig fjalla um fréttir ættu að föndra við annað. Í janúar 2012 fór fram þjóðaratkvæði um það, hvort Króatía skyldi ganga í ESB. Mun alvarlegri og þýðingar- meiri atkvæða- greiðsla en sú sem hér er umtalsefni. Í því þjóðaratkvæði tóku aðeins 44% kjósenda á kjör- skrá þátt og 66% þeirra samþykktu aðild. Mun óljósari þjóðarvilji en í atkvæðagreiðsl- unni í Ungverjalandi. Sá sem vill sjá hvort fréttastofa „RÚV“ hafi ekki sagt þá hversu mikill álitshnekkir sú atkvæða- greiðsla var fyrir króatísk stjórnvöld má leita lengi. En hvað segja ungversk stjórnvöld um málið, sem „RÚV“ telur þýðingarlaust og merkingarlaust? Í fréttum BBC segir: „Ungverski for- sætisráðherrann Viktor Orban hefur lýst yfir sigri í þjóðar- atkvæði um bindandi ESB inn- flytjendakvóta, þrátt fyrir að dræm þátttaka virtist þýða að niðurstaðan væri ómarktæk (invalid).“ (Orðið bindandi er algengara.) Samkvæmt BBC lýsti tals- maður ríkisstjórnarinnar því yfir að niðurstaðan væri bæði siðferðislega og lagalega gild fyrir Ungverjaland. Talsmað- urinn skýrði þá afstöðu þannig að 50% þátttöku hefði þurft til að þingið væri skuldbundið til að samþykkja niðurstöðuna, þótt það væri sjálft andvígt henni. Það vandamál væri ekki uppi nú. Hverjum hefði dottið í hug að slík sjónarmið væru uppi? Engum, sem aðeins sæi „RÚV“ en ekki BBC eða aðra miðla. Vandinn er sá, að það er ekki einungis í innlendum málum sem hlustendur geta ekki treyst fréttum „RÚV“ sem jafnan eru litaðar þeirri stjórn- málalegu sérvisku. Sama gildir um fréttir af erlendum atburð- um. Þess má geta að í nýlegri ræðu fordæmdi Boris Johnson utanríkisráðherra BBC fyrir mikla hlutdrægni í málum sem tengdust ESB almennt og „Brexit“ sérstaklega. Fréttir BBC um þau mál voru þó mun trúverðugri en fréttir „RÚV“. Þess má minnast að Reykja- víkurborg stofnaði til almennr- ar atkvæðagreiðslu um Reykjavíkurflugvöll, og kost- aði miklu til áróðurs. Ákveðið var að 50% þátttöku þyrfti til svo niðurstaðan yrði bindandi. Aðeins 37,2% þeirra sem voru á kjörskrá tóku þátt. Aðeins tæp 400 atkvæði skildu fylkingar að. Borgarstjórinn þáverandi, Ingibjörg S. Gísladóttir, lýsti því samt yfir að hún teldi at- kvæðagreiðsluna siðferðislega bindandi. Þá sleppti „RÚV“ að nefna að niðurstaðan hefði enga þýðingu og væri merking- arlaus. Var þó mun ríkari ástæða til. Eru það pólitískir komplexar fremur en kunnáttuleysi sem valda þessu? Sennilega hvort tveggja.} Of margir frétta fátt S víar þykja stundum ganga óþarflega langt í að framfylgja stefnu sinni um sósíalíska velferð þegnanna og þykir sumum nóg um forræðis- hyggjuna sem að þeirra sögn er fáum til gagns en flestum til ama. Það má vera að skandinavíska velferðarmódelið gangi stundum lengra en góðu hófi gegnir en á móti kemur að oft ratast þeim satt orð á munn. Eitt slíkt hafa þeir á hraðberginu um þessar mundir því ríkisstjórn Sósíaldemókrata og Græningja hyggst leggja lög fyrir þingið í dag, þriðjudag, til samþykktar, sem eiga að stuðla að betri nýt- ingu og minni neyslu. Í kjölfarið vonast Svíar til að sjá minni sóun, færri landfyllingar af fatnaði, skóm og reiðhjólum til að byrja með, og fleira fylgir svo í kjölfarið. Hér er komið mál sem vel færi á að kynna í kosningabaráttu þeirri sem yfirvofandi er hér á landi. Hvort sænska módelið skyldi haft að fyrirmynd í einu og öllu skal ekkert fullyrt um en það felur engu að síður í sér áhugaverðar tillögur. Til að byrja með verður virðisauka- skattur af viðgerðum á reiðhjólum, fatnaði og skóm helm- ingaður úr 25% í 12%. Stjórnin hyggst einnig leggja fram tillögu þess efnis að almenningur geti fengið endur- greiddan helminginn af því sem greitt hefur verið fyrir viðgerðir á heimilistækjum á borð við uppþvottavélar, ís- skápa, bakaraofna og þvottavélar. Með þessu móti er þess vænst að fólk hugsi sig tvisvar um áður en það ekur með heillega hluti á haugana, sem auðveldlega mætti gera við og spara þannig peninga og ómælt pláss í landfyllingum. Hér er vitaskuld hrein snilld á ferðinni sem réttast væri að apa eftir Svíum og það refja- laust. Ég er þess handviss að allir sem þetta lesa hafa á einhverjum tíma verið í þeirri að- stöðu að standa frammi fyrir því að þurfa að láta gera við flík eða raftæki en gefast upp á því þar sem það er ódýrara að kaupa nýtt. Þetta er vitaskuld fullkomlega galið fyrir- komulag og engan veginn sjálfbært til lengri eða jafnvel skemmri tíma litið. Neyslan rýkur upp úr öllu valdi, haugar af varningi sem vel mætti gera við enda í landfyllingum og með því að kaupa endalaust af einnota fatnaði í lægsta verð- og gæðaflokki verður líka til óspennandi og óhreyfð landfylling í fataskápnum. Hér þarf hugarfarsbreytingu til og Svíar hafa hugsað upp ágætis byrjunarreit; afsláttur í peningum eða endurgreiðsla er eitthvað sem allir skilja og vilja. Það þarf að hefja hugtök á borð við „handverk“ og „gæði“ aft- ur á sinn réttmæta stall um leið og almennt þarf að viður- kenna þau fornu sannindi að gæði trompa alltaf magnið. Einn stærsti áfangasigurinn í þessum efnum verður vit- undarvakning um það að betra er að greiða fyrir gæða- vöru og sinna henni svo með sjálfsögðu viðhaldi – hvort sem það er sólun á skópari eða ísetning nýrrar reimar í þvottavél – í stað þess að afskrifa bara og henda á haug- ana. Segjum skilið við draslið, og uppskerum með meiri gæðum og minni haugum. jonagnar@mbl.is Jón Agnar Ólason Pistill Að hætta harðri neyslu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Orkuspárnefnd Orkustofn-unar hefur sent frá sérskýrslu þar sem spáð erum þróun eldsneytisnotk- unar og annarra tengdra orkugjafa allt til ársins 2050. Með spánni fylgja þrjár ólíkar sviðsmyndir, þar sem ákveðnum forsendum í árlegri elds- neytisspá Orkustofnunar hefur verið breytt til þess að kanna áhrif sér- stakra aðgerða á orkunotkun í sam- göngum til sjós og lands. Orkustofnun vann þetta að beiðni atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytisins. Stofnunin tekur skýrt fram að ekki beri að líta á þessar sviðs- myndir sem fyrirhugaðar aðgerðir stjórnvalda til að ná fram markmiðum í orku- og loftslagsmálum. Eru sviðs- myndirnar settar fram til að fá betri skilning á leiðum til að mæta þessum markmiðum stjórnvalda. Sviðsmynd 1 Í sviðsmynd 1 er gert ráð fyrir þétt- ingu byggðar og kröfu um aukna notkun endurnýjanlegra orkugjafa í akstri fólksbíla. Samhliða þéttingu byggðar gerir Orkustofnun ráð fyrir að samdráttur verði í akstri þar sem almenningssamgöngur eigi eftir að verða hagkvæmari og aðrir ferðamát- ar, eins og t.d. hjólreiðar, vinsælli. Einnig er gert ráð fyrir að stjórnvöld beiti sér fyrir því að frá og með árinu 2020 noti nánast allir nýir fólksbílar endurnýjanlegt eldsneyti að einhverju lágmarki. „Niðurstaða sviðsmyndar 1 er að slík krafa hraðar verulega orkuskipt- um í samgöngum á landi og dregur að sama skapi úr notkun jarðefnaelds- neytis. Hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa af heildarorkusölu í sam- göngum á landi verður 59% árið 2030 í sviðsmyndinni og er það um 30 pró- sentustigum hærra en í eldsneytisspá. Töluverður orkusparnaður kemur fram í sviðsmyndinni þar sem gert er ráð fyrir samdrætti í akstri,“ segir í skýrslu Orkustofnunar. Sviðsmynd 2 Sviðsmynd 2 byggist á að stjórn- völd komi á stighækkandi söluskyldu endurnýjanlegs eldsneytis til sam- gangna á landi, auk þess sem miðað er við hærri skattlagningu á notkun jarð- efnaeldsneytis en í eldsneytisspánni. Orkustofnun telur að miðað við 30% hlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis af heildarorku í eldsneytissölu þá leiði það til þess að hlutdeild endurnýj- anlegra orkugjafa verði um 46% árið 2030, sem er um 18 prósentustigum hærra en í eldsneytisspá. „Verðteygni jarðefnaeldsneytis leiðir til minni notkunar jarðefnaelds- neytis en áhrifin eru þó ekki ýkja mik- il þar sem eftirspurn eftir jarðefna- eldsneyti er frekar óteygin. Hin aukna hlutdeild endurnýjanlega elds- neytisins leiðir til þess að notkun jarð- efnaeldsneytis dregst saman um 55 ktoí (kílótonn að olíuígildi) árið 2030 og um nærri 18 ktoí árið 2050 ef miðað er við eldsneytisspána.“ Sviðsmynd 3 Litið er til fiskveiða í sviðsmynd 3 og gert ráð fyrir að stjórnvöld komi á stighækkandi söluskyldu á hlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis af sölu eldsneytis til fiskiskipa. Að auki er gert ráð fyrir að 50% af orkuþörf báta verði fullnægt með rafmagni undir lok spátímans. Að mati Orkustofnunar er niður- staða þessarar sviðsmyndar sú að samdráttur verði í olíunotkun og nem- ur hann 15% árið 2030 og 32% árið 2050, ef miðað er við eldsneytisspá. Raforkunotkun verður um 12% af allri orkunotkun í fiskveiðum árið 2050. Hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa að meðtalinni raforku í sviðsmyndinni verður 38% af allri orkunotkun og er það nærri 30 pró- sentustigum hærra en í eldsneytisspá Orkustofnunar. Spáð í ólíkar sviðs- myndir í orkunotkun Morgunblaðið/Kristinn Samgöngur Rafbílum fer fjölgandi í umferðinni og Orkustofnun spáir áframhaldandi aukningu næstu áratugina, á kostnað eldsneytisbíla. Orkustofnun telur tilkomu nýrra orkugjafa í verulegum mæli í samgöngum á landi og í fisk- veiðum geta krafist töluverðrar uppbyggingar innviða. Er þar m.a. nefndur útbúnaður til hleðslu rafbíla, hvort sem er í heimahúsum, við verslanir eða fyrir hleðslu skipa á rafmagni í höfnum. Orkustofnun telur þetta þó vel viðráðanlegt miðað við núverandi uppbyggingu. Þá geti þurft sérhæfða inn- viðafjárfestingu fyrir sölu á endurnýjanlegu eldsneyti, auk þess sem hið endurnýjanlega eldsneyti geti verið dýrara í inn- kaupum, samanborið við hið hefðbundna eldsneyti. Krefjast upp- byggingar NÝIR ORKUGJAFAR Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Orka Búist er við aukinni notkun endurnýjanlegrar orku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.