Morgunblaðið - 04.10.2016, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Jón Helgason íSeglbúðum,fyrrverandi al-
þingismaður og ráð-
herra, er 85 ára í
dag. Hann fæddist
og ólst upp í Segl-
búðum í Landbroti
og hefur átt þar
heima alla tíð, þó við
nám og síðar störf
hafi hann þurft að
dvelja suður í
Reykjavík.
Jón lýkur stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1950 og
að því loknu tekur
hann við búi í Segl-
búðum með sauð-
fjárrækt að aðalbúgrein. Við tekur ræktun og áframhaldandi upp-
bygging jarðar og búfjár sem Jón sinnir af alúð ásamt eiginkonu
sinni til 55 ára, Guðrúnu Þorkelsdóttur húsmóður. Við búskap eru
þau til ársins 1980.
Snemma á lífsleiðinni voru Jóni falin ýmis ábyrgðar- og trúnaðar-
störf í samfélaginu. Í hreppsnefnd Kirkjubæjarhrepps frá 1966-83,
þar af oddviti 1967-76, formaður búnaðarfélagsins og í sóknarnefnd
til fjölda ára, auk fjölda annarra starfa bæði innan sveitar sem og ut-
an, og síðar áfram á vettvangi stjórnmálanna fyrir Framsóknar-
flokkinn. Jón var alþingismaður Suðurlandskjördæmis 1974-95, for-
seti Sameinaðs þings 1979-83 og forseti efri deildar 1988-91,
landbúnaðar-, dóms- og kirkjumálaráðherra 1983-87 og síðan land-
búnaðarráðherra til haustsins 1988. Fulltrúi á Búnaðarþingi 1973-75
og var formaður Búnaðarfélags Íslands 1991-95. Jón sat á
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1975 og 1988, var fulltrúi Ís-
lands á fundum þingmannanefndar EFTA 1977, 1980-81 og 1991 og
sat í Norðurlandaráði 1978. Jón var formaður Landverndar 1997-
2001, formaður samstarfsnefndar um málefni aldraðra frá 1998 og
kjörinn á kirkjuþing 1998 og var forseti þess um nokkurra ára skeið.
Þó að á fáu sé tæpt og víða tekist á við fjölbreytt verkefni á langri
starfsævi eru hagsmunir og farsæld sveitunganna ávallt ofarlega í
huga hjá Jóni.
Árið 1981 hófu Guðrún og Jón skógrækt nokkuð norðan við gamla
bæinn í Seglbúðum og þar hefur ræktunar- og útivistaráhugi beggja
fengið að njóta sín allt til dagsins í dag. Í landi sem áður var sandur
og grjót er nú unaðsreitur með fjölbreyttum gróðri og fuglalífi.
Hjónin Í garðinum heima í Seglbúðum.
Farsæld sveitarinnar
ávallt ofarlega í huga
Jón Helgason er 85 ára í dag
Reykjavík Elías Þór
Gunnlaugsson fæddist 1.
september 2015 kl. 23.53.
Hann vó 3.600 g og var
49 cm langur. Foreldrar
hans eru Gunnlaugur Arn-
ar Elíasson og Sara
Henný Arnbjörnsdóttir.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
H
eiðar Róbert Ást-
valdsson fæddist á
Siglufirði 4.10. 1936
og ólst þar upp.
Hann lauk Versl-
unarskólaprófi og síðan stúdents-
prófi frá Verslunarskóla Íslands,
stundaði nám í lögfræði við Há-
skóla Íslands og lauk prófum í al-
mennri lögfræði, stundaði nám við
City of London College í ensku,
bókmenntum og alþjóðalögum, við
Pittman College í latínu og
frönsku, við Hamburger Fremdsp-
rachenschule í þýsku, við Eurocen-
ter í Barcelona í spænsku, við
Listaháskólann í Havana á Kúbu í
Salsa og við Háskólann í Havana í
spænsku.
Hann lauk danskennaraprófi frá
Imperial Society of Teachers of
Heiðar R. Ástvaldsson danskennari – 80 ára
Danskennarar Heiðar með fjórum systrum sínum sem allar kenna dans, Hörpu, Guðrúnu, Eddu og Guðbjörgu.
Heiðursmaður sem
dansar gegnum lífið
Feðgarnir Heiðar ásamt syni sínum, Ástvaldi Frímanni Heiðarssyni.
Kristinn
Karlsson bif-
vélavirki er 80
ára í dag, 4.
október. Eig-
inkona hans er
Bryndís Sig-
urðardóttir.
Árnað heilla
80 ára
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frámerkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
stórafmælum, hjónavígslum, barns-
fæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinnimbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón