Morgunblaðið - 04.10.2016, Page 29

Morgunblaðið - 04.10.2016, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Oft var þörf en nú er nauðsyn á því að halda vel utan um fjármálin. Alls kyns tengsl úr fortíðinni koma líklega upp á yfirborðið á næstu vikum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þeir eru margir sem vilja ná tali af þér og þú átt að gera þitt besta til þess að geta hlustað á hvern og einn. Taktu samt lífinu með ró og láttu hlutina hafa sinn gang. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Öllu gríni fylgir einhver alvara svo þú skalt gæta orða þinna og hafa aðgát í nærveru sálar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Bogmaðurinn skiptir sér bara af því sem honum kemur við, en flækist allt í einu inn í klikkað drama einhvers annars. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það eru ýmsir möguleikar í stöðunni en farðu þér hægt því að flas er ekki til fagnaðar. Kannaðu hvort einhver úr vinahópnum eða fjölskyldunni vill slá til. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einbeittu þér að vinum þínum í dag. Kannski kemur fjölskyldumeðlimur þér á óvart. Vertu samt ekki of bráðlátur því allt hefur sinn tíma. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það færi best á því að þú héldir þér til hlés í viðkvæmu vandamáli. Dagurinn á morgun hentar reyndar vel líka. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Hugdirfska þín leiðir þig á fram- andi slóðir og þú munt upplifa mikil ævintýr. Ef það tækist myndi óeigingirnin verða mál- staðnum til framdráttar, sem er mótsögn í sjálfu sér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það að eyða peningum í skemmtilega hluti virðist heimskulegt í dag. En sem betur fer áttu góðan vin sem þekkir þig og kemur þér á óvart í dag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Leggðu þig fram um að tjá þig með svo ótvíræðum hætti að aðrir þurfi ekki að fara í grafgötur með hvað þú meinar. Vin- áttan verður betri með þeim mörkum sem þú setur henni núna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ungt fólk dregst að alsælunni sem þú nálgast hlutina með. Fólki í kringum þig er hollast að láta undan þér þótt þú sért ekki að þefa uppi vandræði heldur viljir fara eigin leiðir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vinir koma þér til hjálpar, leysa eitt vandamál fyrir þig sem gefur þér svigrúm til þess að fást við annað vandamál. Kannski tengjast vonbrigði hennar samskiptum við ástvin. Eins og við var að búast hefurflokksþing Framsóknarmanna orðið vísnahöfundum yrkisefni. Þegar úrslitin lágu fyrir orti Helgi Ingólfsson undir slitruhætti á Boðn- armiði: Sýtir stjórnar- sína -háttu, Sig- mun- láta hverfa -dur. Háði bar- og harða -áttu, hafði Sigur- góðan -ður. Ólafur Stefánsson skrifaði í Leir- inn á laugardaginn: „Það sker mig í hjartað, eins og ástandið er, að framsóknarmenn skuli ætli að hafa kvöldfagnað og dansleik á þessum landsfundi. Vísast að helgin verði þeim löng með viðsjár hjá helstu mönnum, þótt dagurinn endi með dansi og söng, og drukkið sé grænt úr könnum.“ Árla sunnudags hélt Ólafur áfram: „Mig dreymdi, undir morg- un, tvo gilda stríðsmenn etja kappi í hólmanum í Öxará. Umhverfið var skuggalegt, eldglæringar úr austri með vikurregni og brennisteins- fnyk. Nornir riðu kústsköftum og glenntu kjafta í eintóna söng og alltaf sama erindið. Ekki vissi ég hvorum kappanum veitti betur því ég vaknaði áður, en mundi vísuna. Þeir Simmi og Sigurður Ingi sitja á framsóknarþingi. Það er ekki vík milli vina sem slík en heiftar og persónu pólitík.“ Þannig blasti flokksþingið við Gústa Mar: „Ég er líklega kominn með Framsókn á heilann. Má alls- ekki taka þetta sem svo að mér sé í nöp við Frammarana. Ég hef gert mér far um að hæla Sigmundi Dav- íð. Það sjá menn glöggt ef þeir lesa vísur mínar með opnum huga. Flutti ræðu af miklum móð, mætti orðaskakinu. Í klukkutíma keikur stóð með kutana í bakinu.“ Hjálmar Freysteinsson birti skemmtilega myndlíkingu á Boðnarmiði: „Lýst glímu“: Fast er glímt á Framsóknarþingi, falla á sitjandann Sigmundur Davíð og Sigurður Ingi. Sigtryggur vann! Og gaf síðan þessa skýringu: „Já það er rétt. Unga fólkið man ekki Sigtrygg Sigurðsson glímukappa. Hann var sannkallaður þungavigt- armaður. Meðan hann var á dögum voru glímulýsingar oftast aðeins þessi tvö orð.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ort og skrafað um Framsóknarmenn Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að passa upp á litlu hlutina. Ó JÁ! ÉG ER AÐ BORÐA MORGUNKORNBEINT UPP ÚR KASSANUM! ÞETTA HLJÓTA AÐ VERA GÖT Á RISASTÓRRI GARDÍNU SEM GUÐ DREGUR NIÐUR Í LOK HVERS DAGS ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA FULLT TUNGL HVAÐ ER ÞETTA SEM TINDRAR Á HIMNINUM? ÉG VISSI AÐ ÞAÐ HLYTI AÐ VERA RÖKRÉTT ÚTSKÝRING Á ÞESSU „BARA ÞAÐ SEM ÞÉR FINNST LÍTA BEST ÚT. ÉG VIL FREKAR AÐ ÞÚ TAKIR STÓRU ÁKVARÐANIRNAR.“ „ÞÚ ERT Í HRÓPANDI MÓTSÖGN VIÐ SJÁLFAN ÞIG. FYRST SEGIRÐU AÐ KONAN ÞÍN HAFI HLAUPIST Á BROTT MEÐ BESTA VINI ÞÍNUM; SVO SEGIRÐU AÐ ÞÚ HAFIR ALDREI SÉÐ HANN.” Bandaríski spjallþáttastjórnand-inn Jimmy Fallon þóttist hafa himin höndum tekið í síðustu viku þegar málmbandið goðsagnakennda Metallica lét svo lítið að stinga við stafni hjá honum. „Þeir gera þetta aldrei. Bara núna,“ sagði kappinn sigri hrósandi í upphafi þáttarins en gleymdi að taka fram að líklega er ekki til meira myndefni tengt nokk- urri annarri hljómsveit í mannkyns- sögunni. En það er annað mál. Áfram hélt Fallon að grobba sig af afrekinu þegar fyrsti gesturinn settist í sófann hjá honum; ástr- alska leikkonan Margot Robbie. Kom þá á daginn að hún er mikil ’tallica-kona (nema hvað?) og hlakk- aði ógurlega til að sjá kempurnar sínar stíga á svið. x x x Robbie upplýsti að hún hefðiraunar aldrei séð Metallica á tónleikum en á hinn bóginn marg- vísleg önnur málmbönd, eins og Slipknot. Sú saga var merkileg. Robbie lék á þeim tíma í áströlsku sápuóper- unni Nágrönnum, sem er Íslend- ingum að góðu kunn, og gerði eng- ar sérstakar ráðstafanir til að dulbúast enda bjóst hún ekki við því að nokkur maður bæri kennsl á hana á þeim vettvangi. En hvað var a’tarna? Robbie hafði til þess tíma ekki orðið fyrir öðru eins áreiti. Hver málmhausinn af öðrum vatt sér að henni og vildi fara yfir eitt og annað sem á daga persónanna hafði drifið í Grönnum. Þótti okkar konu þetta kynlegt og til marks um það hversu hratt málmhausar þessa heims virðast vera að meyrna upp. Hvort sem sú þróun er svo góð eða slæm. x x x Við þetta rifjaðist upp sagan semkassadaman í kjörbúðinni í Neskaupstað sagði frá fyrstu Eistnaflugshátíðinni um árið. Ungt par kom þá skröltandi inn í búðina og varla sást í það fyrir húðflúri, hári, glingri og hlekkjum. Aumingja kassadaman fylltist ógurlegri skelf- ingu. Sú skelfing hvarf þó fljótt út um gluggann þegar parið tók til máls, mjóum rómi: „Fyrirgefðu, frú mín, ekki ertu með eitthvað veg- an?“ víkverji@mbl.is Víkverji Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. (Mt. 7.12) Rafsuðuvélar og aukahlutir Hágæða rafsuðuvélar og aukahlutir framleiddar í Austurríki Mjög notendavænar og þægilegar Dalshrauni 14 • 220 Hafnarfjörður • Sími 555 2035 • jak.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.