Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016
Harmleikir upp á líf ogdauða þrífast best utanvið það sem við vestræn-ir nútímamenn köllum
lög og rétt, en jafnframt verða að
gilda hörð lögmál og ósveigjanleg
sem „hetjan“ gengur á hólm við. Það
er því kjörið fyrir bókmenntir á
þessu rófinu að beina sjónum sínum
að þeim ítölsku innflytjendum í
Bandaríkjunum, sem fluttu með sér
stranga lífsreglubálka en gengu
kannski ekki nema að nafninu til
undir aga hins ameríska réttar-
kerfis. Þetta vissu Puzo og Coppola,
og þetta nýtti Arthur Miller sér þeg-
ar hann langaði að láta á það reyna
hversu nálægt klassískum harmleik
mætti komast í nútímaumhverfi.
Útkoman var Horft frá brúnni.
Þar lætur hversdagslegur hafnar-
verkamaður í New York óleyfilegar
ástríður leiða sig til voðaverks undir
vökulu auga viturs en lífsleiðs lög-
fræðings sem Miller lætur gegna
hlutverki kórsins úr grísku harm-
leikjunum sem hann vill blása nú-
tímalífi í. Snjöll og krefjandi hug-
mynd og verkið löngu komið í flokk
sígildra nútímaverka ásamt með
öðrum leikritum Millers frá blóma-
skeiði hans upp úr miðri síðustu öld.
Sviðsetning Stefans Metz er
tæknilega framúrskarandi. Samspil
leikmyndar, lýsingar og hring-
sviðstækninnar býr til æsandi flæði
og á sinn þátt í að halda spennunni
uppi í þessar tæpu tvær klukku-
stundir sem það tekur heim
Carbone-fólksins að sundrast. Stór-
an plús fær leikstjórinn fyrir að hlífa
okkur við hléinu, sem hefði verið ill-
þolandi uppbrot. Lýsing Ólafs
Ágústs Stefánssonar er glæsilegt
verk og gegnir óvenju viðamiklu
hlutverki. Leikmynd Sean Mackaoui
er sömuleiðis sterk og falleg, þó
bogadregnar línur glugga og dyra-
opa minni kannski frekar á „gamla
landið“ og kirkjubyggingar en fá-
tækrahverfi hafnarhverfisins og ögri
þannig raunsæinu. Það sama má
reyndar segja um notkun á „bak-
hliðum“ veggfleka og aðrar vísanir í
kvikmyndaver og leiksviðið sjálft.
Útlit og andblær sýningarinnar
sækir meðvitað í Film Noir-stílinn
og fer alveg að mörkum „kitschins“
– listlíkisins. En það sleppur, fyrir
utan upphafstitlana og ofnotkun á
hátalarakerfinu fyrir hugleiðingar
lögfræðingsins Alfieri. Að öðru leyti
viðeigandi og vel heppnað.
Á tveimur stöðum vinnur svið-
setningin þó á móti áhrifamættinum.
Annars vegar þegar innflytjendur-
nir sem setja óstöðugt jafnvægið á
Carbone-heimilinu upp í loft koma í
fyrsta sinn þar inn. Þröng og kyrr-
stæð sviðsetning atriðisins gerir
leikurunum ókleift að sýna okkur
afstöðuna – valdaþrepin, hrifningu,
andúð – sem byrjar að myndast
þarna og verður öllum á endanum að
falli.
Og svo seint í verkinu þar sem
Eddie Carbone er hafður inni í síma-
klefa meðan hin stóru ósköp ganga
yfir. Táknrænt séð er þetta góð hug-
mynd, en verður til þess að við miss-
um sambandið við persónurnar,
sjáum ekki viðbrögð þeirra, erum
svikin um samleikinn sem verk af
þessu tagi lifa og nærast á.
Því þetta er leikaraleikrit. Skrifað
inn í hefð sálfræðilegs raunsæis,
leikhús innlifunarinnar, hefð
Stanislavskíjs og Lees Strasberg (þó
Miller hafi reyndar haft illan bifur á
„Method-páfanum“). Engin svið-
setningarbrögð eða stílfærsla kemur
í staðinn fyrir list leikarans við að af-
hjúpa þessar persónur, en geta, eins
og dæmin sanna, þvælst fyrir. Gera
það ekki hér, utan þessara tveggja
fyrrnefndu atriða.
Leikhópurinn vinnur fallega úr
þessum gjöfula efnivið. Engir stór-
sigrar en öllu vel til skila haldið.
Aðalhlutverkið, Eddie Carbone,
verður í meðförum Hilmis Snæs
Guðnasonar eins og dýr í sífellt
þrengra búri eftir því sem endalokin
nálgast. Það örlaði á því að fullmikil
orka og meðvitund færi í það hjá
leikaranum að skapa persónunni
þyngd og eldra fas, en þar fyrir utan
var þessi einfaldi meðalmaður sann-
færandi hjá Hilmi.
Við fyrstu sýn virtist mér Stefán
Hallur Stefánsson ætla að sýna karl-
mennsku Marcos með eintóna vél-
rænu, en túlkunin fékk fleiri víddir í
síðari atriðum. Snorri Engilbertsson
finnst mér fara hættulega leið að
Rodolfo, gerir hann ákaflega fín-
legan og kvenlegan, og staðfestir í
raun þá mynd sem Eddie hefur af
þessum vonbiðli fósturdótturinnar.
Ekki sjálfgefin túlkun en algerlega
fær. Gerir spennitreyju karl-
mennskunnar að lykilatriði í örlög-
um Eddies. Og Snorri gerir þetta
ákaflega vel.
Oft er Miller legið á hálsi fyrir að
skrifa ekki nógu bitastæð kven-
hlutverk, en ekki virtist efnisskortur
trufla Hörpu Arnardóttur við að
skapa heilsteypta og harmræna
Beatrice eða Láru Jóhönnu Jóns-
dóttur að vera bæði spriklandi lífs-
glöð og tilfinningadjúp Katrín. Tvö
atriði sem munu lifa í minningunni
eru tveggja manna sena Eddies og
Beatrice við sitt kalda hjónarúm og
svo samtal Katrínar og Rodolfo á
bryggjunni, þar sem við fyllumst
bjartsýni á framtíð þessa vel gerða
fólks, sem reynist auðvitað tál eitt.
Hlutverk Alfieris er trúlega skrif-
að fyrir textanæm reynslubúnt á
borð við Arnar Jónsson sem brást
auðvitað ekki.
Almennt er leikstíllinn hófsamur
og vel samstilltur, eins og við eigum
að venjast í uppfærslum Stefans
Metz. Það má vissulega sjá fyrir sér
sýningu með meiri hita, afdráttar-
lausari afstöðu til þess hvaða drif-
kraftar eru að verki innra með
Eddie Carbone en hér er boðið upp
á. Skýra nákvæmar fyrir okkur sam-
spil þríhyrninganna tveggja sem
hreyfa gangverkið: Heimilisfaðir –
eiginkona – fósturdóttir, yngismær –
unnusti – fósturfaðir.
Það er merkilegt með harmleiki.
Við lítum á þá sem verðugustu minn-
isvarða sem við höfum reist göfgi
mannsins. Á hinn bóginn er þeirra
helsta erindi að fletta ofan af hinum
myrku hvötum sem menningin hefur
hulið sjónum okkar. Ekkert sýnir
okkur betur dýrið í manninum en
þetta hástig hámenningarinnar.
Sýning Þjóðleikhússins rekur at-
burðina á skýran hátt. Leggur fyrir
okkur hvað gerðist og skilur okkur
eftir með úrvinnsluna. Það er
heiðarleg afstaða, kvöldið er fljótt að
líða og skilur eftir sig spurningar
sem vert er að velta fyrir sér.
Dýrið í okkur
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Æsandi flæði „Samspil leikmyndar, lýsingar og hringsviðstækninnar býr til æsandi flæði og á sinn þátt í að halda
spennunni uppi í þessar tæpu tvær klukkustundir sem það tekur heim Carbone-fólksins að sundrast.“
Þjóðleikhúsið
Horft frá brúnni bbbmn
Eftir Arthur Miller. Íslensk þýðing: Sig-
urður Pálsson. Leikstjórn: Stefan Metz.
Leikmynd og búningar: Sean Mackaoui.
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Hljóð-
hönnun og hljóðmynd: Elvar Geir Sæv-
arsson. Leikarar: Hilmir Snær Guðna-
son, Harpa Arnardóttir, Lára Jóhanna
Jónsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson,
Snorri Engilbertsson, Arnar Jónsson,
Baltasar Breki Samper, Hallgrímur
Ólafsson og Baldur Trausti Hreinsson.
Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins föstudaginn 30. september 2016.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Allelúja – Sacred Sound skóli nefnist
skóli sem hefur starfsemi sína 7. októ-
ber nk. Samkvæmt upplýsingum frá
Sólrúnu Bragadóttur söngkonu, sem
rekur skólann, er námið hugsað fyrir
alla þá sem hafa áhuga á að kynnast
röddinni sinni betur og nýta sér hana
til uppbyggingar og endurnæringar.
Námið er einstaklingsmiðað og
sérsmíðað fyrir hvern og einn, en
nemendur geta valið sér fjölda einka-
tíma og áfanga eftir getu og á eigin
hraða í samráði við leiðbeinanda. Í
boði eru reglulegir einkatímar í söng
og heilun, hugleiðslutímar, spuna-
tímar, hóptímar og mislangir áfang-
ar, fyrirlestrar og námskeið sem flest
eru í formi helgarnámskeiða. Á
haustönn verður boðið upp á fjóra
áfanga og hefst sá fyrsti föstudaginn
7. október.
„Vinna með röddina er kjarni skól-
ans og nálgunin er heildræn sem er
alveg nýtt fyrirbæri hér heima og
þótt víðar væri leitað. Það eru því
ekki venjulegir kennarar sem koma
saman til að byggja upp fólk, hvort
sem það velur einsöngvaraferil, hóp-
söng/kórstarf eða sér einungis til
raddstyrkingar og heilunar. Allir eru
velkomnir að taka þátt, lagvissir sem
laglausir og á öllum aldri,“ segir Sól-
rún og bendir á að starfið hefjist með
opnunarhátíð á fimmtudagskvöld.
„Við verðum með svokallaða heil-
unarmessu í Fella- og Hólakirkju
fimmtudagskvöldið 6. október kl. 20,“
segir Sólrún og bendir á að sr. Jó-
hanna Magnúsdóttir, sem þjónar í
Skálholti, muni leiða messuna auk
þess sem boðið verði upp á kynningu
á skólastarfinu, trommuhugleiðslu,
hljómkór, píanó- og fiðluleik og söng.
„Við erum ekki í vafa um að fólk fái
djúpa næringu inn í næstu helgi,“
segir Sólrún sem sjálf mun syngja í
messunni, en aðgangur er ókeypis.
Meðal kennara í skólanum eru,
auk Sólrúnar, Mínerva M. Haralds-
dóttir, Jónína Gunnarsdóttir, Wilma
Young, Hildur Jónsdóttir og Sæunn
I. Marinósdóttir. Kennsla fer fram í
Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi
13. Tekið er við skráningum í net-
fanginu: solabraga1@gmail.com. All-
ar nánari upplýsingar má finna á Fa-
cebook-síðu skólans.
Nýr söng- og heilunarskóli
Söngkona Sólrún Bragadóttir.
Tveimur dögum eftir að hljóm-
sveitarmeðlimir Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Philadelphiu fóru í
verkfall var búið að ná samningum
og aflýsa verkfallinu. Tónlistar-
mennirnir hófu verkfallið sl. föstu-
dag, stuttu fyrir opnunartónleika
hljómsveitarinnar. Vildu þeir með
því mótmæla of lágu launatilboði
sem þeim fannst ekki koma til
móts við það launatap sem þeir
urðu fyrir meðan sveitin glímdi við
gjaldþrot sem lauk fyrir fjórum ár-
um. Með aðstoð sáttasemjara kom-
ust hljóðfæraleikarnir og stjórn-
endur sveitarinnar að samkomulagi
sl. sunnudag og skrifuðu undir
samning til þriggja ára sem felur í
sér 2% launahækkun fyrsta árið og
2,5% hækkun á öðru og þriðja ári
samningsins. Á móti samþykktu
hljómsveitarmeðlimir að spila á
fleiri tónleikum á sunnudögum.
Næstu tónleikar sveitarinnar
verða á fimmtudag, en þá mun
Simon Rattle stjórna sjöttu sin-
fóníunni eftir Mahler, en tónleik-
arnir verða endurteknir í Carnegie
Hall 10. október.
Sinfóníuhljómsveitin í Pittsburgh
hóf einnig verkfall sl. föstudag og
þar hafa samningar enn ekki
náðst.
Morgunblaðið/Golli
Stjórnandi Simon Rattle.
Samkomu-
lag náðist
The Significance
of Art in Our
Education er yf-
irskrift fyrirlest-
urs sem dr.
Thomas Brewer,
myndlistar-
maður og pró-
fessor í listum,
heldur í Lista-
safninu á Akur-
eyri, Ketilhúsi, í dag kl. 17. Í fyrir-
lestrinum, sem fer fram á ensku,
fjallar hann m.a. um hvernig list og
menntun geta haft áhrif á lífið. Bre-
wer mun rekja persónulega sögu
sína, ásamt listrænni og faglegri
þróun sem hefur leitt hann til Akur-
eyrar í fimmta sinn. Aðgangur er
ókeypis.
Þriðjudagsfyrir-
lestur Brewer
Thomas Brewer
STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS
Verð
1.990.000 kr.
án vsk.
1.605.000 kr.
Til á lager
Sportman® 570 EPS