Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2016 Harmleikir upp á líf ogdauða þrífast best utanvið það sem við vestræn-ir nútímamenn köllum lög og rétt, en jafnframt verða að gilda hörð lögmál og ósveigjanleg sem „hetjan“ gengur á hólm við. Það er því kjörið fyrir bókmenntir á þessu rófinu að beina sjónum sínum að þeim ítölsku innflytjendum í Bandaríkjunum, sem fluttu með sér stranga lífsreglubálka en gengu kannski ekki nema að nafninu til undir aga hins ameríska réttar- kerfis. Þetta vissu Puzo og Coppola, og þetta nýtti Arthur Miller sér þeg- ar hann langaði að láta á það reyna hversu nálægt klassískum harmleik mætti komast í nútímaumhverfi. Útkoman var Horft frá brúnni. Þar lætur hversdagslegur hafnar- verkamaður í New York óleyfilegar ástríður leiða sig til voðaverks undir vökulu auga viturs en lífsleiðs lög- fræðings sem Miller lætur gegna hlutverki kórsins úr grísku harm- leikjunum sem hann vill blása nú- tímalífi í. Snjöll og krefjandi hug- mynd og verkið löngu komið í flokk sígildra nútímaverka ásamt með öðrum leikritum Millers frá blóma- skeiði hans upp úr miðri síðustu öld. Sviðsetning Stefans Metz er tæknilega framúrskarandi. Samspil leikmyndar, lýsingar og hring- sviðstækninnar býr til æsandi flæði og á sinn þátt í að halda spennunni uppi í þessar tæpu tvær klukku- stundir sem það tekur heim Carbone-fólksins að sundrast. Stór- an plús fær leikstjórinn fyrir að hlífa okkur við hléinu, sem hefði verið ill- þolandi uppbrot. Lýsing Ólafs Ágústs Stefánssonar er glæsilegt verk og gegnir óvenju viðamiklu hlutverki. Leikmynd Sean Mackaoui er sömuleiðis sterk og falleg, þó bogadregnar línur glugga og dyra- opa minni kannski frekar á „gamla landið“ og kirkjubyggingar en fá- tækrahverfi hafnarhverfisins og ögri þannig raunsæinu. Það sama má reyndar segja um notkun á „bak- hliðum“ veggfleka og aðrar vísanir í kvikmyndaver og leiksviðið sjálft. Útlit og andblær sýningarinnar sækir meðvitað í Film Noir-stílinn og fer alveg að mörkum „kitschins“ – listlíkisins. En það sleppur, fyrir utan upphafstitlana og ofnotkun á hátalarakerfinu fyrir hugleiðingar lögfræðingsins Alfieri. Að öðru leyti viðeigandi og vel heppnað. Á tveimur stöðum vinnur svið- setningin þó á móti áhrifamættinum. Annars vegar þegar innflytjendur- nir sem setja óstöðugt jafnvægið á Carbone-heimilinu upp í loft koma í fyrsta sinn þar inn. Þröng og kyrr- stæð sviðsetning atriðisins gerir leikurunum ókleift að sýna okkur afstöðuna – valdaþrepin, hrifningu, andúð – sem byrjar að myndast þarna og verður öllum á endanum að falli. Og svo seint í verkinu þar sem Eddie Carbone er hafður inni í síma- klefa meðan hin stóru ósköp ganga yfir. Táknrænt séð er þetta góð hug- mynd, en verður til þess að við miss- um sambandið við persónurnar, sjáum ekki viðbrögð þeirra, erum svikin um samleikinn sem verk af þessu tagi lifa og nærast á. Því þetta er leikaraleikrit. Skrifað inn í hefð sálfræðilegs raunsæis, leikhús innlifunarinnar, hefð Stanislavskíjs og Lees Strasberg (þó Miller hafi reyndar haft illan bifur á „Method-páfanum“). Engin svið- setningarbrögð eða stílfærsla kemur í staðinn fyrir list leikarans við að af- hjúpa þessar persónur, en geta, eins og dæmin sanna, þvælst fyrir. Gera það ekki hér, utan þessara tveggja fyrrnefndu atriða. Leikhópurinn vinnur fallega úr þessum gjöfula efnivið. Engir stór- sigrar en öllu vel til skila haldið. Aðalhlutverkið, Eddie Carbone, verður í meðförum Hilmis Snæs Guðnasonar eins og dýr í sífellt þrengra búri eftir því sem endalokin nálgast. Það örlaði á því að fullmikil orka og meðvitund færi í það hjá leikaranum að skapa persónunni þyngd og eldra fas, en þar fyrir utan var þessi einfaldi meðalmaður sann- færandi hjá Hilmi. Við fyrstu sýn virtist mér Stefán Hallur Stefánsson ætla að sýna karl- mennsku Marcos með eintóna vél- rænu, en túlkunin fékk fleiri víddir í síðari atriðum. Snorri Engilbertsson finnst mér fara hættulega leið að Rodolfo, gerir hann ákaflega fín- legan og kvenlegan, og staðfestir í raun þá mynd sem Eddie hefur af þessum vonbiðli fósturdótturinnar. Ekki sjálfgefin túlkun en algerlega fær. Gerir spennitreyju karl- mennskunnar að lykilatriði í örlög- um Eddies. Og Snorri gerir þetta ákaflega vel. Oft er Miller legið á hálsi fyrir að skrifa ekki nógu bitastæð kven- hlutverk, en ekki virtist efnisskortur trufla Hörpu Arnardóttur við að skapa heilsteypta og harmræna Beatrice eða Láru Jóhönnu Jóns- dóttur að vera bæði spriklandi lífs- glöð og tilfinningadjúp Katrín. Tvö atriði sem munu lifa í minningunni eru tveggja manna sena Eddies og Beatrice við sitt kalda hjónarúm og svo samtal Katrínar og Rodolfo á bryggjunni, þar sem við fyllumst bjartsýni á framtíð þessa vel gerða fólks, sem reynist auðvitað tál eitt. Hlutverk Alfieris er trúlega skrif- að fyrir textanæm reynslubúnt á borð við Arnar Jónsson sem brást auðvitað ekki. Almennt er leikstíllinn hófsamur og vel samstilltur, eins og við eigum að venjast í uppfærslum Stefans Metz. Það má vissulega sjá fyrir sér sýningu með meiri hita, afdráttar- lausari afstöðu til þess hvaða drif- kraftar eru að verki innra með Eddie Carbone en hér er boðið upp á. Skýra nákvæmar fyrir okkur sam- spil þríhyrninganna tveggja sem hreyfa gangverkið: Heimilisfaðir – eiginkona – fósturdóttir, yngismær – unnusti – fósturfaðir. Það er merkilegt með harmleiki. Við lítum á þá sem verðugustu minn- isvarða sem við höfum reist göfgi mannsins. Á hinn bóginn er þeirra helsta erindi að fletta ofan af hinum myrku hvötum sem menningin hefur hulið sjónum okkar. Ekkert sýnir okkur betur dýrið í manninum en þetta hástig hámenningarinnar. Sýning Þjóðleikhússins rekur at- burðina á skýran hátt. Leggur fyrir okkur hvað gerðist og skilur okkur eftir með úrvinnsluna. Það er heiðarleg afstaða, kvöldið er fljótt að líða og skilur eftir sig spurningar sem vert er að velta fyrir sér. Dýrið í okkur Ljósmynd/Hörður Sveinsson Æsandi flæði „Samspil leikmyndar, lýsingar og hringsviðstækninnar býr til æsandi flæði og á sinn þátt í að halda spennunni uppi í þessar tæpu tvær klukkustundir sem það tekur heim Carbone-fólksins að sundrast.“ Þjóðleikhúsið Horft frá brúnni bbbmn Eftir Arthur Miller. Íslensk þýðing: Sig- urður Pálsson. Leikstjórn: Stefan Metz. Leikmynd og búningar: Sean Mackaoui. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Hljóð- hönnun og hljóðmynd: Elvar Geir Sæv- arsson. Leikarar: Hilmir Snær Guðna- son, Harpa Arnardóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Snorri Engilbertsson, Arnar Jónsson, Baltasar Breki Samper, Hallgrímur Ólafsson og Baldur Trausti Hreinsson. Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins föstudaginn 30. september 2016. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Allelúja – Sacred Sound skóli nefnist skóli sem hefur starfsemi sína 7. októ- ber nk. Samkvæmt upplýsingum frá Sólrúnu Bragadóttur söngkonu, sem rekur skólann, er námið hugsað fyrir alla þá sem hafa áhuga á að kynnast röddinni sinni betur og nýta sér hana til uppbyggingar og endurnæringar. Námið er einstaklingsmiðað og sérsmíðað fyrir hvern og einn, en nemendur geta valið sér fjölda einka- tíma og áfanga eftir getu og á eigin hraða í samráði við leiðbeinanda. Í boði eru reglulegir einkatímar í söng og heilun, hugleiðslutímar, spuna- tímar, hóptímar og mislangir áfang- ar, fyrirlestrar og námskeið sem flest eru í formi helgarnámskeiða. Á haustönn verður boðið upp á fjóra áfanga og hefst sá fyrsti föstudaginn 7. október. „Vinna með röddina er kjarni skól- ans og nálgunin er heildræn sem er alveg nýtt fyrirbæri hér heima og þótt víðar væri leitað. Það eru því ekki venjulegir kennarar sem koma saman til að byggja upp fólk, hvort sem það velur einsöngvaraferil, hóp- söng/kórstarf eða sér einungis til raddstyrkingar og heilunar. Allir eru velkomnir að taka þátt, lagvissir sem laglausir og á öllum aldri,“ segir Sól- rún og bendir á að starfið hefjist með opnunarhátíð á fimmtudagskvöld. „Við verðum með svokallaða heil- unarmessu í Fella- og Hólakirkju fimmtudagskvöldið 6. október kl. 20,“ segir Sólrún og bendir á að sr. Jó- hanna Magnúsdóttir, sem þjónar í Skálholti, muni leiða messuna auk þess sem boðið verði upp á kynningu á skólastarfinu, trommuhugleiðslu, hljómkór, píanó- og fiðluleik og söng. „Við erum ekki í vafa um að fólk fái djúpa næringu inn í næstu helgi,“ segir Sólrún sem sjálf mun syngja í messunni, en aðgangur er ókeypis. Meðal kennara í skólanum eru, auk Sólrúnar, Mínerva M. Haralds- dóttir, Jónína Gunnarsdóttir, Wilma Young, Hildur Jónsdóttir og Sæunn I. Marinósdóttir. Kennsla fer fram í Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi 13. Tekið er við skráningum í net- fanginu: solabraga1@gmail.com. All- ar nánari upplýsingar má finna á Fa- cebook-síðu skólans. Nýr söng- og heilunarskóli Söngkona Sólrún Bragadóttir. Tveimur dögum eftir að hljóm- sveitarmeðlimir Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í Philadelphiu fóru í verkfall var búið að ná samningum og aflýsa verkfallinu. Tónlistar- mennirnir hófu verkfallið sl. föstu- dag, stuttu fyrir opnunartónleika hljómsveitarinnar. Vildu þeir með því mótmæla of lágu launatilboði sem þeim fannst ekki koma til móts við það launatap sem þeir urðu fyrir meðan sveitin glímdi við gjaldþrot sem lauk fyrir fjórum ár- um. Með aðstoð sáttasemjara kom- ust hljóðfæraleikarnir og stjórn- endur sveitarinnar að samkomulagi sl. sunnudag og skrifuðu undir samning til þriggja ára sem felur í sér 2% launahækkun fyrsta árið og 2,5% hækkun á öðru og þriðja ári samningsins. Á móti samþykktu hljómsveitarmeðlimir að spila á fleiri tónleikum á sunnudögum. Næstu tónleikar sveitarinnar verða á fimmtudag, en þá mun Simon Rattle stjórna sjöttu sin- fóníunni eftir Mahler, en tónleik- arnir verða endurteknir í Carnegie Hall 10. október. Sinfóníuhljómsveitin í Pittsburgh hóf einnig verkfall sl. föstudag og þar hafa samningar enn ekki náðst. Morgunblaðið/Golli Stjórnandi Simon Rattle. Samkomu- lag náðist The Significance of Art in Our Education er yf- irskrift fyrirlest- urs sem dr. Thomas Brewer, myndlistar- maður og pró- fessor í listum, heldur í Lista- safninu á Akur- eyri, Ketilhúsi, í dag kl. 17. Í fyrir- lestrinum, sem fer fram á ensku, fjallar hann m.a. um hvernig list og menntun geta haft áhrif á lífið. Bre- wer mun rekja persónulega sögu sína, ásamt listrænni og faglegri þróun sem hefur leitt hann til Akur- eyrar í fimmta sinn. Aðgangur er ókeypis. Þriðjudagsfyrir- lestur Brewer Thomas Brewer STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS Verð 1.990.000 kr. án vsk. 1.605.000 kr. Til á lager Sportman® 570 EPS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.