Morgunblaðið - 04.10.2016, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 278. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Ótrúlegt sjónarspil
2. Baðst undan spurningum fyrir …
3. Andlit Bláa lónsins selur íbúðina
4. „Þetta var gríðarlegur hávaði“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvintett Þorgríms Jónssonar leikur
á Kex hosteli í kvöld kl. 20.30. Kvint-
ettinn skipa Ari Bragi Kárason á
trompet, ÓlafurJónsson á tenór-
saxófón, Kjartan Valdemarsson á
píanó og rhodes, Þorvaldur Þór Þor-
valdsson á trommur, auk Þorgríms
sem leikur á raf- og kontrabassa. Að-
gangur er ókeypis.
Kvintett Þorgríms
Jónssonar á Kex
Á bókmennta-
kvöldi Bókasafns
Seltjarnarness í
kvöld kl. 19:30
fjallar Marín Guð-
rún Hrafnsdóttir,
bókmenntafræð-
ingur og lang-
ömmubarn Guð-
rúnar frá Lundi,
um rithöfundinn og veitir innsýn í
tíðaranda horfins heims. Umfjöll-
unarefni skáldsagna Guðrúnar verða
skoðuð, rýnt í viðtökur og vinsældir
og reynt að glöggva sig á hvað það er
sem geri það að verkum að hún slær
enn sölu- og vinsældamet.
Rýnt í vinsældir bóka
Guðrúnar frá Lundi
Nýlega var opnuð sýning á völdum
verkum Einars Þorlákssonar í Hverf-
isgalleríi, en tíu ár eru liðin frá því
listamaðurinn féll frá. Markús Þór
Andrésson sýningar-
stjóri býður gest-
um gallerísins í
leiðsögn um verk
Einars í dag kl. 17,
en verk Einars ein-
kennast af ljóð-
rænni abstraksjón
og leik listamannsins
með liti og form.
Leiðsögn um sýningu
Einars Þorlákssonar
Á miðvikudag Suðaustan 10-18 m/s, hvassast sunnan og vestan
til og með talsverðri rigningu þegar kemur fram á daginn.
Á fimmtudag Suðaustan 8-15 m/s og talsverð rigning sunnan og
vestan til fyrri hluta dags, en síðan úrkomulítið. Áfram milt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 8-15 m/s eftir hádegi og skúrir
en léttir til norðaustanlands. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast norðanlands.
VEÐUR
Ármann Smári Björnsson,
miðvörður og fyrirliði ÍA, er
leikmaður ársins 2016 hjá
Morgunblaðinu í Pepsi-deild
karla í knattspyrnu. Bar-
áttan um efstu sætin í ein-
kunnagjöfinni var geysilega
tvísýn en þegar upp var
staðið fengu tveir leikmenn
17 M og fjórir næstu voru
allir með 16 M. Í íþróttaopn-
unni er ítarleg úttekt á M-
gjöfinni og mörgum úrvals-
liðum stillt upp. »2-3
Ármann Smári er
leikmaður ársins
,,Það er ekkert sem slær hann út af
laginu og hann gerir í rauninni það
sem honum dettur í hug, sem getur
hjálpað þér en líka komið í bakið á
þér. Hann var frábær í þessum leik á
móti Haukunum
og mögulega
var þetta besti
leikurinn hans á
ferlinum en ég
man þó eftir að
hann skoraði 22
mörk í einum og
sama leiknum í
yngri flokkunum,“
segir samherji
Arnars Birkis
Hálfdáns-
sonar, hand-
boltamanns
úr Fram. »4
Hann gerir það sem
honum dettur í hug
„Maria hefur reynst Haukaliðinu af-
ar vel. Hún er frábær leikmaður og
einstaklingur bæði innan og utan
vallar. Um leið hefur hún haft
gríðarlega góð áhrif á liðið,“ segir
þjálfari kvennaliðs Hauka í hand-
knattleik um Mariu Ines frá Portú-
gal sem hefur verið í stóru hlutverki
í leikjum liðsins það sem af er tíma-
bilinu. »4
Hún hefur gríðarlega
góð áhrif á liðið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Vesturíslenska tímaritið Lögberg
Heimskringla, sem gefið er út í
Winnipeg í Kanada, berst í bökkum
eins og fleiri fjölmiðlar, en hefur nú
fengið aðstoð úr óvæntri átt, lands-
liðsbúninga og áritaðar treyjur frá
Knattspyrnusambandi Íslands og ís-
lenska karlalandsliðinu, sem til
stendur að bjóða sem vinninga í
hlutaveltu á næstunni.
„Sigur karlaliðs Íslands á Eng-
landi í Evrópukeppninni í fótbolta í
sumar er besti árangur Íslendinga í
íþróttum síðan Fálkarnir frá Winni-
peg urðu ólympíumeistarar í ís-
hokkíi 1920,“ segir Peter Johnson,
stjórnarformaður LH. „Þegar Þórð-
ur [Guðjónsson, aðalræðismaður Ís-
lands í Winnipeg] sagði mér að hann
hefði fengið áritaða búningana að
gjöf hjá Knattspyrnusambandinu
var ég álíka æstur og Guðmundur
Benediktsson í lýsingunni á fyrr-
nefndum leik. Þetta er frábært fyrir
LH og nú getum við tengt árangur-
inn beint við Fálkana og ungu kyn-
slóðina í Vesturheimi.“
Landsliðið vinsælt vestra
Undanfarinn rúman áratug hefur
skrifstofa LH verið í leiguhúsnæði í
miðborginni en nú hefur byggingin
verið seld og flutningar því óumflýj-
anlegir. Stjórnarformaðurinn segir
að þeir kosti um 40.000 kanadíska
dollara, um 3,5 milljónir króna, og
blaðið eigi ekki þá upphæð á lausu.
Þórður B. Guðjónsson var á Ís-
landi á dögunum og notaði tækifærið
til þess að hafa samband við KSÍ.
„Peter Johnson bað mig um að at-
huga hvort möguleiki væri að fá árit-
aðar treyjur með tombólu í huga, ég
bar erindið upp við Gísla Gíslason,
ritara KSÍ, og hann brást þegar vel
við bóninni.“
Árangur íslenska landsliðsins í úr-
slitakeppni Evrópumótsins í Frakk-
landi fyrr í sumar vakti mikla athygli
og Þórður og Peter segja að
stemmningin hafi verið einstaklega
skemmtileg, þar sem þeir hafi fylgst
með leikjum Íslands í sjónvarpi í
Winnipeg og á Gimli. „Þar sem fólk
fylgdist með keppninni mátti víða
sjá að stuðningurinn var mikill við
Ísland og þá ekki aðeins hjá fólki af
íslenskum ættum,“ segir Þórður.
„Íslenska liðið átti hug margra
hérna fyrir vestan og andrúmsloftið
var rafmagnað, þegar Ísland sigraði
England,“ segir Peter. „Þetta er ein
magnaðasta sagan um sigur Davíðs
á Golíat á okkar tímum.“
Þrátt fyrir kostnaðinn við flutn-
ingana í lok mánaðarins segir Peter
að hugmyndin sé að nýta þá til þess
að vekja athygli á mikilvægi LH í ís-
lenska samfélaginu vestra. „Nú
gefst okkur tækifæri til þess að
vekja fólk af íslenskum ættum í
Norður-Ameríku og aðra sem tengj-
ast Íslandi til umhugsunar um upp-
runann og mikilvægi þess að við-
halda menningunni frá kynslóð til
kynslóðar,“ segir hann. Í því sam-
bandi segir hann að gjöf KSÍ sé gulls
ígildi og stefnt sé að því að selja miða
fyrir 20.000 dollara í hlutaveltunni.
„Enn einu sinni hefur þetta ótrúlega
lið staðið sig frábærlega, að þessu
sinni með stuðningi við mikilvægan
hlekk íslensku fjölskyldunnar í
Norður-Ameríku, sem var hjálpar
þurfi. Heillaóskir til þeirra allra.“
Tengja árangurinn við Fálkana
Áritaðar lands-
liðstreyjur frá KSÍ
í hlutaveltu hjá LH
Morgunblaðið/Ófeigur
Á Laugardalsvelli Gísli Gíslason, ritari KSÍ, Guðrún Inga Sívertsen varaformaður, Þórður B. Guðjónsson aðalræðis-
maður og Ragnhildur Skúladóttir stjórnarmaður með árituðu treyjurnar sem verða vinningar á hlutaveltu vestra.
Ljósmynd/Bergdís Sigurðardóttir
Í Winnipeg Peter Johnson og Þórður Guðjónsson með aðra treyjuna.