Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 2

Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin leggur til að nýr Vest- fjarðavegur um Gufudalssveit verði lagður eftir leið sem kölluð er Þ-H. Hún liggur yfir Gufufjörð og Djúpa- fjörð og um Teigsskóg í Þorskafirði. Í frummatsskýrslu sem send hefur verið Skipulagsstofnun kemur fram að það er ódýrasta leiðin og sú sem sveitarfélagið gerir ráð fyrir í skipu- lagi. Hins vegar mun hún hafa veru- leg neikvæð áhrif á landslag og verndarsvæði. Vegurinn sem þarf að endurnýja liggur frá Bjarkalundi að Skálanesi. Er þetta 20-22 km kafli sem kemur í stað tæplega 42 km krókótts malar- vegar sem liggur meðal annars um Hjallaháls og Ódrjúgsháls. Nýi veg- urinn á að liggja á láglendi. Er þetta síðasti kaflinn sem eftir er að end- urnýja á leiðinni frá Vesturbyggð til höfuðborgarinnar. Vegagerðin var áður búin að velja þessa leið en gat ekki hafið framkvæmdir vegna þess að landeigendur í Teigsskógi sem lögðust gegn áformunum unnu mál- ið í Hæstarétti. Nú er verið að end- urtaka umhverfismatið. Kostar 6,4 milljarða Fimm leiðir eru skoðaðar í frum- matsskýrslunni. Tvær miðast við göng um Hjallaháls. Tvær leiðirnar liggja út með Þorskafirði að austan- verðu og þvera Þorskafjörð utar- lega en hvor á sínum staðnum. Fimmta leiðin er síðan Þ-H, sem liggur út með Þorskafirði að vestan- verðu, í gegnum Teigsskóg, og þverar Djúpafjörð og Gufufjörð. Það er leiðin sem Vegagerðin mælir með. Jarðgangaleiðirnar hafa minnstu neikvæðu áhrif á umhverfið. Vega- gerðin bendir hins vegar á að ekki sé gert ráð fyrir þeim í samgöngu- áætlun stjórnvalda til ársins 2026. Í þeirri áætlun sé hins vegar gert ráð fyrir fjárveitingum í samræmi við kostnað við leið Þ-H og það sé leiðin sem sveitarfélögin hafi sett á aðal- skipulag. Áætlað er að lagning vegar eftir leið Þ-H kosti 6,4 milljarða, fjórum milljörðum minna en næstódýrasta leiðin kostar. Neikvæð áhrif á Teigsskóg Í frummatsskýrslunni kemur fram það álit að leið Þ-H muni hafa veruleg neikvæð áhrif á landslag og verndarsvæði og talsverð neikvæð áhrif á fornleifar, gróðurfar, jarð- fræði og útsýni frá frístunda- og bú- jörðum. Hún liggur meðal annars um Teigsskóg og getur dregið úr vistfræðilegu mikilvægi skógarins. Þegar litið er á leiðirnar þrjár sem liggja utan jarðganga sést að leið Þ-H hefur þrátt fyrir allt minni neikvæð áhrif á umhverfið en hinar leiðirnar tvær. Mælt með leiðinni um Teigsskóg  Fimm leiðir um Gufudalssveit skoðaðar í umhverfismati  Teigsskógsleiðin er langódýrust og hefur minni áhrif á umhverfið en leiðirnar um austanverðan Þorskafjörð  Jarðgöng ekki á dagskrá Reykhólar Skálanes Vegur um Gufudalssveit ÞO RS KA FJÖ RÐ UR BE RU FJ ÖR ÐU R DJ ÚP IFJ ÖR ÐU R GU FU FJ ÖR ÐU R D2 ÞH A1 I H Loftmyndir ehf. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Fulltrúar tveggja stjórnarandstöðu- flokka á síðasta þingi, auk fulltrúa Viðreisnar, segjast ekki sjá ástæðu til þess að óbreyttu að semja við er- lenda krónueigendur hér á landi að nýju um kjör vegna þeirra aflands- króna sem þeir eiga í íslensku hag- kerfi. Í frétt Financial Times í gær segir að kröfuhafarnir geri sér vonir um að hægt verði að endursemja um kjör við íslensk stjórnvöld, haldi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ekki völdum. Skrítin afstaða Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir að til þessa hafi nokkuð breið samstaða verið um mál- ið á þingi. „Menn hafa verið sammála um leiðirnar sem hafa verið farnar og því finnst mér skrítið að menn hafi slíkar væntingar, sérstaklega í ljósi þess að þetta hefur ekki verið átaka- mál og enginn hefur boðað stefnu- breytingu,“ segir Katrín. Ásta Guðrún Helgadóttir, 1. mað- ur á lista Pírata í Reykjavíkurkjör- dæmi suður, tekur í svipaðan streng. „Þessir stóru fjárfestar voru með samráð um að taka ekki því gengi sem stóð til boða, sem þó var mun hagstæðara en markaðsgengi og hvað þá þegar krónan er að styrkj- ast. Þeir virðast vera að reyna að búa sér til einhverja samningsstöðu, þótt ég átti mig ekki á því hvaða flötur er á því,“ segir Ásta Guðrún. Hún setur þó þann fyrirvara á að ræða þyrfti við Seðlabankann um það hver næstu skref yrðu í þessum efnum. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir að engin ástæða sé til þess að breyta um stefnu í þessum efnum. „Við myndum ekki boða neina breyt- ingu hvað þetta varðar,“ segir Bene- dikt. Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, var ekki búinn að kynna sér málið og vildi ekki tjá sig um það að svo stöddu. Ekki náðist í þau Odd- nýju G. Harðardóttur og Össur Skarphéðinsson hjá Samfylkingu við vinnslu fréttarinnar. Geta selt krónur hvenær sem er Síðasta krónuútboðið fór fram í júní en fjórir bandarískir fjárfesting- arsjóðir, Autonomy Capital, Eaton Vance, Loomis Sayles og Discovery Capital Management, sem fara með um 1,5 milljarða Bandaríkjadala af skuldum íslenska ríkisins, eða sem nemur um 10% af landsframleiðsl- unni, gengust ekki við þeim kjörum sem Seðlabankinn setti krónueigend- um. Var þetta síðasta útboðið þar sem eigendum aflandskróna bauðst að kaupa erlendan gjaldeyri áður en stjórnvöld hófu skref í afléttingu hafta á innlenda aðila: lífeyrissjóði, fyrirtæki og einstaklinga. Í grein FT segir að sjóðirnir hafi sakað íslensk stjórnvöld um að hafa hagað sér á svipaðan hátt og Argentínumenn við afléttingu haft- anna hvað varðar þá afarkosti sem settir hafa verið upp. Sjóðirnir Autonomy og Eaton Vance hafa lagt fram kvörtun til EFTA þar sem því er haldið fram að aðgerðir innlendra stjórnvalda mis- muni erlendum fjárfestum. Haft er eftir Má Guðmundssyni seðlabanka- stjóra í FT að ríkisstjórnin muni áfram greiða skuldir sínar til fulls og að fjárfestar geti selt krónur sínar hvenær sem er. Höfum verið skýr Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra segir að engin samskipti um breytt kjör hafi átt sér stað að undanförnu. „Við höfum verið mjög skýr á því að það verði ekki fyrr en eftir gildistöku síðari áfangans, sem er um áramótin, sem við myndum velta því fyrir okkur hvað myndi ger- ast næst varðandi aflandskrónuvand- ann. Við höfum ávallt verið skýr á því að við myndum ekki stíga nokkurt það skref sem myndi ógna stöðug- leika hér heima fyrir,“ segir Bjarni. Spurður hvers vegna hann telji að kröfuhafar hafi væntingar um að breytt stjórnarmynstur á Íslandi muni breyta afstöðu stjórnvalda seg- ir Bjarni: „Það eina sem mér dettur í hug er að veik margra flokka ríkisstjórn gefi þeim von um að einhvers konar hræðsluáróður gæti fælt menn til að endurskoða þá afstöðu sem við höf- um verið að fylgja.“ Segja enga breyt- ingu í vændum  Aflandskrónueigendur vonast til þess að hægt verði að endursemja um kjör taki ný ríkisstjórn við völdum á Íslandi Morgunblaðið/Golli Lækjarbrekkufundur Formenn fjögurra stjórnarandstöðuflokka sem hitt- ust til samstarfsviðræðna í Lækjarbrekku um síðustu helgi. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bílaleigujeppinn sem bilaði í Mý- vatnssveit og bifvélavirki treysti sér ekki til að gera við er ekki skráður sem ökutæki til útleigu í ökutækja- skrá né heldur er eigandi hans skráður með starfsleyfi frá Sam- göngustofu til reksturs bílaleigu. Samgöngustofa hefur eftirlit með því að ákvæðum laga um bílaleigur sé framfylgt og mun leita skýringa, samkvæmt upplýsingum þaðan. Bílnum var í frétt Morgunblaðsins í gær lýst sem ryðhaug sem væri að detta í sundur. Eigandinn mun hafa óskað eftir því að honum yrði ráð- stafað til bílapartasölu. Skapti Örn Ólafsson, upplýsinga- fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að samtökin heyri öðru hvoru af því að lélegir bílar séu í útleigu. Hann telur þó að flestar bílaleiganna séu með mál sín í lagi. Þorri bíla- leiguflotans er hjá fyrirtækjum inn- an Samtaka ferðaþjónustunnar en utan þeirra er þó fjöldi smærri fyr- irtækja sem mörg hver eru með fáa bíla til leigu. Svokallað deilihagkerfi hefur verið að vaxa hröðum skrefum hér á landi. Síður sem gefa einstaklingum kost á að leigja íbúðarhúsnæði eða einka- bíla spretta upp. Skapti telur víst að umræddur bíll hafi verið tekinn á leigu á slíkri síðu. Bílaleigubílar eiga að hafa sér- staka tryggingu, líka einkaaðilar sem leigja út bíla. Umræddur bíll hafði ekki slíka tryggingu, samkvæmt upplýsingum sem bifvélavirkinn fékk. Óheimilt er að leigja út bíla sem ekki fá fulla skoðun. Jeppinn sem bil- aði fékk tvær athugasemdir við skoð- un í byrjun þessa árs en þó fulla skoðun. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Stopp Bíllinn sem erlendi ferðamaðurinn tók á leigu var að ryðga í sundur. Jeppinn ekki skráður sem bílaleigubíll  Líklega hluti af deilihagkerfinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.