Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 4

Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 4
Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur komist að þeirri niðurstöðu að annar ökumanna í hörðum árekstri við einbreiða brú yfir Hólá í Öræfum hafi sýnt af sér mikla óvarkárni og ekið allt of hratt og valdið slysinu sem kostaði ökumann hinnar bifreið- arinnar lífið. Slysið átti sér stað 26. desember síðastliðinn um miðjan dag þar sem bílaleigubifreið af tegundinni Toyota RAV4 ók allt of hratt að einbreiðri brú yfir Hólá úr austurátt og rakst þar á hlið bílaleigubifreiðar af teg- undinni Kia Ceed sem kom úr suður- átt. Ökumaður Kia-bifreiðarinnar, 44 ára karlmaður, lést þar sem mikil aflögun varð inni í ökumannsrými bifreiðarinnar. GPS-staðsetningartæki var í báð- um ökutækjum. Samkvæmt því var ökuhraði Kia-bifreiðarinnar 63 km/ klst. en Toyota-bifreiðinni var ekið á 124 km/klst. inn á einbreiðu brúna. Segir einnig í skýrslu nefndarinn- ar að báðir ökumenn hafi ekið yfir nokkrar einbreiðar brýr á ferð sinni rétt fyrir slysið. Toyota-bifreiðin hafði til að mynda farið yfir ein- breiða brú yfir Stígá rúmri mínútu áður en slysið varð, en aðstæður þar voru svipaðar og á slysstað. Merk- ingar um einbreiða brú voru fyrst í rúmlega 250 metra fjarlægð bæði austan og vestan brúarinnar yfir Hólá, sem og gátskildir bæði á veg- riði og um 40 metra frá henni. Þá voru yfirborðsmerki máluð um þrengingu á veginum í um 100 metra fjarlægð frá brúnni beggja vegna. 698 einbreiðar brýr Mikil fjölgun erlendra ferða- manna til landsins hefur á örfáum árum valdið aukinni umferð yfir brúna yfir Hólá; meðaltalsumferð á sólarhring að vetrarlagi var rétt um 100 ökutæki árið 2011 en tæplega 300 árið 2015. Að sumarlagi var um- ferðin tæp 1.300 ökutæki. „Það er því nokkuð ljóst að á komandi árum mun mikill fjöldi ökumanna, sem ekki eru staðkunnugir og hafa jafn- vel aldrei áður ekið yfir einbreiðar brýr á þjóðvegum, aka um vegi landsins,“ segir í skýrslunni en 698 einbreiðar brýr eru nú á þjóðvegum landsins og þar af nokkrir tugir á hringveginum. Rannsóknarnefndin beinir því þeim tilmælum til Vegagerðarinnar að merkja einbreiðar brýr vel, með góðum fyrirvara, og jafnvel lækka hámarkshraðann. Þótt markvisst sé unnið að því að fækka einbreiðum brúm muni það verkefni taka tíma og á meðan þurfi að yfirfara þessi mál með erlenda ferðamenn í huga. Blikkljós fara upp á næstunni „Það er búið að bæta yfirborðs- merkingar og skiltamerkingar, en það var gert strax í kjölfar slyssins,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýs- ingafulltrúi Vegagerðarinnar, spurður um viðbrögð stofnunarinnar við athugasemdum Rannsóknar- nefndar samgönguslysa. „Það sem er þó mest knýjandi er að setja upp blikkljós á flestar þess- ara brúa á suðausturhorninu. Það hefur dregist svolítið en mun gerast á næstunni,“ bætir hann við. Merkja brýrnar betur  Óvarkárni og hraðakstur annars kostaði 44 ára gamlan karl- mann lífið eftir harðan árekstur bifreiða á einbreiðri brú yfir Hólá ÖRÆFAJÖKULL Hólá x Loftmyndir ehf. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Íslenskt frímerki frá 19. öld seld- ist á uppboði hjá Bruun & Rasm- ussen í Kaupmannahöfn í gær á 13 sinnum hærra verði en byrj- unarverðið var. Upprunalegt uppboðsverð var 2.000 danskar krónur en frímerkið var selt á 26.000 danskar krónur eða rúm- ar 430 þúsund íslenskra króna. Gersemar enn óseldar Frímerkið er 10 aura frímerki með mynd af þáverandi konungi Íslands, Kristjáni IX en það sem þótti hvað merki- legast við litla frímerkið var íslenski stimp- illinn á því en þar stendur Torfastaðir. Þessi stimpill á frímerki er einstakur og er þetta eina þekkta notkun stimpilsins. Ýmsar íslenskar gersemar voru seldar á uppboðinu en samt ekki mestu verðmætin sem hljóta að teljast ýmiss varningur frá 1.000 ára af- mælishátíð Alþingis sem hald- in var árið 1930. Þar á meðal eru boðsbréf til þáverandi for- seta efri deildar Alþingis og undirskrift konungs. Svo er þar gullmedalía en árið 1930 voru afhentar 117 slíkar orð- ur. 61 til Íslendinga og 56 til erlendra aðila. Mjög fáar slíkar orður hafa ratað á uppboð til þessa. Margar fyrirspurnir hafa komið út af þessum munum en þeir hafa ekki enn verið seldir. Kostaði 10 aura fyrir öld en 430 þúsund núna  Íslensk frímerki boðin upp í Kaupmannahöfn Gersemi Hátíðin í tilefni af 1.000 ára afmæli Alþingis var haldin árið 1930. Boðskort, bréf, frí- merki og gullmedalía frá þessari hátíð hafa verið til sölu hjá Bruun & Rasmussen. Uppboð Frímerki með Kristjáni IX Danakonungi. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skuggakosningar ungs fólks í Fjarðabyggð fara fram samhliða al- þingiskosningum á laugardaginn, 29. október. Kosningarétt hefur ungt fólk á aldrinum 14 til 17 ára. Sveitarfélagið Fjarðabyggð nær frá Mjóafirði suð- ur til Stöðvar- fjarðar. „Þetta er að mínu mati mjög spennandi verk- efni sem við erum að prófa. Bæjar- stjórn tók tillögu ungamennaráðs Fjarðabyggðar um skuggakosningar fagnandi enda mikill vilji til að kveikja áhuga ungs fólks á stjórnmálum, efla þátttöku þess í umræðunni og hvetja það til að setja sig inn í málin. Vonandi skil- ar sér þetta í betri þátttöku ungs fólks m.a. í sveitarstjórnarkosn- ingum næstu ára,“ segir Páll Björg- vin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Kosningin fer fram á vegum Ung- mennaráðs Fjarðabyggðar og verð- ur í framkvæmd lítt frábrugðin al- þingiskosningum. Atkvæðaseðlar verða afhentar í kjördeildum sveit- arfélagsins og þeim svo safnað í þar til gerða kjörkassa. „Með þessu móti vill ungmenna- ráðið auðvelda ungu fólki að tileinka sér þau mikilvægu lýðréttindi sem almennar kosningar fela í sér og hvetja til ábyrgrar samfélagsþátt- töku,“ segir í frétt á heimasíðu sveit- arfélagsins. Fá ekki að kjósa til Alþingis Kosningarrétt á Íslandi hafa allir þeir sem náð hafa 18 ára aldri á kjör- dag. Það þýðir að þeir sem eru fædd- ir 30. október og hafa ekki náð 18 ára aldri fá ekki að kjósa til alþingis í þetta sinn. „Ungmennaráð Fjarðabyggðar vonast eftir góðri þátttöku og er um að gera fyrir fjölskyldur með ung- menni á þessum aldri að gera sér dagamun og kjósa saman þann 29. október nk,“ segir í fréttinni. Úrslitin verða birt eftir næsta fund ungmennaráðs sem haldinn verður 4. nóvember. Morgunblaðið/Golli Reyðarfjörður Vona að börnin fjölmenni á kjörstað á laugardag. Atkvæðaseðlar verða afhentir í kjördeildum sveitarfélagsins. Skuggakosningar í Fjarðabyggð  Börnin kjósa með foreldrum sínum Páll Björgvin Guðmundsson Ekkert lát er á komu ferðamanna til landsins þó að skollinn sé á vetur með tilheyrandi kulda og trekki. Fjölmargir ganga meðfram sjávarsíðunni og staldra við listaverkið Sólfarið eftir Jón Gunnar Árnason, taka þar myndir og virða fyrir sér útsýnið. Eins og sjá má eru ferðamenn farnir að klæða sig vel og veitir ekki af. Vinsælt meðal ferðamanna að ganga meðfram Sæbrautinni Morgunblaðið/Ófeigur Sólfarið trekkir alltaf að Innanríkisráðuneytið hefur vísað því frá að úrskurða í kærumáli Íslenska gámafélagsins ehf. (ÍG) á hendur Sveitarfélaginu Ölfusi um að taka tilboði Gámaþjónustunnar hf. í útboði vegna sorphirðu 2014-2019. Það sé kærunefndar útboðsmála að fjalla um málið. Tildrög málsins eru þau að Ölf- us sagði upp samningi við ÍG um sorphirðu og eftir útboð snemma árs 2014 var gengið til samninga við Gámaþjónustuna. ÍG benti í kæru hins vegar á að foreldrar og bróðir sveitarstjórans, Gunn- steinn R. Ómarssonar, væru með- al eigenda Gámaþjónustunnar, sem skapaði vanhæfi. Sem fyrr greinir taldi innanríkisráðuneytið þetta mál ekki sitt. Það félli þó undir lög um þjónustukaup sveitarfélaga, þar sem ákvæði er um að bjóða skuli út viðskipti fari upphæð þeirra yfir 33 milljónir kr., en út- boðið í Ölfusi var samkvæmt kostnaðarmati 75 milljóna króna virði. Ekki innanríkisráðuneytisins að úrskurða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.