Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016
Morgunverðarfundur á vegum samstarfshóps-
ins Náum áttum fer fram á Grand hóteli í dag
frá kl. 8.15 til 10. Fundurinn er undirbúinn í
samstarfi við Foreldrahús/Vímulausa æsku, en
þau grónu foreldra- og forvarnasamtök halda
um þessar mundir upp á 30 ára starfsafmæli
sitt.
Fundarefnið að þessu sinni tengist málefnum
foreldra og stuðningsúrræðum þegar vanda
ber að höndum; vímuefnaneyslu barna, kvíða-
röskun og samskiptavanda. Erindi flytur Una
María Óskarsdóttir lýðheilsufræðingur, sem
fjallar um nýsamþykkta stefnumörkun í lýð-
heilsumálum með áherslu á þátt foreldra í
þeirri stefnu, Guðrún Ágústsdóttir fjölskylduráðgjafi fjallar um mikilvægi
starfs í foreldrahópum, tveir foreldrar segja sögu sína á fundinum og að
lokum flytur Sigríður Birna Valsdóttir, leiklistar- og fjölskyldumeðferðar-
fræðingur, erindi um hinsegin börn og unglinga.
Fundurinn er opinn á meðan húsrúm leyfir en á síðasta fundi Náum átt-
um komust færri að en vildu. Þátttökugjald er 2.400 kr. og er morgun-
matur innifalinn. Fundarstjóri er Guðni R. Björnsson, framkvæmdastjóri
Vímulausrar æsku.
Fjallað um foreldra og stuðningsúrræði
á morgunverðarfundi Náum áttum
Foreldrar á fundi í einum
grunnskóla Reykjavíkur.
Fjöldi farþega í flugi Primera Air
frá Sikiley á fimmtudaginn síðasta
fékk farangur sinn ekki afhentan
við komuna til Íslands. Samkvæmt
upplýsingum frá farþegum skilaði
farangurinn sér til þeirra í gær-
morgun, fimm dögum of seint. Eru
þeir að eigin sögn mjög ósáttir við
þær upplýsingar sem þeir hafa
fengið frá Heimsferðum og Pri-m-
era Air um málið.
Farangurinn kom
fimm dögum síðar
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það styttist óðfluga í að Spölur af-
hendi íslenska ríkinu Hvalfjarðar-
göngin til eignar og reksturs. Það á
að gerast í árslok 2018, eða eftir
rúm tvö ár. Þegar ríkið hefur eign-
ast göngin og
Vegagerðin tekið
við rekstrinum
hefur verið geng-
ið út frá því að
hætt verði að inn-
heimta gjald í
göngin. Í samn-
ingi ríkisins og
Spalar frá 1993
er tiltekið að
Spölur geti inn-
heimt veggjöld þar til allur kostn-
aður við göngin hefur verið greidd-
ur. Ef halda á áfram innheimtu
veggjalds eftir þann tíma þarf að
koma til pólitísk ákvörðun um slíkt.
Hætt er við að Vestlendingar tækju
slíkri ákvörðun ekki þegjandi.
Því er spáð að umferðin um göng-
in aukist talsvert þegar gjald-
skyldan fellur niður. Það mun að
sjálfsögðu flýta fyrir því að göngin
„springi“ og hlýtur að flýta undir-
búningi að tvöföldun ganganna.
Óska eftir viðræðum
Fram kom á aðalfundi Spalar fyrr
á árinu að stjórn félagsins hefði sent
innanríkisráðuneyti, fjármálaráðu-
neyti og Vegagerðinni minnisblað
þar sem óskað var eftir viðræðum
og sérstöku samkomulagi um hvern-
ig staðið skyldi að því þegar Spölur
afhenti ríkinu Hvalfjarðargöng til
eignar.
Í minnisblaðinu er minnt á að há-
marksumferð á sólarhring sé 8.000
ökutæki að jafnaði, samkvæmt gild-
andi reglum. Miðað við „hóflega um-
ferðarspá“ geti öryggismörkum ver-
ið náð árið 2020 eða 2021. Þá sé ekki
tekið tillit til þess að umferðin auk-
ist að líkindum umtalsvert þegar
heimild til gjaldheimtu falli niður í
lok árs 2018.
„Það er nánast öruggt að við
niðurfellingu á gjaldi verður bein
aukning strax. Hversu mikil hún
verður er svo sem ágiskun en hún
gæti orðið meiri en menn reikna
með,“ segir Gísli Gíslason, stjórnar-
formaður félagsins Spalar, sem rek-
ur göngin.
Gísli segir að menn hafi slegið á
það að aukningin geti orðið 10%
strax. Á þessu ári stefnir í að meðal-
umferð ökutækja um göngin verði
6.500 ökutæki á sólarhring. Ekki sé
gott að spá um það hver talan verði
ef 10% bætist við umferðartölurnar
í lok gjaldtökutímabilsins 2018.
Í apríl í fyrra fór Starfsgreina-
sambandið í verkfall og starfsmenn í
gjaldskýlunum við Hvalfjarðar-
göngin lögðu niður vinnu. Að sögn
Gísla jókst umferð talsvert þessa
daga frá því sem venjulegt er. Segir
hann að þetta geti gefið vísbend-
ingu.
Erlendum ferðamönnum fjölgar
og fjölgar á Íslandi og þess gætir í
umferðinni á þjóðvegum landsins og
þar með í göngunum líka. Ferða-
mennskan skýrir þannig að veru-
legu leyti mjög aukna umferð í
göngunum það sem af er ári 2016.
Arion banki spáir 12,6% fjölgun
ferðamanna hér á landi 2016 og
10,6% fjölgun á árinu 2017. Gagn-
vart Speli birtist þessi þróun þannig
að ökumönnum fjölgar hlutfallslega
sem staðgreiða veggjald. Veglyklum
fjölgar en samt dragast tekjur af
áskriftarferðum saman þegar á
heildina er litið, en staðgreiðslan
vegur þyngra á móti í heildarmynd
tekjustreymis Spalar.
Mikil fjölgun í Noregi
Í þessu sambandi er áhugavert að
skoða það sem gerðist í Noregi ný-
lega.
Hinn 31. ágúst síðastliðinn lauk
gjaldtöku í 7,3 kílómetra löngum
jarðgöngum undir Oslóarfjörð, milli
Dröbak og Hurum. Göngin voru
tekin í notkun árið 2000. Daglega
hafa að meðaltali 7.500 ökutæki far-
ið um göngin, þar af rúmlega 1.000
vörubílar. Eftir að gjaldtöku var
hætt hafa um 10 þúsund bílar farið
um göngin daglega.
Byggingarkostnaður nýrra ganga
ásamt tengingu við eldri göng er
áætlaður rúmlega ellefu milljarðar
króna, að því er fram kemur í árs-
skýrslu Spalar. Verktími er áætl-
aður 3-4 ár frá ákvörðunartöku til
þess tíma að bæði göngin yrðu kom-
in í notkun. Árið 2008 afhenti Spölur
ríkinu og Vegagerðinni rannsóknar-
gögn og frumhönnun nýrra ganga
samsíða þeim, en 15-20 metrum inn-
ar en göngin sem byggð voru á ár-
unum 1996-98.
Hvenær „springa“ göngin?
Hámarksumferð um Hvalfjarðargöng er 8.000 ökutæki á sólarhring að jafnaði samkvæmt gildandi
reglum Umferð gæti aukist um 10% þegar veggjald verður fellt niður Mikil fjölgun ferðamanna
Ljósmynd/Spölur
Hvalfjarðargöng Fyrir liggur frumhönnun nýrra ganga samsíða núverandi göngum en 15-20 metrum innar.
Gísli Gíslason
STUTT
Vertu upplýstur!
blattafram.is
BREGSTU VIÐ,
EF ÞÚ SÉRÐ EÐA VEIST
AF OFBELDI, EÐA FINNST
ÞÉR ÞÆGILEGRA
AÐ LÍTA UNDAN?
LEYNIVOPN.IS
HVERNEINASTADAG
FRÁÞVÍ AÐÉG
MANEFTIRMÉR
„
“
ALFREÐ FINNBOGASON
LANDSLIÐSMAÐUR Í KNATTSPYRNU
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
Hjá Vegagerðinni er ekki hafinn sérstakur undirbún-
ingur að tvöföldun Hvalfjarðarganga en Hreinn Haralds-
son vegamálastjóri reiknar með því að hann fari af stað
á næsta ári. Meðal annars þurfi að yfirfara fyrirliggjandi
hönnun nýrra ganga með tilliti til nýjustu krafna um ör-
yggismál og aðra þætti í gerð slíkra ganga.
„Við ætlum á sama tíma að láta gera nýja umferðar-
spá til lengri tíma, þar sem m.a. er ekki bara horft á
þessa miklu aukningu núna síðustu misseri,“ segir
Hreinn. „Eins og við þekkjum notar yfirgnæfandi hluti
umferðar um Hvalfjörð göngin í dag en fer ekki fyrir fjörð. En umferð
mun vafalaust aukast þegar og ef gjaldtöku verður hætt,“ segir Hreinn.
Undirbúningur hefst 2017
VEGAGERÐIN BRÁTT Í STARTHOLURNAR
Hreinn Haraldsson