Morgunblaðið - 26.10.2016, Síða 13
Guðbrandskort Ísland hefur verið umsetið furðunni um ár og aldir. Guðbrandskort er dagsett árið 1585.
að boða komu sína á hátíðina.
Jaðarbókmenntir?
Sjálfur hefur Alexander lifað og
hrærst í furðumenningunni um all-
langt skeið. Fyrir tveimur árum sendi
hann frá sér skáldsöguna Hrímland,
sögu þar sem nútíminn rennur saman
við furðusagnaheiminn. „Með furðu-
sagnahátíðinni viljum við, aðstand-
endur hennar, hefja bókmennta-
greinina til vegs og virðingar.“
Hann og félagar hans í nefndinni
vilja meiri umræður á opinberum
vettvangi og að bækurnar séu
gagnrýndar og greindar á við
bókmenntir af öðru tagi, bæði
bækur ætlaðar fullorðnum sem
og barnabækur. „Við viljum ýta
undir að hér myndist samfélag
kringum þessa tegund bók-
mennta, gefa henni aukið vægi
svo hún vaxi og dafni. Furðusagn-
ir teljast varla jaðarmenning lengur,
enda hefur dægurmenningin fyrir
löngu tekið við sér og að hluta til
eignað sér þær. Núna þykir til dæmis
enginn nörd þótt hann geti þulið upp
úr sér alls konar ítarefni úr Star
Trek.“
Hugmyndina að hátíðinni um
helgina fengu hann og nokkrir fé-
lagar þegar þeir sátu furðusagn-
aráðstefnu á Álandseyjum í fyrra.
„Þátttakendur voru mjög forvitnir
um furðumenningu á Íslandi og
gerðu sér far um að kynnast okkur.
Margir létu
í ljós vilja
til að
mynda
tengsl inn
í íslenska
furðumenn-
ingu og
hvöttu okk-
ur til að
efna til ráðstefnu á Íslandi með svip-
uðu sniði og þessa á Álandseyjum.“
Vettvangur til
að sameina hópa
Alexander segir tíu manna
skipulagsnefndina ekki endilega
harðasta kjarnann í íslenska furðu-
sagnaheiminum, heldur einfaldlega
fólk sem varð við áskorunum erlendis
frá og lét til skarar skríða. Innan
furðumenningarinnar séu margir og
ólíkir hópar með mismunandi
áherslur, einn á teiknimyndasögum,
annar á larp, eins og hann kallar hlut-
verkaleiki, og svo mætti lengi telja.
„Milli þessara hópa eru ekki
nógu mikil tengsl. Okkur langar til að
búa til öflugan vettvang til að sam-
eina hópana, byggja brú á milli landa,
og er hátíðin liður í þeirri viðleitni,“
segir hann og upplýsir að á sambæri-
legum hátíðum erlendis sé
hefð fyrir grímuballi.
„Þótt ég þekki ekki mikið
til hópa fólks sem kemur saman
og klæðir sig upp í búninga furðu-
sagnahetja, finnst mér slíkt spenn-
andi og því upplagt að efna til
grímuballs í tengslum við hátíð-
ina. Einnig vel við hæfi því
hrekkjavakan er á næsta leiti,“
segir Alexander og upplýsir að
forsprakkar hátíðarinnar stefni á
að halda Icecon 2018 og að fá þá
breiðan hóp fólks til að koma að und-
irbúningnum.
Kvikmynd Tröll koma við sögu í
Síðasta bænum í dalnum frá 1950.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016
Elizabeth Bear frá Bandaríkj-
unum hefur skrifað fjölda fantas-
ía og vísindaskáldsagna, þ.á m.
þríleikina The Edda of Burdens
og Eternal Sky. Hún hefur hlotið
John W. Campbell bókmennta-
verðlaunin, Locus verðlaunin og
Hugo verðlaun fyrir bækur sínar.
Karin Tidbeck frá Svíþjóð gaf
út sína fyrstu bók 2010, en hún
er þekktust fyrir frumlegar smá-
sögur sem lýst hefur verið sem „weird“ eða „new weird“ og íslenskt
áhugafólk um furðusagnir hefur þýtt sem nýfurðu. Tidbeck hlaut Craw-
ford bókmenntaverðlaunin 2013 fyrir smásagnasafnið Jagannath.
VERÐLAUNAHÖFUNDAR
Karin Tidbeck Elizabeth Bear
Heiðursgestir hátíðarinnar
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Brauð dagsins alla föstudaga
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
...Margur er knár
þótt hann sé smár
Nýji SX Rational 2/3 GN ofninn
gerir allt það sama og
stærri gerðirnar.
Spurður
hvort slíkt
samfélag
aðdáenda
furðusagna
samanstandi
mestmegnis af
ungu fólki segir
hann flesta
vera á þrítugs-
aldri, en líka
miklu eldri, t.d.
séu einhverjir á
sjötugsaldri búnir
Nánari upplýsingar:www.ice-
con2016.wordpress.com.
Fyrirspurnir sendist til ice-
con2016@gmail.com
Dægurmenning
Furðusagnir
speglast í hlut-
verkaleikjum,
teiknimyndasög-
um, tónlist,
myndlist og alls
konar dæg-
urmenningu.