Morgunblaðið - 26.10.2016, Side 13

Morgunblaðið - 26.10.2016, Side 13
Guðbrandskort Ísland hefur verið umsetið furðunni um ár og aldir. Guðbrandskort er dagsett árið 1585. að boða komu sína á hátíðina. Jaðarbókmenntir? Sjálfur hefur Alexander lifað og hrærst í furðumenningunni um all- langt skeið. Fyrir tveimur árum sendi hann frá sér skáldsöguna Hrímland, sögu þar sem nútíminn rennur saman við furðusagnaheiminn. „Með furðu- sagnahátíðinni viljum við, aðstand- endur hennar, hefja bókmennta- greinina til vegs og virðingar.“ Hann og félagar hans í nefndinni vilja meiri umræður á opinberum vettvangi og að bækurnar séu gagnrýndar og greindar á við bókmenntir af öðru tagi, bæði bækur ætlaðar fullorðnum sem og barnabækur. „Við viljum ýta undir að hér myndist samfélag kringum þessa tegund bók- mennta, gefa henni aukið vægi svo hún vaxi og dafni. Furðusagn- ir teljast varla jaðarmenning lengur, enda hefur dægurmenningin fyrir löngu tekið við sér og að hluta til eignað sér þær. Núna þykir til dæmis enginn nörd þótt hann geti þulið upp úr sér alls konar ítarefni úr Star Trek.“ Hugmyndina að hátíðinni um helgina fengu hann og nokkrir fé- lagar þegar þeir sátu furðusagn- aráðstefnu á Álandseyjum í fyrra. „Þátttakendur voru mjög forvitnir um furðumenningu á Íslandi og gerðu sér far um að kynnast okkur. Margir létu í ljós vilja til að mynda tengsl inn í íslenska furðumenn- ingu og hvöttu okk- ur til að efna til ráðstefnu á Íslandi með svip- uðu sniði og þessa á Álandseyjum.“ Vettvangur til að sameina hópa Alexander segir tíu manna skipulagsnefndina ekki endilega harðasta kjarnann í íslenska furðu- sagnaheiminum, heldur einfaldlega fólk sem varð við áskorunum erlendis frá og lét til skarar skríða. Innan furðumenningarinnar séu margir og ólíkir hópar með mismunandi áherslur, einn á teiknimyndasögum, annar á larp, eins og hann kallar hlut- verkaleiki, og svo mætti lengi telja. „Milli þessara hópa eru ekki nógu mikil tengsl. Okkur langar til að búa til öflugan vettvang til að sam- eina hópana, byggja brú á milli landa, og er hátíðin liður í þeirri viðleitni,“ segir hann og upplýsir að á sambæri- legum hátíðum erlendis sé hefð fyrir grímuballi. „Þótt ég þekki ekki mikið til hópa fólks sem kemur saman og klæðir sig upp í búninga furðu- sagnahetja, finnst mér slíkt spenn- andi og því upplagt að efna til grímuballs í tengslum við hátíð- ina. Einnig vel við hæfi því hrekkjavakan er á næsta leiti,“ segir Alexander og upplýsir að forsprakkar hátíðarinnar stefni á að halda Icecon 2018 og að fá þá breiðan hóp fólks til að koma að und- irbúningnum. Kvikmynd Tröll koma við sögu í Síðasta bænum í dalnum frá 1950. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 Elizabeth Bear frá Bandaríkj- unum hefur skrifað fjölda fantas- ía og vísindaskáldsagna, þ.á m. þríleikina The Edda of Burdens og Eternal Sky. Hún hefur hlotið John W. Campbell bókmennta- verðlaunin, Locus verðlaunin og Hugo verðlaun fyrir bækur sínar. Karin Tidbeck frá Svíþjóð gaf út sína fyrstu bók 2010, en hún er þekktust fyrir frumlegar smá- sögur sem lýst hefur verið sem „weird“ eða „new weird“ og íslenskt áhugafólk um furðusagnir hefur þýtt sem nýfurðu. Tidbeck hlaut Craw- ford bókmenntaverðlaunin 2013 fyrir smásagnasafnið Jagannath. VERÐLAUNAHÖFUNDAR Karin Tidbeck Elizabeth Bear Heiðursgestir hátíðarinnar MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Brauð dagsins alla föstudaga Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð. Vöruhús veitingamannsins allt á einum stað Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is Opið virka daga kl. 8.30-16.30 ...Margur er knár þótt hann sé smár Nýji SX Rational 2/3 GN ofninn gerir allt það sama og stærri gerðirnar. Spurður hvort slíkt samfélag aðdáenda furðusagna samanstandi mestmegnis af ungu fólki segir hann flesta vera á þrítugs- aldri, en líka miklu eldri, t.d. séu einhverjir á sjötugsaldri búnir Nánari upplýsingar:www.ice- con2016.wordpress.com. Fyrirspurnir sendist til ice- con2016@gmail.com Dægurmenning Furðusagnir speglast í hlut- verkaleikjum, teiknimyndasög- um, tónlist, myndlist og alls konar dæg- urmenningu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.