Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 17

Morgunblaðið - 26.10.2016, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Ertu með réttan skófatnað fyrir vinnuna þína? Hjá Dynjanda færðu úrval af öryggisskóm. Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð. Öryggisskór í vinnuna! Alls safnaðist sem nemur 56.200 bólusetningum gegn mænusótt í átaksverkefni UNICEF á Íslandi og Te & Kaffi, sem bar heitið Klárum málið og fór fram í september. Te & Kaffi gaf andvirði einnar bólusetningar gegn mænusótt af hverjum seldum drykk, auk þess sem viðskiptavinum var boðið að bæta við andvirði bólusetningar er þeir greiddu fyrir drykkinn. Þetta var í fjórða sinn sem UNI- CEF á Íslandi og Te & Kaffi tóku höndum saman í kaffihúsaátaki og í þriðja sinn sem safnað var fyrir mænusótt. Alls hafa nú safnast and- virði 250.549 bólusetninga hér á landi. Miðað við að hvert barn þurfi að fá þrjár bólusetningar dugar þessi fjöldi bólusetninga fyrir fleiri en 85.000 börn. „Te & Kaffi hefur verið ómetan- legur stuðningsaðili UNICEF á Ís- landi frá árinu 2008 og safnað yfir 30 milljónum króna fyrir sam- tökin,“ segir í frétt frá UNICEF. Safnaðist í 56 þúsund bólu- setningar Morgunblaðið/Þórður Átak Eliza Reid forsetafrú hóf átak- ið í haust og keypti sér kaffibolla. Rjúpnaveiðitímabil haustsins hefst á föstudaginn. Heimilt verður að veiða í þrjá daga um þessa helgi, frá föstudegi til sunnudags. Búast má við því að rjúpna- skyttur haldi til fjalla strax á föstu- dagsmorguninn. Spáð er bjartviðri um norðanvert landið á föstudag en þungbúnara verður syðra. Þeg- ar líður á helgina er meiri væta í kortunum. Hiti verður yfir frost- marki. Fjöldi veiðidaga á þessu hausti er 12 sem skiptast á fjórar helgar, þ.e. síðustu helgina í október og fyrstu þrjár helgarnar í nóvember. Umhverfisráðherra tilkynnti í september að leyfileg heildarveiði árið 2016 yrði 40.000 rjúpur að teknu tilliti til mats Náttúrufræði- stofnunar Íslands á veiðiþoli stofnsins. Er þetta 20% færri fugl- ar en árið 2015. Sölubann verður á rjúpum og er Umhverfisstofnun falið að fylgja því eftir. Í tilkynningu ráðuneytisins eru veiðimenn eindregið hvattir til að sýna hófsemi og miða veiðar við 5-6 fugla á veiðimann. Jafnframt eru veiðimenn sérstaklega beðnir um að gera hvað þeir geta til að særa ekki fugl umfram það sem þeir veiða, m.a. með því að ljúka veiðum áður en rökkvar. Veiðiverndarsvæði verður áfram á Suðvesturlandi eins og undan- farin ár. „Stjórnvöld hafa það sem megin- stefnu að nýting rjúpnastofnsins skuli vera sjálfbær, sem og ann- arra lifandi auðlinda,“ segir í frétt ráðuneytisins. sisi@mbl.is Rjúpnaveiðar að hefjast Morgunblaðið/Golli Rjúpnaveiðar Veiðimenn halda margir til fjalla á föstudaginn.  Heildarkvótinn verður 40 þúsund rjúpur á þessu hausti Fjallað verður um ný viðhorf í nor- rænum öryggismálum á opnu mál- þingi sem Varðberg, NEXUS og Al- þjóðamálastofnun Háskóla Íslands boða til í fyrirlestrarsal Þjóðminja- safnsins á morgun, fimmtudaginn 27. október, kl. 14-17. Til að flytja erindi á ráðstefnunni og taka þátt í pallborðsumræðum koma til landsins fjórir sérfræð- ingar. Þeir eru: Sten Rynning, prófessor í alþjóða- samskiptum og forstöðumaður Stofnunar stríðsrannsókna í Syd- dansk-háskólanum í Óðinsvéum í Danmörku. Anna Wieslander, stjórnandi mál- efna Norður-Evrópu við Atlantic Council og framkvæmdastjóri Sænsku varnarmálasamtakanna. Charly Salonius-Pasternak, rann- sóknastjóri hjá Finnsku alþjóða- málastofnuninni. Svein Efjestad, yfirmaður stefnu- mótunardeildar í norska varnar- málaráðuneytinu. Málþingið er annað í röð þriggja. Síðasta málþing fundaraðarinnar fer fram fimmtudaginn 17. nóvember og verður þar fjallað um endurmat á hernaðarlegu vægi Íslands og ná- grennis. Málþingið fer fram á ensku og er opið öllum. Fundur um öryggismál Norðurlanda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.