Morgunblaðið - 26.10.2016, Síða 26

Morgunblaðið - 26.10.2016, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 ✝ SvavarÞorsteinsson fæddist 18. apríl 1935. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 5. októ- ber 2016. Foreldrar hans voru hjónin Þor- steinn Kristinsson og Erlendína Magnúsdóttir frá Kirkjuvogi í Höfn- um. Svavar ólst upp í Höfnunum í hópi systkina sinna sem voru þessi, talin í aldursröð: Magnús, Hafsteinn, Margrét, Viðar og Kristinn. Þau eru nú öll látin nema Margrét. Svavar kvæntist 18. apríl 1957 Sigurlaugu Kristjáns- dóttur (Lullý) frá Akranesi, f. 27. mars 1935, d. 27. janúar 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Ragnheiður Þ. Guðmundsdóttir og Kristján Ás- mundsson bifreiðastjóri. Sonur Svavars og Sigurlaugar er Kristján Þór, flugvirki hjá Ice- landair, búsettur í Keflavík, f. 30. september 1956. Eiginkona Kristjáns var Pamela J. Svav- arsson og börn þeirra eru: 1) Stef- anía, gift Hjalta Pálmasyni og eru börn þeirra Pamela Ósk, Hjalti Kristján og Edda María. 2) Svavar James bú- settur í New York. Kristján og Pamela skildu. Sambýlis- kona Kristjáns er Magdalena Smáradóttir og á hún þrjú börn. Mestan hluta starfsævi sinnar starfaði Svavar við akstur leigu- bifreiða og var lengi í forystu Samtaka leigubifreiðastjóra á Suðurnesjum. Svavar og Lullý bjuggu allan sinn búskap í Keflavík og um langt árabil í húsi því er þau reistu að Eyja- völlum 2. Ennfremur byggðu þau sér fallegan sumarbústað í Þrastaskógi og dvöldu þar oft löngum stundum. Sambýliskona Svavars hin síðari ár var Ásta Sigurðardóttir.Útför Svavars var gerð frá Keflavíkurkirkju 21. október 2016. Yfir þér engillinn vaki og verndi þig dag og nótt, hann sér til að þig ei saki og sé þér í huga rótt. Hvert sem leið þín liggur, ljúfur hann fylgir þér. Ég veit þú vernd hans þiggur, sem vinargjöf frá mér. Ásta. Þá er hann Svavar frændi minn búinn að kveðja okkur. Hann var næst elstur þeirra systkina úr Kirkjuvogi í Höfn- um. Þeir bræður, Svavar og pabbi, voru alltaf miklir vinir og unnu saman á leigubílum til fjölda ára, það var þar sem ég kynntist Svavari vel en ég var sjálfur að keyra á Aðalstöðinni á þeim tíma. Svavar var sterkur persónu- leiki og það var hlustað þegar hann talaði, hann var duglegur til vinnu og það voru ekki margir sem stóðust honum snúninginn í akstri á leigubíl- um. Ég átti gott spjall við Svavar aðeins tveimur dögum áður en hann kvaddi þennan heim, þá sat ég hjá honum þar sem hann lá á spítalanum í Keflavík. Við vorum meðal annars að ræða gleraugu og hvort hann hefði aldrei þurft að nota þau, ég segi honum að ég muni ekki eftir að hafa séð hann með gleraugu. Hann hafði gaman af þessu og sagði mér þá frá því að einu sinni hefði pabbi minn beðið hann að fara fyrir sig í augn- skoðun hjá lækni, þar sem hann komst ekki sjálfur en þurfti nauðsynlega að mæta. Svavar sagðist hafa farið í skoðunina fyrir pabba og staðist hana með miklum glans, og hafði gaman af. Ekki fylgdi sögunni hvers vegna pabbi sendi Svavar í augnskoðunina en þeir bræður voru allir nokkuð líkir og nýttu sér það greinilega þegar á þurfti að halda. Við fjölskyldan sendum Kristjáni og hans fjölskyldu og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Þorsteinn Magnússon og fjölskylda. Sumarið er liðið, birta þess og fegurð lögst til hvíldar og hrímkalt haustið tekið við. Þannig er það einnig oft með sjálft mannlífið, það skiptast á ljós og skuggar og við menn- irnir erum ekki þess umkomnir að hafa þar áhrif á. Mér kemur þessi samlíking ósjálfrátt í hug nú er við kveðjum Svavar vin okkar hinstu kveðju. Hann var svo sannarlega maður sumars- ins og birtunnar og lifði lífinu þannig að með viðmóti sínu ylj- aði hann samferðafólkinu og flutti birtu inn í líf fjölskyldu sinnar og allra þeirra sem hon- um kynntust. Mér er í fersku minni þegar Lullý frænka mín kom í fyrsta sinn í heimsókn með unnusta sinn, hann Svavar. Þau voru ung og lífið brosti við þeim. Hamingjan fylgdi þeim síðan alla tíð meðan bæði lifðu og sonurinn, Kristján, augasteinn þeirra, stoð og stytta alla tíð. Við Svavar urðum þegar í stað vinir og hefur sú vinátta haldist án þess að skugga bæri nokkru sinni á áratugum saman allt til þessarar kveðjustundar. Það er mér og minni fjölskyldu mikið þakkarefni að hafa átt slíkan öðling að vini. Svavar var harðduglegur maður sem unni mjög fjöl- skyldu sinni og gerði allt til að þeim gæti liðið sem allra best. Átti það einnig við um foreldra hans, tengdaforeldra, systkini og vini. Sannur drengskaparmaður í hvívetna. Ég og fjölskylda mín eigum góðar minningar um margar samverustundir og ár- lega vorum við í góðum fagnaði í sumarbústað þeirra hjóna um verslunarmannahelgar. Fyrir það allt er vert að þakka við leiðarlok. Síðustu vikur og mánuðir hafa verið vini okkar þungbær tími. Að þurfa að sætta sig við þverrandi krafta var þessum duglega manni nokkur þolraun en hann tókst á við það með þeirri ró og því æðruleysi sem einkennt hafði líf hans löngum. Það var honum styrkur að vera umvafinn fjölskyldu sinni og finna væntumþykju þeirra og svo var það ekki hvað síst vin- kona hans hin síðari ár, Ásta Sigurðardóttir, sem var óþreyt- andi í umhyggju sinni og hjálp- semi við hann til síðustu stund- ar og ber að þakka það allt. Við Erna, Guðni Kristinn, Einar Gunnar og Þórey þökk- um Svavari öll hans elskuleg- heit í okkar garð fyrr og síðar og biðjum honum blessunar Guðs er hann nú eftir önn og erfiði dagsins hverfur inn í aft- anskin sólarlagsins. Hvíl í friði, kæri vinur, um eilífð alla. Einar Jón Ólafsson. Svavar Þorsteinsson Elskulegur pabbi okkar er fallinn frá. Komið er að kveðjustund. Það var allt- af gott að koma til ykkar mömmu. Hlýjan og kærleikur- inn umvafði okkur alla tíð. Þú varst alltaf til staðar fyrir okk- ur. Pabbi var hægur og orðvar maður með góða kímnigáfu. Hann gat verið ræðinn og var fróður um marga hluti. Hann hugsaði vel um sitt fólk og var mjög hjálplegur ef leitað var til hans. Minningarnar hrannast upp og væri hægt að telja upp margt. Minning um góðan, tryggan, traustan og samvisku- saman mann lifir. Pabbi var mjög skipulagður og allt sem hann tók sér fyrir hendur var unnið af samviskusemi og ná- kvæmni. Hann hafði mikinn áhuga á ferðalögum og nutum við systk- inin áhuga hans á náttúru landsins. Hann gat talið upp heiti á fjöllum og örnefni á ferðum okkar um landið. Við minnumst bíltúra út á Reykja- víkurflugvöll. Pabbi sótti í æskustöðvarnar í Skerjafirði en áhugi á flugi og öllu sem tengd- ist hernáminu einkenndi hann. Áhugi pabba á ljósmyndum var mjög mikill. Eftir hann liggur fjöldi ljósmynda af land- Helgi Sigurður Haraldsson ✝ Helgi Sig-urður Har- aldsson fæddist 5. janúar 1924. Hann lést 11. október 2016 Útför Helga fór fram 25. október 2016. inu okkar, fjölskyld- unni og listrænum ljósmyndum. Hann var í félagi áhuga- ljósmyndara og framkallaði sjálfur myndir. Ljósmyndaáhugi hefur erfst til nokk- urra afkomenda hans. Hann vann nokkrum sinnum til verðlauna. Hann var bókhneigður, orti ljóð og var sjálfmenntaður í skrautrit- un. Áhugi hans á tónlist var mik- ill. Hann hlustaði á allskonar tónlist, en sérstakt dálæti hafði hann á óperutónlist. Þegar við minnumst pabba er erfitt að minnast ekki á mömmu, þau voru mjög náin og samhent. Þegar pabbi hætti að vinna tóku við ný verkefni. Hann fór að geta sinnt áhugamálum sín- um meira eins og útskurði og ættfræði. Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælu sumrin löng. Þar angar blóma breiða við blíðan fuglasöng. (Jón Trausti.) Blessuð sé minning þín, elsku pabbi, og hafðu þökk fyr- ir allt. Hvíl í friði. Signý Halla, Vilberg Grímur og Ásta Sigrún. Elsku afi minn. Það er svo sárt að þú sért farinn frá okk- ur, en yndislegri afa er erfitt að finna. Ég man hvað það var alltaf gott að koma til ykkar ömmu. Þú vildir alltaf hjálpa mér með hvað sem er og þá sérstaklega með ættfræði í skólanum, sem þú hafðir svo mikinn áhuga á í gegnum tíðina. Ég var alltaf svo velkomin til ykkar ömmu og þið voruð alltaf svo hlý og yndisleg við mig. Við eigum svo margar minn- ingar saman í gegnum tíðina og ég mun alltaf varðveita þær dýrmætu minningar. Mér þykir svo óendanlega vænt um þig, elsku afi minn. Guðlaug Dóra Þorsteinsdóttir. Elsku, yndislegi afi minn Erfitt er að lýsa því í orðum hvað ég sakna þín mikið og mikið ótrúlega er ég þakklátur fyrir allar frábæru minningarn- ar sem við eigum saman. Traustari og betri afa er erfitt að finna. Þegar ég hugsa til baka um alla skemmtilegu hlutina sem við brölluðum saman þá eru nokkrir sem eru mér efstir í huga. Skemmtilegast fannst mér þegar þú og amma fóruð með mig og Árna Val í réttirnar til að smala saman lömbunum. Alltaf tókstu ljósmyndir og myndbönd af þessu öllu enda varstu einstaklega laginn við að taka ljósmyndir. Þegar þú fórst með okkur upp að Esjurótum og burðaðist með 30 kg tjald upp hlíðina bara svo að við gætum leikið okkur þar. Við vorum ekki einu sinni að gista þar. Það sem þú gerðir ekki fyrir mann. Mættir á fimleikamótin og studdir mann áfram, það er ekki sjálfgefið. Að koma í Skipholtið var alltaf góð stund. Þú og amma áttuð alltaf ís enda fannst þér ísinn góður. Alltaf varstu með lykilinn að nammiskúffunni í vasanum. Þú elskaðir að sitja á svöl- unum í sólbaði og ég hef fengið það frá þér enda finnst mér ekkert betra en að nýta góða sólardaga. Þú verður alltaf mín fyrir- mynd þar sem þú varst svo traustur, klár og góður við alla í kringum þig. Ég ætla að reyna að vera eins og þú. Ég kveð þig með ást og mikl- um kærleik í hjarta, elsku afi. Ég á ávallt eftir að sakna þin og hugsa til þín. Arnar Vilbergsson. Elsku yndislegi afi okkar. Erfitt er að lýsa því í orðum hvað við munum sakna þín mik- ið og hversu ótrúlega þakklát við erum fyrir allar minning- arnar sem við eigum með þér. Traustari og betri afa er erfitt að finna.Við systkinin eigum endalaust af hlýjum, fallegum og skemmtilegum minningum með elsku afa okkar og ömmu „í Skipholti“. Það hefur alla tíð verið svo gott að koma til ykk- ar, hvort sem það var í Skip- holtið gamla góða eða á Sléttu- veginn. Það er sterkt í minningu okkar allra þegar við komum í Skipholtið og fórum alltaf beint með afa inn í „afaherbergi“ og hann opnaði efstu skúffuna, með lykli, og dró upp appels- ínusúkkulaðihnappa, það var toppurinn. Þetta var svona afa- nammi, í minningunni fannst manni eins og þetta væri ekki einu sinni hægt að kaupa í búð. Það klikkaði heldur ekki að þegar glitti í sól þá var nokkuð víst að afi var mættur á sval- irnar og tók á móti okkur veif- andi þar þegar bíllinn rann í hlaðið. Ætli við höfum ekki öll feng- ið vott af sólardýrkuninni hans afa. Alltaf gátum við líka treyst á að ís væri í frystinum hjá ykkur þar sem þú varst ísmað- ur mikill og báðum við alltaf um ís þegar við komum í heim- sókn. Í seinni tíð urðu sunnudags- stundirnar á Sléttuveginum ómetanlegar og alltaf var jafn gaman að koma í kaffi; hitta ykkur og alla fjölskylduna og fá sér kaffi og ristað brauð. Við munum halda þeirri hefð lengi vel áfram og alltaf hugsa til elsku afa sem verður með okk- ur þar í anda. Mikið magn af heimildar- myndum er til af okkur systk- inum úr æsku þar sem afi var einn samviskusamasti mynda- tökumaður allra tíma. Alltaf var hann mættur á alla viðburði með vídeóvélina, hvort sem það var dans- eða fimleikamót eða bara að taka upp af okkur borða hafragraut inni í eldhús- króknum í Skipholtinu. Allt var þetta fest á filmu, sem manni þykir svo ótrúlega vænt um í dag. Endalaust gætum við talað um góðar og dýrmætar minn- ingar því margar eru þær. Við kveðjum þig með miklum söknuði, ást og kærleika í hjarta, elsku afi okkar, með þessari fallegu bæn sem alltaf var kveðin þegar maður gisti hjá afa og ömmu í Skipholti. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson) Þín barnabörn Rannveig, Arnar, Anna Kristín. Móðir okkar, GUÐVEIG BJARNADÓTTIR frá Skaftafelli í Öræfum, sem lést að morgni 19. október, verður jarðsungin frá Hofskirkju í Öræfum föstudaginn 28. október klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, . Sigurður, Þorsteinn, Bjarni, Guðlaugur Heiðar og Guðlaug. Eiginmaður minn, GUÐNI GUÐJÓNSSON, Heiðarlundi 15, Garðabæ, lést á Sólvangi föstudaginn 21. október. Útför hans fer fram mánudaginn 14. nóvember frá Vídalínskirkju. . Barbara Stanzeit. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, RANNVEIG FRIÐRIKSDÓTTIR, síðast til heimilis á Öldrunarheimili Akureyrar, er lést 16. október, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 28. október klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. . Halla Margrét Tryggvadóttir, Elías Bj. Gíslason, Ingólfur Tryggvi Elíasson, María Benediktsdóttir, Friðrik Valur Elíasson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURFLJÓÐ ERLENDSDÓTTIR, verslunarmaður, lést á hjúkrunarheimilinu Skogsgården í Motala í Svíþjóð 23. október 2016. . Ívar Magnússon, Arnheiður Sigurðardóttir, Margrét Magnúsdóttir, Vilhjálmur Magnússon, Ann-Mari Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, JÓN GUÐMUNDSSON, strætisvagnabílstjóri og leigubílstjóri, andaðist mánudaginn 24. október á hjúkrunarheimilinu Eiri í Grafarvogi. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. nóvember klukkan 13. . Ríkharður Örn Jónsson Jóhanna Sigurðardóttir Íris Edda Jónsdóttir Viðar Arnarson Hafdís Eygló Jónsdóttir Sigurbjörn Arngrímsson Sigurborg Gunnlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.