Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 24
Sandkorn
24 Umræða
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaSkot
512 70 70fr jál S t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritStjórn
áSkriftarSími
aUglýSingar
útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • dreifing: Árvakur
Helgarblað 18.–21. september 2015
Það er eins og
ljón sé að elta þig
Það þarf rækilega uppstokkun
Ágústa Ósk Óskarsdóttir fór mikinn í umræðu um framhjáhald. – Hringbraut
Fjárhagsstaða borgarinnar er afar
slæm en samt er látið eins og ekkert
hafi gerst. Fátt er um svör hjá borgar
stjóra og meirihluta borgarstjórnar
sem sá meiri ástæðu til að setja
ísraelskar vörur á bannlista en að
boða úrræði og aðgerðir til sparnað
ar. Minnihlutinn í borgarstjórn virð
ist nánast óvirkur, því úr þeim ranni
heyrast ekki kröftugar raddir sem vara
við því hversu illa er komið. Fjölmiðl
ar hafa flestir ekki veitt þessari slæmu
fjárhagsstöðu sérstaka athygli, og er
það einkennilegt miðað við að málið
snertir alla borgarbúa. Vert er þó að
hrósa Viðskiptablaðinu sem nýlega
var með vandaða og sláandi úttekt á
fjárhagsstöðu borgarinnar.
Staðan er sú að kostnaður við
grunnþjónustu er meiri en skatt
tekjur, útgjöld borgarinnar hafa auk
ist um milljarða, stöðugildum hefur
fjölgað gríðarlega og til að fjármagna
grunnþjónustu þarf lánsfé. Þessi
staða á enn eftir að versna verði ekki
gripið til aðgerða.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur
B. Eggertsson, er geðugur maður
enda nýtur hann mikilla persónu
vinsælda. Borgarbúar sjá hann iðu
lega á gangi eða á hjóli og einu sinni
á ári bakar hann vöfflur í garðinum
heima hjá sér og gefur borgarbúum
að smakka. Hann er glaður á góðum
degi. Pólitík er hins vegar ekki glens
og gaman og fyrst þegar á móti blæs
kemur í ljós úr hverju stjórnmála
menn eru gerðir.
Dagur B. Eggertsson hefur siglt
lygnan sjó sem borgarstjóri og
hefur ítrekað komist hjá því að svara
erfiðum spurningum fjölmiðla
manna og gefa skýr og ákveðin svör.
Eftir því sem fjárhagsstaða borgar
innar versnar er líklegra að þarna
verði breyting á. Nú mun reyna á Dag
B. Eggertsson. Hann verður að stíga
fram og boða markviss úrræði til að
snúa afar vondri stöðu til betri vegar.
Þá dugar ekki að koma fram fyrir
sjónvarpsvélar og þæfa málið með
orðagjálfri og frösum. Það er ekki
heldur hægt að loka sig inni í Ráð
húsinu og láta sem allt sé í allra besta
lagi og vona um leið að allir aðrir fari
að trúa því að svo sé.
Það þarf að grípa til aðgerða sem
vafalítið verða sársaukafullar en
eru samt nauðsynlegar. Huga þarf
að hagkvæmni og niðurskurði þar
sem honum verður við komið. Þar
sem stöðugildum hjá borginni hefur
fjölgað gríðarlega og launakostnaður
er stærsti útgjaldaliðurinn verður
ekki annað séð en að uppsagnir séu
nauðsynlegar. Það þarf rækilega
uppstokkun á því ofvaxna kerfi sem
borgin hefur skapað.
Ljóst er að verkefnið sem bíður
meirihlutans er ekki skemmtilegt
og sannarlega lítt til vinsælda fallið.
Eigi meirihlutinn í borgarstjórn að
vera traustsins verður ber honum að
horfast í augu við vandann og taka á
honum af festu og ábyrgð. n
Saman í Gautaborg
Bókamessan í Gautaborg hefst í
næstu viku og þangað mæta all
nokkrir íslenskir rithöfundar.
Þeirra á meðal er Jónína Leós
dóttir og með henni í för er eig
inkonan, Jóhanna Sigurðardótt
ir. Meðal dagskrárliða á hátíðinni
er samtal sem menningarblaða
maður mun eiga við þær tvær um
bók Jónínu, Við Jóhanna.
Úr vörn í sókn
Samkeppni fjölmiðla tekur á sig
ýmsar myndir. Athygli vakti í vik
unni að Kjarninn sló upp sem
stórfrétt að blaðalestur hefði
verið í lágmarki í ágústmánuði.
Reyndari menn í bransanum
sögðu hins vegar að það væru
engin tíðindi á þessum árstíma
og gott veður gæti haft mikil áhrif
þar á. Þeir bentu jafnframt á að
Kjarninn hefði þarna einfald
lega valið að snúa vörn í sókn,
því aðsókn þar á bæ er með
allra minnsta móti. Þannig nær
Kjarninn ekki inn á listann yfir tíu
vinsælustu miðla landsins.
Ég átti afmæli í janúar
og fékk ekki köku
Sveinbjörg Birna borgarfulltrúi segir einelti líðast í borgarstjórn. – DV
Margir eiga um
sárt að binda
Guðbjartur Hannesson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, berst við krabbamein. – Kastljós
leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Ljóst er að
verkefnið sem
bíður meirihlutans er ekki
skemmtilegt og sannar-
lega lítt til vinsælda fallið.
Tryggið
ykkur skráningu
Tryggið
ykkur miða
565 5900
midi.is
Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu
Föstudagur 9 október kl.20.00
Föstudagur 16 október kl.20.00
Föstudagur 23 október kl.20.00
Föstudagur 30 október kl.20.00
Sunnudagur 20. september kl 13.00
Sunnudagur 27 septmber kl 13.00 örfáir miðar
Sunnudagur 4. október kl 13.00 örfáir miðar
Sunnudagur 11.október kl 13.00 Uppselt
Morgunblaðið
Leiklistarnámskeið
fyrir 10-12 ára
heast 23 September
Kennari
Björk Jakobsdótir
“Ég er með svo miklar harðsperrur í kjálkunum eftir hlátursköstin
að ég get ekki ennþá talað” Silja Aðalsteinsdóttir TMM
“Konubörn er hreint út sagt mögnuð sýning”
Frosti í Harmageddon
Víkingastræti 2
í Hafnarrði