Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Síða 40
32 Lífsstíll Helgarblað 18.–21. september 2015 T helma Björk Steimann er tveggja barna móðir búsett í Kaupmannahöfn. Hún er listræn og hæfileikarík og leggur stund á að skapa fal- legar flíkur og muni. Nýlega fóru flíkur hennar til sölu í versluninni Bianco og sennilega munum við sjá meira af hönnun Thelmu á næst- unni, enda einstaklega vandaðar og klæðilegar vörur. Thelma er ekki bara hefðbundinn fatahönnuður heldur er hún einn helsti prjónari Ís- lands, eins og hún kallar það sjálf, og nýtir sér helstu tískustrauma í prjóni. Með reynslu úr tískubransanum „Ég útskrifaðist frá textíl- og fata- hönnunarsviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti árið 2010, og með námi vann ég lengi hjá NTC. Eftir útskrift fór ég í fullt starf hjá sérvörusviði Haga, fyrst hjá All Saints og seinna meir hjá Day Birger et Mikkelsen og Karen Millen. Með vinnunni prjóna- ði ég mikið af íslenskum lopapeysum og seldi vinum og kunningjum. Árið 2012 tók ég síðan dimplóma í förðun hjá Fashion Academy. Ég flutti árið 2014 til Kaupmannahafnar til að hefja nám í Københavns Erhvervsakademi á sviði sem nefnist Design, technology and business, en námið er sérstaklega sniðið til að samtvinna fatahönnun og markaðsfræði.“ Með sína sérstöðu „Það var ekki fyrr en ég flutti til Dan- merkur að ég uppgötvaði að litla prjónahobbíið mitt er sjaldgæfur hæfileiki innan fatageirans, svo þegar ég fór að leita mér að starfsnámi ákvað ég að nýta mér prjónið til framdráttar. Í maí síðastliðnum var mér boðið að taka þátt í tískusýningu sem skólinn minn hélt í samstarfi við Distortion hér í Kaupmannahöfn. Á innan við tveim- ur vikum tókst mér að setja saman átta innkomur með fylgihlutum, sem ég tók upp úr safni fyrir haust/vetur 2016 sem ég hafði verið að vinna að fyrir skólann í möppunni minni.“ Eftir þetta fóru hjólin að snúast hjá Thelmu. „Ég fór að sauma fleiri ein- tök af fötunum sem ég hafði gert fyrir sýninguna. Ég hannaði út frá þeim nýja línu sem skírskotaði meira til þeirrar stefnu sem ég vil standa fyrir í fatageiranum en það er margnota og sjálfbærni. Núna er hægt að nálgast fötin mín á Íslandi, en þau eru seld í Bianco í Kringlunni.“ Prjónar prufur Prjónari – Hvað er það? Eru margir íslenskir fatahönnuðir með þessa sér­ hæfingu? „Flest íslensk börn læra prjón í grunnskóla. Einnig eru þetta grunn- fög sem þú þarft að taka til að útskrif- ast af textílsviði í menntaskólum. En það eru ekki allir sem kannski eru að þessu af jafn mikilli ástríðu og ég. Er- lendis er þetta ótrúlega sjaldgæf iðn, öll handavinna og jafnvel sauma- skapurinn sjálfur er ekki krafa sem fatahönnuðir þurfa að standa undir í dag. Fyrirtæki sem hanna sínar eigin vörur og senda út frumeintök til fram- leiðslu, þurfa að hafa manneskju inn- an fyrirtækisins sem getur sett upp mynstur og hefur almennt góða þekk- ingu á prjónaskap, sérstaklega fyrir vetrarlínurnar. Þegar ég hef unnið með prjónaskap, þá leita ég yfirleitt að garni sem mig langar til að nota, eða fyrirtækið er með ákveðin efni í huga í samstarfi við verksmiðjurnar sem það vinnur með. Í staðinn fyr- ir að teikna upp hugmyndir í skissu- bækur þá prjóna ég frekar prufur, al- veg þangað til ég hef ákveðið hvað mig langar til að nota. Svo hanna ég mismikið magn af flíkum í svipuð- um anda með mismunandi sniðum, kannski ein lokuð peysa og önnur síð, fer eftir því hverju er verið að leita að. Eftir það set ég upp uppskriftir sem annaðhvort vél eða handavinnukona getur prjónað eftir. Ég prjóna yfir- leitt á hringprjónum þegar ég prjóna flíkur, flíkurnar mínar eru þá yfir- leitt svokallaðar „full fashion“-flíkur sem þýðir að ekkert efni fer til spillis og þær koma tilbúnar af prjónunum þegar ég hef lokið við þær.“ Þægindi í fyrirrúmi Hvað ræður hönnun þinni og efnis­ vali? „Hluti fatanna sem seld eru í Bianco er unninn úr bómullarefni – bómull er mjög umdeilt efni en fram- leiðslan á henni getur verið mjög umhverfisspillandi. Ég valdi því að nýta allt hráefni í hönnuninni og láta ekkert fara til spillis og fann leiðir svo flíkurnar gætu verið notaðar á fleiri en einn hátt. Ég sat einu sinni fyr- irlestur hjá fulltrúa í sjálfbærni hjá H&M, en samkvæmt þeirra tölum eru flíkur í fataskápum aðeins notaðar að meðaltali fimm sinnum. Þess vegna hannaði ég flíkurnar með tveimur mögulegum útkomum, og með töl- fræðina frá H&M að leiðarljósi vona ég að flíkurnar verði nýttar betur enda hægt að nota á mismunandi hátt. Einnig hef ég verið með modal og pólýester; þau efni eru spunnin upp úr trjákvoðu í verksmiðjum og eru ekki eins umhverfisspillandi og bómullin þar sem það fer ekki eins mikið magn af vatni í framleiðslu. Ég er enn að taka lítil hænuskref hvað varðar efnin. Það getur verið erfitt og dýrt að nálgast efni sem hafa lítil sem engin skaðleg áhrif á umhverfið. Þær litlu úrklippur sem eftir verða nýti ég í föt á stelpurnar mínar, en margar hugmyndir að minni hönnun hafa kviknað einmitt þegar ég er að því. Smærri afganga nýti ég til að vefa úr. Ég er mjög ánægð með það sem komið er, en ég er stoltust af handprjónuðu peysunum mín- um, sem prjónaðar eru úr 100% endurunninni bómull, sem lituð er með umhverfisvænum litum.“ Hver eru sérkenni hönnunar þinnar? „Ég er afar mikið fyrir hráar lín- ur, og svolítið rokkaralegt „lúkk“ ef svo má að orði komast. Ég blanda því saman með innblæstri sem ég er haldin hverju sinni. Ég byrja allt ferli á rannsóknum og svo er alltaf spurning hversu langt ég fjarlægist þær upplýsingar í hönnuninni. Ég er með þægindin í fyrirrúmi, þar sem mér sjálfri finnst leiðinlegt að klæða mig þannig upp að það sé eitthvað við flíkina sem angri mig, og þar sem ég bý í Kaupmannahöfn þarf ég alltaf að vera tilbúin að hoppa upp á hjólið mitt til að komast á milli staða.“ Hvar er hægt að nálgast vörurnar þínar? „Á Íslandi eru vörurnar mínar seldar í Bianco Kringlunni en hérna í Danmörku hef ég boðið kúnnum að koma á vinnustofuna mína og sjá hvað er til hverju sinni. Það er alltaf best að hafa samband við mig í gegnum Facebook-síðuna mína, www.facebook.com/thelmaby- steimann, þar er einnig hægt að sjá hvað er til hverju sinni, hvort sem það er á Íslandi eða í Danmörku. Svo er ég einnig með plaköt sem ég lét prenta eftir myndum sem ég teiknaði.“ n Tískuævintýri íslenska prjónarans í Kaupmannahöfn n Thelma Björk Steimann skapar fallegar flíkur og muni Hönn- unar- Horn Kolfinna Von Arnardóttir kolfinna@artikolo.is Fallegt prjón Prjónið hennar Thelmu er einstak- lega fallegt. Hér er Thelma í uppáhaldsflíkinni sinni sem fæst nú í Bianco. Stórgert prjón Ein af peysum Thelmu. Grafískar teikningar Teikningarnar voru notaðar sem innblástur að fatalínu Thelmu, en eru nú einnig til sölu, enda falleg vegglist. Fallegar lykkjur Thelma prjónar mikið af prufum áður en hún hannar flíkurnar. Umhverfisvæn hönnun Öll efni sem Thelma vinnur með eru umhverfisvæn og lífræn. af 20% AFSLÁTTUR Gæði og góð þjónusta í 80 ár!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.