Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 36
Helgarblað 18.–21. september 201528 Fólk Viðtal eftir og alveg raddlaus. Ég varð því að fara heim og sofa svo ég gæti mætt á næsta gigg daginn eftir. Sem betur fer, annars hefði maður kannski bara lent í einhverju rugli.“ Missti bróður sinn Þótt Birgitta hafi birst okkur sem þessi glaðlynda, fallega og syngj­ andi stelpa frá Húsavík hefur líf hennar ekki alltaf verið dans á rós­ um. Eitt stærsta áfallið dundi yfir árið sem hún fermdist þegar bróðir hennar stytti sér aldur. „Það var mjög erfitt. Ég var á viðkvæmum aldri og vissi ekkert hvernig ég átti að vera en ákvað að mitt hlutverk væri að passa alla hina. Ég kyngdi því svolítið minni sorg og reyndi að vera ekkert að gráta. Auðvitað er enginn aldur góður í svona lagað en ég var gelgja og fór í þann gír að ætla ekki að brotna. Sorgarferlið varð því erfiðara og lengra fyrir vikið og lauk ekki fyrr en ég var komin yfir tvítugt. Svona reynsla breytir manni. Maður áttar sig á að það er ekki sjálfsagt að við erum öll hér á lífi og heil heilsu. Þessi bróðir minn var þremur og hálfu ári eldri en ég og við vorum miklir vinir og þótt við rifumst líka eins og hundur og köttur vorum við fljót að knús­ ast á eftir. Þetta er svo mikill missir og svo mikil synd. Ég hugsa oft til þess hvernig væri að fara til hans og hans fjölskyldu í kaffi,“ segir hún og játar að hafa sagt syninum frá bróður hennar. „Hann er svo lítill ennþá en hann veit að mamma átti bróður sem var lasinn og er dáinn. Ég held að það sé mikilvægt að fela ekki dauðann fyrir börnunum okk­ ar. Þau skilja hann kannski ekki en þurfa að vita að svona er bara lífið.“ Móðurhlutverkið umfram allt Hún segir soninn spenntan að verða stóri bróðir. „Það voru smá vonbrigði þegar hann fékk að vita að þetta væri stelpa en ekki strákur til að fara með beint út í garð í fót­ bolta en það jafnaði sig fljótt. Hann er svo hlýr persónuleiki og spyr reglulega hvort hann eigi að hjálpa mér að standa upp eða strjúka bumbuna. Hann er strax farinn að vernda mig og litlu systur. Hann er orðinn mikill stóri bróðir og tekur það hlutverk mjög alvarlega,“ segir hún og brosir og bætir svo við: „Að mínu mati er dásamlegast af öllu í heiminum að vera mamma; að vera með svona lítinn einstak­ ling og hafa þau forréttindi að fá að ala hann upp, kenna á heiminn og fylgjast með. Eflaust hljóma ég eins og væmnasta kona í heimi en mér líður svona. Ég myndi velja móður­ hlutverkið fram yfir allt annað,“ segir hún og þvertekur ekki fyrir að eignast fleiri börn. „Það eina sem ég vil núna er að fá barnið mitt heil­ brigt í hendurnar. Þar er ég núna. En ef guð gefur mér fleiri þá tek ég fagnandi á móti þeim.“ Hlustar á hjartað Birgitta fór í tónlistarbransann f yrir tilviljun og segist lítið fyrir að skipuleggja lífið skref fyrir skref. „En ef ég fæ hugmynd elti ég hana og framkvæmi. Mig langaði að gefa út bækur og gerði það og mig lang­ aði að gefa út plötu sem ég vissi að yrði bara fyrir mig og alls ekki sölu­ væn og gaf hana út því listamað­ urinn í mér þráði að gera hana. Ég hef alltaf hlustað á hjartað og kýlt á hlutina, jafnvel þó svo að ég hafi vit­ að að því fylgdi áhætta. Fólk verður að gera það sem ástríðan segir því, sama hvort það er leiklist, tónlist, skriftir eða annað. Maður verður að fylgja sínu enda verður maður aldrei hamingjusamur eða sáttur ef það er eitthvað annað sem kitl­ ar. Nú hef ég náð þessu markmiði að koma út þessum bókum og mitt næsta verkefni er að eign­ ast barn. Núna er ég í þessu og annað veit ég ekki,“ segir hún innt eftir því hvort von sé á fleiri bókum. „Þótt það sé mikilvægt að hafa mark­ mið held ég að það sé ekki gott að vera alltaf að horfa lengra og lengra heldur njóta þess sem við erum að gera núna. Ég vil ekki hugsa lengra en það sem ég ná­ kvæmlega er að gera núna. Ég leyfi mér það ekki einu sinni. Nú ætla ég bara að njóta þess og einbeita mér að því að gera þetta vel. Þegar þessi tvö verkefni eru farin aðeins fjær þá fer hugurinn eflaust aftur af stað.“ n Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is ENGIR MILLILIÐIR LÆGRA VERÐ BEINT FRÁ VERKSMIÐJU okkar eigin framleiðsla hágæða PLANKAPARKET Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is ENGIR MILLILIÐIR LÆGRA VERÐ BEINT FRÁ VERKSMIÐJU okkar eigin framleiðsla hágæða PLANKAPARKET Síðumúla 31 • 08 Reykjavík • S. 5 20 • 84 0470 • www.parketverksm djan.is ENGIR MILLILIÐIR LÆGRA VERÐ BEINT FRÁ VERKSMIÐJU okkar eigin framleiðsla hágæða PLANKAPARKETSíberíulerki Veggklæðningar og pallaefni - Aldrei að bera á - Náttúruleg fúavörn „Hann er svo lítill ennþá en hann veit að mamma átti bróður sem var lasinn og er dáinn Barnabókahöfundur Birgittu fannst vanta fallega myndskreyttar barnabækur og tók málin í sínar hendur. Á von á öðru kraftaverki Birgitta vonar að saga sín hjálpi öðrum konum í baráttu þeirra við barnleysi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.