Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Side 26
2 Heimilið - Kynningarblað Helgarblað 18.–21. september 2015 Flúrlampar ehf. lýsir upp tilveruna F lúrlampar ehf. í Hafnar firði er framleiðslu-, sölu- og þjónustufyrirtæki sem sér- hæfir sig í smíði á lömpum og ljósum, bæði í staðlaðri útfærslu og sérsmíði. Fyrirtækið er eitt þriggja fyrirtækja sem komu úr hafnfirska fyrirtækinu Rafha árið 1977 en Jóhann Haraldsson tók við rekstrinum árið 2004. Flúrlampar ehf. flytur inn mikið úrval af vönd- uðum lömpum, perum og ljósa- búnaði og finnur réttu lýsinguna fyrir þig, hversu sérhæf sem hún kann að vera. Sérsmíði Sérsmíðaðir lampar eru ein helsta sérstaða Flúrlampa, en fyrirtækið framleiðir einnig staðlaða lampa og ljós og vinnur náið með hönnuð- um, arkitektum, verkfræðistofum og rafverktökum að lausnum í lýs- ingu fyrir heimili og vinnustaði. Starfsemin skiptist í grófum drátt- um upp í fjögur svið; framleiðslu frá upphafi til enda, innflutning á fullbúnum vörum og varahlutum, heildsölu og smásölu ásamt öflugri tæknideild. Fyrirtækið býður upp á úrval af LED-vörum, innfelldum ljósum, LED-borðum og prófílum, LED-perum, LED-spennum og LED-stýringum. Ljósastýrikerfi Flúrlampar ehf. býður upp á DALI- ljósastýrikerfi frá Helvar í fjöl- breyttri útfærslu en þau njóta sí- vaxandi vinsælda enda afar hentug og skemmtileg ljósalausn. DALI- ljósastýrkerfið er ljósalausn- in fyrir þá sem gera kröfu um vandaða, fallega og snjalla lýs- ingu, en það má nota á margvís- legan hátt fyrir heimili, fyrirtæki, stofnanir, samkomuhús og fundar- sali. Þess má geta að nýbyggingar eru gjarnan hannaðar með tilliti til möguleika DALI-ljósastýringar. DALI-stýrikerfi eru forritanleg og stýrð með rofaborði, snertiskjá og/eða fjarstýringu og er sjálfvirk tölvustýring möguleg á einfaldan og öruggan hátt. Sem dæmi um fyr- irtæki og stofnanir sem Flúrlampar ehf. veitir þjónustu með Dali-kerfi mætti nefna Íslandsbanka, Lands- banka, fjölmörg hótel, Hörpu, Hvalasafnið, ýmis kjúklingabú, heimili og sumar bústaði. Allar frekari upplýsingar um þjónustu Flúrlampa ehf. má finna á vefsíð- unni lampar.is. n Flúrlampar Fyrirtækið fram- leiðir lampa og ljós og vinnur náið með hönnuðum, arkitektum, verkfræðistofum og rafverktök- um að lausnum í lýsingu. Í réttu ljósi Verði ljós Ljósastýrikerfið DALI gegnir lykilhlutverki í Borgarleikhúsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.