Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 32
8 Heimilið - Kynningarblað Helgarblað 18.–21. september 2015 Einstök verslun fyrir fagurkera Heimahúsið sérhæfir sig í húsgögnum og gjafavöru H eimahúsið er glæsileg verslun sem sérhæfir sig í einstökum húsgögnum og gjafavöru. Fyrirtækið er fjölskyldurekið og hefur alla tíð lagt ríka áherslu á að bjóða fal­ lega muni alls stað­ ar að úr heiminum. Starfsfólk versl­ unarinnar leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum inn í vinalegt og fallegt umhverfi og veita faglega þjónustu og ráðgjöf við val á húsgögnum sem og gjafavöru fyrir öll tækifæri. Einnig er viðskiptavinum boðið upp á ráð­ gjöf og sérpantan­ ir samkvæmt þörf­ um hvers og eins. Tímalaus húsgögn Heimahúsið sérhæfir sig í þjónustu og framleiðslu á húsgögnum fyrir einstaklinga, hótel eða fyrirtæki. Leitast er við að bjóða upp á breitt úrval af hágæða og stílhreinum hús­ gögnum sem sameina glæsileika, þægindi og notagildi. Starfsfólk Heimahússins býr yfir viðamikilli reynslu í húsgagnagerð og hefur fengið sérstaka þjálfun í umhirðu og uppbyggingu húsgagna. Í verslun­ inni fást sérvalin vörumerki, sam­ bland af klassískum húsgögnum sem standast tímans tönn og ný­ stárlegri hönnun sem vekur eftir­ tekt. Efniviður­ inn er ávallt hinn besti sem tryggir langan líf­ tíma og hámarks þægindi. Í Heimahúsinu færð þú ráðgjöf við val á eins­ tökum húsgögn­ um sem uppfylla ströngustu kröfur. Gjafavara í úrvali Í Heimahúsinu er smáatriðum veitt athygli og þar fást smávörur og gjafa­ vörur fyrir öll tækifæri. Munirnir eru valdir af kostgæfni með það í huga að skapa huggulegt og hlýlegt and­ rúmsloft á heimilinu. Borðbúnaður er í úrvali, sem og kertastjakar og skrautmunir. Yndisleg ilmkerti frá sænska framleiðandanum PB Home fást í notalegum ilmi og púðar og teppi frá danska vefnaðar­ vöru fyrir­ tækinu Elvang. Rammar, styttur og lampar fást frá fjölbreytt­ um og ólíkum fram­ leiðend­ um sem allir veita heimilinu einkennandi en persónulegt yfirbragð. Gjafavara frá Heimahúsinu er kjörin fyrir hin ýmsu tækifæri, brúðkaup, útskriftir og afmæli og auðvitað fyrir fagurkera sem elska að hreiðra um sig á fallegu heimili. Heimahúsið er í Ármúla 8 í Reykjavík. Vefsíðan er www. heimahusid.is og Heimahúsið er líka á Facebook þar sem má skoða vöruúrval og leita góðra hugmynda. Verslunin er opin virka daga milli 10.00–18.00 og á laugardögum milli 11.00–16.00. n Vefnaður Motta frá þýska fyrirtækinu CAP. Einstök húsgögn Heimahúsið sérhæfir sig í þjónustu og framleiðslu á húsgögnum fyrir einstak- linga, hótel eða fyrirtæki. Hönnun Leitast er við að bjóða upp á breitt úrval af hágæða og stílhreinum húsgögnum sem sameina glæsileika, þægindi og notagildi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.