Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Blaðsíða 10
10 Fréttir Helgarblað 9.–12. október 2015 Láttu þér líða vel Opnunartími Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00 Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00 Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00 meccaspa.is Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma) Gildir f yrir alla r tegund ir af nu ddi við afhend ingu þe ssa miða. 20% afsláttu r Spretta úr spori fyrir Sýrland Á sunnudag, 11. október, býðst öllum sem vilja að taka þátt í Sýrlandshlaupinu í Laugardal, þar sem hlaupið verður fyrir gott málefni. Það er Rauði kross Ís- lands sem stendur fyrir hlaupinu, en ætla má að flóttamannavandinn í Sýrlandi hafi ekki farið fram hjá nein- um. Um 10 milljónir Sýrlendinga eru á flótta frá ríkinu og á vergangi í leit að öruggum heimkynnum. Hlaupið er fimm kílómetra langt, en styrktarfé sem safnast verður nýtt til að styrkja starfsemi Rauða krossins á Íslandi en hann fjármagnar heilsugæslu á hjólum sem aðstoðar flóttafólk sem þarf á neyðarheilbrigðisþjónustu að halda. Slík heilbrigðisþjónusta felur meðal annars í sér aðstoð við fórnarlömb sprenginga og óbreytta borgara sem hafa orðið fyrir skaða af völdum stríðsátaka. Hlaupið verð- ur ræst klukkan 11.00 fyrir hádegi á sunnudag og hlaupið verður um Laugardalinn og ræst frá Laugardals- velli. Þátttökugjald fyrir þá sem eru eldri en fimmtán ára er 2.500 krónur ef greitt er dagana fyrir hlaupið, en verður 3.500 á hlaupadegi. Börn undir fimmtán ára aldri styrkja Rauða krossinn um 500 krónur með þátttöku sinni. Skráning fer fram á hlaup.is. Hlaupurum býðst súpa eft- ir hlaupið og hressing, en þeir sem taka þátt geta átt von á veglegum útdráttar vinningum. Þá verða þeim spretthörðustu veitt verðlaun. n Safna fyrir neyðarþjónustu á hjólum Fósturbörn verða að upplifa sig sem hluta af fjölskyldunni Vilborg Hjörný Ívarsdóttir gerði meistaraverkefni um líðan og velferð fósturbarna L ykillinn er sá að fósturbörnin upplifi sig sem hluta af fjöl- skyldunni, að þau tilheyri henni,“ segir Vilborg Hjörný Ívarsdóttir en hún skrifaði meistararitgerð sem ber heitið „Far- sæld í fóstri: líðan og velferð fóstur- barna“, sem hún vonar að gefi nýja innsýn í fósturráðstafanir á Íslandi. Vilborg hefur mikla ástríðu fyrir viðfangsefninu en foreldrar henn- ar hafa tekið að sér sex fóstur- börn í gegnum tíðina, í lengri eða skemmri tíma. „Oftast var það til skamms tíma en maður kynntist því við hve ólík kjör og tækifæri börn alast upp.“ Sjálf á hún þrjú börn og segist vera opin fyrir því að taka að sér fósturbarn síðar meir. „Það þarf ekkert að vera að ég láti verða af því en það hefur alltaf verið markmið- ið,“ segir hún. Einstakt tækifæri til að breyta lífi barna Að hennar sögn er hlutverk fóstur- foreldra hins vegar afar krefjandi. „Flestir fósturforeldrar stíga þetta skref af því að þeir vilja láta gott af sér leiða. Það er hins vegar mikil vinna sem fylgir því að taka nýjan einstakling inn á heimil- ið og greiðslur í litlu samhengi við álag og útgjöld.“ Það jákvæða er aftur á móti að fósturforeldrar hafa einstakt tækifæri til þess að hafa já- kvæð áhrif á líf barna, jafnvel þó að dvölin sé ekki löng. „Við þekkjum ekkert annað líf en það sem við ölumst upp við. Meðalaldur þeirra barna sem fara í fóstur er um 10 ár, að mig minnir, og hafa þau börn oft upplifað margt erfitt og einnig farið á mis við mjög margt. Grunngildi þeirra geta verið á skjön við þau sem talin eru æski- leg fyrir þau sjálf og samfélagið og því getur eðlilegt fjölskyldulíf þar sem þeim er tekið opnum örmum haft gífur leg áhrif á slíka einstak- linga til góðs,“ segir Vilborg. Stóð með sjálfum sér Í ritgerðinni tók Vilborg viðtöl við fimm ungmenni á aldrinum 18–21 árs sem öll höfðu verið í fóstri til lengri eða skemmri tíma. Að henn- ar sögn voru þau stödd á mismun- andi stöðum í lífinu. „Það sem ein- kenndi þau sem farnast hafði best var einhver innri þrautseigja, kraft- ur sem gerir að verkum að þau berj- ast áfram sama hvað á dynur. Sem dæmi má nefna einn dreng sem ég ræddi við en hann bjó við van- rækslu móður og afskiptaleysi föð- ur. Hann byrjaði að veslast upp og hætti að mæta í skólann. Hann átt- aði sig hins vegar á því að svona gæti þetta ekki gengið og hafði því sjálfur samband við barnaverndar yfirvöld og óskaði eftir því að losna úr þess- um aðstæðum. Hann lenti svo í erf- iðri reynslu á fyrra fósturheimili sínu og þurfti að fara á annað heim- ili. Hann var aftur á móti svo stoltur af því að hafa staðið með sjálfum sér að það gjörbreytti lífi hans til góðs. Þegar ég ræddi við hann var hann í vinnu en stefndi á háskóla- nám og var bjartsýnn á framtíðina.“ Barnavernd slökkvir elda Aðspurð hverjar séu helstu áskoran- ir barnaverndaryfirvalda segir Vil- borg: „Hjá barnaverndinni starfar frábært fólk sem lætur sig mál- in varða. Hins vegar er tíminn af skornum skammti og viðvarandi fjárskortur. Afleiðingarnar eru þær að starfið felst of oft í því að slökkva elda. Tekið er á erfiðu vandamáli og þegar allt er þrautreynt er barnið sent í fóstur. Allir anda léttar hjá hinu opinbera, þar sem barnið er komið í öruggt skjól, og snúa sér að næsta aðkallandi verkefni en á meðan sitja fósturforeldrarnir og fósturbarnið uppi án stuðnings í ný- samsettri fjölskyldu. Að mínu mati þyrfti að vera áframhaldandi stuðn- ingur fyrir fósturfjölskyldur eftir að fósturbarn kemur til þeirra til að að- stoða við aðlögun allra aðila.“ Festast í láglaunastörfum Hún segir verst þegar fósturbörn finna sig ekki á nýja heimilinu. „Sum börn upplifa aldrei að þau til- heyri nýrri fjölskyldu. Eru hornreka og þegar kemur að 18 ára afmælinu þá þurfa þau að standa á eigin fót- um. Þá fara þau oft í láglaunastörf til þess að sjá sér farborða og hafa lítil sem engin tök á að sækja sér aukna menntun þar sem baklandið getur verið af skornum skammti. Ákvörðunin um að fjarlægja barn af heimili er tilkomin vegna þess að við teljum okkur geta gert betur, en þá berum við líka ábyrgð á því að gert verði betur,“ segir Vilborg. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Vilborg Hjörný Ívarsdóttir „Sum börn upplifa aldrei að þau tilheyri nýrri fjölskyldu.“ „Það sem einkenndi þau sem farnast hafði best var einhver innri þrautseigja, kraftur sem gerir að verkum að þau berjast áfram sama hvað á dynur. Útdráttarverðlaun og súpa Hlaupur- um býðst súpa eftir hlaupið og hressing og heppnir geta fengið verðlaun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.