Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Síða 13
Helgarblað 9.–12. október 2015 Fréttir 13 Lífrænt fæðu „fjölvítamín“ náttúrunnar færir þér yfir 100 næringaefni Verndaðu þig fyrir pestum og náðu þér upp úr flensu* og kvefi með Lifestream Spirulina lífræn bætiefni fyrir alla lífræn bætiefni fyrir alla *Rannsóknir staðfesta árangur Höfnin hafnaði 400 milljóna greiðslum n AGC vill lóð í Helguvík n Thorsil hefur ekki greitt lóðagjöld til Reykjaneshafnar L ögmaður Atlantic Green Chemicals (AGC) segir Reykjanesbæ og Reykjanes- höfn hafa orðið af lóðagjöld- um upp á 400 milljónir króna þegar ákveðið var að fyrirtækið fengi ekki lóð í Helguvík sem því hafi verið lofað árið 2011. Thorsil ehf. fékk lóðina en stjórn hafnar- innar ákvað í síðasta mánuði að gefa fyrirtækinu tveggja og hálfs mánaða frest til að greiða gatna- gerðargjöld sem voru á gjalddaga í lok september. Samkvæmt heimild- um DV leiddi sú ákvörðun til þess að greiðslufall á skuldbindingum Reykjaneshafnar er yfirvofandi en Thorsil hefur ekki greitt nein lóða- gjöld frá því samið var um úthlutun til fyrirtækisins í apríl 2014. Lóðin mikilvæg Jón Jónsson, lögmaður AGC, segir í samtali við DV að fyrirtækið, sem vill byggja lífalkóhól- og glýkól- verksmiðju í Helguvík, hefði þurft að greiða Reykjaneshöfn um 160 milljónir króna einum mánuði eft- ir að lóðinni hefði verið úthlutað. Lóðagjöldin miði við þá 44.467 fer- metra af landi sem verksmiðjan hafi óskað eftir en samkvæmt gjaldskrá hafnarinnar hefði heildargreiðsla lóðagjalda AGC numið alls 400 milljónum króna. „AGC sótti um framkvæmdaleyfi til Reykjanesbæjar í janúar 2015 en var hafnað og því sagt að ástæðan væri sú að það hefði ekki lóð. Þá kom einnig fram að bærinn hefði hafnað að úthluta AGC lóðinni, þvert á fyrri loforð. AGC hafði fengið vilyrði fyrir henni árið 2011 en síðan stöðvaðist verkefnið þegar framkvæmdum við kísilver á næstu lóð seinkaði. Þegar það komst aftur á skrið var búið að úthluta lóðinni til Thorsil,“ segir Jón og heldur áfram: „Hefði lóðinni verið úthlutað til AGC hefðu almenn ákvæði um lóðargjöld orðið virk og það þýtt peninga í vasann fyrir höfnina.“ Fjölmiðlar hafa greint frá dómsmáli sem AGC höfðaði gegn Reykjanes- bæ, Reykjaneshöfn og Thorsil. Málið var þingfest í apríl en frávís- unarkrafa stefndu tekin fyrir í Hér- aðsdómi Reykjaness í lok ágúst. Ekki liggur fyrir hvort málið verður útkljáð fyrir dómstólum eða því vís- að frá. „Þessi ákveðna staðsetning skiptir AGC miklu máli bæði út af nálægðinni við Helguvíkurhöfn en einnig út af því að fyrirtækið ætl- ar sér að nýta afgangsvarmaorku frá kísilveri United Silicon á næstu lóð til framleiðslu á efnunum. Óháð niðurstöðu dómsmálsins þá hefur AGC ekki fengið neinar skýringar á því af hverju lóðinni var úthlutað til Thorsil,“ segir Jón. Stefnir í greiðslufall Reykjaneshöfn, sem er í eigu Reykjanesbæjar, sendi í gær til- kynningu til Kauphallar Íslands þar sem varnaðarorð um að til greiðslu- falls geti komið á skuldbinding- um fyrirtækisins þann 15. október voru ítrekuð. Höfnin sendi aðra til- kynningu í lok síðustu viku og kom þar fram að stjórnendur hennar hefðu óskað eftir fjármögnun frá Reykjanesbæ eftir að samnings- bundnar greiðslur til fyrirtækis- ins skiluðu sér ekki á réttum tíma. Sveitarfélagið hafnaði þeirri beiðni í gær og Reykjaneshöfn óskaði í kjölfarið eftir greiðslufresti og kyrrstöðu tímabili frá kröfuhöfum til 30. nóvember næstkomandi. Fyrirtækið boðaði jafnframt til kröfuhafafundar þann 14. október næstkomandi þar sem fjárhags- staða hafnarinnar verður kynnt og kröfuhafar taka ákvörðun um hvort greiðslufresturinn verði samþykktur. Hákon Björnsson, framkvæmda- stjóri Thorsil, sem vill reisa kísil- málmverksmiðju í Helguvík, vildi í samtali við DV á mánudag ekki upp- lýsa hversu mikið fyrir tækið hafi átt að greiða höfninni í lóðagjöld í lok september. Halldór Karl Hermanns- son, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, segir að höfninni hafi ekki borist neinar greiðslur frá Thorsil vegna lóðarinnar. „Þetta hefur dregist bæði út af skipulagsmálum hjá okkur og svo tók lengri tími en áætlað var að af- greiða starfsleyfi Thorsil. Það sama hefur gerst með aðrar verksmiðj- ur og þetta léttir auðvitað ekki á stöðu hafnarinnar,“ segir Halldór. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is „Hefði lóðinni ver- ið úthlutað til AGC hefðu almenn ákvæði um lóðargjöld orðið virk og það þýtt peninga í vasann fyrir höfnina. Helguvík Reykjaneshöfn hefur verið rekin með alls þriggja milljarða króna tapi frá ársbyrjun 2009. Eins og komið hefur fram á Reykjanesbær, skuldsettasta sveitarfélag landsins, í viðræðum við kröfuhafa sína um verulegar afskriftir á alls 40 milljarða króna skuldum og hefur óskað eftir alls 2,3 milljarða ríkisstyrk vegna hafnarframkvæmda í Helguvík. Mynd SiGtryGGur Ari rekur málið Jón Jónsson, lögmaður AGC, segir umhverfis- mat vegna verksmiðju fyrirtækisins hafa lokið 2012 og að Reykjanes- bær hafi gefið afar jákvæða umsögn um verkefnið. Mynd HErAdS- Myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.