Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Blaðsíða 23
að hafa að skotspæni, því það hefði
auðvitað verið miklu auðveldara að
velja einhverja bögubósa – en hann
valdi sína menn klárlega úr hópi
þeirra bestu.
Ég kynntist fyrst ljóðlist
Gyrðis árið 1983, sama árið og
Djöflaeyjan kom út. Og það
haust var batterí sem kallaði sig
„ Stúdentaleikhúsið“ að undirbúa
sýningu sem snerist um nýjar bæk-
ur sem komu út það árið, og ætl-
uðu semsé að sviðsetja smákafla
úr Djöflaeyjunni. Af því tilefni kom
ég á undirbúningsfund með hópn-
um sem var að leggja á ráðin um
sýninguna, svona til að fylgjast
með því hvað þau ætluðu að gera
við bókina mína. Ég sat þennan
fund auðvitað sem gestur og ætl-
aði ekki að skipta mér af neinu
öðru, eins og vali á öðru því efni
sem þau hygðust flytja. Samt voru
látin ganga nokkur ljóð í kringum
borðið, og bárust meðal annars
í mínar hendur; þetta var niður-
staða starfshóps um hvaða ljóð
skyldu flutt, og svo nokkur í viðbót
sem ekki höfðu hlotið náð hópsins,
en þó verið talin koma til greina.
Ég blaðaði í þessu, og rak augun í
eitt úr hópi þeirra sem hafði verið
hafnað: „Á gullöld plastpokans“
eftir Gyrði þennan Elíasson. Og
bar algerlega af, fyrir kraft og
mælsku og hugmyndaauðgi. Svo
að ég bað afsökunar á slettireku-
skapnum, en sagði að ef þau vildu
hafa almennilegt ljóð í væntan-
legri dagskrá, þá gætu þau ekki
gengið framhjá þessu. Og það varð
úr að þau endurskoðuðu valið, og
þetta langa ljóð Gyrðis var tekið
með, og varð það eftirminnileg-
asti atburður sýningarinnar, þegar
hinn ungi leikari Ari Matthíasson,
nú Þjóðleikhússtjóri, skálmaði um
sviðið og þrumaði þessa ljóðlist
yfir salinn.
Ljóð þetta birtist svo í annarri
ljóðabók Gyrðis, „Tvíbreitt (svig)
rúm“, frá 1984, en árið áður kom
fyrsta bókin hans, „Svarthvít axla-
bönd“ sem var gefin út af prívat-
forlagi á Króknum. Og ég held
það sé óhætt að segja að sjaldan
hafi komið sterkari frumraun frá
ungu skáldi, og strax fyrsta ljóð-
ið í þessari fyrstu bók Gyrðis er
óhugnanlega sterkt:
dagar koma
og í birtíngu sá ég þá aftur
koma þúngstíga yfir hæðina
og bera við kaldsólaðan himin í
þögulli ógn.
Ljóðavertíð
Ég nefndi í byrjun greinarinnar
tvær nýjar ljóðabækur sem ég
hef þegar lesið, en það munu
vera margar fleiri áhugaverðar
ljóðabækur ýmist nýútkomnar
eða væntanlegar; til að mynda
mun vera að koma ljóðabók eftir
Sjón, og þá er nú hátíð í bæ, og
sömuleiðis eftir Lindu Vilhjálms.
Ég held að Íslendingar eigi að geta
haft það gott og yljað sér við þetta
veturinn sem í hönd fer og svo um
ókomin ár. n
Helgarblað 9.–12. október 2015 Umræða 23
Vesturhrauni 5
Garðabæ
S: 530-2000
Bíldshöfða 16
Reykjavík
S: 530-2002
Tryggvabraut 24
Akureyri
S: 461-4800
Grjótharður
vinnufatnaður
Skyrta Einstaklega þægileg
flónelskyrta. Með brjóstvösum og
einum símavasa. Bómullarstyrk-
ingar í ermastroffi og öxlum
Buxur Rassvasar, vasar fyrir
hnépúða, síma- og pennavasi
og lykkja fyrir hamar.
Gallar Með útvíkkunarfaldi í
bakið, brjóstvasi, innaná-vasi,
pennavasi, rassvasi, vasar fyrir
hnépúða og símavasi.
MAIA öryggisskór
Hálfháir skór úr vaxbornu
Nubuck-leðri. Hrinda frá sér
óhreinindum, enginn málmur
í skó, táhlíf úr gerviefni,
stunguvarinn sóli, góður
hælstuðningur.
Mjúkskels
jakki
Tveir hliðarvasar
og brjóstvasi
með rennilás.
Franskur
rennilás á
ermum. Vatns-
heldni 3000mm.
Jakkar Vatteraður, teygja
í baki, hetta sem hægt er
að taka af með rennilás,
loftgöt með rennilás undir
höndum, stroff um úlnliði
og hægt að þrengja með
frönskum rennilás, vasar eru
allir með rennilás og teygja í
mitti að framan, endurskin.
www.wurth.is - www.facebook.com/wurthisland
ÖRYGGISSKÓR VESTA
Stærðir Vörunúmer Litur
37–47 1899 900 9.. Svartur
EN345 S3 CI
• Háir og vandaðir vetrarskór úr vaxbornu Nubuck-leðri
• Hrinda frá sér óhreinindum
• Reimaðir að framan
• Rennilás að innanverðu
• Táhlíf úr gerviefni
• Engin málmur í sóla
• Olíu-, sýruþolinn og stunguvarinn sóli með stöðurafmagnsandspyrnu
• Varanlegt og gott fóður inní skó
• Flytur raka vel út, þökk sé Cambrelle og 200g 3M Thinsulate fóðri
• Laust PU Cambrelle innlegg.
PALLAS öryggisskór
Háir vetrarskór úr mjög
vatnsheldu leðri. Reimaðir
að framan, táhlíf, engin
málmur í sóla, stunguvarinn,
AqvaDRY filma tryggir þurra
fætur, TRX-sóli sem veitir
gott grip.
ÖRYGGISSKÓR PALLAS
Stærðir Vörunúmer Litur
37–47 1899 900 7.. Svartur
SBP SRA E WR HCO CI
• Háir vetrarskór úr mjög vatnsheldu leðri
• Reimaðir að framan
• Táhlíf, engin málmur í sóla, stunguvarinn
• AqvaDRY filma tryggir þurra fætur
• 400 g Thinsulate fóður
• Laust PU innlegg með Cambrelle fóðri
• TRX-sóli sem veitir gott grip við mismunandi aðstæður.
ÖRYGGISSKÓR MAIA
Stærðir Vörunúmer Litur
37–46 1899 900 6.. Svartur
EN ISO 20345:2011 S3
• Hálfháir skór úr vaxbornu Nubuck-leðri.
• Hrinda frá sér óhreinindum
• Enginn málmur í skó
• Táhlíf úr gerviefni
• Stunguvarinn sóli með stöðurafmagnsandspyrnu
• Góður hælstuðningur
• Laust PU-innlegg
• Olíu- og sýruþolinn GII ytri sóli
VESTA öryggisskór
Háir og vandaðir vetrarskór úr
vaxbornu Nubuck-leðri. Hrinda
frá sér óhreinindum, reimaðir að
framan, rennilás að innanverðu,
táhlíf úr gerviefni, enginn málm-
ur í sóla, olíu-, sýruþolinn og
stunguvarinn sóli.
Óskar Árni Óskarsson „Óskar Árni hefur lengi verið eitt af mínum eftirlætisskáldum.“„Um okkar litlu
visku og speki
má segja að hana sé að
finna í ljóðlist; siðfræði
okkar og jafnvel trúar-
brögð eru ekki síður í
Eddukvæðum en þeirri
góðu bók Biblíunni.
Gyrðir Elíasson „Þetta langa ljóð Gyrðis var tekið með, og varð það eftirminnilegasti at-
burður sýningarinnar, þegar hinn ungi leikari Ari Matthíasson, nú Þjóðleikhússtjóri, skálmaði
um sviðið og þrumaði þessa ljóðlist yfir salinn.“ Mynd SiGtryGGur Ari