Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Síða 46
38 Menning Helgarblað 9.–12. október 2015
Aukabúnaður: TREND pakki sem kostar 400.000 í umboði.
Innifalið: Samlitir stuðarar, handfrjáls búnaður, hraðastillir, kastarar,
loftkæling, hiti í framrúðu, hiti í útispeglum, leðurstýri og gírhnúi, LED
ljós í innréttingu, viðarklæðning í flutningsrými, hjólkoppar og drátt-
arkrókur (180.000). Einnig: Fjarstýrðar samlæsingar, Rafdrifnar rúður
og rafdrifnir speglar, spólvörn, stöðugleikakerfi, útvarp, vökvastýri.
Okkar verð:
3.990.000,- án vsk.
( 4.947.600,- með vsk. ) Um 900.000 undir listaverði
NÝR 2015 FORD TRANSIT CUSTOM 290 L2H1 TREND TDCI 125 ←
Vísindi fyrir
almenning
Í Vísindabókinni er að finna
stuttar og auðskiljanlegar útskýr-
ingar fyrir almenning á ýmsu er
varðar vísindi. Þar er líka fjöldi
skýringarmynda, tilvitnanir og
skemmtilegar myndskreytingar.
Lausn á
erfiðum málum
Erfið samskipti er bók eftir
Douglas Stone, Bruce Patton og
Sheilu Heen. Þau eru kennarar
við Harvard-háskóla og hafa sér-
hæft sig í samskiptum, sátta-
umleitunum og lausn deilumála.
Í bókinni fjalla þau um leiðir til að
taka þátt í erfiðum samtölum með
það að markmiði að finna lausnir.
Nýjar bækur Brotin sjálfsmynd þjóðar
í hrunbókmenntum
Guðrún Baldvinsdóttir skoðaði íslenskar skáldsögur um hrunið út frá kenningum trámafræða
H
runið er hinn óyfirstíganlegi
sjóndeildarhringur hugs-
unar okkar í dag – allt snýst
beint eða óbeint um hrunið.
Það er ekki aðeins atburður
í sögubókum heldur var það skyndi-
legt áfall sem gróf undan sjálfsmynd
þjóðarinnar og neyddi hana til að
endurskoða stöðu sína í heiminum –
að minnsta kosti um stund. Guðrún
Baldvinsdóttir, mastersnemi í bók-
menntafræði, hefur rannsakað hvern-
ig sjálfsmynd íslenskrar þjóðar í áfalli
(e. traumatized) birtist í íslenskum
hrunskáldsögum. Guðrún flutti fyrir-
lestur um efnið á málþingi í Háskóla
Íslands í tilefni af opnun þverfaglegs
gagnabanka um hrunið fyrr í vikunni.
Töldum að allt myndi breytast
Guðrún notar kenningar trámafræð-
anna til að greina fyrstu skáldsögurn-
ar sem komu út eftir hrunið og fengust
við það. „Tráma er ekki bara venjulegt
áfall, sem við lendum auðvitað öll í,
heldur er það áfall sem breytir allri
heimsmynd okkar. Það er oft notað
yfir upplifun heilla þjóða, sérstaklega
eftir stríð. Á sama tíma og ég byrjaði
að skoða hrunbókmenntir var ég að
skoða stríðsbókmenntir og sá skugga-
lega svipuð einkenni í viðbrögðum
fólks. Ég verð reyndar sífellt hræddari
við að tala um efnahagshrunið sem
tráma þar sem það er venjulega not-
að í svo afskaplega sterku samhengi
og við virðumst vera í góðum málum
í dag. En á ákveðnum tímapunkti hélt
fólk að allt myndi breytast og það sést
mjög vel í bókmenntum,“ segir Guð-
rún.
Áttu þá við að á þessum tíma hafi þjóð-
in upplifað sjálfsmyndarhrun sem hún
taldi að myndi breyta öllum tengslum
hennar við umhverfi sitt?
„Já, og ég held að það tengist með-
al annars sterkri þjóðernishyggju sem
hefur kannski fengið að lifa á Íslandi
mun lengur en víðast hvar annars
staðar. Það hefur verið trú á ákveðin
séreinkenni Íslendinga og að við eig-
um tilkall til ýmissa hluta vegna þess
að við erum svona og hinsegin. Það er
kannski fyrst með hruninu sem fram
kemur raunveruleg ástæða til að efast
um þetta.“
Hlutverk rithöfundarins
Hvernig sýnist þér íslenskir rithöfund-
ar hafa brugðist við fyrst eftir hrun?
„Mín tilfinning er að annars vegar
hafi þeir verið skrifa til að muna, og
svo hins vegar að rithöfundurinn
hafi farið að líta svo á að hann hefði
ákveðið hlutverk í samfélaginu.“
Hún hefur sérstaklega skoðað
hrunskáldsögur sem komu út strax
árið 2009, um ári eftir hrun bank-
anna og Guð blessi Ísland-ræðuna
og sama ár og mestu mótmælin fóru
fram á Austurvelli. Þetta eru til dæm-
is Bankster eftir Guðmund Óskarsson
og Gæska eftir Eirík Örn Norðdahl.
„Í Bankster fylgjumst við mjög
náið með bankastarfsmanni sem hef-
ur verið sagt upp og sjáum hvernig
hann upplifir ákveðin trámaeinkenni
í sínu persónulega lífi. Á sama tíma er
hann að spegla samfélagið í sjálfu sér.
Hann er að ganga í gegnum það sama
og þjóðin er að ganga í gegnum. Guð-
mundur staðsetur hann mjög skýrt
í tíma. Það er augljóst hvenær hann
er hvar og það er minnst á marga at-
burði og þekkta einstaklinga. Eiríkur
Örn snýr þjóðfélaginu hins vegar al-
veg á hvolf í Gæsku. Þetta er dystópía
og maður þekkir ekki fólkið sem er
þar. En það er bylting sem á sér stað
og karakterarnir eiga í mikilli innri
kreppu. Í bókinni eru afar sterkar and-
stæður milli þess sem gerist fyrir hrun
eða fyrir byltingu, þar sem allt virðist
frábært en öllum líður frekar illa, og
eftir byltingu, þegar allt er hræðilegt
en fólki líður betur. Mér finnst það líka
vera eitt einkenni eftirhrunsáranna
að fólk hugsar að það viti betur núna
og finnst því líða betur, að við séum
kannski fátæk en séum ánægð því
við vitum sannleikann og þetta muni
aldri gerast aftur.“
Trámatísk stíleinkenni
Bækurnar sem um Guðrún fjallar um
eru skrifaðir í miðri hringiðu illskilj-
anlegra atburða. Þeir fjalla ekki aðeins
um áfallið sjálft heldur birtast ákveðin
trámatísk stíleinkenni í bókunum.
„Það er uppbrot í hinni hefð-
bundnu frásögn því tráma er í eðli
sínu eitthvað sem er ekki línulegt
heldur uppbrot. Það sést frekar vel í
þessum bókum. Það eru líka endur-
tekningar og svo er mikið um texta-
tengsl. Það er bókmenntafræðilegt
hugtak yfir það að nota annan texta
og flytja inn í skáldsöguna. Bankster
notar mikið raunverulega atburði,
þennan og hinn tímapunkt, þegar allir
eru á Austurvelli eða þegar Geir Haar-
de hélt ræðu. Í Gæsku notar Eiríkur
hins vegar gamlar blaðafréttir beint
í textanum. En vegna þess að les-
andinn býr yfir ákveðinni þekkingu
eftir hrun – af því að hann veit sann-
leikann um ástandið – eru þær orðnar
mjög skrýtnar fyrir okkur,“ segir Guð-
rún.
Guðrún segir líklegt að þessi fyrstu
viðbrögð höfunda við hruninu séu
ólík þeim sem hafi komið síðar meir.
„Þessar bækur komu út árið 2009 en
það tekur yfirleitt meiri tíma að skrifa
bók. Eiríkur Örn hefur reyndar sagt
að hann hafi verið byrjaður að skrifa
Gæsku fyrir hrun. Það var líka bara
strax búið að skrifa Bankster og koma
henni út, þannig að það er kannski
ekkert sérstaklega djúp fagurfræði í
henni. En hún er mikill vitnisburður
um ákveðinn tíma. Svo koma aðrar
bækur seinna þar sem rithöfundarnir
hafa kannski tekið sér meiri tíma til að
velta hlutunum fyrir sér,“ segir Guð-
rún. n
„Það hefur verið trú
á ákveðin sérein-
kenni Íslendinga og að við
eigum tilkall til ýmissa
hluta vegna þess að við
erum svona og hinsegin.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Guð blessi Ísland Geir Haarde á einu eftir
minnilegasta augnabliki hruntímabilsins.
Guðrún Baldvinsdóttir
„Á ákveðnum tímapunkti hélt
fólk að allt myndi breytast.“