Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Side 52
44 Fólk Helgarblað 9.–12. október 2015
Þ
að gengur mjög vel að vinna
með Sigmari. Hann er frábær;
algjör draumafélagi, þá sér
staklega vegna þess að hann
er svo ofsalega fyndinn,“ segir
útvarpskonan Guðrún Sóley Gests
dóttir sem stjórnar Morgunútvarpi
Rásar 2 ásamt fjölmiðlamanninum
Sigmari Guðmundssyni.
Vont en það venst
Útvarpsþátturinn hefst klukkan sjö
og því þarf Guðrún Sóley að taka
daginn snemma. „Ég mæti klukkan
sex eða jafnvel fyrir sex. Það er vont
en það venst. Við reynum að undir
búa okkur að mestu daginn áður
en það eru alltaf einhver smáatriði
sem þarf að klára. Svo er nauðsyn
legt að vekja röddina og koma sér
í skikkanlegt skap og það geri ég
með því að spjalla við leigubílstjór
ann á leiðinni í vinnuna. Það er ein
mikilvægasta stund dagsins,“ seg
ir Guðrún Sóley sem neitar að fara
snemma að sofa fyrir vikið. „Ég
sofna aldrei fyrir miðnætti og helst
ekki fyrr en eitt, tvö. Hins vegar held
ég mér svo gangandi á „siestum“ hér
og þar. Þannig virkar þetta hjá mér.“
Takmörkuð kunnátta
Guðrún Sóley er 28 ára, menntuð
í bókmenntafræði frá Háskóla Ís
lands. Eftir að hafa starfað sem
blaðamaður á Morgunblaðinu lá
leiðin á fréttastofu RÚV. „Það eina
sem ég kann er að skrifa og tala við
fólk svo það lá beinast við að reyna
að afla mér tekna út á þessa tak
mörkuðu kunnáttu. Ég fór aðallega
í starfið til þess að afla mér lífsviður
væris með þeim hæfileikum sem
mér voru gefnir. En sem betur fer
finnst mér þetta mjög skemmtilegt.“
Útlit fyrir útvarp
Guðrún Sóley tekur ekki undir
að hún sé með sjónvarpsstjörnu
drauma í maganum. „Ég er með
útlit fyrir útvarp og mér líður mjög
vel í útvarpinu. Ég er með útvarps
blæti. Útvarpið er án efa vænleg
asti miðillinn fyrir mig. Annars var
ég á fréttastofunni í tvö ár og tek
þar vaktir
af og til en
fæ ennþá
kvalafullan
kjánahroll
þegar mér
bregður fyr
ir á skján
um. Ég á
rosalega
erfitt með
það. Þess
vegna er ég
best geymd
í útvarpinu.
Það borgar
sig ekki að
sjónvarpa
þessu trýni.“
Goðsögnin Broddi
Aðspurð segist hún alltaf hafa horft
upp til Brodda Broddasonar og
Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur í
bransanum. „Ég dái Brodda. Hann
er goðsögn og dásamlegur maður.
Svo eru ótrúlega margar flottar kon
ur í þessu starfi. Jóhanna Vigdís er
frábær fagkona sem sinnir starfi
sínu af svo mikilli vandvirkni og
hefur afrekað það sem fáum konum
hefur tekist en það er að lifa lengi í
þessum bransa. Konur virðast hafa
svo asnalega stuttan líftíma í ís
lenskum fjölmiðlum. Jóhanna Vig
dís hefur heldur betur sigrast á því
lögmáli.“
Heltekin af dýravernd
Þegar Guðrún Sóley er ekki að
vinna stundar hún jóga, les bækur
og fer út að ganga með hundinn
sinn, Matthildi. Aðspurð hvort hún
fylgist grannt með samfélagsmál
um segir hún svo ekki vera. Það er
skammarlegt að segja frá því að ég
er ekki fjölmiðlamanneskja sem
hefur góða yfirsýn yfir það sem er
í gangi í samfélaginu en ég dáist að
slíku fjölmiðlafólki. Ég sökkvi mér
miklu frekar á kaf í tilviljunarkennd
málefni, sem ég verð ofsalega upp
tekin af. Dýravernd er til dæmis eitt
hvað sem ég hef afar mikinn áhuga
á. Er ekki til eitthvað sjúkdómsheiti
yfir þetta? Ég held allavega að þetta
sé þekkt heilkenni.“ n
„Ég er með
útvarpsblæti“
Útvarpskonan Guðrún Sóley horfir upp til Brodda og Jóhönnu Vigdísar„Það borgar
sig ekki að sjón-
varpa þessu trýni.
Með Matthildi Guðrún Sóley og
Matthildur, hundurinn hennar, búa saman.
Útvarpskona Guðrún Sóley sér um
Morgunútvarp Rásar 2 ásamt Sig-
mari Guðmundssyni. Mynd SiGTryGGur Ari
indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Gera það gott
í útlöndum
Íslenskar uppistandskonur gera
það gott í útlöndum þessa dag
ana. Bylgja Babýlons og Snjólaug
Lúðvíksdóttir, sem báðar hafa
getið sér gott orð fyrir uppistand
heima á Íslandi, eru báðar komn
ar í netúrslit í alþjóðlegu uppi
standskeppninni Jokenation.
Keppnin fer þannig fram að
þátttakendur senda inn 5 mín
útna myndbönd með uppistandi.
Keppnin er alþjóðleg en heimin
um er skipt upp í svæði. Bylgja Ba
býlons segir að það hljóti að telj
ast nokkuð gott að tveir íslenskir
uppistandarar af svæðinu Evrópa
og Rússland hafi komist áfram í 20
manna úrslitin.
Myndbönd þeirra Snjólaugar
og 18 annarra uppistandara eru
nú aðgengileg á netinu og al
menningur getur gefið þeim stig,
eða „læk“. Þeir þrír uppistandarar
sem fá flest stigin komast áfram í
undanúrslit ásamt fimm kepp
endum sem dómnefnd velur. Einn
keppandi frá hverju svæði kemst
svo í lokakeppnina sem haldin er á
stórri grínhátíð í Montreux í Sviss.
Sá eða sú sem stendur uppi sem
sigurvegari fær að fara í heims
reisu með uppistandið.
Bylgja segir að þá sé fyrst von
á gróða, en hún er vön að flytja
uppistand fyrir frían bjór, eins
og stendur í kynningu hennar á
keppnissíðunni. „Ég veit ekki hvort
ég kemst áfram, það veltur allt á
fjölda atkvæða á heimasíðunni.
Þeir sem komast í undanúrslitin fá
svo áheyrn hjá alls konar fólki sem
sér um að bóka uppistandara um
allan heim. Það er frábært tækifæri
til að ná sér í sambönd. Heims
túrinn væri auðvitað draumurinn,
en við sjáum til.“
Bylgja hvetur að sjálfsögðu alla
sem kunna á lyklaborð að heim
sækja heimasíðu Jokenation og
greiða sínu heimafólki atkvæði.